Réttur


Réttur - 01.01.1985, Síða 54

Réttur - 01.01.1985, Síða 54
Hernaðarósigurinn í Líbanon 1982 hafði í för með sér að borgaralegi hluti PLO missti kjarkinn og hélt að Bandaríkin hefðu öll tromp á hendi. Undir forystu Yassirs Arafats tök borg- aralegi armurinn strax eftir brottförina úr Beirút upp uppgjafarstefnu. Einkum hef- ur sú staðreynd, að Arafat hefur að mörgu leyti farið sínar eigin leiðir og tek- ið margar geðþóttaákvarðanir, haft í för með sér að andstæðurnar innan PLO hafa skerpst. Og í hans eigin samtökum, Al1 Fatah, gekk þetta svo langt að vopnuð átök brutust út. Þrátt fyrir þá einingu sem náðist á 16. Þjóðþingi Palestínu í Alsír í fyrra, hélt Arafat áfram að taka eigin geðþóttaákvarðanir og fara sínu fram. Þessi einkastefna hans var gjörólík meiri- hlutaákvörðunum Þjóðþingsins og hann jók þannig sundrunguna. Hann reyndi að brjóta andstæðingana í eigin samtökum, A1 Fatah, á bak aftur. Hann dró úr sam- bandinu við þjóðleg arabísk öfl, s.s. Sýr- land og Líbýu, og efldi í staðinn tengslin við afturhaldið. Hann tók upp viðræður við Hussein Jórdaníukonung og reyndi að gera samkomulag við hann þvert á ákvarð- anir Þjóðþingsins. Þegar innbyrðisátök- unum í Trípoli í norður Líbanon um ára- mótin 1983-84 lauk, fór Arafat til Egypta- lands til að gera stjórnvöldum þar kleyft að snúa aftur í hóp arabaríkjanna með Camp David-stefnuna í rassvasanum. Þetta var enn eitt skrefið, sem gekk þvert á ákvarðanir Þjóðþings Palestínu og meira að segja þvert á þá ákvörðun Arabasamtakanna að einangra Egypta- land. Eftir þann mikla stuðning, sem hann hafði fengið frá þjóð sinni á meðan á umsátrinu um Beirút stóð og jafnvel í sambandi við innbyrðisátökin í Trípoli, hélt hann að hann gæti hagað sér eins og honum sýndist. En Egyptalandsferðin vakti reiði og mótmæli Palestínumanna um heim allan. PFLP og DFLP hafa lagt hart að sér til að bjarga einingunni innan PLO og koma á viðræðum milli deiluaðila. Fjögur sam- tök innan PLO hafa sameinast um stefnu- skrá, sem hefur það að markmiði að efla PLO og standa vörð um eininguna. Þau eru, auk PFLP og DFLP, Kommúnista- flokkur Palestínu og Palestínska Frelsis- fylkingin. Þessi lýðræðisöfl innan PLO krefjast þess að Arafat verði gerður ábyrgur gerða sinna. Framferði Arafats er ekki bara sérviskulegt og anarkískt. Stefna hans er andstæðingunum í hag. Hann er kominn inn á hættulega braut sem liggur beint í fangið á Bandaríkjun- um. Það er ekki lengur hægt að líta á Arafat sem sameiginlegan forystumann allra samtaka innan PLO. Hreyfingarnar fjórar krefjast þess enn fremur að sameig- inlegri forystu með fulltrúum frá öllum hreyfingum verði komið á fót, að sam- bandið við Sýrland verði eflt og að hern- aðaraðgerðir PLO í hinni hernumdu Pa- lestínu aukist. Þegar þetta er skrifað fara fram við- ræður milli lýðræðisaflanna í PLO og Al Fatah, sem hafa þann tilgang að finna lausn, sem geti bjargað PLO, bjargað einingunni, sem er mikilvægust fyrir bar- áttuna í dag. í Palestínu heldur baráttan gegn her-^ náminu áfram. Og síonistarnir halda áfram landnámi sínu á Vesturbakkanum, Gaza og Gólanhæðunum. í Bandaríkjunum er haldið uppi umfangsmikilli auglýsinga- herferð til að fá bandaríska gyðinga til að gerast landnema á þessum stöðum — í leiðinni er vonast til að fá inn aukadollara en þeir kæmu sér vel fyrir efnahag ríkis- ins, sem er að gjaldþrotum komið. Með því að flytja til ísrael og setjast að á her- 54

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.