Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 18. mars 2009 1
Boðið verður upp á ferð og fræðslu
fyrir einhleypa á Hótel Heklu dag-
ana 23. til 26. apríl. ÍT ferðir standa
fyrir námskeiðinu í samstarfi við
Hrefnu Birgittu Bjarnadóttur, NLP-
kennara og lífsþjálfa. „Þó að þetta
sé ferð fyrir einhleypa þá erum við
ekki að hugsa um að para saman
fólk. Þetta er ekki stefnumótaferð
heldur frekar náms- og skemmti-
ferð fyrir einhleypa. Þá erum við
ýmist að hugsa um fólk sem hefur
lent í því að missa maka, hefur skil-
ið eða er bara einhleypt og lang-
ar að skoða stöðu sína í lífinu,“
segir Harpa Hrönn Stefánsdóttir,
afgreiðslustjóri hjá ÍT ferðum.
Ferðin kostar 69.900 krónur en
innifalið í verðinu eru gisting í
þrjár nætur í tveggja manna her-
bergi, fullt fæði, námskeið, nám-
skeiðsgögn og eitt kvöld með eft-
irfylgni. Aukagjald vegna einbýlis
er 6.900 krónur fyrir þrjár nætur.
„Fræðslan er sniðin fyrir einhleypa
og þar verður meðal annars skoð-
að hvernig óvæntar breytingar geta
haft áhrif á líf okkar og hvernig við
og umhverfið bregðumst við,“ segir
Harpa Hrönn áhugasöm og bætir
við: „Hrefna Birgitta hefur yfir
25 ára reynslu í sínu fagi og hefur
haldið fjölda námskeiða um BTM;
breytingar, tækifæri og markmið,
fyrir einstaklinga og fyrirtæki
á Íslandi og í Noregi. Um þess-
ar mundir starfar hún líka fyrir
Vinnumálastofnun við að hjálpa
fólki að rífa sig upp úr því sem er
að gerast núna. Á okkar námskeiði
er kennt hvernig má á einfaldan
hátt setja sér raunhæf markmið og
breyta lífsstefnunni í þá átt sem við
óskum.“
Ferðin er hugsuð sem tækifæri
fyrir einhleypt fólk til að setja sér
markmið í lífinu og kynnast nýju
fólki um leið og það upplifir eitt-
hvað öðruvísi og spennandi. „Í raun
er þetta bara hvatning fyrir fólk að
lifa lífinu lifandi og áhersla er lögð
á hvernig við veljum að bregðast
við aðstæðum,“ segir Harpa Hrönn
og nefnir að ein af ástæðunum fyrir
því að námskeiðið er haldið á Hótel
Heklu sé sú að þá byrji allir á sama
reit. „Við vildum ná fólki úr sínu
eigin umhverfi og fá það til að fara
í meiri einangrun til að einbeita
sér að námskeiðinu frá morgni til
kvölds. Þá eru allir á nýjum stað og
ekkert utanaðkomandi áreiti trufl-
ar einbeitinguna og fólk kynnist
betur.“
Oft bjóða ferðaskrifstofur upp á
pakkaferðir fyrir pör eða hópa en í
þessu tilfelli er áherslan lögð á ein-
hleypa. „Ákveðið hugrekki þarf til
að fara einn í einhverja hópferð en
þarna eru allir á sömu forsendum
og svipuðum stað í lífinu,“ segir
Harpa Hrönn einlæg. Nánari upp-
lýsingar um ÍT ferðir og námskeið-
ið má finna á itferdir.is og bruen.is.
hrefna@frettabladid.is
Upplifunin skiptir máli
ÍT ferðir eru að fara af stað með spennandi námskeið fyrir einhleypa undir yfirskriftinni Ferð og fræðsla
fyrir einhleypa. Námskeiðið er unnið í samvinnu við lífsþjálfa og fer fram á Hótel Heklu í apríl.
Harpa Hrönn segir ÍT ferðir sérhæfa sig í öðruvísi ferðum eins og til dæmis íþrótta-
og hvataferðum. Ferðin á Hótel Heklu er hugsuð fyrir einstaklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEIÐIKORTIÐ
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 kr.
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum
fylgir. Nánari upplýsingar á www.veidikortid.is
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!