Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 18. mars 2009 17
Hinrik Hænir var í miklum
metum meðal íslenskra ljóða-
unnenda og skálda allar götur
frá því að hann tók að birta ljóð-
mæli sín á þriðja áratug 19. aldar.
Næstu öld var hann mikið þýdd-
ur af fjölda íslenskra skálda og á
ekkert skáld jafnmargar þýðing-
ar og hann ef frá er talinn Shake-
speare. Er mikil synd að ekki
skuli hafa verið safnað saman í
ljóðmæli þeim þýðingum, helst í
tvítyngdri útgáfu, stærsta safnið
sem kom út með þýðingum kvæða
hans árið 1919 sem er falleg lítil
bók.
Nú bætist heldur betur í þýð-
ingar á verkum Hænis, eins og
Fjölnismenn kölluðu hann, því
Einar Thoroddsen, læknir og
lífskúnstn er, hefur þýtt mik-
inn ljóðabálk skáldsins frá 1843:
Deutschland: Ein Wintermär-
chen.
Hænir bjó lungann úr ævi sinni
í París. Hann fæddist 1797, gaf
sína fyrstu bók út 1821 og fluttist
frá Þýskalandi til Parísar 1831 og
bjó þar til dauðadags 1856.
Um bálkinn segir Einar Thor-
oddsen: „Árið 1843 í nóvember
fór Heine til Þýzkalands en hafði
verið í útlegð í París í 13 ár. Hann
kom inn í landið í Aachen fullur
eftirvæntingar og endaði í Ham-
borg eftir miklar „pælingar“, pól-
itískar, trúarlegar, menningarleg-
ar og aðrar sem nöfnum tjáir að
nefna. Hann sá að þjóðin hefur
ekki breyst neitt að ráði, „mör-
landinn“ er sá sami og mjög oft
verður hann fyrir vonbrigðum.
Heine skrifaði bálkinn í mars
1844 og vildi helst ekki breyta
miklu eftir það, því að stundum er
betra að segja hlutina „hráa“ en
að byrja að fága. Bálkurinn er í 27
köflum og bragarhátturinn ekki
alltaf alveg sá sami, en í þýðing-
unni er reynt að nota stuðla, segir
Einar, „höfuðstafi og allt það“
fyrir utan að í henni koma fyrir
hlutir sem gerðust eftir 1844 og
Heine vissi ekkert um enda þótt
hann hafi oft verið forspár.“
Einar ætlar að lesa þýðingu
sína í heild í kvöld í Gamla bíói -
Íslensku óperunni og hefur lestur-
inn kl. 20. Miðasala við inngang-
inn. - pbb
Læknir þýðir ljóðabálk eftir Hæni
BÓKMENNTIR Einar Thoroddsen læknir
hefur þýtt mikinn ljóðabálk eftir Hæni,
uppáhald Fjölnismanna og Hannesar
Hafstein meðal annarra.
Í kvöld verða tónleikar í Nor-
ræna húsinu. Þar eru á ferð þau
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran,
Einar Jóhannesson, klarinett, og
Valgerður Andrésdóttir, píanó,
eða Trio Varioso, eins og þau kalla
sig. Með þessum tónleikum hefst
tónleikaröð Félags íslenskra tón-
listarmanna í samvinnu við Nor-
ræna húsið. Trio Varioso mun í
kvöld flytja blandaða efnisskrá
með ljóðasöng og tónverkum eftir
íslensk og dönsk tónskáld fyrir hlé,
Hafliða Hallgrímsson, Atla Heimi
Sveinsson, Peter Heise og Niels W.
Gade.
Eftir hlé mun frönsk og þýsk
sveitastemning vera ríkjandi en
þá verða flutt verk eftir Schubert,
Chausson og Pierne. Á tónleikun-
um verða frumflutt tvö lög eftir
Atla Heimi Sveinsson sem hann
hefur skrifað fyrir tríóið, Þröstur
í tré við sjúkrahús og Skógarhind.
Tónleikarnir hefjast kl. 20. - pbb
Tónleikaröð í
Norræna húsinu
TÓNLIST Ingibjörg Guðjónsdóttir sópr-
ansöngkona, Einar með klarinettið og
Valgerður við píanóið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 18. mars 2009
➜ Tónleikar
12.30 Tríó Hak flytja verk eftir Sunnu
Gunnlaugsdóttur, Tómas R. Einarsson
og Sigurð Flosason á háskólatónleikum
í Hátíðarsal Háskóla Íslands, aðal-
byggingu.
20.00 Félag íslenskra tónlistarmanna
stendur fyrir tónleikaröð í Norræna
húsinu við Sturlugötu. Í kvöld mun Trio
Varioso flytja blandaða efnisskrá með
ljóðasöng og tónverkum eftir Schubert,
Chausson, Atla Heimi Sveinsson og
fleiri.
➜ Leiklist
16.00 Forsýning verður
á leikverkinu „Ég heiti
Rachel Corrie“ eftir
Alan Rickman og Kath-
erine Viner. Þóra Karítas
Árnadóttir flytur verkið
í Borgarleikhúsinu við
Listabraut.
➜ Fyrirlestrar
16.30 Ingunn Ásdísardóttir leikstjóri
og þýðandi, flytur erindi um þýðingar
á leikritum og skáldritum í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.
➜ Dans
Nemendur úr Dansskóla Birnu Björns
verða með þrjár sýningar í Borgarleik-
húsinu við Listabraut þar sem þau sýna
Hipp hopp, jazzballet, Broadwaydans og
margt fleira. Sýningarnar verða kl. 17,
18.30 og 19.30.
➜ Sýningar
Á Skörinni í Handverki og hönnun við
Aðalstræti 10, hefur Katrín Jóhannes-
dóttir opnað sýningi á prjónuðum kjól-
um, peysum og fylgihlutum. Opið alla
virka daga kl. 9-18, fim. til kl. 22 og um
helgar kl. 12-17.
➜ Söngleikir
20.00 Verðandi,
leikfélag Fjölbrauta-
skólans við Garða-
bæ, sýnir söngleik-
inn Chicago í Urða-
brunni, Hátíðarsal
FG við Skólabraut.
➜ Ljósmyndasýningar
Í Gerðarsafni við Hamraborg í Kópavogi
stendur yfir sýning Blaðaljósmyndarafé-
lags Íslands auk þess sem opnuð hefur
verið sýning ljósmyndarans Jim Smart.
Opið alla daga nema mán. kl. 11-17.
➜ Myndlist
Guðmunda Hulda Jóhannesdóttir
(Munda) hefur opnað sýningu á vatns-
lita- og akrýlmyndum á Café Mílanó
í Faxafeni. Opið mán.-fim. kl. 9-23.30,
fös. kl. 9-22, lau. kl. 9-18 og sun. kl.
12-18.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
styrkir