Fréttablaðið - 17.03.2009, Síða 10
10 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 29 Velta:98 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
223 +0,34% 572 +0,21%
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANKI +0,96%
BAKKAVÖR +0,69%
MESTA LÆKKUN
ÖSSUR -2,39%
MAREL FOOD -1,22%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 2,80 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 235,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,45 +0,69% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,75 +0,00% ... Føroya Banki 105,00 +0,96% ... Icelandair Group
11,20 +0,00% ... Marel Food Systems 48,70 -1,22% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Össur 73,50 -2,39%
Veltuaukning gæti numið 32 millj-
örðum króna í verslun og þjónustu
hér innanlands á árinu vegna tekna
af ferðafólki sem hingað kemur og
samdrætti í útgjöldum Íslendinga
erlendis.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Rannsóknaseturs verslunarinnar
við Háskólann á Bifröst, Ferða-
mannaverslun í kjölfar efnahags-
samdráttar.
„Á síðasta ársfjórðungi ársins
2008 fækkaði erlendum ferða-
mönnum til Íslands miðað við
sama ársfjórðung ársins á undan
um 1,3 prósent. Hins vegar eyddi
hver erlendur ferðamaður að jafn-
aði meira en helmingi hærri upp-
hæð í neyslu hér á sama tímabili,“
segir í skýrslunni og vitnað í tölur
Seðlabanka Íslands.
Greiðslukortanotkun Íslendinga
erlendis dróst hins vegar saman um
39,6 prósent á síðasta ársfjórðungi
2008 miðað við sama tíma 2007. Þá
fækkaði á fyrstu tveimur mánuð-
um þessa árs ferðum Íslendinga til
útlanda um 47 prósent miðað við
fyrra ár og heimsóknum erlendra
ferðamanna um 5,8 prósent. „Spáð
er að aukin neysla á Íslandi 2009,
vegna breytinga á efnahagsástandi
og ferðalögum, verði 32 milljarð-
ar króna. Af þeirri upphæð verði
6,4 milljörðum varið til íslenskrar
verslunar.“ - óká
FERÐAMENN Í VERSLUN Fall krónunnar
veldur því að innlend verslun eykst held-
ur, bæði vegna útlendinga og Íslendinga
sem halda sig heima. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Aukin velta í samdrætti
Eignir Straums eru á útsölu
og líklegt að tilvist bankans
færist í sögubækur. Líklegt
er að kröfuhafar fái inn-
lenda starfsemi bankans í
hendur eftir nokkrar vikur.
Straumur greindi frá því í gær að
helmingshlutur í tékkneska fjár-
festingabankanum Wood & Comp-
any hafi verið seldur öðrum eig-
endum Wood fyrir tíu milljónir
evra, jafnvirði 1,4 milljarða króna.
Þeir tóku við stjórninni í gær.
Þá greindi breska viðskiptablað-
ið Financial Times frá því í gær að
Teathers í Bretlandi væri í sölu-
meðferð og hafði eftir Nick Staggs
forstjóra að líklegt sé að fyrirtæk-
ið skipti um hendur fyrir vikulok-
in.
Eftir standa Stamford Partners
og finnska fjármálafyrirtækið EQ
sem líklegt er talið að hljóti sömu
örlög.
Ákvæði í sölusamningi Wood &
Company felur í sér að Straum-
ur fær þrjátíu prósent af hagn-
aði tékkneska bankans næstu tvö
árin, þó að hámarki fimm milljón-
ir evra, jafnvirði rúmra 750 millj-
óna króna.
Straumur keypti tékkneska
bankann fyrir einu og hálfu ári,
eða um mitt ár 2007. Kaupverð var
ekki gefið upp en ætla má, miðað
við þá skuldbindingu sem stóð
eftir á Straumi, að það hafi numið
um 50 milljónum evra, jafnvirði
sjö milljörðum króna á núvirði.
Söluverðið nú er þessu samkvæmt
fimmtungur af kaupverði.
Óvíst er hvað verður um þá
starfsemi sem eftir stendur af
Straumi hér. Líklegt er að skila-
nefnd Straums óski eftir því að
bankinn fái heimild til greiðslu-
stöðvunar ýmist í dag eða á næstu
dögum.
Í framhaldinu verði sett á lagg-
irnar eignarhaldsfélag um þær
eignir sem eftir standa af Straumi
innan nokkurra vikna. Það verður
í eigu kröfuhafa.
Sex hundruð manns starfa hjá
Straumi í Evrópu, þar af hundr-
að hér. Reikna má með að stórum
hluta verði sagt upp en einhverjir
verði ráðnir til starfa með skila-
nefndinni.
Skilanefnd og kröfuhöfum var
kynnt staðan í síðustu viku og tóku
þeir vel í þær hugmyndir sem þar
var velt upp, að sögn Georgs And-
ersens, framkvæmdastjóra upp-
lýsingasviðs Straums.
jonab@markadurinn.is
FORSTJÓRINN FYRRVERANDI OG STJÓRNARFORMAÐURINN Líklegt þykir að kröfuhafar fái í hendur afganginn af eignum Straums
að eignasölu lokinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ólíklegt að nýr banki
rísi úr rústum Straums