Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Jón Baldur Þorbjörnsson er nýkom- inn heim úr fyrstu Iceland Trophy Winter-ferðinni þar sem ekið var um Suðurland og inn á hálendið á sérútbúnum Land Rover-jeppum. Segja má að ferðin sé smækkuð útgáfa af Camel Trophy-keppn- inni, sem haldin var víða um heim á árunum 1980 til 2000, að því leyti að ferðamenn aka sjálfir um ævin- týralegar slóðir á Land Rover. „Þetta var fimm daga ferð um suðurhálendið þar sem reyndi mikið á aksturshæfileika þátttak- enda auk þess sem þeir þurftu að bjarga sér við krefjandi aðstæð- ur. Við keyrðum yfir Langjökul upp að Kili, um Línuveg að Land- mannalaugum og Heklu svo dæmi séu tekin og var þetta að vonum mikil upplifun fyrir þátttakend- ur sem voru frá Sviss, Hollandi, Þýskalandi og Bretlandi,“ segir Jón Baldur, sem rekur ferðaskrif- stofuna Ísafold Travel sem hafði umsjón með ferðinni. „Þetta er skemmtileg nýj- ung í ferðaþjónustu á Íslandi en ferðamenn hafa hingað til ekki getað leigt sér breytta jeppa til að spreyta sig á. Um er að ræða virka ferðaþjónustu þar sem ferða- menn hafa sjálfir fyrir hlutunum og koma sér á milli staða,“ segir Jón Baldur en honum þykir sér- staklega mikilvægt að bjóða upp á nýjungar í ferðaþjónustu nú á erfiðum tímum til að laða erlenda ferðamenn að landinu. „Það eru engir nýgræðingar sem leggja upp í svona ferð og þurfa þátttakendur að kunna eitthvað fyrir sér. Við leggjum þó mikið upp úr öllum öryggisatriðum og erum bæði með mann með öflug- an bíl sem fer fyrir hópnum og eftir reku.“ Jeppunum, sem eru tíu talsins, var öllum breytt hjá fyrirtækinu SS Gíslasyni sem sérhæfir sig í breytingum á Land Rover. Þeir voru allir gerðir eins úr garði og sérhannaðir fyrir íslenskar aðstæður. Í sumar býður Ísafold Travel upp á sams konar ferð sem kallast Iceland Trophy Summer Edition. Sú ferð verður tíu daga löng og nær yfir stærra svæði. Sjá nánar á www.isafoldtravel.is vera@frettabladid.is Á Land Rover um landið Jón Baldur Þorbjörnsson hefur margra ára reynslu af leiðsögumannastörfum og hefur ferðast um landið þvert og endilangt. Hann er nýkominn heim úr ánægjulegri en krefjandi jeppaferð um suðurhálendið. Jón Baldur Þorbjörnsson (til hægri), leiðsögumaður og eftirreka í ferðinni, ásamt bróður sínum, Þorvarði Inga Þorbjörnssyni, sem var fararstjóri og fór fyrir bílalestinni. MYND/ÚR EINKASAFNI SKÓHILLA sem hægt er að sitja á er mjög góður kostur í forstofuna. Mörgum finnst erfitt að standa þegar þeir fara í skóna og þá þarf ekki að eyða plássi í stóla. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir 12V 3,6A 12V 0,8A Tilboð í mars 10% afsláttur af þessum tveimur tækjum ER RAFGEYMIRINN TÓMUR? HLEÐSLUTÆKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.