Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 32
MARKAÐURINN 18. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR6 S K O Ð U N Sögurnar... tölurnar... fólkið... ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRI: Óli Kr. Ármannsson, olikr@markadurinn.is RITSTJÓRN: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, jonab@markadurinn.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadur- inn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. Nú er komið að því að Íslending- ar ákveði hvort þeir ætla að taka höndum saman um að rífa sig upp úr svartnætti vetrarins og horfa fram á veginn með markvissri uppbyggingu samfélagsins eða halda áfram að vorkenna sér. Ég geri ekki lítið úr þeim mikla vanda sem við er að fást vegna at- vinnuleysis, erfiðrar skuldastöðu heimila og atvinnulífs, gjaldeyris- hafta og þeirra alvarlegu tafa sem orðið hafa á endurreisn bankakerf- isins. Mikilli orku hefur verið eytt í að leita svara við því hvað fór útskeið- is og finna þá sem bera ábyrgð. Löggjafinn hefur þegar komið á fót rannsóknarnefnd og embætti sérstaks saksóknara sem hafa það verkefni að leiða sannleikann í ljós og láta þá svara til saka sem kunna að hafa gerst brotlegir. Ég tel mikilvægt að sú vinna fari fram á þeim vettvangi. Við verðum að treysta réttum yfirvöldum fyrir því og láta af þeirri iðju að taka fólk unnvörpum af lífi án dóms og laga. Slík vinnubrögð munu ekki leiða til farsældar. Alþingi götunn- ar bætir okkur ekki. Í ræðu minna á nýafstöðnu iðn- þingi hvatti ég fjölmiðla og aðra áhrifaaðila í þjóðfélaginu til að fara nú að horfa út úr myrkrinu og leggjast á árar með þeim sem vilja taka til við það af krafti að byggja samfélagið upp að nýju. Í efnahagslegu tilliti verður sú uppbygging að fara fram með auk- inni verðmætasköpun í atvinnulíf- inu. Við þurfum öflugan hagvöxt. Við þurfum að skapa störf til að sporna við atvinnuleysi. Við þurf- um að efla útflutning og gjaldeyr- issparandi framleiðslu í landinu. Við þurfum að nýta orkuauðlind- ir og allar aðrar auðlindir lands- ins af fullum þunga en einnig af skynsemi. Við höfum ekki efni á að láta nein tækifæri fram hjá okkur fara. Við höfum ekkert að gera við stjórnvöld eða embættismenn sem hamla gegn uppbyggingu og standa í vegi fyrir verðmætaskap- andi atvinnufyrirtækjum. Á iðnþingi var fjallað um þau miklu tækifæri sem Íslendingar eiga þrátt fyrir allt. Þrátt fyrir skugga vandamála og ógnvekjandi atburða á liðnum mánuðum ríkti bjartsýni á iðnþinginu. Við gerum okkur ljóst að það býr mikill kraft- ur í Íslendingum. Við eigum mikl- ar auðlindir. Við eigum menntað fólk og við eigum fólk sem er vant að takast á við sveiflur og erfið- leika – og sigrast á þeim. Vandinn sem við er að fást er að hluta til huglægur þó hann sé einnig býsna áþreifanlegur. Við verðum að trúa því að Íslending- ar geti náð sér á strik með öflugri atvinnuuppbyggingu og aukinni verðmætasköpun. En það verður einnig að gera þá kröfu að stórlega dragi úr niðurrifi og neikvæðni. Það skilar okkur engu nema von- brigðum. Íslenskur iðnaður gegnir mikil- vægu hlutverki í verðmætasköp- un Íslendinga. Iðnaðurinn verð- ur að leggja mikið til hagvaxtar næstu ára ef endurreisnin á að tak- ast fljótt og vel. Þar verðum við að treysta á hina miklu breidd iðnað- arins, allt frá sprotafyrirtækjum til stóriðju og allt þar á milli. Nú þarf að ljúka nokkrum for- gangsmálum til þess að hjólin fari að snúast í rétta átt: 1. Fyrsta krafan er áfram um lækkun vaxta, afnám gjaldeyris- hafta eins fljótt og aðstæður leyfa og endurreisn stóru bankanna þannig að þeir geti af fullu afli sinnt grunnviðfangsefnum sínum, þjónustu við fólk og fyrirtæki. 2. Það þarf að greiða úr óvissu varðandi sparisjóði og smærri fjármálafyrirtæki, m.a. með því að nýta lagaheimildir til að leggja þeim til 20% eiginfjárframlag þar sem líklegt er að það dugi þeim til að komast á beinu brautina. Þessi fyrirtæki eiga að geta gegnt mik- ilvægu hlutverki í starfsemi á fjár- málamarkaði og skapað mótvægi við núverandi ríkisbanka og aukið samkeppni þegar eðlilegt ástand skapast. 3. Það þarf að taka af skarið varðandi úrlausnir í bankakerf- inu vegna framvirkra samninga sem atvinnulífið og lífeyrissjóðir gerðu í góðri trú áður en bankarn- ir hrundu. Þessi mál hafa verið til umfjöllunar í allan vetur án niður- stöðu. Það er farið að skaða starf- semi aðila mjög alvarlega. Ekki verður lengur undan því vikist að höggva á hnútinn. 4. Það þarf hið fyrsta að taka af- stöðu til niðurfellinga og leiðrétt- inga á uppsöfnuðum skuldum fólks og fyrirtækja vegna ofurvaxta síð- ari ára, gengistapakostnaðar sem er að sliga allt of marga. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi, m.a. frá framsóknarmönnum um 20% niðurfærslu. Þær hafa ekki feng- ið næga athygli fyrr en allra síð- ustu daga. Hugmyndum þeirra, sem fleiri hafa nú tekið undir, er ekki hægt að henda óræddum út af borðinu nema stjórnvöld og önnur ráðandi öfl komi með betri lausnir. 5. Þá vil ég vara við hugmyndum um stofnun sérstaks eignaum- sýslufélags ríkisins sem hefði það hlutverk að taka til sín „þjóðhags- lega mikilvæg“ fyrirtæki með það að markmiði að endurskipuleggja þau fjárhagslega og ráðstafa þeim síðan eftir einhver ár í ríkiseigu og ríkisrekstri. Þetta er afleit hug- mynd og brýnt er að leiða Alþingi það fyrir sjónir að stofnun þessa félags væri afleikur. Íslendingar hafa næga reynslu af fyrirbærum eins og Framkvæmdastofnun rík- isins sem sett var á stofn í byrjun áttunda áratugarins, Hlutabréfa- sjóðnum sem stofnaður var í lok níunda áratugarins og öðru slíku. Sporin hræða og starfsemi slíkra stofnana var kölluð „sjóðasukk“ af sumum og það tók langan tíma að greiða úr þeim vandamálum sem urðu til með starfsemi þeirra. Það verður að leysa vanda stærri fyr- irtækja með öðrum hætti en stofn- un eignarhaldsfélags ríkisins að sænskri fyrirmynd. Við skulum nú varast að sækja allar lausnir og sannleikann til útlanda! Nýtum okkur eigin reynslu – m.a. af því sem gert var rangt fyrir áratugum með vanhugsuðum stofnunum. Nú er mikilvægt að ríkisstjórn og Alþingi afgreiði brýnustu mál áður en kosningabaráttan tekur við af löggjafarstörfum. Það er ekki hægt að bíða fram í mai eða júní eftir að ný ríkisstjórn geti farið að beita sér af krafti. Ef Íslendingar taka nú réttar ákvarðanir og fara að horfa fram á veginn til að vinna úr því sem er jákvætt og mögulegt þá mun rofa fyrr til á Íslandi en ætlað hefur verið. Jákvæð teikn eru aðeins farin að sjást úti í hinum stóra heimi. Ástand mála á heimsmarkaði varða okkur miklu. Ben Bernanke, seðla- bankastjóri Bandaríkjanna, sagði í samtali við CBS-sjónvarpsstöðina í byrjun þessarar viku að hann væri þegar farinn að sjá „græna sprota“ efnahagsbatans. Það eru góðar fréttir. Grænir sprotar efnahagsbatans Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins. O R Ð Í B E L G VIÐTAL 60 MÍNÚTNA Í viðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS kvaðst Ben Bernanke seðlabankastjóri BNA sjá „græna sprota“ efnahagsbatans. MARKAÐURINN/AP 1. Tenglar frá öðrum síðum, sem vísa inn á þína, auka umferð. Með því að fá aðra til að tengja inn á þína síðu eykur þú sýnileika hennar á leitarvélum. 2. Notaðu lénið þitt á bréfs- efni, nafnspjöld og annað auglýsingaefni sem þú gefur út. 3. Gefðu út rafrænt frétta- bréf. Þannig má á ódýran hátt kynna nýjar vörur eða þjónustu og fjölga heim- sóknum á vefinn. 4. Útbúðu „undirskrift“ í tölvupóstinn þinn. Hún ætti að innihalda nafn, síma- númer, merki fyrirtækisins og vefsíðuslóð. 5. Póstlisti er góð leið til að auglýsa t.d. útsölur eða til- boð. Tölvupóstur á póstlista verður að hafa í för með sér ávinning fyrir viðtakendur. 6. Auktu heimsóknafjöld- ann og vertu með getraunir á vefsíðunni og vegleg verðlaun fyrir rétt svör. 7. Ertu bloggari? Hvernig væri að halda úti fyrirtækja- bloggi? 8. Fáðu sérfræðing til að auka sýnileika síðunnar þinnar með leitarvélabest- un. Á T T A G Ó Ð R Á Ð Í B O Ð I A L L R A Á T T A Jón Traus t i Sno r rason f ramkvæmdas t j ó r i A l l r a Á t ta eh f . www.8 . i s Hollráð við vefsíðugerðina Rétt er að halda til haga inntaki erindis Dr. Pedro Videla, prófessors í hagfræði-við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona, á árlegu Viðskipta- þingi Viðskiptaráðs, undir lok síðustu viku. Videla, sem er sérfróður um efnahagskreppur þjóðríkja, gaf þar þjóðríkjum einkunn eftir því hversu viðkvæm þau væru fyrir efna- hagskreppunni. Ísland og Spánn trónuðu í efstu sætunum sem veik- ust fyrir, þar á eftir koma, með heldur skárri einkunnir, Bretland og Bandaríkin. Einkunnina reiknaði prófessorinn út eftir þróun hag- stærða frá árinu 2002 til miðs árs 2007, svo sem hvað varðar þróun eignaverðs og skulda heimilanna. Hér þekkjum við afleiðingarnar í hruni fjármálakerfis þjóðarinnar og Spánverjar geta bara vonað að þeir rati ekki sömu leið. Ólíku er þó saman að jafna, enda Spánn með bakland í evrunni og Seðlabanka Evrópu. Videla benti hins vegar á að afleiðing- ar kreppunnar hér þyrftu ekki að verða alvarlegri en í kjölfar annarra fjármála- kreppna víða um heim, hvað sem liði öllum spám um annað. Hann segir inn- viði íslenska hagkerfisins raunar sterk- ari en margra annarra ríkja og því fulla ástæða til bjartsýni. Vondar ákvarðanir geta hins vegar gert erfiða stöðu þjóðarinnar enn verri og vert að gefa gaum ráðleggingum þeirra sem kynnt hafa sér fjármála- þrengingar þjóðríkja. Videla varar til dæmis við auknum ríkisútgjöldum sem aðgerð til að vinna bug á kreppunni, þar sem langtímaafleiðingar slíkrar stefnu geti orðið mjög alvarlegar. Eiga þau varnaðarorð samhljóm í orðum skugga- bankastjórnar Markaðarins sem birt er í dag, en þar kemur fram að ómarkviss útgjaldaaukning ríkisins gæti orðið til þess að lengja tímabil hávaxta og binda hendur Seðlabanka Íslands í vaxtatilslökun. Annað sem Videla nefndi var að ekki væri skynsamlegt að hækka skatta til að mæta fyrirsjáanlegum skorðum í fjármálum hins opinbera. að hans mati er við núverandi aðstæður allt eins líklegt að skattahækk- anir gætu beinlínis leitt til tekjusamdráttar fyrir hið opinbera. Í umróti dagsins má nefnilega ekki gleymast að horfa til lengri fram- tíðar. Hér finnast að vísu enn fyrirtæki með starfsemi á alþjóðavísu, en hætt er við að þeim fari fækkandi í því umhverfi sem þeim er búið, hvort heldur þau fara fyrir eigið tilstilli eða verða tekin yfir á útsölu vegna krónunnar. Fyrirtæki með slíka starfsemi var fyrst hægt að byggja hér upp eftir að hagkerfið var opnað og tekin upp fjórfrelsis- ákvæði Evrópska efnahagssvæðisins. Óráð væri að hverfa aftur til þeirra tíma að hér þrifust ekki nema smærri fyrirtæki sem einbeittu sér að heimamarkaði. Burtséð frá gjaldeyrishöftum ræður skattaumhverfið miklu um tekjumöguleika ríkisins. Fall fjármálakerfisins í heimskreppunni breytir því ekki að hér þarf að laða fyrirtæki og fólk að með hag- felldu umhverfi. Því ætti ekki að blása af í hugsunarleysi hugmynd- ir sem viðraðar hafa verið um jafna og lága skattprósentu á milli 10 og 15 prósentum. Í slíku skattkerfi væri þegar að finna kjarabót og færð hafa verið rök fyrir því að það myndi skila ríkinu meiri tekjum til lengri tíma litið. Enduruppbygging opins alþjóðlegs hagkerfis kallar svo vitanlega á fleiri breytingar. Þar eru peningamálin mikilvægust. Pedro Videla sagði valið standa á milli upptöku evru með aðild að Myntbandalagi Evrópu eða efnahagslegrar einangrunar. Samanburður við kreppur annarra landa er Íslandi í hag. Góður árangur er þó háður réttum ákvörðunum. Hófleg bjartsýni Óli kristján Ármannsson Fall fjármálakerfisins í heimskreppunni breytir því ekki að hér þarf að laða fyrir- tæki og fólk að með hagfelldu umhverfi. Því ætti ekki að blása af í hugsunar- leysi hugmyndir sem viðraðar hafa verið um jafna og lága skattprósentu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.