Morgunblaðið - 06.02.2006, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 F 7
Heitir & fallegir
Ofnar
Ofnlokar
Handklæðaofnar
Sérpantanir
www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is
Háteigsvegi 7
Sími: 511 1100
Hafnarfjörður - Góð timburhús í gamla bæn-
um í Hafnarfirði vekja ávallt athygli, þegar
þau koma í sölu enda mjög eftirsótt. Hjá
Fasteignamarkaðnum er nú til sölu fallegt
timburhús við Smyrlahraun 4. „Þetta er
glæsilegt og nánast algjörlega endurbyggt
u.þ.b. 172 ferm. einbýlishús, sem er kjallari
og tvær hæðir á þessum eftirsótta stað í
Hafnarfirði,“ segir Guðmundur Th. Jónsson
hjá Fasteignamarkaðnum „Húsið hefur verið
mjög mikið endurnýjað á síðastliðnum árum,
m.a. vatns- og raflagnir og tafla, allt járn á
húsi að utan sem og á þaki, gler og gluggar,
drenlagnir, klóak o.fl. Öll endurnýjun húss-
ins hefur verið gerð með húsfriðunarsjón-
armið í huga og reynt að halda í uppruna-
legan stíl.“
Komið er inn í flísalagða forstofu með
fatahengi. Baðherbergi er allt nýlega end-
urnýjað, mósaíklagt í gólf og veggi og með
mósaíklögðum sturtuklefa. Gluggi er á bað-
herbergi.
Úr forstofu er komið inn í stórt rými sem
í er eldhús með nýlegum beykiinnréttingum
og nýlegum vönduðum tækjum með gas-
helluborði og stórri eyju. Mósaík er á milli
efri og neðri skápa. Við eldhús eru rúmgóðar
og bjartar samliggjandi stofur, en uppgerð
upprunaleg gólfborð eru á gólfum í eldhúsi
og stofum á 1. hæð hússins.
Gengið er upp á efri hæð hússins um fal-
legan viðarstiga með linoleumdúklögðum
þrepum. Á efri hæð er hol með útgangi út á
nýjar svalir til suðurs, ennfremur þrjú
barnaherbergi með lausum skápum. Hjóna-
herbergi er rúmgott og með lausum skápum.
Aukin lofthæð er á efri hæð hússins í mæni
og uppgerð gólfborð á gólfum.
Í kjallara hússins sem bæði er innangengt
í og sérinngangur er stórt sjónvarpshol með
gluggum og stórt endurnýjað fallegt baðher-
bergi með frístandandi baðkari, glugga og
panel á veggjum. Í kjallara er ennfremur
gangur, tvö herbergi, annað stórt og forstofa
með steyptu gólfi. Í hluta forstofu, sem er
mjög stór er hægt að útbúa þvottaherbergi.
Tvö sérbílastæði eru á lóð hússins sem og
hellulögð verönd.
Húsið er sagt vera 163,9 ferm. að stærð
samkvæmt skrám Fasteignamats ríkisins, en
er í raun um 172 ferm. að sögn eigenda.
Ásett verð er 41,9 millj. kr.
Þetta er nánast algjörlega endurbyggt u.þ.b. 172 ferm. einbýlishús, kjallari og tvær hæðir og reynt að halda í upprunalegan stíl. Ásett verð er 41,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignamarkaðnum.
Smyrlahraun 4
alltaf á fimmtudögumVIÐSKIPTABLAÐ