Fréttablaðið - 17.03.2009, Síða 24
20 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Á föstudagskvöld var frumsýning
á stóra sviði Þjóðleikhússins. Þrett-
ándakvöld Shakespears á þrettánda
kvöldi mars. Hér er valið að leika
með hálfgrímur og strika út skír-
skotanir og samtímaívitnanir auk
gagnrýni á kirkjuna, sem gerir það
að verkum að erfiðara er að skilja
angist hins hlekkjaða þjóns í einu
af lokaatriðum verksins.
Þetta var skemmtileg sýning, en
það var sorglegt að hlusta á radd-
beitingu nokkurra ungu leikar-
anna, ekki bara sorglegt heldur
hreinlega erfitt. Margir gullmol-
ar hins stórgóða texta sem skipt-
ir sköpum í verkinu fóru algerlega
fyrir ofan garð og neðan hjá áhorf-
endum og þeir sem sátu lengst frá
sviðinu skildu ekki hvað sagt var
á köflum.
Það er leiðinlegt því sýningin
sem myndræn upplifun var hreint
stórskemmtileg og Arnar Jónsson
naut sín til fulls í Malvólíó þjóni
sem gabbaður var svo illilega.
Helgi Hálfdanarson sá mæti þýð-
andi lést á þessu ári og hefði mátt
sýna honum og texta hans virðingu
með því að koma honum betur til
skila. Það er grundvallarmunur á
leiklistarmenntun þeirra sem eldri
eru og þeirra sem við eiga að taka,
að hið talaða orð og meðferð texta í
skóla nútímans er í einhvers konar
aukahlutverki.
Aðferð leikstjórans, hins argent-
ínska Rafael Bianciotto, að bregða
fyrir sig stíl commedía dell arte
í bland við trúðafræði. Mikill
munur var á leik hinna þaulreyndu
og nemanna en þetta er engu að
síður mjög skemmtilegt aðferð.
Vinnukonan María sem Ragn-
heiður Steindórsdóttir léði líf var
kostuleg og hnitmiðuð og fyndin
og hvert orð sem undan grímunni
hraut skildist. Guðrún S. Gísladótt-
ir fer með hlutverk Fjasta, trúðsins
sem tekur þátt í því að fífla þjón-
inn Malvolíó. Gríma sú sem Guð-
rún bar var eins og ýkjur af hennar
eigin andlitsdráttum og því vakti
það mikla kátínu þegar hún lyftir
henni af sér á einum tímapunkti.
Guðrún smýgur léttilega inn í
gervi hins undirförla litla manns
sem einnig tekur upp hreyfingar
kattarins.
Eggert Þorleifsson leikur Andrés
Agahlý, heldur huglausan pilt, en
Eggert lyftir smáatriðum þannig
að hvert orð og hver hreyfing kall-
ar á hlátur áhorfenda. Arnar Jóns-
son fór snilldarlega með hið erfiða
hlutverk Malvólíó. Erfitt er hlut-
verkið sökum þess að það er í því
meiri dýpt og gagnrýni og angist
en lestraraðferð þessarar sýningar
vildi við hafa. Arnar er hér að stíga
sín fyrstu spor með Shakespeare
(furðulegt en það er víst tilfellið)
og vonandi heldur hann áfram á
sömu braut því meðferð tungunnar,
eins og honum er tamt, á svo sann-
arlega við í verkum meistarans.
Lilja Nótt Þórarinsdóttir fór
með hlutverk Olívíu sem missir sig
algerlega í ást á þjóninum og sendi-
boðanum. Hún fer vel með texta
og hefur sterka útgeislun og nær-
veru. Walter Geir Grímsson sem
skipstjórinn í sjóliðadressinu var
óborganlegur. Hann er fimur og
flinkur og flengist um sviðið eins
og engispretta. Það verður gaman
að fylgjast með honum í framtíð-
inni.
Búlki sem Hannes Óli Ágústs-
son ljær fullt líf er stórt og mikil-
vægt hlutverk. Sú hugmynd að láta
hann reyna á röddina og skrums-
kæla hana oní barkann var mikill
misskilningur. Svona teiknimynd-
araddbeiting verður svo mikil and-
stæða við þá sem beita röddinni
sem hljóðfæri. Þrátt fyrir þetta
hefur Hannes Óli mikla og sterka
nærveru.
Bjartur Guðmundsson náði í
hlutverki Orsínó að skapa spætu-
legan spjátrung en misbeitti einnig
röddinni þannig að óþægilegt var
á að hlýða. Aðrir leikendur stóðu
sig vel þó svo að raddbeiting hafi
verið erfið.
Leikmyndin var einföld og
smart, lýsing var smekkleg, tónlist-
in góð með músíkmeistarana sýni-
lega í stúkunum til beggja handa.
Ein lína í búningunum, þessi rjó-
magulu föt án eiginlegrar tíma-
skírskotanna var vel til fundið og
smart.
Það er alveg óhætt að kynna
meistara Shakespeare fyrir ung-
viði landsins með þessari sýn-
ingu.
Elísabet Brekkan
Áfram Shakespeare
LEIKLIST
Þrettándakvöld
eftir William Shakespeare í þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar
Leikstjóri: Rafael Bianciotto
Leikmynd og búningar: Helga I
Stefánsdóttir
Tónlist: Gunnar Karel Másson og
Haraldur Rúnar Sverrisson
Grímugerð: Högni Sigurþórsson
Raddþjálfun og raddsetningar:
Kristjana Stefánsdóttir.
★★★
Skemmtileg sýning með ungum leik-
urum sem kunna ekki á rödd sína
Veljum íslenskt
ALLT SEM HÚN ÞRÁÐI VAR BARA SMÁ YFIRDRÁTTUR
BYGGT Á METSÖLUBÓKINNI
★★★★
S.V Mbl.
★★★★
empire
STÆRSTA OPNUN Í USA Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA 300 KEMUR FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS 2009!
MYNDIN ER BYGGÐ Á SÖGU SEM TIMES HEFUR M.A. VALIÐ
SEM EINA AF BESTU ENSKU SKÁLDSÖGUM SÍÐUSTU ALDAR.
Óskarsverðlaunaleikararnir
Penélope Cruz og Ben
Kingsley fara á kostum
ásamt Dennis Hopper
og Patricia Clarkson í
þessari mögnuðu mynd
frá spænska leikstjóranum
Isabel Coixet.
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
WATCHMEN kl. 5D - 8D - 10:30D 16
WATCHMEN kl. 5 - 8 VIP
ELEGY kl. 5:50 - 8 - 10:10 12
GRAN TORINO kl. 8 12
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 L
DESPEREAUX m/ísl. tali kl. 5:50 L
FRIDAY THE 13TH kl. 10:10 16
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 5:50 L
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 7
WATCHMEN kl. 6D - 9D 16
GRAN TORINO kl. 5:30D - 8D - 10:30D 12
SHOPAHOLIC kl. 6 - 8:10 L
DEFIANCE kl. 10:20 16
WATCHMEN kl. 8 16
MARLEY AND ME kl. 8 L
GRAN TORINO kl. 10:20 12
WATCHMEN kl. 6 - 9 16
SHOPAHOLIC kl. 6 L
GRAN TORINO kl. 8 - 10:20 12
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 örfáar sýningar 7
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 8 12
DEFIANCE kl. 10:30 16
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ
- Í DAG -
KR. 500
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG VIP
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
16
L
12
L
L
MARLEY AND ME kl. 5.50 - 8 - 10.10
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 5.50
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 8
FROST/NIXON kl. 10.10
L
L
12
14
WATCHMEN D kl. 5 - 8 - 10.30
WATCHMEN LÚXUS D kl. 5 - 8
MARLEY AND ME kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE INTERNATIONAL kl. 8 - 10.30
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 3.40
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.30 - 8
THE PINK PANTHER 2 kl. 4 - 6
SKÓGARSTRÍÐ 2 kl. 3.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
L
L
L
12
14
14
L
LAST CHANCE HARVEY kl. 5.50 - 8 - 10.10
MARLEY AND ME kl. 5.30 - 8 - 10.30
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 6
MILK kl. 8
THE WRESTLER kl. 10.30
THE READER kl. 8 - 10.20
VICKY CRISTINA BARCELONA kl. 5.50
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
16
12
L
L
THE INTERNATIONAL kl. 5.30 - 8 - 10.30
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 6 - 9
THE PINK PANTHER 2 kl. 6 - 8 - 10
FANBOYS kl. 5.50 - 8 - 10.10
600kr.
fyrir börn
750kr.
fyrir fullorðna
MYNDIN ER BYGGÐ Á SÖGU SEM TIMES HEFUR M.A. VALIÐ SEM
EINA AF BESTU ENSKU SKÁLDSÖGUM SÍÐUSTU ALDAR
- bara lúxus
Sími: 553 2075
WATCHMEN kl. 7 og 10 16
ÆVINTÝRI DESPEREAUX kl. 6 - Ísl.tal L
HE’S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 8 og 10.30 12
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 12
★★★★★
- S.V., MBL
★★★★★
- L.I.L., Topp5.is/FBL
★★★
- S.V. MBL
POWERSÝNING
KL. 10
Á STÆRSTA TJALDI
LANDSINS MEÐ DIGITAL
MYND OG HLJÓÐI