Morgunblaðið - 01.04.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝ BÓK EFTIR HUGLEIK DAGSSON
(Vínylplata eða geisladiskur (þú ræður)
með Hugleiki og Benna Hemm Hemm fylgir bókinni)
Fermið okkur
S
TU
D
IO
B
ILITY
VALINN maður verður í hverju
rúmi við gerð myndarinnar The
Journey Home en ljóst er að að-
alframleiðandi hennar, Steven
Haft, vinnur af miklum metnaði.
Þetta er haft eftir Ólafi Jóhanni
Ólafssyni í fréttatilkynningu
vegna myndarinnar, en myndin
er gerð eftir skáldsögu hans,
Slóð fiðrildanna, sem kom út árið
1999.
Fram hefur komið að banda-
ríska leikkonan og Ósk-
arsverðlaunahafinn Jennifer
Connelly skrifaði nýverið undir
samning um að fara með aðal-
hlutverk í myndinni, en tökur á
henni hefjast í ágúst og standa
fram í október.
Myndinni er leikstýrt af hinni
margverðlaunuðu leikkonu Liv
Ullman, sem skipti fyrir nokkru
um vettvang innan kvikmynda-
gerðarinnar og tók að leikstýra.
Hún hefur leikstýrt fimm mynd-
um, meðal annars Trölose, sem
var tilnefnd til Evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna, að því er
fram kemur í fréttatilkynning-
unni. Ullman er forseti Sam-
bands evrópskra kvikmyndaleik-
stjóra.
Aðalleikkonan, Connelly, er
sem stendur við tökur á kvik-
myndinni The Black Diamond í
Suður-Afríku, þar sem hún fer
með aðalhlutverk á móti Leon-
ardo di Caprio. Hún er þekktust
fyrir leik sinn í myndinni A
Beautiful Mind, þar sem hún lék
á móti Russel Crowe og hlaut
Óskarsverðlaun fyrir. Frá árinu
1984 hefur Connelly leikið í tæp-
lega þrjátíu kvikmyndum. Segir í
tilkynningunni að myndir hennar
hafi í kvikmyndahúsum skilað um
800 milljónum Bandaríkjadala og
sé Connelly í hópi eftirsóttustu
leikkvenna sinnar kynslóðar
„Þrjú ár eru frá því að vinna
hófst við að gera Slóð fiðrildanna
að kvikmynd. Leikstjórinn, Liv
Ullman kom til Íslands í fyrra til
að kynna sér sögusvið og að-
stæður og sagði við það tækifæri
að lestur bókarinnar hefði haft
mikil áhrif á sig. Tveimur árum
fyrr hafði henni boðist að leik-
stýra myndinni og afráðið eftir
nokkra umhugsun að skrifa sjálf
kvikmyndahandritið. Það gerði
hún í samráði við Ólaf Jóhann.“
Kostnaðaráætlun innan
við milljarður króna
Fram kemur í fréttatilkynn-
ingunni að endanlegur undirbún-
ingur að kvikmyndatökum er
hafinn og fjármögnun mynd-
arinnar að komast á lokastig.
„Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
innan við milljarð íslenskra
króna og framleiðslan er sam-
starfsverkefni framleiðslufyr-
irtækja og fjárfesta frá nokkrum
löndum.“
Þar segir að sagan gerist á
Bretlandi og á Íslandi og styttist
í endanlegar ákvarðanir um töku-
staði myndarinnar. Sama á við
varðandi aðra leikara og kvik-
myndagerðarfólk sem kallað
verður til. Hefur aðalframleið-
andi myndarinnar, Steven Haft,
ráðið Luciönu Arrighi til að stýra
listrænu útliti myndarinnar, en
hún hlaut m.a. Óskars- og Bafta-
verðlaun fyrir listrænt útlit kvik-
myndarinnar Howard́s End.
„Haft er Bandaríkjamaður
sem á að baki glæstan tuttugu
ára feril í kvikmyndagerð og hef-
ur framleitt 18 myndir, m.a.
Dead Poets Society, Emma og
Jakob the Liar. Sjö mynda hans
hafa hlotið útnefningu til Óskars-
verðlauna og tvisvar hlotið Ósk-
arsverðlaun, auk Bafta, Emmy
og annarra verðlauna í kvik-
myndageiranum,“ segir í tilkynn-
ingunni. Haft er eftir honum að
áhugi hans á að framleiða kvik-
mynd eftir Slóð fiðrildanna hafi
vaknað um leið og hann las bók-
ina þegar hún var fyrst prentuð á
ensku, en saga Ólafs Jóhanns
hafi strax kveikt áhuga hans. The
Journey Home sé mynd sem ekki
hafi síðri möguleika á vinsældum
og velgengni en aðrar myndir
sem hann hafi framleitt.
Þá er haft eftir Jóni Þór Hann-
essyni framleiðanda, sem haldið
hefur utan um íslenska hluta
verkefnisins fyrir Saga film, að
The Journey Home marki viss
tímamót í íslenskri kvikmynda-
gerð. Verið sé að vinna með kvik-
mynd sem hafi djúpar rætur í ís-
lenskri menningu og sé saga
íslenskrar konu um leið og
myndin hafi sterka alþjóðlega og
mannlega skírskotun. Það segi
kannski mest um væntingar
manna til verksins að það ein-
valalið sem þegar sé búið að ráða
að myndinni og þeir sem verið sé
að ræða við, sé fólk með mikinn
faglegan áhuga á að taka þátt í
gerð myndarinnar. Það taki þátt
í henni þótt ekki sé um að ræða
þær launaupphæðir sem margir
séu vanir í sinni Hollywood-vinnu
Jón Þór hefur um árabil fram-
leitt íslensk kvikmyndaverkefni
og komið að framleiðslu erlendra
stórmynda sem kvikmyndaðar
hafa verið hér á landi, s.s. Bat-
man Begins og Tomb Raider.
Standist allar tímaáætlanir varð-
andi verkið má ætla að kvik-
myndin verði frumsýnd í vetr-
arbyrjun 2007.
Tökur á The Journey Home í haust
Valinn maður
í hverju rúmi
Ólafur Jóhann
Ólafsson
Liv
Ullman
Jennifer
Connelly
Steven
Haft
BÚIÐ er að tryggja bókasafni Go-
ethe-Zentrum framtíðarhúsnæði í
Bókasafni Hafnarfjarðar, samkvæmt
munnlegu samkomulagi forsvars-
manna bæjarins og Goethe-Zentrum,
en ráðgert er að undirrita viljayfirlýs-
ingu þess efnis eftir helgi. Stefanie
Hontscha, menningarfulltrúi á Ís-
landi fyrir þýska menningarsetrið
Goethe-stofnun, segist í samtali við
Morgunblaðið ekki vera sátt við þessa
ráðstöfun þar sem hún hefði kosið að
bækurnar færu inn á Landsbókasafn
Íslands.
Að sögn Oddnýjar Sverrisdóttur,
formanns hollvinafélagsins sem rekur
Goethe-Zentrum, hefur framtíð bóka-
safnsins verið óljós síðan Goethe-
stofnuninni var lokað fyrir átta árum.
Þá hafi forræði bókasafnsins færst
frá Goethe-stofnuninni yfir á hendur
hollvinafélagsins, sem hafi sl. ár unnið
að því að finna bókakostinum framtíð-
arhúsnæði. „Við höfum skoðað ýmsa
kosti, þeirra á meðal Landsbókasafn-
ið, en töldum á endanum að best væri
þiggja boð Hafnarfjarðar,“ segir
Oddný og tekur fram að hér sé um að
ræða sameiginlega ákvörðun holl-
vinafélagsins, þýska sendiráðsins á
Íslandi og Goethe-stofnunarinnar í
München.
Að sögn Oddnýjar réð það úrslitum
í ákvörðun hollvinafélagsins að í
Hafnarfirði verði bækurnar allar
saman sem heild, í stað þess að tvíst-
rast milli ólíka hæða, eins og tilfellið
hefði orðið hefðu bækurnar farið á
Landsbókasafnið. Segir hún bókasafn
Goethe-Zentrum innihalda á bilinu
6–7 þúsund einingar, en þar er um að
ræða jafnt bækur, hljóðbækur og
myndbönd.
Rann blóðið til skyldunnar
„Það er okkur mikill heiður og
ánægjuefni að taka við þessum bók-
um,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, en á fundi sínum
sl. fimmtudag samþykkti bæjarráð
Hafnarfjarðar að bjóðast til að taka
við bókasafni Goethe-Zentrum til
varðveislu. „Þau hafa verið í ákveðnu
uppnámi með safnið í nokkurn tíma
og óvissa ríkt um framtíðina, en okk-
ur finnst skyldan reka okkur áfram í
þessu máli fyrir utan heiðurinn, því
Hafnarfjörður er mjög tengdur
Þýskalandi,“ segir Lúðvík og bendir á
að Hafnarfjörður sé formlegur
Hansabær og hafi eitt sveitarfélaga á
Íslandi átt í vináttusambandi við
Þýskaland sl. áratugi.
Aðspurður segir Lúðvík hugmynd-
ina að bókasafn Goethe-Zentrum
verði hluti af Bókasafni Hafnarfjarð-
ar sem sérstök deild, en ætlunin er að
hýsa bókakostinn í nýrri viðbyggingu
sem ráðgert er að byggja við núver-
andi Bókasafn Hafnarfjarðar í
tengslum við 100 ára kaupstaðaraf-
mæli bæjarins árið 2008. „Við reikn-
um með því að safnið muni vaxa og
dafna undir okkar handleiðslu í góðu
samvinnu við bæði þýska sendiráðið
og aðra aðila sem koma að safninu.“
Hefði kosið að Landsbókasafn
Íslands tæki við bókunum
Aðspurð segir Stefanie Hontscha
að hún hefði fremur kosið að bæk-
urnar færu inn á Landsbókasafn Ís-
lands. „Með þeim hætti hefði verið
hægt að tryggja aðgengi að bókunum
með sem bestum hætti, m.a. með tilliti
til langs opnunartíma safnsins, auk
þess sem bækurnar hefðu verið
skráðar í Gegni sem þýddi að almenn-
ingur gæti leitað eftir titlum á net-
inu,“ segir Stefanie Hontscha, og tek-
ur fram að hún sé ekki ein um þessa
skoðun. Bendir hún á að Roland Goll,
sem er yfirmaður Lundúnadeildar
Goethe-stofnunarinnar, og Christoph
Bartmann, sem er yfirmaður Kaup-
mannahafnardeildar Goethe-stofnun-
arinnar, hafi farið á fund Sigrúnar
Klöru Hannesdóttur landsbókavarð-
ar til þess að kanna möguleikann á því
að safnið tæki við bókakostinum.
Í samtali við Morgunblaðið stað-
festi Sigrún Klara að hún hafi um
miðjan marsmánuð átt fund með Goll
og Bartmann. „Þeir leituðust eftir því
að við tækjum við bókasafni Goethe-
Zentrum og tókum við vel í það. Í máli
þeirra kom fram að helstu ástæður
þess að þeir vildu að bækurnar færu
til okkar voru annars vegar að þeir
töldu að það myndi gagnast þýsku-
kennslu í landinu að þær væru að-
gengilegar hjá okkur og hins vegar
lögðu þeir mikla áherslu á að bæk-
urnar myndu vera skráðar í Gegni.
Síðan hef ég ekkert heyrt frekar af
þessu máli,“ segir Sigrún Klara og
tekur fram að ekki hafi verið gengið
frá neinum formlegum samningi á
fyrrgreindum fundi.
Bókasafn Hafnarfjarðar
fær bækur Goethe-Zentrum
Menningarfulltrúi Goethe-stofnunar ósátt við ráðstöfunina
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Þeir Holger Ebermann, Patrick Dorls og Javier Ugarte Chicote voru í óða
önn að pakka bókum Goethe-Zentrum niður nú í vikulokin.
FYLGI Samfylkingarinnar í
Reykjavík eykst, en fylgi Sjálfstæð-
isflokks minnkar, samkvæmt nið-
urstöðum nýs Þjóðarpúls Gallups.
Fylgi Samfylkingar mælist nú 36%
en var 35% í könnun sem gerð var í
síðasta mánuði. Fylgi Sjálfstæðis-
flokks minnkar úr 52% í 47%. Fylgi
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs eykst mikið frá síðasta
mánuði, en samkvæmt könnuninni
fer það úr 7% í 11%. Fylgi Fram-
sóknarflokks minnkar úr tæplega
5% í ríflega 3% og Frjálslyndi
flokkurinn fengi áfram rúmlega 2%.
Tæplega 23% tóku ekki afstöðu
eða neituðu að gefa upp hvað þau
myndu kjósa. Nær 6% sögðust
skila auðu eða kjósa ekki ef kosn-
ingar færu fram nú. Könnunin var
gerð dagana 28. febrúar til 29.
mars
Fylgi Samfylkingar eykst