Réttur - 01.04.1969, Page 38
— og hann sýnir þegar að hann kann að hag-
nýta þau. Með hjálp vísinda og tækni getur
kapítalisminn náð nýrri valdaaðstöðu, styrkt
stjórnunartæki sín yfir mannfólkinu, af-
skræmt enn meir persónuleika einstakling-
anna, framkvæmt eyðileggingaráform heims-
valdasinna. Það er ekkert sjálfkrafa í hinni
þjóðfélagslegu þróun".
Og hvað gerum við Islendingar? Spurn-
ingin nær einnig til okkar.
ENGLAND
Samkvæmt upplýsingum James Dickens,
eins þingmanns Verkamannaflokksins, eiga
nú 5% af íbúum Bretlands 75% allrar einka-
eignar þar í landi.
PARAGUAY
í Paraguay drottnar fasistastjórn Alfredo
Stroessners undir vernd Bandaríkjanna. Þessi
lærisveinn Hitlers braut2t til valda fyrir 15
árum og hefur komið á í landinu sams-
konar stjórn fangabúða og pyndinga og ríkti
í ríki Hitlers. Framar öllum öðrum eru
kommúnistarnir ofsóttir, af því þeir eru bezt
skipulögðu baráttumennirnir gegn harð-
stjórninni.
]tdio Rojas, prófessor að starfi, var fang-
elsaður 1958 og hefur verið pyntaður hræði-
lega. Oftar en einu sinni hafa böðlar hans
sagt við hann, er versm pyntingarnar stóðu
yfir: „Hvernig þolirðu þetta? Ertu úr steini?"
Og hinn þrautpíndi maður svaraði: „Eg er
kommúnisti". — Rojas var settur í hinar
alræmdu fangabúðir Tacumbú, sem alþýðan
kallar „græna helvítið". Þar þræla fangarnir
12-14 tíma í steinnámum. Pyntingar og ill-
ur aðbúnaður hafa eyðilegt heilsu hans. Hann
er orðinn berklaveikur og er ekki nema skin-
in beinin. 11 ára dýflisa segir til sín.
Harðstjórinn setti þrjá forustumenn
Kommúnistaflokksins fyrir dóm 1960, þá Rojas,
Maidena prófessor og Alcorta hagfræðing. Dóm-
urinn sýknaði þá alla, en ríkisstjórnin kvelur þá
enn í dýflissum sínum. Maidena þjáist nú af
hjartveiki, en Alcorta af æðakölkun. Ríkisstjórn-
in þorir enn ekki að myrða þá vegna almenn-
ingsálitsins og því síður að sleppa þeim.
Þetta er „lýðræðið", sem Bandaríkin vernda
— eins og í Portúgal, Spáni, Suður-Kóreu,
Suður-Víetnam og víðar.
UPPREISN FRANSKA
S V ARTAH AF SFLOT AN S
1919
Nú eru liðin 50 ár síðan hermenn franska
Svartahafsflotans gerðu sína sögulegu uppreisn
til stuðnings hinu unga Sovét-Rússlandi.
Það var í nóvember 1918 að frönsk flotadeild
lét úr höfn og sigldi inn í Svartahaf og hertók
Sevastopol, Odessa og fleiri rússneskar Svarta-
hafshafnir. Tilgangurinn var að hjálpa „hvítu"
hershöfðingjunum Denikin og Koltsjak, til að
steypa Sovétstjórninni.
En brátt uppgötvuðu frönsku hermennirnir,
verkamenn og bændur — til hverra verka átti
að nota þá. Landherinn franski neitaði að hlýða
og í apríl 1919 varð að senda hann heim. Þá
hófst uppreisnin í sjóhernum. 19. og 20. apríl
drógu sjóhermenn á tveim frönskum bryndrek-
um rauða fánann að hún. Yfirstjórn flotans sá
sér þann kost vænstan að yfirgefa Sevastopcl,
er féll í hendur Rauða hersins, og halda með
flotann heim til Frakklands. Nokkrir róttækir
hermenn reyndu undir forystu Marty að ná ein-
um bryndrekanum á sitt vald til að sigla til
Odessa, en mistókst.
Ólgan barst til Frakklands, þar sem verka-
86