Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 1
Sósialismi eða fasismi.
Svar til Jónasar frá Hriflu.
Eftir Einar Olgeirsson.
Jónas frá Hriflu hefir svarað ritgerð minni um
,,Efling kommúnismans og andóf Jónasar frá Hriflu“
með bækling, er nefnist „Þróun og bylting“ og er 52
síður að stærð. Það er eftirtektarvert tímanna tákn, að
sá maður, sem áður hefir eyðilagt einstaka íhaldsmenn
pólitískt með nokkrum kjallaragreinum í „Tímanum"
og álitinn er einn aðalfjandi íhaldsins í landinu, skuli
nú verða að verjaaðalrúmi,,Samvinnunnar“ogaðalrit-
snild sinni til að berjast gegn kommúnismanum — og
það árangurslaust. Það sýnir að verjendur hins borg-
aralega þjóðfélags á fslandi álíta kommúnismann hér
vera orðinn hættuna, sem þeir verða að snúa öllum
sínum kröftum gegn, og láta því heldur niður falla
innbyrðis kritinn á meðan.
Jónas byrjar með að kvarta yfir því, að eg rakti í
síðasta bækling lið fyrir lið slúðursögur hans og
blekkingar um kommúnismann, og skorar á mig að
taka nú rækilega fyrir aðalatriðin: „Samanburðinn á
hagnýtu gildi hinnar friðsamlegu þróunar og bylting-
arstefnu kommúnista". Skal þetta nú gert ýtarlega,
því engum er kærara en okkur kommúnistum að taka
einmitt þessi aðalatriði rækilega, og verjum við frekar
tíma og rúmi til þess en til smáletursrógsins, isem J. J.
reynir að slá sér upp á af gömlum vana.
193