Réttur


Réttur - 01.04.1969, Page 11

Réttur - 01.04.1969, Page 11
Járom og bætti viS: „Jæja, já ..." og veifaði hendinni. Ambrus Járom og hjúkrunarkonurnar óku gamla manninum burt. Yfirlæknirinn lét fallast niður í stól. Glæsi- leiki hans virtist allur á bak og burt. Hann hvíldi andlitið í höndum sér og sat grafkyrr í tíu mínútur. Hjúkrunarkonurnar héldu uppi lágværum og hughreystandi klið í verkfærun- um. Hreinn og klingjandi hljómur frá gleri og málmi fyllti nýtt og hreint loftið í skurðstof- unni. Þegar Járom kom aftur, sat yfirlæknirinn þar enn og bærði ekki á sér. Er hann kom auga á unga lækninn, stóð hann upp og gekk hægt til dyra. Ambrus Járom elti hann, þegjandi og ó- styrkur í hnjánum. í lyfjastofunni hellti yfirlæknirinn hreinsuð- um vínanda í tvö mælistaup — nákvæmlega fimmtíu millimetrum í hvort. „Annað eins og þetta sér maður víst ekki framar á ævi sinni", sagði hann við hinn unga starfsbróður sinn og hvolfdi í sig úr staupinu. Ambrus Járum drap aðeins tungu í sitt staup og kinkaði kolli. „Hvað er hann gamall, karlinn?" „Rétt á sjötugasta og fjórða árinu ..." „Eins og faðir minn ..." sagði Ambrus Já- rom hljóðlega. Hann kvaddi yfirlækninn með handabandi og skundaði beint á skrifstofu sjúkrahússins. — Hann bað um þriggja daga leyfi. „Fjölskyldumál?" spurði forstöðumaðurinn. „Að vissu leyti. En látum það heita svo með yðar leyfi, að ég taki þessa daga fyrir fram af sumarleyfi mínu." „Þreyttur, ha? Gott og vel. Ég hef ekkert á móti því ...?" Hann hafði þegar heyrt um Ádámfy. Á meðan ritarinn var að ganga frá forms- atriðum, hringdi ungi læknirinn heim til konu sinnar. „Ég þarf snöggvast að bregða mér í heim- sókn til hans pabba." „Nokkuð að, er það?" „Nei. Ég er einungis vanur að ákveða hlut- ina umsvifalaust, eins og þú veizt," svaraði Am- brus Járom. „Gott. Það kann ég einmitt svo vel við. Og það er tími til kominn, að þú skreppir þetta. Ég tek þá saman dótið þitt, er það ekki?" Um það bil sem hann var ferðbúinn ,var orð- ið kvöldsett. Hann steig inn í litla Skódabílinn og ók hægt af stað út úr borginni. Kvöld snemma vors. Aðeins einstöku gný- þungur vöruvagn kom á móti honum með glampandi glyrnur, á leið í borgina með mat- væli til næsta dags. Vagninn hans malaði jafnt og hljóðlega. Hann hefði getað ekið hraðar, en hélt hann kæmi þá of snemma á áfangastað. Hendurnar voru heldur ekki of öruggar á stýrinu, fannst honum. Holskurðurinn um morguninn hafði komið taugum hans í dálítið uppnám. Hann var tuttugu og níu ára, hafði verið kvæntur í tvö ár, og var yngstur sinna bræðra. Þess vegna hafði honum verið kleift að læra. Elzti bróðirinn hirti kálfa á samyrkjubúinu, sá í miðið ók dráttarvél, systur hans voru báðar löngu giftar og móðir hans var látin. Faðir hans átti heima hjá miðbróðurnum. í síðasta bréfi sínu — sem hann hafði fengið tengdadóttur sína til að skrifa, af því hann handlék ógjarna penna — hafði hann látið vel af heilsu sinni; hann fengi sín ellilaun og allt væri með felldu. Litli Skódinn leið hægt áfram eftir veginum og varpaði birtu á langa röð af laufvana öspum. „Óttalegt", hugsaði Ambros Járom. „Sjötíu og þriggja ára ..Hann skalf í köld- um næturvindinum. „Óttalegt", endurtók hann í hálfum hljóðum. Hann virti fyrir sér hendur sínar, þar sem þær hvíldu á stýrinu og unnu verk sitt allt að því sjálfkrafa og eins og þær kæmu honum lítið við. Hann hafði sterkar, 59

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.