Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 14
14 18. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. LUC BESSON LEIKSTJÓRI ER FIMMTUGUR. „Það er alltaf litli mað- urinn sem breytir ein- hverju. Það gera ekki stjórnmálamennirnir eða stóru karlarnir. Hverjir rifu til dæmis Berlínar- múrinn? Það var fólkið á götunni. Sérfræðingana grunaði það ekki daginn áður.“ Luc Besson er franskur leikstjóri og kvikmyndaframleið- andi og stofnaði hann EuroCorp-kvikmyndafyrirtækið. timamot@frettabladid.is „Á morgun er tækifæri til að henda kynþáttafordómum í ruslið, og ef allir setjast niður, líta í eigin barm og velta fyrir sér hvort þeir hafi fordóma og hvaðan þeir koma, hljóta þeir að komast að þeirri niðurstöðu að fordómar byggja alltaf á vanþekkingu,“ segir Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Mannréttindastofu Íslands, í tilefni Evrópu- viku gegn kynþáttamisrétti, sem lýkur á sunnudag. „Við höfum undanfarin ár haldið utan um átakið og ánægju- legt hvað sífellt fleiri aðilar og samtök koma að því og fleiri staðir bjóða upp á dagskrá í tengslum við vikuna. Á morgun verða því fjölmenningarlegir viðburðir klukkan 16.30 í Smára- lind, í Neista á Ísafirði, á Glerártorgi á Akureyri og í Reykja- nesbæ, en í ljósi efnahagsþrenginga viljum við stuðla að al- mennu umburðarlyndi í samfélagi okkar, þar sem allir eiga jöfn tækifæri.“ Guðrún segir birtingarmynd kynþáttamisréttis mismun- andi eftir löndum og menningarsvæðum. „Á Íslandi glímir fólk meira við dulda fordóma en það að kynþáttahatri sé lýst yfir opinberlega. Löggjöf á Íslandi er mjög takmörkuð hvað þetta varðar og hefur aðeins einn dómur fallið þar sem veist hefur verið opinberlega að öðrum á grundvelli kynþátta. Kerfið er því óvirkt þegar kemur að því að vernda fólk gegn kynþátta- misrétti, þrátt fyrir að ákvæði um slíkt sé í almennum hegn- ingarlögum,“ segir Guðrún og útskýrir að með duldum fordóm- um sé til dæmis átt við að fólk af erlendum uppruna eigi erf- iðara með að sækja þjónustu til jafns við aðra, þeir hafi minni atvinnutækifæri og komist jafnvel ekki inn á skemmtistaði. Guðrún segir Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti hverfast um alþjóðadag gegn kynþáttamisrétti, 21. mars, en Allsherj- arþing Sameinuðu þjóðanna valdi daginn í minningu 69 mót- mælenda sem myrtir voru 21. mars 1960, þegar þeir mótmæltu aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku. „Evrópuvikan miðar að upprætingu mismunar, fordóma og þjóðernishyggju í álfunni og stuðlar að umburðarlyndu Evr- ópusamfélagi þar sem allir eru jafnir. Yfirskriftin í ár er fjöl- breytni og leggjum við áherslu á að Ísland er fjölmenningar- samfélag, þar sem allir eiga að hafa jöfn tækifæri, óháð út- liti og uppruna. Mig grunar að Íslendingar átti sig ekki á því enn að við erum hluti af fjölmenningarsamfélagi. Við þurf- um að vera duglegri að opna faðminn fyrir þessum þúsundum manna sem hér hafa sest að, langar að taka þátt í samfélaginu og verða hluti af íslenskri menningu og þjóð.“ thordis@frettabladid.is EVRÓPUVIKA: GEGN KYNÞÁTTAMISRÉTTI Alla fordóma beint í ruslið BURT MEÐ KYNÞÁTTAFORDÓMA Guðrún Dögg Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Mannréttindastofu Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Okkar ástkæra, Ester Magnúsdóttir frá Hellissandi, Melalind 8, Kópavogi, lést mánudaginn 16. mars á Vífilsstöðum. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. mars kl. 13.00. Alexander Alexandersson Hjördís Alexandersdóttir Guðmundur Jón Jónsson Bára Alexandersdóttir Þórarinn Hjálmarsson Erla Alexandersdóttir Sigurður Jón Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, Sveinbjörns Guðbjarnasonar, fyrrverandi útibússtjóra, Vesturvangi 22, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til heimahlynningar og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Sigríður Magnúsdóttir Magnús Sveinbjörnsson Ingibjörg Steina Eggertsdóttir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson Dagbjört Lára Helgadóttir Vilhjálmur Davíð Sveinbjörnsson Elísa Kristinsdóttir Viðar Freyr Sveinbjörnsson Eva Hauksdóttir afabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún R. Einarsdóttir Efstaleiti 14, Reykjavík, sem andaðist hinn 7. mars sl. á líknardeild LSH í Kópavogi, verður jarðsungin frá Grensáskirkju, fimmtudaginn 19. mars kl. 15.00. Einar Már Sigurðarson Helga M. Steinsson Rúnar Geir Sigurðsson Amanda J . Scarlett Sigurður Örn Sigurðarson Ágústína G. Pálmarsdóttir barnabörn og fjölskyldur þeirra. Hjartkær móðir mín, Hulda Einarsdóttir Eyrarlandi, Eyjafjarðarsveit, andaðist á dvalarheimilinu Kjarnalundi föstudaginn 13. mars. Útför hennar fer fram frá Kaupangskirkju laugardaginn 21. mars kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Einar Benediktsson Okkar ástkæra, Kristín Kristjánsdóttir frá Efra-Hóli, Staðarsveit, síðar búsett á Sauðárkróki, lést 11. mars sl. á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Jarðsett verður á Staðarstað laugardaginn 21. mars kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Friðjón Jónsson Hanna Olgeirsdóttir Elskuleg systir okkar og mágkona, Sigríður Guðbjörnsdóttir, Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður Reynimel 92, lést fimmtudaginn 12. mars. Útförin fer fram í kyrrþey. Gyða Guðbjörnsdóttir Stefán Björnsson Sigurlaug Guðbjörnsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, Hjördís Sigríður Björnsdóttir Teigaseli 2, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Björn Sigurðsson Gunnar Örn Sigurðsson Sævar Sigurðsson og fjölskyldur. Okkar ástkæri Bessi Guðlaugsson Hjallaseli 55, áður til heimilis að Bústaðavegi 65, Reykjavík, lést mánudaginn 16. mars 2009. Útför hans verður auglýst síðar. Rakel Guðlaug Bessadóttir Auður Bessadóttir Haukur Sævar Bessason Sigurður Bessason Kári Húnfjörð Bessason Gréta Sigrún Gunnarsdóttir Vésteinn Hilmar Marinósson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Karen Jónsdóttir frá Norðfirði, lést á Landspítala Landakoti fimmtudaginn 12 mars. Margrét Ingimundardóttir Óskar Sigþór Ingimundarson Hrafnhildur Halldórsdóttir Jón Þór Ingimundarson Helena Ingvadóttir Ingi Pétur Ingimundarson Sigrún Pálsdóttir Unnar Smári Ingimundarson Berglind Viktorsdóttir Steinar Örn Ingimundarson Jóna Margrét Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Sigurðar Ólafssonar Bergstaðastræti 68. Sérstakar þakkir fá forystumenn Knattspyrnufélagsins Vals. Vigdís Sigurðardóttir Björn Lúðvíksson Hjörtur Sigurðsson Hafdís Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Menntaskólinn í Reykjavík tapaði fyrir fimm árum síðan í Spurningakeppni fram- haldsskólanna í fyrsta skipti síðan 1992. Gettu betur er spurninga- keppni framhaldsskóla á Ís- landi sem Ríkisútvarpið stendur fyrir árlega. Undan- keppni fer fram í útvarpi og að henni lokinni halda átta lið áfram í útsláttarkeppni í sjónvarp- inu. Keppnin hefur farið fram árlega síðan árið 1986 og er einn vinsælasti dagskrárliður Ríkisútvarpsins frá upphafi. Fyrstu árin sigruðu ýmsir skólar en vorið 1993 hófst sigurganga Menntaskól- ans í Reykjavík sem stóð fram til ársins 2004 þegar Verzlunarskóli Íslands bar sigur úr býtum. Menntaskólinn í Reykjavík er sigur- sælasti skólinn í sögu keppninnar með fjórtán sigra en þar á eftir kemur Menntaskólinn á Akureyri með þrjá sigra og eru þetta einu skólarnir sem unnið hafa oftar en einu sinni. ÞETTA GERÐIST: 18. MARS 2004 Sigurgöngunni lýkur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.