Morgunblaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 F 3
MIKIL SALA - VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ
BARMAHLÍÐ Rúmgóð 107 fm efri sérhæð
ásamt frístandandi 18,9 fm geymslu sem innrétt-
uð hefur verið sem íbúð. Hér er um að ræða mjög
góða húseign sem hefur verið töluvert mikið end-
urnýjuð. Ytra byrði hússins var lagfært s.l. sumar
og allar skólplagnir hafa nýlega verið endurnýj-
aðar. Ný rafmagnstafla og sameign endurnýjuð.
Við húsið er fallegur garður með stórri sameigin-
legri viðarverönd. Verð 29,9 milljónir.
SÉRBÝLI
BALDURSGATA - ÞINGHOLTIN Mjög
góð 100 fm efri sérhæð á frábærum stað í Þing-
holtunum. Sérinngangur er í íbúðina og góðar
suðursvalir. Íbúðin er með sérhita og mjög góðri
þvottaaðstöðu á stóru flísalögðu baðherbergi
ásamt sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð. Nýjar
drenlagnir eru við húsið. Mjög góð íbúð á einum
besta stað í miðborg Reykjavíkur. Verð 24,5 millj.
GRÆNLANDSLEIÐ Glæsileg og óviðjafnan-
lega vel staðsett efri sérhæð í nýju parhúsi á ein-
stökum útsýnisstað. Hæðin er með óvenju stór-
um innbyggðum bílskúr þar sem allt er sér, s.s.
inngangur, þvottahús og hiti. Staðsetningin er
mjög skemmtileg á stórkostlegum útsýnisstað.
STRANDVEGUR - STÓRKOSTLEG ÚTSÝNISÍBÚÐVESTURBRÚN - FRÁBÆR STAÐSETNING
Um er að ræða gott og sérstaklega vel staðsett
hús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á þessum
frábæra stað við Vesturbrún í Reykjavík. Húsið
er í dag skráð sem tvær íbúðir en var áður ein-
býlishús. Kjallari er undir húsinu að hluta en
hann er ekki í skráðum fermetrum hússins.
Eignin selst í einu lagi. Húsið stendur á góðri
750 fm lóð og nýtur útsýnis til suðurs og vest-
urs. Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar
á húsinu að utan á undanförnum misserum og
má þar nefna nýlegt þak og klæðningu útveggja ásamt því að skipt hefur verið um gler og opn-
anleg fög. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM.
VÆTTABORGIR
- FRÁBÆR STAÐSETNING Í GRAFARVOGI
Um er að ræða glæsilegt og vel staðsett 161 fm
raðhús á tveimur hæðum. Húsið er fullbúið og í
heild mjög vel innréttað. Vandað parket og flís-
ar á gólfum sem og vandaðar sérsmíðaðar inn-
réttingar. Húsið nýtist einstaklega vel. Frá for-
stofu er gengið inn í innbyggður bílskúr. Bíla-
plan er upphitað en á baklóð er falleg timbur-
verönd með heitum potti.
NÆFURÁS – FALLEGT ÚTSÝNI
Glæsileg 4ra herb. 119,2 fm endaíbúð (efst)
ásamt 24,6 fm nýjum bílskúr á þessum vinsæla
útsýnisstað. Húsið var standsett og málað á
síðasta ári og þakið var málað fyrir tveimur
árum þannig að húsið lítur mjög vel út.
Gríðarlegt útsýni er úr íbúðinni yfir Rauðavatn,
Bláfjöll, Grafarholt, Esjuna og víðar. Lóð hússins
er mjög falleg og var verðlaunuð fyrir nokkrum
árum. Húsið stendur á mjög góðum stað innst í
botnlanga. Verð 29,9 milljónir.
Í NÁGRENNI TJARNARINNAR
Falleg og björt 3ja-4ra herb., rúmgóð risíbúð í
reisulegu húsi á horni Tjarnargötu og Hring-
brautar gegnt Þjóðminjasafninu og í næsta ná-
grenni við Háskólann og miðbæinn. Sérinn-
gangur og stórt geymsluloft. Tvennar svalir og
sólskáli. Gróðursæll garður. Verð 24,9 millj.
Laus við kaupsamning.
KÓPAVOGSBRAUT - FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Mjög mikið endurnýjað einbýlishús á frábærum
útsýnisstað í vesturbæ Kópavogs. Lóð hússins
er mjög stór eða 891 fm. Við suðurhlið hússins
hefur verið byggður mjög stór og myndarlegur
pallur þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
Fyrirliggjandi eru samþykktar teikningar að
stækkun hússins sem stækka það upp í 286 fm
Verð 36,8 milljónir.
ÞINGHÓLSBRAUT - FALLEG NEÐRI SÉRHÆÐ
Einstaklega vel staðsett og fallegt einbýlishús
á 2 hæðum sem stendur á 1. flokks sjávarlóð
gegnt Álftanesinu. Húsið er mjög skemmtilega
hannað og nútímalegt miðað við byggingarár
hússins. Hönnunin tekur mið af staðsetning-
unni, t.d. með gólfsíðum gluggum bæði í borð-
og setustofu þannig að sjávarsýnin nýtur sín til
fullnustu.
GVENDARGEISLI Glæsil. 315 fm einb. með
innb. 31 fm bílskúr á mjög góðum stað í Grafar-
holti í Reykjavík. Húsið skilast fullfrág. að utan en
rúml. fokh. að innan, þar sem búið er að einangra
þak og leggja ofnalagnir. Hiti og rafmagnsinntök
eru kominn í húsið. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM.
MIÐHÚS - SÉRLEGA VEL STAÐSETT
EINBÝLI Fallegt og sérlega vel staðsett
einbýlishús á tveimur hæðum á þessum frábæra
stað í Grafarvoginum. Húsið er staðsett í rólegri
botngötu og nýtur útsýnis til norðurs og austurs.
Undir stéttum og plani er hitalögn. Að innan er
húsið sérlega vel skipulagt og þægilegt í allri
umgengni. Húsið er 178,4 fm auk 32 fm bílskúrs.
Verð 44,9 milljónir.
BLÖNDUBAKKI Rúmgóð og björt 4ra her-
bergja íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýli ásamt
herbergi í kjallara. Húsið er tiltölulega nýmálað
og sameign er snyrtileg. Húseignin er einstak-
lega vel staðsett með tilliti til skóla, samgangna
og allrar þjónustu. Verð 17,9 milljónir.
DUNHAGI Góð 4ra herb. íbúð á 1. hæð í vel
staðsettu fjölbýli í næsta nágrenni við HÍ. Í kjall-
ara er herbergi sem hefur aðgang að salerni með
sturtu og er tilvalið til útleigu. Íbúðin hentar nem-
endum í HÍ einkar vel og einnig þeim sem vilja
hafa góða tengingu við miðborg Reykjavíkur.
Verð 20,8 millj.
4 - 6 HERBERGJA
FELLSMÚLI Björt og skemmtileg 4ra-5 her-
bergja 112 fm endaíbúð á 3. hæð í nýlega klæddu
fjölbýlishúsi á góðum stað í Háaleitishverfinu.
Íbúðin nýtist sérlega vel með stofu og borðstofu
ásamt 3 góðum herb. Mjög fallegt útsýni er úr
íbúðinni. Tvennar svalir. Verð 18,9 millj.
FELLSMÚLI Sérlega góð, björt og vel skipu-
lögð 3ja herb. 76 fm íbúð á jarðhæð í fallegu, vel
viðhöldnu fjölbýli miðsvæðis í borginni. Íbúðinni
fylgir geymsla, vönduð sameign og hjólageymsla.
Gott þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara.
Snyrtileg lóð með stórri grasflöt og leiktækjum
fyrir börnin. Nýmalbikuð bílastæði. Verð 15,2
milljónir.
RAUÐÁS Rúmgóð og björt 3ja herb. 80,4 fm
íbúð á 3. hæð (efstu) í litlu fjölbýli auk ca 5 fm
geymslu sem ekki er í birtri stærð íbúðarinnar.
Tvennar flísalagðar svalir eru á íbúðinni annars
vegar til vesturs en hins vegar til austur með
stórfenglegu útsýni yfir Rauðavatn og fjallgarð-
inn. Sérlega snyrtileg sameign og hús í góðu
standi. Verð 18,9 millj.
SAMTÚN Góð 3ja herb. íbúð á tveimur hæðum
í rólegu hverfi. Góður garður með heitum potti.
Gluggar á þrjá vegu, nýir gluggar á neðri hæð.
Húsið er í góðu standi. Verð 14,9 milljónir.
3 HERBERGI
SÓLHEIMAR Mjög góð 3ja herb. 89 fm íbúð á
11. hæð (efstu) í þessu vinsæla lyftuhúsi sem er
með einu stórkostlegasta útsýni í Reykjavík.
Íbúðin er öll nýlega uppgerð. Verð 24,9 millj.
GARÐASTRÆTI - MIÐBÆR REYKJA-
VÍKUR 2ja herb. íbúðir í mikið endurnýjuðu húsi
í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar eru með vestur-
svölum og gluggum í austur og vestur.
GRÆNLANDSLEIÐ Glæsileg, ný og fullbúin
2ja herb. neðri sérhæð í parhúsi þar sem allt er
sér, s.s. inngangur, þvottahús og hiti. Staðsetn-
ing hússins er mjög skemmtileg á fallegum út-
sýnisstað. Verð 19,5 milljónir.
LÆKJARGATA - HAFNARFIRÐI Mjög
falleg 2ja herb. 75 fm íbúð með sérinngangi frá
svölum við Lækinn í Hafnarfirði í glæsilegu nýju
lyftuhúsi. Íbúðin er mjög vel skipulögð með stór-
um og góðum suðvestursvölum. Íbúðin skilast
fullbúin án gólfefna. Innréttingar eru úr Eik. Verð
17,9 millj.
TILBOÐ ÓSKAST Í 2 HÚS TIL FLUTN-
INGS
Um er að ræða einingar sem voru hliðvarðarskýli,
annars vegar 130 fm hús og hins vegar 75 fm hús.
Rafmagnstafla í báðum húsum og raflagnir. Góðar
stálbita undirstöður. Einnig eru fáanlegar tvær
einingar ósamsettar sem urðu fyrir tjóni. Teikn-
ingar á skrifstofu Húsakaupa.
2 HERBERGI I
Sími 530 1500
Einstaklega falleg og vel staðsett 141 fm, 4ra herbergja lúxusíbúð á 4.
hæð (efstu) ásamt stæði í lokaðri bílageymslu í fallegu litlu lyftuhúsi í
Sjálandi í Garðabæ. Íbúðin stendur á einstökum útsýnisstað og er
óhætt að segja að um sé að ræða eina allra best staðsettu íbúðina í
Sjálandi. Íbúðin snýr í suður, vestur og norður með gríðarlega miklu
óheftu útsýni. Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fasaðri plankaeik á
gólfum, fallegum innréttingum, tveimur flísalögðum baðherbergjum,
gasarni og svölum á suður og vesturhlið íbúðarinnar.
ANNAÐ