Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vertu til er
vortískan
kallar á þig
á morgun
ÚR VERINU
MJÖG dökkar atvinnuhorfur eru
framundan ef slær í bakseglin á ís-
lenskum vinnumarkaði og ekki verð-
ur lengur þörf
fyrir jafnmikið af
starfsfólki í svei-
flugreinum á borð
við byggingariðn-
að, segir Gylfi
Arnbjörnsson,
framkvæmda-
stjóri Alþýðusam-
bands Íslands.
Hann segir
stjórnvöld leggja
of mikla ábyrgð á hagstjórninni á
herðar Seðlabankans.
Hann segir að ASÍ hafi verið, og
sé enn, gagnrýnið á hagstjórn sem
hafi ekki haft það sem forgangsverk-
efni að tryggja undirliggjandi stöð-
ugleika í afkomu fólks og fyrirtækja.
„Þrátt fyrir að okkar fólk njóti sumt
hvert kaupmáttaraukningar af þessu,
til dæmis í formi lægra bílaverðs, þá
höfum við talsverðar áhyggjur af því
að þetta sé skammgóður vermir og
framundan séu erfiðir tímar fyrir
okkar fólk,“ segir Gylfi.
„Hingað til höfum við ekki beint
mikilli gagnrýni að Seðlabankanum
sjálfum í hans vaxtahækkunarferli.
Við höfum metið það svo að í sinnu-
leysi og aðgerðaleysi stjórnvalda um
þeirra þátt í hagstjórninni sé Seðla-
bankinn að þessu leyti skilinn eftir
einn með ábyrgðina,“ segir Gylfi.
Hann bendir á að Seðlabankinn þurfi
að fara eftir lögum um bankann, sem
neyði bankann til að fara þá leið sem
bankinn hefur ákveðið.
Hann sagði þó bankann hafa aðrar
aðferðir sem e.t.v. væru vannýttar,
t.d. að auka bindiskyldu og lausa-
fjárkvöð. Hækkanir á stýrivöxtum
leiddu afar hægt til samdráttar á eft-
irspurn og hefðu fyrst og fremst
áhrif á gengi íslensku krónunnar,
sem hefði styrkst hratt vegna
ákvörðunar Seðlabankans sl. fimmtu-
dag.
„Alþýðusambandið telur að þessi
hagstjórnarstefna og þessi blanda af
hagstjórnartækjum sem í dag er not-
uð sé mjög hættuleg, og grafi undan
stöðugleika í íslensku þjóðlífi. Það að
setja óvissuna og þrýstinginn á út-
flutnings- og samkeppnisgreinarnar
og að draga úr mætti þeirra með
þessum hætti er ákaflega tímabund-
in aðgerð,“ segir Gylfi.
Hann segir að sveiflugreinar á
borð við fjárfestingabankastarfsemi
og byggingageirann blómstri á með-
an hátæknifyrirtæki eins og Marel
neyðist til að stækka erlendis frekar
en á Íslandi, með tilheyrandi missi á
störfum í hátæknigeiranum.
Verðbólga í engu samræmi
við ákvæði kjarasamninga
„Ef slær í bakseglin […] geta orð-
ið mjög dökkar atvinnuhorfur þegar
þessi skammtímastörf detta út, það
verður ekki lengur þörf fyrir fólk í
byggingageiranum og þá verður illt í
efni,“ segir Gylfi.
Aðgerðir Seðlabankans duga ekki
til að koma verðbólgunni niður fyrir
þolmörk Seðlabankans og eru þau þó
hærri en sársaukamörkin í kjara-
samningum ASÍ, að sögn Gylfa.
„Hér er gert ráð fyrir því að verð-
bólga á síðasta ársfjórðungi þessa
árs verði yfir 5%, og að á næsta ári
verði hún yfir 6%. Það er í engu
samræmi við þá kjarasamninga sem
eru í gildi.“
Gylfi bendir á að launahækkun um
næstu áramót verði 2,9% í rúmlega
5% verðbólgu og ljóst sé að horft
verði til þessa þegar kjarasamningar
verða endurskoðaðir í nóvember nk.
Hann sagðist ekki vilja spá fyrir um
niðurstöðu endurskoðunarinnar nú,
en ef lagt verði upp með efnahags-
stefnu þar sem þess sé vænst að
hægt verði að halda verðbólgunni í
5–6% þurfi varla að spyrja að því.
Erfiðir tímar framundan að
mati Alþýðusambandsins
Gylfi Arnbjörnsson
FLUGFÉLAGIÐ Landsflug/City Star Airlines hefur
tekið á leigu nýja þotu af gerðinni Dornier 328-300.
Ráðgert er að bjóða hana til þjónustu við þá sem þurfa
að ferðast milli landa í viðskiptaerindum. Þotan verður
til ráðstöfunar ýmist frá Reykjavík eða Aberdeen í
Skotlandi þar sem erlendi hluti flugrekstrarins, City
Star, hefur aðalstöðvar og annast m.a. áætlunarflug
milli Aberdeen og þriggja borga í Noregi auk leigu-
flugs.
Rúnar Árnason er framkvæmdastjóri Landsflugs,
Atli Georg Árnason er starfandi stjórnarformaður og
Jón Ingi Jónsson flugmaður er flotastjóri. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Atli að nýja þotan, sem tekur 14
manns í sæti, byði upp á nýja möguleika í ferðamáta frá
Íslandi. „Við teljum að tímasetningin sé rétt, ekki síst á
Íslandi, þar sem fyrirtæki þurfa í auknum mæli að
senda menn í viðskiptaerindum með litlum fyrirvara
frá Reykjavík til nágrannalanda,“ segir Atli og minnir
á að tíminn í viðskiptalífinu sé iðulega dýrmætur og því
áríðandi að geta komist fljótt og vel á milli. Telur hann
rekstrargrundvöll fyrir þotu sem þessa, bæði út frá
Reykjavík og starfsstöð félagsins í Aberdeen. Hann
segir íslensk fyrirtæki vera orðin þátttakendur í al-
þjóða fjármálaheiminum og hefur fulla trú á að þau
muni nota sér þjónustu sem þessa.
Atli segir þotuna glænýja og að hún sé hljóðlát. Hún
er hliðstæð Dornier 328-100 skrúfuþotunni, búkurinn
er hinn sami og stjórnklefinn einnig. Munurinn felst í
hreyflunum. Landsflug rekur í dag þrjár skrúfuþotur
af þeirri gerð, eina hérlendis og tvær ytra.
Landsflug annast innanlandsflug milli Reykjavíkur
og nokkurra áfangastaða, Hafnar í Hornafirði, Vest-
mannaeyja, Bíldudals, Gjögurs og Sauðárkróks. Einnig
annast félagið sjúkraflug frá Vestmannaeyjum. Frá
Aberdeen flýgur City Star Airlines til Oslóar, Stavang-
urs og Kristjánssunds.
Landsflug tekur
Dornier 328
þotu á leigu
Morgunblaðið/Ásdís
Atli Georg Árnason, stjórnarformaður Landsflugs
(t.v.), og Rúnar Árnason framkvæmdastjóri.
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
REIKNA má með því að aflaverð-
mæti hlutar Íslendinga úr norsk-ís-
lenzku síldinni í ár gæti orðið að
minnsta kosti 3 til 4 milljarðar króna í
ár, samkvæmt útreikningum Morg-
unkorns Glitnis. Ef næst að veiða all-
an kvótann, og miðað við afurðaverð á
síldarafurðum og með tilkomu fleiri
uppsjávarfrystiskipa, gæti aflaverð-
mætið aukist frá fyrra ári.
Ísfélagið er með mestan kvóta, 15%
eða 23.100 tonn. HB Grandi á næst-
mestan kvóta, eða 14%, og fær því
tæp 22.000 tonn úthlutuð. Síldar-
vinnslan kemur næst með13,7% eða
ríflega 21.000 tonn. Síldarvinnslan
hefur hins vegar aðgang að mun
meiru eða alls 53.600 tonnum, eða
34,8% heildarkvótans í gegnum skip,
sem hún á að hluta til, en það eru Guð-
mundur Ólafur, Bjarni Ólafsson og
Björg Jónsdóttir, og vegna skipa, sem
eru í föstum viðskiptum við Síldar-
vinnsluna, sem eru Hákon, Súlan og
Jóna Eðvalds. Vinnslustöðin er með
11,5% eða 17.600 tonn og Samherji er
með 10,4% eða 16.000 tonn. Eskja er
með 8,6% eða 13.200 tonn og aðrar út-
gerðir eru samtals með 5,7% eða
8.800 tonn.
Mestan kvóta einstakra skipa hefur
Baldvin Þorsteinsson EA, 13.250
tonn. Næstur kemur Börkur NK
12.545 tonn og eru þessi skip í nokkr-
um sérflokki. Næstu skip eru Huginn
VE með 8.689, Júpíter ÞH með 7.898
og Guðrún Þorkelsdóttir SU með
7.758 tonn. Nú er heimilt að flytja
aflamark í norsk-íslenskri síld á milli
ára. Þannig má veiða 5% umfram út-
hlutun, sem þá dregst frá heimildum
næsta árs. Einnig má geyma 20% af
aflamarki til næsta árs.
Síldarvinnslan með mest af síld
!" # $%&' ! ()% * +, $*
)
+-
!. ()/ #
+ ") # 0 " $* 1
+, #' "
()/ 2
3 2-
1" $* * ! (4" #
+ "5
1
# 1
2
3 +%
# 67 #
+ 4" + -
8 9
# 5/ +
9 6"'/ !
* +- * +- + + # "7 9
!
) 6 $* #'
' # !33 +, : 3 # +
/
+ & ; + & ;
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
!
!
"#
"#
$"#
$"#
% & &"'# (!#
"! !# !
!)'"! &'"&*"! *
*" "! +'' * "( "!
Friðun hrygningarþorsks og
skarkola á vetrarvertíð 2006
Tískustraumar
Íslenskir fatahönnuðir
Hver er Miuccia Prada?
Anna Clausen stílisti
Hár - Förðun - Skart - Fylgihlutir - Baðföt