Morgunblaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 F 7 Heitir & fallegir Ofnar Ofnlokar Handklæðaofnar Sérpantanir www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is Háteigsvegi 7 Sími: 511 1100 Hafnarfjörður - Góð timburhús í gamla bæn- um í Hafnarfirði vekja ávallt athygli, þegar þau koma í sölu enda mjög eftirsótt. Hjá Fasteignamarkaðnum er nú til sölu fallegt timburhús við Smyrlahraun 4. „Þetta er glæsilegt og nánast algjörlega endurbyggt u.þ.b. 172 ferm. einbýlishús, sem er kjallari og tvær hæðir á þessum eftirsótta stað í Hafnarfirði,“ segir Guðmundur Th. Jónsson hjá Fasteignamarkaðnum „Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað á síðastliðnum árum, m.a. vatns- og raflagnir og tafla, allt járn á húsi að utan sem og á þaki, gler og gluggar, drenlagnir, klóak o.fl. Öll endurnýjun húss- ins hefur verið gerð með húsfriðunarsjón- armið í huga og reynt að halda í uppruna- legan stíl.“ Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Baðherbergi er allt nýlega end- urnýjað, mósaíklagt í gólf og veggi og með mósaíklögðum sturtuklefa. Gluggi er á bað- herbergi. Úr forstofu er komið inn í stórt rými sem í er eldhús með nýlegum beykiinnréttingum og nýlegum vönduðum tækjum með gas- helluborði og stórri eyju. Mósaík er á milli efri og neðri skápa. Við eldhús eru rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur, en uppgerð upprunaleg gólfborð eru á gólfum í eldhúsi og stofum á 1. hæð hússins. Gengið er upp á efri hæð hússins um fal- legan viðarstiga með linoleumdúklögðum þrepum. Á efri hæð er hol með útgangi út á nýjar svalir til suðurs, ennfremur þrjú barnaherbergi með lausum skápum. Hjóna- herbergi er rúmgott og með lausum skápum. Aukin lofthæð er á efri hæð hússins í mæni og uppgerð gólfborð á gólfum. Í kjallara hússins sem bæði er innangengt í og sérinngangur er stórt sjónvarpshol með gluggum og stórt endurnýjað fallegt baðher- bergi með frístandandi baðkari, glugga og panel á veggjum. Í kjallara er ennfremur gangur, tvö herbergi, annað stórt og forstofa með steyptu gólfi. Í hluta forstofu, sem er mjög stór er hægt að útbúa þvottaherbergi. Tvö sérbílastæði eru á lóð hússins sem og hellulögð verönd. Húsið er sagt vera 163,9 ferm. að stærð samkvæmt skrám Fasteignamats ríkisins, en er í raun um 172 ferm. að sögn eigenda. Ásett verð er 41,9 millj. kr. Þetta er nánast algjörlega endurbyggt u.þ.b. 172 ferm. einbýlishús, kjallari og tvær hæðir og reynt að halda í upprunalegan stíl. Ásett verð er 41,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignamarkaðnum. Smyrlahraun 4 alltaf á fimmtudögumVIÐSKIPTABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.