Morgunblaðið - 01.04.2006, Side 6
6 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
3
18
24
03
/2
00
5
High Peak Norfolk
Mesta kuldaþol -15C°
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Fermingartilboð
5.990 kr.
Verð áður 7.990 kr.
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
MERKILEGAR hljóðupptökur frá
frumbernskuárum Stuðmanna, sem
talið var að hefðu glatast, komu í leit-
irnar fyrir tilviljun nú 35 árum síðar
og verða gefnar út á hljómdiski, í tak-
mörkuðu upplagi, í næstu viku. Fund-
ust upptökur af fjórtán af átján lög-
um sem að mestu voru tekin upp í
núverandi húsnæði Tannlækna-
félagsins í Síðumúla síðla árs 1970 og
í byrjun ársins 1971. Að sögn Jakobs
Frímanns Magnússonar eru þetta
fyrstu og einu upptökurnar sem líta
dagsins ljós með upphaflegum for-
söngvara Stuðmanna, Gylfa Krist-
inssyni.
Jakob Frímann segir að við flutn-
inga úr húsnæði Tannlæknafélagsins
árið 1971 hafi hluti af upptökunum
glatast og talið var að þær hefðu verið
sendar með öðrum upptökum í gler-
skurðarver PYE-hljóðversins í Lund-
únum sem brann skömmu síðar – og
margar íslenskar „master“ útgáfur
með. Það var Pétur Steingrímsson,
fyrrverandi tæknimaður á Ríkis-
útvarpinu, sem fann upptökurnar
þegar hann var að róta í gömlum
kössum en Pétur vann að upptök-
unum með upprunalegu Stuðmönn-
unum fjórum, þeim Valgeiri Guðjóns-
syni, Ragnari Daníelsen, Gylfa og
Jakobi. „Þessar upptökur voru taldar
glataðar þar til Pétur fór að róta í
gömlum kössum fyrr í vetur og fann
þar einn sem merktur var Magnús og
Jóhann. Komu þar í ljós umræddar
frumupptökur,“ segir Jakob og bætir
við að þær hafi verið meira og minna
ónothæfar en tekið var upp á fjögurra
rása upptökutæki og með afar ný-
stárlegum aðferðum, sem varla
þekktust á þessum tíma.
Tekin fyrir í
Geymt en ekki gleymt
Eins og fyrr segir verða lögin gefin
út og mun platan koma í helstu tón-
listarverslanir eftir helgina – en í tak-
mörkuðu upplagi. Jakob segir að
miklu púðri hafi verið eytt í að laga
upptökurnar til en um það sá banda-
ríski hljóðmaðurinn Eddie Delena.
„Það var Georg Magnússon, tækni-
maður á RÚV, sem benti okkur á De-
lena en hann þróaði ferli í stafrænni
hreinsun og endurvinnslutækni á
hljóði, sem helst má líkja við for-
vörslu á málverkum,“ segir Jakob og
bætir við að Delena hafi unnið að
verkefninu í u.þ.b. þrjá mánuði, í kjöl-
farið komið hingað til lands og klárað
það með Stuðmönnunum fjórum.
Tekist hefur að auka við bandvídd
umfram það sem áður var og segir
Jakob lögin hljóma mun betur en
hann þorði að vona.
Hlustendur Rásar 2 fá að heyra af-
raksturinn í þættinum Geymt en ekki
gleymt sem er á dagskrá í dag en í
honum tekur útvarpsmaðurinn Freyr
Eyjólfsson fyrir eina íslenska plötu í
hverjum þætti og fer ofan í saumana
á gerð hennar og vinnslu. Verður stór
hluti laganna leikinn og þau borin
saman við upprunulegu upptökurnar
ásamt því að rætt verður við Eddie
Delena, sem staddur er hér á landi,
og hann spurður út í vinnsluna. De-
lena er mjög virtur hljóðmeistari í
Bandaríkjunum og hefur m.a. unnið
með Mick Jagger, Michael Jackson
og Red Hot Chili Peppers.
Lögin fjórtán sem eru á plötuni eru
öll sungin á ensku og svífur andi sjö-
unda og áttunda áratugarins yfir
vötnum. Aðspurður hvers vegna
Stuðmenn hafi ekki tekið upp lögin að
nýju eða leikið á tónleikum segir Jak-
ob að upprunalega sveitin hafi verið
leyst upp skömmu eftir að upptök-
urnar týndust. Liðu tvö til þrjú ár þar
til Valgeir ásamt Jakobi tóku upp
þráðinn að nýju en þá með annars
konar hljóm, talsvert galsafengnari.
Ekki hefur verið ákveðið hvort hinir
upprunalegu Stuðmenn munu taka
lögin á tónleikum í kjölfar útgáfunnar
en hljómsveitin kom fram í fyrsta
skipti í 35 ár um sl. verslunarmanna-
helgi í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum undir nafninu Frummenn.
Mættu þar á milli átta og tíu þúsund
manns til berja sveitina augum og því
ljóst að mikill áhugi er til staðar. Jak-
ob bendir hins vegar á að helmingur
hljómsveitarinnar fáist ekki við tón-
list í sínu daglega lífi en Ragnar er
hjartalæknir og Gylfi sálfræðingur.
og gæti verið erfitt að samræma æf-
ingar og tónleika við slíka vinnu. Jak-
ob útilokar þó ekkert.
Upptökur af fjórtán lögum Stuðmanna frá árinu 1971 komnar í leitirnar
Andi sjöunda áratug-
arins endurvakinn
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Ragnar Danielsen, Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson og
Gylfi Kristinsson voru hinir upprunalegu Stuðmenn. Þeir verða í útvarps-
þættinum Geymt en ekki gleymt á RÚV í dag.
„ÉG var dolfallinn er ég heyrði
lokaútgáfuna,“ segir Árni Matt-
híasson, tónlistargagnrýnandi,
inntur eftir áliti sínu á nýju plöt-
unni. Árna, eins öðrum viðmæl-
endum Morgunblaðsins, kom mikið
á óvart hversu vel gömlu upptök-
urnar hljóma. „Óhætt er að segja
að hér hafi verið unnið kraftaverk í
að hreinsa upptökurnar og þá kem-
ur líka vel í ljós hve bráðgerir þeir
voru piltarnir sem tónlistarmenn.“
Ámundi Ámundason, fyrsti út-
gefandi Stuðmanna, tekur í sama
streng en hann var einn þeirra sem
vonuðust eftir að upptökurnar
kæmu í leitirnar. „Ég vissi alltaf af
þessum upptökum og þess vegna
ákvað ég að gefa út fyrstu smáskíf-
ur Stuðmanna 1974 í von um að
þessar upptökur kæmu í leitirnar.
Pétur Steingrímsson talaði alltaf
um þetta sem meistaraverk, enda
átti þessi hljómsveit eftir að sýna
fram á að við Pétur kunnum að
veðja á rétta hesta,“ segir Ámundi.
Jónatan Garðarsson, dag-
skrárgerðarmaður og poppfræð-
ingur, var ekki búinn að heyra öll
lögin þegar Morgunblaðið leitaði
álits hans en taldi upptökurnar
mikinn feng.
„Þau lög sem ég heyrði voru til
þess fallin að rifja upp fyrir manni
að þetta var þrusuband og í raun
miklu betra en mig minnti.“ Jón-
atan segist muna eftir Stuðmönn-
um frá því þeir léku í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð þar sem
hann var nemandi og hafði mjög
gaman af. Hann telur týndu upp-
tökurnar því vera mikinn feng og
rétt eins og þá eiga erindi til hlust-
enda í dag. „Ég held að Stuðmenn,
hvort sem er í sinni frummynd eða
einhverri annarri endurskapaðri
mynd eins og hljómsveitin hefur
verið að þróast alla tíð, eigi alltaf
upp á pallborðið. Einhvern veginn
er þetta svo rammíslenskt að ég
held að allir geti haft gaman af
þeim.“
„Talaði allt-
af um þetta
sem meist-
araverk“
Í ÁRSSKÝRSLU Samtaka um
kvennaathvarf kemur fram að kom-
um í athvarfið hefur fjölgað ár frá
ári síðustu þrjú ár og er sú fjölgun
rakin til aukinnar umræðu um kyn-
bundið ofbeldi og þau úrræði sem
konum standa til boða.
Fram kemur að árið 2005 hafi
557 konur komið í athvarfið, þar af
voru 465 sem komu í viðtöl en 92
konur dvöldu í athvarfinu.
Er það talsverð aukning frá
árinu áður en þá voru þær 531 en
388 árið 2003.
Aukin meðvitun um alvöru
kynbundins ofbeldis
Í skýrslunni segir að árið 2005
hafi einkennst af aukinni meðvitund
í samfélaginu um alvarleika kyn-
bundins ofbeldis sem afleiðingu af
misrétti kynjanna. Samtökin hafi
lagt fram efnismiklar tillögur um
aðgerðir til úrbóta og hafi þeim
verið vel tekið og sjá samtökin fram
á lagabreytingar, aðgerðaáætlanir
og vinnureglur meðal fagfólks til að
auka forvarnir og taka á afleið-
ingum kynbundins ofbeldis á árinu
2006.
Komum í
kvennaat-
hvarfið fjölgar
á milli ára
SAMKVÆMT nýjasta hefti Hagtíð-
inda um félög fjölmiðlafólks, lista-
manna, teiknara og grafískra hönn-
uða kemur fram að yfir 3.000 manns
voru í félögum listamanna á Íslandi
árið 2005. Innan þeirra eru 15 félög
og er Félag íslenskra hljómlistar-
manna fjölmennast. 607 manns voru
skráðir í Blaðamannafélag Íslands
og 62 eru skráðir í Félag frétta-
manna. 270 manns eru skráðir í Fé-
lag íslenskra teiknara en 72 í Félag
grafískra teiknara.
Yfir 3.000
manns
í félögum
listamanna
♦♦♦
JÓHANNES Viðar Bjarnason, eig-
andi Fjörukrárinnar, Fjörugarðs-
ins og Hótel Víkings í Hafnarfirði,
var valinn Ferðafrömuður ársins
2005, en hann þykir hafa sýnt ein-
staka athafnasemi, frumkvæði,
metnað og framúrskarandi árang-
ur sem og að hann hefur með hug-
myndaauðgi nýtt sögu og menning-
ararfleifð Íslendinga til að skapa
einstakt fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Valið var tilkynnt við setningu
Ferðatorgs 2006 í Fífunni í Kópa-
vogi í gær.
Er þetta í þriðja sinn sem útgáfu-
félagið Heimur stendur fyrir út-
nefningu Ferðafrömuðar ársins.
Samgönguráðherra afhenti Ferða-
frömuðinum viðurkenningarskjal
að lokinni setningarathöfn Ferða-
torgsins.
Sýningarnar Matur 2006 og
Ferðatorg 2006 verða opnaðar al-
menningi í dag kl. 11, en sýning-
arnar eru haldnar í Fífunni í Kópa-
vogi. Á fjórða hundrað fyrirtæki
bjóða þar til sælkeraveislu um
helgina og kynna spennandi heim
íslenskrar matargerðarlistar og
ferðalaga.
Margt verður um dýrðir í dag og
á morgun, en m.a. verður málþing
um íslenskt eldhús í dag undir yf-
irskriftinni „Íslenskt eldhús í fortíð,
nútíð og framtíð.“ Þá verður haldin
álfukeppni í matargerðarlist á veg-
um klúbbs matreiðslumeistara.
Einnig munu bankastjórar keppa í
eggjakökugerð.
Hafnfirskur vík-
ingur ferðafröm-
uður ársins
Morgunblaðið/Þorkell
Jóhannes Viðar Bjarnason, ferða-
frömuður ársins 2005, þykir hafa
sýnt mikið frumkvæði, metnað og
hugmyndaauðgi í starfi sínu.