Fréttablaðið - 17.03.2009, Qupperneq 8
17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Karl Georg Sigurbjörns-
son lögmaður, sem ákærður var
fyrir fjársvik í tengslum við sölu
á tíu stofnfjárbréfum í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar fyrir nokkr-
um árum, var sýknaður í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Helgi
Magnús Gunnarsson, saksóknari
efnahagsbrota, telur líklegt að
dómnum verði áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Karli Georg er létt enda kveðst
hann hafður fyrir rangri sök.
Hann telur að „ákæruvaldið hafi
farið af stað með þetta mál í besta
falli af vankunnáttu en í versta
falli af illfýsni. Það er mín til-
finning,“ segir hann og bendir á
að hann hafi sem lögmaður unnið
„fullt af málum sem snúa að emb-
ætti ríkislögreglustjóra“.
Þegar farið hafi verið fram
gegn sér af offorsi hafi hann
farið að „hugsa sinn gang, hvort
einhverjir embættismenn fari í
illsakir við mig af því að ég vinn
mitt starf sem lögmaður. Ég hef
ákveðna skoðun á því. Ég tel að
ákveðnir menn innan embættis-
ins hafi farið gegn mér af offorsi,“
segir hann og telur einn fremstan
í flokki. Það er „Jón H. B. Snorra-
son en ég get ekki fullyrt hvort
hann standi á bak við þetta eða
ekki. Það er bara mín skoðun.“
Karl Georg segir að ákæran
hafi mikil áhrif á sig, bæði sem
persónu og lögmann. „Staða sak-
bornings er mjög vont mál, hvað
þá að vera ákærður, þannig að
þetta skaðar mig. Mitt starf geng-
ur út á trúverðugleika. Þegar ég
sem hæstaréttarlögmaður er
ákærður fyrir fjársvik hefur það
slæm áhrif,“ segir hann.
Helgi Magnús telur „sorglegt
ef vesalings maðurinn“ heldur að
ákæruvaldið hafi farið fram af ill-
fýsni, svo fráleitt sé það. Ákæru-
valdið elti ekki ólar við slíkt. „Ég
veit ekki hvað ætti að kalla fram
þau viðbrögð. Það er algjörlega
fráleitt. Sá sem hér situr og gaf
út ákæru hefur sennilega aldrei
átt nein samskipti við Karl Georg
fyrr en í þessu máli,“ segir hann.
Helgi Magnús bendir á að Jón
H. B. Snorrason hafi ekki gefið út
ákæruna. „Ég veit ekki til þess að
hann beri kala til manna. Ég tók
þá ákvörðun að gefa út ákæru,“
segir Helgi Magnús og telur leitt
ef Karl Georg heldur sig „ofsótt-
an.“
Jón H. B. Snorrason, aðstoðar-
lögreglustjóri höfuðborgarlög-
reglu og saksóknari, segir að lög-
menn eigi rétt á því að vera ekki
samsamaðir þeim sem þeir vinna
fyrir. „Karl Georg má treysta því.
Mér finnst þetta dæma sig sjálft.
Þetta er býsna langsótt og alveg
tilefnislaust,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
Ég tel að ákveðnir menn
innan embættisins hafi
farið gegn mér af offorsi.
KARL GEORG SIGURBJÖRNSSON
LÖGMAÐUR
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Kúplingar
NÝ SALATLÍNA FRÁ
SÓMA SEM BYGGÐ ER
Á LANGRI REYNSLU
AF SAMLOKUGERÐ
MÍN ÁKVÖRÐUN „Ég tók þá ákvörðun
að gefa út ákæru,“ segir Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sýknudómurinn
léttir fyrir lögmann
Hæstaréttarlögmaður var sýknaður af ákæru um fjársvik í tengslum við sölu á
stofnfjárbréfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Telur farið gegn sér af offorsi og Jón
H. B. Snorrason standa þar að baki. „Langsótt og alveg tilefnislaust,“ segir Jón.
VANKUNNÁTTA EÐA ILLFÝSNI Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær í fjársvikamáli á hendur Karli Georg Sigurbjörnssyni. Karl Georg var sýknaður af
ákæru um fjársvik þegar hann hafði milligöngu um kaup á stofnfjárbréfum í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar. Karl Georg telur að „ákæruvaldið hafi farið af stað með þetta mál
í besta falli af vankunnáttu en í versta falli af illfýsni. Það er mín tilfinning.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NORÐUR-ÍRLAND, AP Lögregla á Norður-
Írlandi handtók í gær fleiri meinta liðs-
menn klofningshóps úr Írska lýðveldisher-
num, IRA, sem grunaðir eru um að tengjast
morðum sem framin voru fyrr í mánuðin-
um á breskum her- og lögreglumönnum.
Alls eru nú ellefu manns í haldi vegna
rannsóknar þessara mála. Þeir tveir sem
handteknir voru í gær eru 27 og 31 árs
gamlir og grunaðir um að tengjast morði á
lögregluþjóni 9. mars.
Þeir níu sem handteknir voru í síðustu
viku eru ýmist grunaðir um aðild að þeirri
skotárás eða árás sem gerð var tveimur dögum fyrr
á herstöð í Antrim, vestur af Belfast.
Martin McGuinness, næstæðsti leiðtogi
Sinn Fein, flokks lýðveldissinna, sagðist
vera sannfærður um að samfélagið sam-
einaðist gegn ógninni af ofbeldishneigðum
klofningshópum sem vildu halda borgara-
stríðinu áfram. McGuinness var sjálf-
ur einn af leiðtogum IRA á sínum tíma en
hann er nú í forystu heimastjórnarinnar,
þar sem lýðveldis- og sambandssinnar deila
völdum.
Klofningshóparnir eru að reyna að grafa
undan ákvörðun IRA frá árinu 2005 um að
segja skilið við ofbeldi og afvopnast. - aa
MARTIN
MCGUINNESS
Ellefu manns hafa verið handteknir vegna pólitískra morða á Norður-Írlandi:
Friðarspillum engin grið gefin
VINNUMARKAÐUR Eggert Guðmunds-
son, forstjóri HB Granda, segir að
engar óskir hafi komið frá starfs-
mönnum um að standa við launa-
hækkun sem taka átti gildi um síð-
ustu mánaðamót en frestað hefur
verið fram í júní. 150 milljóna arð-
greiðslur til eigenda félagsins hafa
sætt gagnrýni í ljósi þess að launa-
hækkununum var frestað.
Eggert segist munu fara yfir
málin með starfsmönnum og for-
ystu verkalýðshreyfingarinnar á
föstudag. HB Grandi búi við mikla
rekstraróvissu en hafi tekist að
halda sjó. Arðgreiðslan sé hófleg
eins og alla jafna hjá félaginu.
Eggert vill ekki svara því hvort
til greina komi að láta launahækk-
unina koma til framkvæmda.
Hann segir að með arðgreiðslunni
sem nemur 150 milljónum króna
sé fjármagni í starfseminni veitt
„lítils háttar umbun“.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, hefur
skorað á stjórn HB Granda að láta
launahækkanirnar standa. Kristj-
án Gunnarsson, formaður Starfs-
greinasambandsins, segir arð-
greiðslurnar siðlausar og þá hefur
Efling fordæmt þær.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir stjórnend-
ur HB Granda hugsa um alla hags-
muni sem félaginu tengjast. Hann
reiknar með því að arðgreiðslan
eigi að stuðla að því að halda fjár-
festahópnum saman. - ghs
Forstjóri HB Granda segir engan hafa óskað eftir að laun verði hækkuð strax:
Forstjóri segir fjármagni umbunað
BIÐJA EKKI UM HÆKKUN Farið verður
yfir málið með starfsfólki HB Granda á
föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA