Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 1
„ÉG er bjartsýnn á að okkur tak- ist að leysa þetta; það þýðir ekk- ert annað en að vera bjartsýnn en auðvitað er þetta engin óskastaða fyrir okkur,“ sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra eftir fund viðræðunefnda Íslands og Bandaríkjanna um framtíð varn- arsamstarfs ríkjanna í gær. Nefndirnar funduðu í fyrradag og í gær og hélt bandaríska nefndin heim vestur um haf síð- degis. Mark Pekala varaað- stoðarutanríkisráðherra sagði að bandarísk stjórnvöld væru að vinna að áætlun um varnir Íslands í samræmi við varnarsamning ríkjanna frá árinu 1951. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra sagði að ekkert nýtt hefði komið fram í viðræðunum. Það yrði fyrst eftir mánuð sem eitthvað nýtt kæmi fram. Eftir það gætu Íslendingar fyrst ráð- fært sig við önnur ríki NATO ef niðurstaða fengist ekki með Bandaríkjamönnum. | 11 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Engin óska- staða en bjartsýnn Bandaríska sendinefndin hélt heim á leið í gær. Fremst er Carol Van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna. STOFNAÐ 1913 89. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Skútuleiga við strönd Tyrklands Íslensk hjón ætla að gera áhugamálið að atvinnurekstri | Daglegt líf Lesbók | Þessi eyru hafa svo margt heyrt  Úr sporunum spretta Börn | Efnilegir karatekrakkar  Sveitasögur Íþróttir | Gunnar Þór samdi við Hammarby  Byrjaði með Robson GEFNAR hafa verið yfirlýsingar á fundum sem bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur átt með forráðamönnum bankakerfisins að undanförnu, um að aukin varfærni verði sýnd á komandi tíð. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Dav- íðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðla- bankans, í erindi sem hann flutti á ársfundi bankans í gær. „Enn sem komið er heldur þó útlánaaukn- ingin áfram á fyrstu mánuðum þessa árs og það á meiri hraða en árið 2004,“ sagði Davíð. Þær skýringar eru gefnar á þessu misræmi orða og athafna, að það taki tíma að tæma loforðin í út- lánapípunum. Seðlabankinn treystir því enn að áform um breytingar til hins betra gangi eftir, enda er mikið í húfi.“ Davíð sagði að breytingar á starfsemi og stefnu bankanna leiddu til þess að þeir yrðu næmari fyrir áföllum sem ættu upptök sín á er- lendum mörkuðum. „Við höfum að undanförnu fengið smjörþefinn af slíku. Vissulega er margt af því sem fram hefur komið í margfrægum skýringum erlendra greiningardeilda missagt og annað byggt á misskilningi, röngum upplýs- ingum og í undantekningartilfellum á augljósri andúð á íslenskum bönkum og starfsemi þeirra. Allt slíkt verður að harma og jafnvel fordæma þar sem tilefni eru til.“ Efla þarf eftirlitsstofnanir Fram kom í máli Davíðs að það væri áhyggju- efni að eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði hér á landi, Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn, hefðu ekki styrkst í takt við hratt stækkandi fjármála- og bankaviðskipti. Tryggja þyrfti að eftirlitsstofnanirnar gætu keppt um hæfan mannskap til að sinna þeim verkefnum sem lög kvæðu á um. „Íslensku bankarnir hafa góðan skilning á því að það hefur grundvallarþýðingu fyrir álit matsfyrirtækja og erlendra greining- ardeilda, að stofnanir á borð við Seðlabanka og Fjármálaeftirlit séu taldar öflugar og trúverð- ugar,“ sagði Davíð. Staða bankakerfisins traust Davíð sagði að innri staða íslenska bankakerf- isins væri mjög traust og það uppfyllti ströng- ustu kröfur sem gerðar væru til þess. „Á hinn bóginn á að taka þá atburðarás sem við höfum upplifað síðan í nóvember mjög alvarlega. Sníða þarf af íslenska bankakerfinu þá annmarka sem erlendir álitsgjafar hnjóta aftur og aftur um, jafnvel þótt þeir annmarkar séu iðulega mikl- aðir og oftúlkaðir. Hægja þarf á vexti útlána eins og lofað hefur verið. Bæta þarf verulega upplýsingagjöf einstakra fjármálastofnana og til álita kemur sameiginlegt átak allra aðila í þeim efnum. Forðast þarf í því sambandi hvers konar skrum sem lítið skilur eftir,“ sagði Davíð Oddsson. Útlánaaukningin fyrstu mánuði ársins heldur áfram á meiri hraða en árið 2004 Eftirlitsstofnanir styrkist í takt við fjármálamarkað Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is JACQUES Chirac, forseti Frakklands, til- kynnti landsmönnum í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi að hann myndi skrifa undir breytta útgáfu afar umdeildrar atvinnulög- gjafar. Óhætt er að segja að Frakkar hafi beðið með óþreyju eftir því hvort forsetinn stað- festi lögin, en mótmæli gegn þeim héldu áfram í miðborg Parísar þegar tilkynningin lá fyrir. Auðvelda umrædd lög atvinnurekendum að reka starfsmenn sem eru 26 ára og yngri á fyrsta ári starfssamnings, en franskur at- vinnumarkaður þykir afar ósveigjanlegur. Nam reynslutímabilið tveimur árum í fyrri útgáfu laganna, en í nýju útgáfunni er einnig kveðið á um að atvinnurekendum beri að gefa upp ástæðu fyrir uppsögn. Sagði Chirac í ávarpinu í gær að hann hefði samþykkt lögin í breyttri útgáfu vegna þess að hann teldi að þau gætu dreg- ið úr miklu atvinnuleysi á meðal ungs fólks í Frakklandi og vegna þess að hann hefði heyrt „áhyggjur ungs fólks og foreldra þess“ vegna fyrrnefndra ákvæða. Andstæðingar laga óánægðir Fátt bendir til að breytingarnar hafi mildað reiði andstæðinga laganna sem hafa lýst yfir óánægju sinni með undirskrift for- setans. Meðal þeirra var Bernard Thibault, leið- togi CGT, eins stærsta verkalýðsfélags landsins, sem sagði að ekki yrði hvikað frá fyrirhuguðum mótmælum gegn þeim á þriðjudag. Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra var ósammála og sagði undirritunina „viturlega ákvörðun“. Chirac staðfestir umdeilda löggjöf Reuters Franskir námsmenn hlýða á Chirac. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kaupmannahöfn. AFP. | Amr Moussa, framkvæmdastjóri Arababanda- lagsins, sakaði í gær dönsk stjórn- völd um að hafa í kjölfar skop- myndamálsins svokallaða komið fram við múslimaheiminn líkt og múslimar „væru bjánar“ . Moussa sagði einnig að þau rök sem Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, hefði fært fyrir tjáningarfrelsinu hefðu verið „mjög slæm“. Vísaði Moussa þar m.a. til þeirrar yfirlýsingar Rasmussens að ekki væri hægt „að semja“ um tjáningarfrelsið, stuttu eftir að hann neitaði að taka á móti sendinefnd sendiherra ísl- amskra ríkja, sem vildi lýsa yf- ir áhyggjum sínum vegna skop- myndanna af Múhameð spámanni. Taldi Moussa að enginn meðlim- ur Arababandalagsins hefði sann- færst um ágæti þessarar rök- semdafærslu. „Við styðjum allir frelsi og rétt- inn til að tjá sig … en reynum að minnsta kosti að skilja hver ann- an,“ sagði Moussa. „Ekki gera grín að mér og ekki koma fram við mig eins og ég sé bjáni. Hættið að koma fram við múslimaheiminn eins og við séum bjánar, í nafni tjáningarfrelsisins.“ „Við erum ekki bjánar“ Amr Moussa Lesbók, Börn og Íþróttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.