Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFLA ÞARF EFTIRLIT Eftirlitsstofnanir á fjármálamark- aði hérlendis hafa ekki styrkst í takt við hratt vaxandi fjármála- og bankaviðskipti. Þetta kom fram í máli Davíðs Oddssonar seðla- bankastjóra á ársfundi bankans í gær og segir hann að efla þurfi þess- ar stofnanir og tryggja að þær hafi hæfan mannskap til að sinna verk- efnum sem lög kveða á um. Rætt um varnarsamstarf Viðræðunefndir íslenskra og bandarískra yfirvalda um framtíð varnarsamstarfs landanna ræddust við í gær. Bandarísk stjórnvöld eru að vinna að áætlun um varnir Ís- lands í samræmi við varnarsamning- inn frá 1951. Engin óskastaða, sagði Geir H. Haarde eftir fundinn en kvaðst bjartsýnn á lausn. Jaruzelski saksóttur Saksóknarar í Póllandi gáfu í gær út ákæru á hendur Wojciech Jaru- zelski hershöfðingja, fyrrverandi leiðtoga kommúnistastjórnarinnar í landinu, fyrir að hafa sett herlög ár- ið 1981 í því augnamiði að brjóta lýð- ræðishreyfingu verkafólks, Sam- stöðu, á bak aftur. Tugir fórust í Íran Að minnsta kosti sjötíu manns biðu bana þegar þrír öflugir jarð- skjálftar skóku vesturhluta Írans snemma í gærmorgun. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 56 Fréttaskýring 8 Vesturheimur 58 Úr verinu 12 Fermingar 59/61 Viðskipti 16 Kirkjustarf 62/63 Erlent 20/24 Minningar 64/73 Minn staður 26 Myndasögur 78 Árborg 26 Dagbók 78/81 Suðurnes 28/29 Víkverji 78 Akureyri 30 Velvakandi 79 Landið 30 Leikhús 82 Menning 32/33 Menning 82/89 Daglegt líf 34/37 Bíó 86/89 Umræðan 38/57 Ljósvakamiðlar 90 Forystugrein 46 Staksteinar 91 Íslenskt mál 56 Veður 91 * * * Kynning - Morgunblaðinu fylgir kynn- ingarblað frá Geðhjálp. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %      &         '() * +,,,                      Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Voltaren Dolo fljótvirkt, bólgueyðandi verkjalyf ENGIN knýjandi ástæða er fyrir Ís- lendinga til að ganga í Evrópusam- bandið en sterk rök mæla gegn því að lögð verði fram umsókn um aðild að sambandinu, að því er fram kom í máli Geirs H. Haarde utanríkisráðherra á ráðstefnu sem fram fór í gær undir yf- irskriftinni EES-samningurinn í nú- tíð og framtíð. Geir sagði að Íslend- ingar ættu engu að síður ríkra efnahagslegra og pólitískra hags- muna að gæta í Evrópu og þyrftu að eiga náin samskipti við aðildarríki ESB. Geir benti á að íslenskur efnahagur hefði staðið styrkum fótum þrátt fyrir að Íslendingar stæðu utan ESB. Ein ástæða velgengni Íslendinga væri að- ild þeirra að EES-samningnum. Að vísu veitti samningurinn Íslendingum ekki rétt til þátttöku í pólitískum ákvörðunum um samninginn sem teknar væru innan ESB, en slíkt hefði heldur aldrei staðið til. Hann sagði að þeir sem vildu að Ís- lendingar sæktu um Evrópusam- bandsaðild bentu gjarnan á að þjóðin sæti ekki við sama borð og ESB-ríki þegar kæmi að ákvarðanatöku. Hinir sömu fullyrtu einnig að aðrir veikleik- ar væru á EES-samningnum. Rök hefðu verið færð fyrir því að vegna þess að EES-samningurinn væri veikbyggður yrðu Íslendingar að ganga í ESB. „Ég veit ekki til þess að nokkrum manni hafi tekist að sýna fram á með hvaða hætti þessi meinti veikleiki á að hafa skaðað íslenska hagsmuni,“ sagði Geir. Undanþágur ekki í boði Geir sagði að lítill pólitískur ágrein- ingur hefði verið um EES-samning- inn hér á landi þegar hann var gerður og hið sama gilti enn í dag. „Aðild að Evrópusambandinu er ekki og hefur aldrei verið rædd af neinni alvöru í ís- lenskum stjórnmálum,“ sagði Geir. Hann sagði einnig að þær fullyrðingar væru rangar, að Íslendingum stæði til boða að fá varanlegar undanþágur frá þáttum á borð við hina sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB, yrðu samninga- viðræður við sambandið hafnar. „Sumir segja að matarverð myndi lækka hér á landi ef við gengjum í ESB og almenningur myndi njóta góðs af þeim lækkunum,“ sagði Geir. Íslendingar þyrftu hins vegar ekki að ganga í ESB til þess að lækka mat- arverð, heldur gætu þeir gripið til eig- in ráða í þessum efnum, svo sem með lækkun skatta, tolla og afnámi ann- arra innflutningshafta. Líklegt væri að breytingar sem þessar ættu eftir að eiga sér stað fyrir tilstilli Heims- viðskiptastofnunarinnar. Þá væri því haldið fram að vextir myndu lækka hér á landi gerðust Ís- lendingar aðilar að ESB og tækju upp evru. „Það er auðvitað ljóst að af því hlýst kostnaður fyrir lítið hagkerfi að reka sjálfstæðan gjaldmiðil. Vextir hafa alltaf verið hærri á Íslandi en í flestum ríkjum ESB, svo dæmi sé tek- ið,“ sagði Geir. Geir H. Haarde ræddi stöðu EES-samningsins á ráðstefnu í gær Ekkert knýr á um aðild Íslendinga að ESB Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Geir H. Haarde ræddi um EES- samninginn í nútíð og framtíð á ráðstefnunni í gær. SLÖKKVILIÐIÐ á höfuðborg- arsvæðinu var kallað út á Fram- nesveg í gærkvöldi vegna bifreiðar sem stóð þar í björtu báli. Talið er að kveikt hafi verið í bifreiðinni sem talin er ónýt eftir brunann. Í fyrstu var talið að eldurinn væri uggvænlega nálægt húsum en hann barst þó ekki í þau og var slökkvi- liðið skamma stund að slökkva í ökutækinu. Lögreglan í Reykjavík er með málið til rannsóknar. Ljósmynd/Sigurður Jónas Eggertsson Bíll í björtu báli VARNARLIÐIÐ á Keflavíkurflug- velli hefur með bréfi sínu til Hita- veitu Suðurnesja sagt upp við- skiptasamningi sínum við hita- veituna með 180 daga fyrirvara. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, hefur óskað eftir við- ræðum við fulltrúa Varnarliðsins enda sé umræddur fyrirvari byggð- ur á samningi frá árinu 1980 sem margsinnis hefur verið breytt. Varnarliðið keypti á síðasta ári vatn af hitaveitunni fyrir um 600 milljónir kr. og hafa viðskiptin minnkað á liðnum árum. Þegar þau voru sem mest fyrr á árum námu þau rúmlega 1 milljarði á núvirði. Viðskiptin er nú um 12% af heildar- viðskiptum hitaveitunnar. | 28 Varnarliðið segir upp samningi MENNTASKÓLINN í Reykjavík bar sigur úr býtum í Morfís, mælsku- og rökræðukeppni fram- haldsskólanna. Úrslitin fóru fram í gærkvöld í Háskólabíói og öttu þar kappi lið MR og Menntaskólans við Hamrahlíð. Eftir úrslitakeppnina lá einnig fyrir hver hreppti titilinn ræðu- maður Íslands. Var það Halldór Ás- geirsson, sem var stuðningsmaður MH. Umræðuefni í úrslitakeppninni var frelsi einstaklingsins og sagði Hildur Björnsdóttir, formaður keppninnar, að hart hefði verið barist í úrslitaviðureigninni sem lauk laust fyrir miðnættið. Morgunblaðið/ÞÖK MR sigraði í Morfís ÞAU Ína Valgerður Pétursdóttir og Snorri Snorrason keppa til úrslita í Idol-Stjörnuleit næsta föstudags- kvöld. Það var Bríet Sunna Valde- marsdóttir sem féll úr keppni eftir símakosningu í undanúrslitaþætt- inum sem fram fór í gærkvöld. Ína Valgerður og Snorri í úrslit
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.