Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
www.vitusbering.dk
NÁM Í DANMÖRKU
Í boði er:
Á ensku og dönsku
• Byggingafræði
• Byggingaiðnfræði
• Markaðshagfræði
Á dönsku
• Veltækni
• Veltæknifræði
• Landmælingar
• Tölvutæknifræði
• Aðgangsnámskeið
• Byggingatæknifræði
• Framleiðslutæknifræði
• Útflutningstæknifræði
Hjá VITUS BERING í Horsens
bjóðum við upp á margvíslega
menntun.
Frá 26. mars til 5. apríl eru fulltrúar frá
Vitus Bering, Johan Eli Ellendersen og
Jørgen Rasmussen á Hótel Plaza. Hringið
í síma 590 1400, leggið inn skilaboð og
við munum hringja tilbaka, eða hringið
beint í Johan í síma 845 8715.
UNIVERSITY COLLEGE
VITUS BERING DENMARK
CHR. M. OESTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 7625 5000
FAX: +45 7625 5803
EMAIL: CVU@VITUSBERING.DK
V I T U S B E R I N G D E N M A R K
U N I V E R S I T Y C O L L E G E
Teheran. AFP, AP. | Að minnsta kosti
sjötíu manns biðu bana þegar þrír
öflugir jarðskjálftar skóku vestur-
hluta Írans snemma í gærmorgun.
Skjálftarnir voru svo öflugir að
heilu þorpin voru rústir einar, eftir
að þeir höfðu riðið yfir, og ollu ham-
farirnar mikilli skelfingu meðal íbúa
á svæðinu.
Talsmenn innanríkisráðuneytis-
ins íranska sögðu að yfir 1.200
manns hefðu orðið fyrir meiðslum í
skjálftunum, sem skullu á með
stuttu millibili í fyrrinótt, skömmu
eftir miðnætti að íslenskum tíma.
Fyrsti skjálftinn mældist 4,7 á
Richters-kvarða, sá næsti 5,1 og
síðasti var öflugastur, mældist um 6
á Richters-kvarða.
Varð Lorestan-hérað verst úti í
hamförunum.
Embættismenn gerðu ráð fyrir
að tala látinna ætti eftir að hækka
eitthvað, en þó ekki að hún færi yfir
hundraðið
Íranska sjónvarpið sýndi myndir
í gær þar sem sjá mátti fólk á
verstu hamfarasvæðunum milli
borganna Doroud og Boroujerd
grafa í rústum húsa sinna.
Um 330 þorp á svæðinu eru sögð
hafa orðið fyrir miklum skemmd-
um, sum eru rústir einar, að því er
fram kom í máli Mohammads Reza
Mohseni Sani, héraðsstjóra
Lorestan.
Skjálftar algengir
Björgunarfólk var þegar sent á
svæðið og sagði Mojtaba Mir-
Abdollahi, talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins, að sár þörf væri á
mat, teppum og hjúkrunarvörum.
Engin þörf væri þó á „alþjóðlegri
aðstoð“.
Jarðskjálftar eru algengir í Íran
en meðal annars er áætlað að
41.000 manns hafi dáið af völdum
skjálfta er varð nálægt borginni
Bam seint á árinu 2003.
Írani tínir það sem eftir er af eigum sínum úr rústum heimilis síns í þorpinu Khalegh Ali eftir jarðskjálftann í gær.
Tugir fórust í
skjálftum í Íran
: 9
7
60
;
7
.M,
0N&61
M$.
;5
&
$ 4
'(
#
# )
*
!
&
(+
, - (
(
(
%
/
2 B
-! B*3'
**('**
$ 4
'& #
.$/0*123&&4 >? / @ . 9 A5
AP
Um 330 þorp urðu fyrir miklum skemmdum og sum eru
rústir einar eftir að þrír öflugir landskjálftar riðu yfir
UNGIR Taílendingar á mótmæla-
fundi gegn Thaksin Shinawatra, for-
sætisráðherra Taílands, í Pattani-
héraði í sunnanverðu landinu í gær.
Á spjaldinu stendur: „Ekki koma til
suðursins.“
Thaksin kvaðst í gær vera fullviss
um að hann héldi embættinu eftir
þingkosningar sem verða á morgun.
Hann boðaði til kosninganna til að
reyna að binda enda á mikla póli-
tíska ólgu sem hófst í janúar þegar
fjölskylda hans seldi hlutabréf sín í
símafyrirtæki sem Thaksin stofnaði
áður en hann haslaði sér völl í
stjórnmálunum. Fjölskyldan fékk
sem samsvarar rúmum 130 millj-
örðum króna fyrir hlutabréfin og
þurfti ekki að greiða skatt.
Frá því að skýrt var frá sölunni
hafa mótmælafundir verið haldnir
nær daglega til að krefjast þess að
Thaksin segi af sér. Mótmælend-
urnir saka forsætisráðherrann um
að hafa misnotað völd sín í auðg-
unarskyni. AP
Forsætisráðherra Taílands
viss um að hann haldi velli
Varsjá. AFP, AP. | Sak-
sóknarar í Póllandi
gáfu í gær út ákæru á
hendur Wojciech Jaru-
zelski hershöfðingja,
fyrrverandi leiðtoga
kommúnistastjórnar-
innar í landinu, fyrir
að hafa sett herlög ár-
ið 1981 í því augnamiði
að brjóta lýðræðis-
hreyfingu verkafólks,
Samstöðu, á bak aftur.
„Jaruzelski hers-
höfðingi er ákærður
fyrir þann glæp
kommúnista að hafa
stýrt vopnaðri stjórn
af glæpsamlegum toga,“ sagði Prze-
myslaw Piatek, saksóknari Þjóðar-
minningastofnunarinnar svonefndu
(IPN), en henni hefur verið falið að
rannsaka glæpi framda í tíð nasista
og síðar kommúnista. Er Jaruzelski
gefið að sök að hafa brotið stjórn-
arskrá Póllands.
Kveðst hafa viljað fyrir-
byggja enn meira blóðbað
Jaruzelski gæti átt yfir höfði sér
ellefu ára fangelsisdóm ef hann
verður fundinn sekur, að því er
fram kom í yfirlýsingu IPN.
Ný hægristjórn í Póllandi, sem
komst til valda fyrir hálfu ári, hét
því að taka mál fyrrverandi komm-
únista upp, en í tíð fyrri stjórnar,
þar sem fyrrum kommúnistar réðu
ferðinni, rann málarekstur á hend-
ur Jaruzelski út í
sandinn.
Jaruzelski er nú
áttatíu og tveggja ára
gamall. Hann var leið-
togi pólska kommún-
istaflokksins 1981–
1989 og hélt um
stjórnartaumana í Pól-
landi á þessum árum.
Hann greindi fyrstur
frá því í dagblaðsvið-
tali í gær, að von væri
á tilkynningu um að
hann yrði ákærður
fyrir glæpi framda
1981.
Jaruzelski setti her-
lög í Póllandi í desember 1981 í því
skyni að berja Samstöðu, verka-
lýðshreyfingu Lechs Walesa, á bak
aftur. Þúsundir manna voru hand-
teknar í kjölfarið og tugir manna
týndu lífi í átökum. Meðal þeirra
sem máttu dúsa í fangaklefa voru
Walesa sjálfur, en hann varð síðar
forseti Póllands eftir endalok kalda
stríðsins, og Lech Kaczynski, nú-
verandi forseti.
Jaruzelski hefur haldið því fram
að hann hafi gripið til þessa ráðs í
því skyni að afstýra enn frekara
blóðbaði, sem fylgt hefði því ef
stjórnvöld í Moskvu hefðu skipað
sovéskum hermönnum á vettvang.
„Ég harma, fordæmi og biðst afsök-
unar á því [...] sem gerðist,“ sagði
hann í samtali við Associated Press
í fyrra.
Wojciech Jaruzelski
Jaruzelski sak-
sóttur fyrir að
hafa sett herlög