Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SINUELDAFARALDUR hefur
gengið yfir landið í kjölfar mikilla
elda sem kviknuðu á Mýrum í Borg-
arfirði á fimmtudagsmorgun og
hafa geisað síðan. Bóndinn á
Hundastapa segist aldrei hafa séð
jafnmikinn sinubruna á svæðinu en
heyrt að svipaður eldur hafi geisað á
sama árstíma árið 1959. Mannvirki
hafa þó alveg sloppið enda hefur
slökkvistarf að miklu leyti snúið að
því að verja bæi á svæðinu.
Slökkvilið Borgarness vaktaði
eldinn í fyrrinótt, þá var hann í rén-
um en þegar líða tók á dag breyttist
vindáttin og jókst þá bálið á nýjan
leik.
Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðs-
stjóri í Borgarnesi, sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi ekki
geta nefnt nákvæma tölu um það
hversu stórt svæði hefur brunnið en
það væru hundruð ferkílómetra.
Eldurinn var þá orðinn mun minni
en á fimmtudagskvöld en erfiðlega
gengur þó að hafa stjórn á honum.
Liðsauki frá Akranesi, Búðar-
dal og höfuðborgarsvæðinu
„Við höfum enga stjórn á þessu,
við reynum að beina eldinum og af-
marka við vegi. Það hefur gefið
mjög góða raun að bleyta vegina vel
með sandfor og kúamykju og reyna
svo að loka einnig af annars staðar
og láta þetta brenna.“
Liðsauki barst m.a. frá Akranesi,
Búðardal og höfuðborgarsvæðinu
um miðjan dag í gær en jafnframt
var notuð þyrla sem varpaði vatni á
eldinn.
Voru á milli 50 og 70 manns að
vinna að slökkvistarfi í gærdag og
nánast allar haugsugur Borgar-
fjarðar í notkun. Einstaka bæir
voru í gjörgæslu og voru því fengnir
tankbílar frá fyrirtækjum í Borg-
arnesi þar sem mikið vatn þurfti til
að verja ræktað land og mannvirki.
„Við gátum komið í veg fyrir að eld-
urinn bærist að Hólmakoti en einn-
ig er brunnið mikið að bænum Ána-
stöðum og er verið að einbeita sér
að því að búa til skára með haugsug-
um sem eldurinn á ekki að komast
yfir,“ segir Bjarni sem bjóst við að
eldurinn myndi geisa áfram um
helgina og sagðist í raun engan endi
sjá á slökkvistarfi.
Bæirnir Brúarland, Arnarstapi
og Hrafnkelsstaðir voru einnig í
hættu og því vaktaðir. Bændur
unnu hörðum höndum að því að
dæla vatni upp úr lækjum til að
vernda bæi sína. Einn þeirra er
Ólafur Egilsson, bóndi á Hunda-
stapa, sem sagðist aldrei hafa séð
jafn mikinn sinubruna á svæðinu en
Ólafur hóf búskap á Hundastapa ár-
ið 1974.
Logaði víðs vegar í Reykjavík
Mikill erill var hjá slökkviliði víðs
vegar á landinu í gær vegna sinu-
bruna og í gærmorgun kviknaði í
sinu í Óslandi á Hornafirði. Var þá
mikill eldur á svæðinu beggja vegna
við svonefndan Gónhól þar sem
minnismerki sjómanna stendur en
Óslandið er friðland og er þar mikið
fuglalíf. Slökkvistarf gekk hins veg-
ar vel þar, vindátt var hagstæð og
náðu slökkviliðsmenn að hefta út-
breiðslu eldsins á skömmum tíma.
Ekki er vitað um upptök eldsins en
líkur voru taldar á að kviknað hefði í
út frá logandi sígarettu.
Á höfuðborgarsvæðinu voru fjöl-
mörg útköll vegna sinuelda og voru
þrír vinnuhópar frá Reykjavíkur-
borg kallaðir út til aðstoðar við
slökkvistarf. Samkvæmt upplýsing-
um frá slökkviliðsmönnum voru
brunarnir misstórir en víðs vegar
logaði í Reykjavík, Hafnarfirði og á
Seltjarnarnesi. Mestir voru eldarnir
í Foldahverfi og Fossvogi þar sem
hætta var jafnvel talin á að eldurinn
bærist í byggingar og trjágróður.
Fleiri hundruð ferkílómetra hafa brunnið í sinueldunum á Mýrum í Borgarfirði
Morgunblaðið/RAX
Mikið vatn þurfti til að verja ræktað land og mannvirki og reyna að hafa stjórn á eldinum. Búist er við að eldurinn mundi geisa áfram um helgina.
„Aldrei séð jafnmikinn
sinubruna á svæðinu“
Gífurleg orka manna hefur farið í að halda eldinum frá húsum. 50–70 manns unnu að slökkvistarfi í gær og barst
liðsauki m.a. frá Akranesi, Búðardal og höfuðborgarsvæðinu. Einnig var þyrla notuð til að varpa vatni á eldinn.
„Í STUTTU máli brennur sinan og þau efni sem breytast í loft-
tegundir fara upp í loftið, s.s. köfnunarefni og kolefni. Stein-
efnin verða hins vegar eftir, yfirborðið verður svart og hitnar
þar af leiðandi meira í sólskini um vorið,“ segir Sigurður H.
Magnússon, plöntuvistfræðingur, um sinubrunann á Mýrum.
Hann telur óhjákvæmilegt að bruninn muni hafa áhrif á gróður-
far og jafnvægi raskast. Sigurður segir gróðurinn á Mýrum
aðallega vera klófífu í lægðum en uppi á þúfunum er síðan
fjalladrapi og bláberjalyng.
„Sumar tegundir njóta góðs af þessu eins og grös en grasteg-
undir geta nýtt sér áburð mjög vel og munu færast í aukana en
aftur á móti mun smárunnum fara fækkandi.“
Minna verður um smárunna
en meira um grös
SINUBRUNINN mikli á
Mýrum ógnar ekki fuglalífi á
svæðinu þar sem um það bil
þrjár vikur eru í að varptími
mófugla hefjist en hins vegar
getur dreifing þeirra þá orðið
önnur en ella þar sem brun-
inn hefur áhrif á komandi
hreiðurgerð, segir Ævar
Petersen, forstöðumaður
Reykjavíkurseturs Náttúru-
fræðistofnunar Íslands.
Ævar segir að ef fuglarnir
finni ekki hentuga hreiður-
staði þá muni þeir fljúga eitt-
hvað annað en margir mófugl-
ar nota sinutoppa til að fela
hreiður sín í. „Ég efast nú um
að þetta komi til með að
fækka fuglunum en það er
verið að breyta landinu og
mesta hættan er að smádýr
verði ekki til reiðu fyrir
fuglana þegar þar að kemur,“
segir Ævar en bruninn getur
haft mikil áhrif á smádýralíf
bæði á yfirborðinu og eins
rétt undir því. „Það getur
leitt til þess að dreifingin
verði önnur, þeir þurfa að
fara eitthvað út fyrir þetta
svæði til að finna bæði
hentugan hreiðurstað og
svæði sem hentar til fæðuöfl-
unar.“
Dreifing
fugla gæti
orðið önnur
Á VEFSÍÐU Geimferðastofnunar Bandaríkjanna,
NASA, mátti í gær finna mynd sem gervitunglið
Terra tók af sinubrunanum í Hraunhreppi á Mýrum
klukkan 12:55 á fimmtudag. Myndir gervitunglsins
eru m.a. notaðar til að staðsetja og fylgjast með skóg-
areldum á jörðu niðri og tekst þeim afar vel því
nokkrir rauðir ferhyrningar eru merktir ofan á
myndina og merkja þeir elda. Reykjarstrókurinn frá
Mýrum sést einnig greinilega þar sem hann blæs til
suðvesturs.
NASA rekur auk þess gervitunglið Aqua en brautir
þess liggja yfir Ísland á hverjum degi. Morgunblaðið/NASA
Eldurinn greinilegur
á gervihnattamynd
Eftir Andra Karl
andrik@mbl.is