Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MIÐVIKUDAGUR 18. mars 2009 — 67. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Jón Baldur Þorbjörnsson er nýkom-inn heim úr fyrstu Iceland Trophy Winter-ferðinni þar sem ekið var um Suðurland og inn á hálendið á sérútbúnum Land Rover-jeppum. Segja má að ferðin sé smækkuð útgáfa af Camel Trophy-keppn-inni, sem haldin var víða um heim á árunum 1980 til 2000, að því leyti að ferðamenn aka sjálfir um ævintýralegar slóði á mikil upplifun fyrir þátttakend-ur sem voru frá Sviss, Hollandi, Þýskalandi og Bretlandi,“ segir Jón Baldur, sem rekur ferðaskrif-stofuna Ísafold Travel sem hafði umsjón með ferðinni. „Þetta er skemmtileg nýj-ung í ferðaþjónustu á Íslandi enferðamenn hafa hin ð leggja upp í svona ferð og þurfa þátttakendur að kunna eitthvað fyrir sér. Við leggjum þó mikið upp úr öllum öryggisatriðum og erum bæði með mann með öflug-an bíl sem fer fyrir hópnum og eftir reku.“ Jep Á Land Rover um landið Jón Baldur Þorbjörnsson hefur margra ára reynslu af leiðsögumannastörfum og hefur ferðast um landið þvert og endilangt. Hann er nýkominn heim úr ánægjulegri en krefjandi jeppaferð um suðurhálendið. Jón Baldur Þorbjörnsson (til hægri), leiðsögumaður og eftirreka í ferðinni, ásamt bróður sínum, Þorvarði Inga Þorbjörnssyni, sem var fararstjóri og fór fyrir bílalestinni. MYND/ÚR EINKASAFNI SKÓHILLA sem hægt er að sitja á er mjög góður kostur í forstofuna. Mörgum finnst erfitt að standa þegar þeir fara í skóna og þá þarf ekki að eyða plássi í stóla. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir 12V 3,6A 12V 0,8A Tilboð í mars10% afsláttur af þessum tveimur tækjum ER RAFGEYMIRINN TÓMUR? HLEÐSLUTÆKI VEÐRIÐ Í DAG JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON Hefur 25 ára reynslu af leiðsögumannastörfum • ferðir • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS Súrmjólk á tilboði! Ávaxta- og karamellu- súrmjólk á tilboði í mars. 0 9 -0 3 5 4 / H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Fáklæddir á skautum Íshokkíleikmenn Skautafé- lags Reykja- víkur fækka fötum í nýju dagatali. FÓLK 20 Fjölmenningar- legir viðburðir Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti stendur nú yfir. TÍMAMÓT 14 VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Klippir næstu mynd Thomasar Vinterberg Endurnýjar kynnin við leikstjóra Veislunnar FÓLK 26 FÓLK Jóhanna Guðrún, fulltrúi Íslands í Eurovision, fer á nám- skeið um íslenska efnahagshrun- ið. Þar verður hún frædd um allt sem snýr að efnahagshrun- inu og und- irbúin undir erfiðar spurn- ingar frá evr- ópskum blaða- mönnum. Að sögn umboðs- manns hennar og talsmanns Euro visionhópsins, Maríu Bjark- ar Sverrisdóttur, verður nám- skeiðið ekki skoðanamyndandi heldur á það að gera henni kleift að koma vel fram fyrir hönd þjóðarinnar. „Íslendingar eru ekki vinsælasta þjóð í heimi um þessar mundir og Jóhanna mun eflaust þurfa að svara erfið- um spurningum á blaðamanna- fundum í Moskvu,“ segir María Björk. María segir hins vegar ekki ákveðið hver muni sjá um nám- skeiðið fyrir Jóhönnu en það ætti að liggja fyrir á næstunni. - fgg/sjá síðu 26 Jóhanna Guðrún: Á námskeið um bankahrunið JÓN GUNNAR GEIRDAL Unnið að komu Stieg Larsson Karlar sem hata konur til Íslands FÓLK 26 Bóla, krass, bóla, krass Lífið er bóla, las Einar Már Jóns- son haft eftir skáldmæltum miðl- ara. Nú eru menn þegar farnir að undirbúa næstu fjármálabólu – og næsta hrun. Í DAG 12 HLÝTT Í dag verður víðast hæg suðlæg átt. Rigning eða skúrir sunnan og vestan til fyrir hádegi en víðast úrkomulítið eftir hádegi. Bjart með köflum norðaustan og austan til. Hiti 5-10 stig. VEÐUR 4 6 8 8 68 VIÐSKIPTI „Ég sé engin rök fyrir því að halda vöxtum háum. Miðað við allan þann samdrátt sem væntan- legur er í kerfinu þarf að lækka stýrivexti strax,“ segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greining- ardeildar Nýja Kaupþings. Stýrivaxtalækkun sé forsenda þess að hægt sé að ráðast í aðgerðir til aðstoðar heimilum og fyrirtækjum í fjárhagsvand- ræðum. Hér þarf á næstu vikum að lækka stýrivexti um allt að 400 punkta, eða 4,0 prósentustig, að mati skuggabankastjórnar Markaðarins. Í henni á Ásgeir sæti ásamt Eddu Rós Karlsdóttur, hagfræðingi í Nýja Landsbankanum, Þórði Friðjónssyni, forstjóra Kauphallarinnar, og Ólafi Ísleifssyni, lektor við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík. Seðlabanki Íslands kynnir ákvörðun sína um stýrivexti á morgun, fimmtudag. Er það fyrsta stýri- vaxtaákvörðun bankans eftir að ný lög um hann tóku gildi og breytingar voru gerðar á yfirstjórn hans og vinnulagi við vaxtaákvörðunina. - óká / sjá Markaðinn Lækkun vaxta sögð forsenda aðgerða til aðstoðar heimilum í greiðsluvanda: Stýrivextir lækki í 14 prósent EFNAHAGSMÁL Tuttugu prósenta afskrift af skuldum heimila og fyrirtækja myndi kosta um 800 milljarða samkvæmt útreikning- um Fréttablaðsins. Gera má ráð fyrir að húsnæðisskuldir rúm- lega 78 þúsund heimila nemi um 1.300 milljörðum og er þá miðað við upplýsingar um dreifingu húsnæðisskulda, sem Seðlabank- inn hefur birt. Þar af er innan við helmingur, eða um 600 millj- arðar vegna húsnæðislána heim- ila í þröngri eiginfjárstöðu, það er heimila sem eiga lítið eða nei- kvætt eigið fé í heimilum sínum. Eiginfjárstaðan segir þó ekkert til um greiðslugetu heimilanna. Auk þessa eru sjóðslán lífeyris- sjóðanna 165 milljarðar. 20 prósent afskriftir af húsnæðisskuldum ein- vörðungu myndu því kosta um 300 milljarða króna. Skuldir fyrirtækja í nýju bönk- unum eru um 2.500 milljarðar og sama afskrift þeirra skulda myndi kosta um 500 milljarða. Um 3.000 milljarðar af fyrirtækjaskuldum urðu eftir í gömlu bönkunum. Einungis hluti húsnæðisskulda liggur hjá bönkunum þremur. Auk 165 milljarða hjá lífeyrissjóðum eru útlán Íbúðalánasjóðs að minnsta kosti um 550 milljarðar. Niðurfell- ing lána hjá Íbúðalánasjóði og líf- eyrissjóðunum myndi því kosta um 140 milljarða. Þá á eftir að taka til- lit til lána sparisjóðanna. Hlutur bankanna þriggja í fasteignalánum er innan við helmingur húsnæðis- lána og færi því meirihluti niður- greiðslunnar í að greiða niður lán annars staðar en hjá bönkunum. Tryggvi Þór Herbertsson og Framsóknarflokkurinn sem hafa kynnt hugmyndir um 20 prósenta niðurfellingu skulda heimila og fyrirtækja, hafa haldið því fram að nýju bankarnir hafi keypt lána- safn gömlu bankanna með 50 pró- senta afslætti og því sé rúm til að lækka skuldir. Samkvæmt upp- lýsingum frá bönkunum er ekki búið að selja lánasöfnin heldur er verið að meta virði þeirra. Um allar afskriftir þarf að semja við kröfuhafa og ekki er talið líklegt að kröfuhafar samþykki afskrift- ir á lánum sem annars myndu inn- heimtast. Kostnaðurinn myndi því líklega falla á ríkissjóð. Allmargir hagfræðingar sem Fréttablaðið ræddi við í gær, fyrir utan Tryggva Þór, sögðu hugmynd- ina slæma, þar sem hún yrði rík- issjóði dýr án þess að aðstoða þá sem mest þyrftu á hjálp að halda. - ss Afskriftir kosta 800 milljarða Miðað við greiningu Seðlabankans á skuldastöðu heimila myndi kosta um 300 milljarða að lækka húsnæðis- skuldir um tuttugu prósent. Þar af kostar niðurfelling lána Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða 140 milljarða. MÓTMÆLASKJAL AFHENT Indefence-hópurinn afhenti mótmælaskjal við breska þinghúsið í gær sem innihélt 83.300 nöfn Íslendinga sem mótmæla því að hafa verið skilgreindir sem hryðjuverkamenn. Á myndinni má meðal annars sjá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, og Orra Pál Dýrason, trommara Sigur Rósar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JÓHANNA GUÐRÚN Keflavík og KR áfram Keflavík og KR tryggðu sér í gær sæti í undanúr- slitum úrslita- keppninnar í körfuboltanum. ÍÞRÓTTIR 22

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.