Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SINUELDAFARALDUR hefur gengið yfir landið í kjölfar mikilla elda sem kviknuðu á Mýrum í Borg- arfirði á fimmtudagsmorgun og hafa geisað síðan. Bóndinn á Hundastapa segist aldrei hafa séð jafnmikinn sinubruna á svæðinu en heyrt að svipaður eldur hafi geisað á sama árstíma árið 1959. Mannvirki hafa þó alveg sloppið enda hefur slökkvistarf að miklu leyti snúið að því að verja bæi á svæðinu. Slökkvilið Borgarness vaktaði eldinn í fyrrinótt, þá var hann í rén- um en þegar líða tók á dag breyttist vindáttin og jókst þá bálið á nýjan leik. Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðs- stjóri í Borgarnesi, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi ekki geta nefnt nákvæma tölu um það hversu stórt svæði hefur brunnið en það væru hundruð ferkílómetra. Eldurinn var þá orðinn mun minni en á fimmtudagskvöld en erfiðlega gengur þó að hafa stjórn á honum. Liðsauki frá Akranesi, Búðar- dal og höfuðborgarsvæðinu „Við höfum enga stjórn á þessu, við reynum að beina eldinum og af- marka við vegi. Það hefur gefið mjög góða raun að bleyta vegina vel með sandfor og kúamykju og reyna svo að loka einnig af annars staðar og láta þetta brenna.“ Liðsauki barst m.a. frá Akranesi, Búðardal og höfuðborgarsvæðinu um miðjan dag í gær en jafnframt var notuð þyrla sem varpaði vatni á eldinn. Voru á milli 50 og 70 manns að vinna að slökkvistarfi í gærdag og nánast allar haugsugur Borgar- fjarðar í notkun. Einstaka bæir voru í gjörgæslu og voru því fengnir tankbílar frá fyrirtækjum í Borg- arnesi þar sem mikið vatn þurfti til að verja ræktað land og mannvirki. „Við gátum komið í veg fyrir að eld- urinn bærist að Hólmakoti en einn- ig er brunnið mikið að bænum Ána- stöðum og er verið að einbeita sér að því að búa til skára með haugsug- um sem eldurinn á ekki að komast yfir,“ segir Bjarni sem bjóst við að eldurinn myndi geisa áfram um helgina og sagðist í raun engan endi sjá á slökkvistarfi. Bæirnir Brúarland, Arnarstapi og Hrafnkelsstaðir voru einnig í hættu og því vaktaðir. Bændur unnu hörðum höndum að því að dæla vatni upp úr lækjum til að vernda bæi sína. Einn þeirra er Ólafur Egilsson, bóndi á Hunda- stapa, sem sagðist aldrei hafa séð jafn mikinn sinubruna á svæðinu en Ólafur hóf búskap á Hundastapa ár- ið 1974. Logaði víðs vegar í Reykjavík Mikill erill var hjá slökkviliði víðs vegar á landinu í gær vegna sinu- bruna og í gærmorgun kviknaði í sinu í Óslandi á Hornafirði. Var þá mikill eldur á svæðinu beggja vegna við svonefndan Gónhól þar sem minnismerki sjómanna stendur en Óslandið er friðland og er þar mikið fuglalíf. Slökkvistarf gekk hins veg- ar vel þar, vindátt var hagstæð og náðu slökkviliðsmenn að hefta út- breiðslu eldsins á skömmum tíma. Ekki er vitað um upptök eldsins en líkur voru taldar á að kviknað hefði í út frá logandi sígarettu. Á höfuðborgarsvæðinu voru fjöl- mörg útköll vegna sinuelda og voru þrír vinnuhópar frá Reykjavíkur- borg kallaðir út til aðstoðar við slökkvistarf. Samkvæmt upplýsing- um frá slökkviliðsmönnum voru brunarnir misstórir en víðs vegar logaði í Reykjavík, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Mestir voru eldarnir í Foldahverfi og Fossvogi þar sem hætta var jafnvel talin á að eldurinn bærist í byggingar og trjágróður. Fleiri hundruð ferkílómetra hafa brunnið í sinueldunum á Mýrum í Borgarfirði Morgunblaðið/RAX Mikið vatn þurfti til að verja ræktað land og mannvirki og reyna að hafa stjórn á eldinum. Búist er við að eldurinn mundi geisa áfram um helgina. „Aldrei séð jafnmikinn sinubruna á svæðinu“ Gífurleg orka manna hefur farið í að halda eldinum frá húsum. 50–70 manns unnu að slökkvistarfi í gær og barst liðsauki m.a. frá Akranesi, Búðardal og höfuðborgarsvæðinu. Einnig var þyrla notuð til að varpa vatni á eldinn. „Í STUTTU máli brennur sinan og þau efni sem breytast í loft- tegundir fara upp í loftið, s.s. köfnunarefni og kolefni. Stein- efnin verða hins vegar eftir, yfirborðið verður svart og hitnar þar af leiðandi meira í sólskini um vorið,“ segir Sigurður H. Magnússon, plöntuvistfræðingur, um sinubrunann á Mýrum. Hann telur óhjákvæmilegt að bruninn muni hafa áhrif á gróður- far og jafnvægi raskast. Sigurður segir gróðurinn á Mýrum aðallega vera klófífu í lægðum en uppi á þúfunum er síðan fjalladrapi og bláberjalyng. „Sumar tegundir njóta góðs af þessu eins og grös en grasteg- undir geta nýtt sér áburð mjög vel og munu færast í aukana en aftur á móti mun smárunnum fara fækkandi.“ Minna verður um smárunna en meira um grös SINUBRUNINN mikli á Mýrum ógnar ekki fuglalífi á svæðinu þar sem um það bil þrjár vikur eru í að varptími mófugla hefjist en hins vegar getur dreifing þeirra þá orðið önnur en ella þar sem brun- inn hefur áhrif á komandi hreiðurgerð, segir Ævar Petersen, forstöðumaður Reykjavíkurseturs Náttúru- fræðistofnunar Íslands. Ævar segir að ef fuglarnir finni ekki hentuga hreiður- staði þá muni þeir fljúga eitt- hvað annað en margir mófugl- ar nota sinutoppa til að fela hreiður sín í. „Ég efast nú um að þetta komi til með að fækka fuglunum en það er verið að breyta landinu og mesta hættan er að smádýr verði ekki til reiðu fyrir fuglana þegar þar að kemur,“ segir Ævar en bruninn getur haft mikil áhrif á smádýralíf bæði á yfirborðinu og eins rétt undir því. „Það getur leitt til þess að dreifingin verði önnur, þeir þurfa að fara eitthvað út fyrir þetta svæði til að finna bæði hentugan hreiðurstað og svæði sem hentar til fæðuöfl- unar.“ Dreifing fugla gæti orðið önnur Á VEFSÍÐU Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, mátti í gær finna mynd sem gervitunglið Terra tók af sinubrunanum í Hraunhreppi á Mýrum klukkan 12:55 á fimmtudag. Myndir gervitunglsins eru m.a. notaðar til að staðsetja og fylgjast með skóg- areldum á jörðu niðri og tekst þeim afar vel því nokkrir rauðir ferhyrningar eru merktir ofan á myndina og merkja þeir elda. Reykjarstrókurinn frá Mýrum sést einnig greinilega þar sem hann blæs til suðvesturs. NASA rekur auk þess gervitunglið Aqua en brautir þess liggja yfir Ísland á hverjum degi. Morgunblaðið/NASA Eldurinn greinilegur á gervihnattamynd Eftir Andra Karl andrik@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.