Morgunblaðið - 01.04.2006, Page 26
Mývatnssveit | Jón Aðalsteins-
son, bóndi í Vindbelg, var að
vitja um netin sín á Mývatns-
ísnum, austur af Belgjarhöfða, í
kuldanæðingi á dögunum. Hann
varð 80 ára hinn 27. mars og
hélt sig þá víðsfjarri sveitinni
sinni. Hann er greiðvikinn mað-
ur, ræðinn, mannblendinn og
skemmtilegur og kemur þannig
fyrir sig orði að eftir er tekið.
Jón er iðjumaður mikill. Enginn
sækir hin síðari ár veiðiskap í
Mývatn með viðlíka þrautseigju
sem hann og enn er hann að þótt
áttræður sé og ýmislegt farið að
gefa sig í skrokknum, að hans
eigin sögn.
Auk veiðiskaparins hefur Jón
nú 99 kindur á vetrarfóðrum.
Margir hugsuðu hlýtt til Jóns í
Belg á afmælisdaginn, sveit-
ungar sem aðrir, og þakka hon-
um góð og gjöful kynni.
Morgunblaðið/ BFH
Áttræður vitjar hann um netin
Iðjumaður
Árborg | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland
Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími
569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Eyjamenn bíða spenntir eftir leik HK
og ÍBV í Digranesi seinna í dag en þá
ráðast úrslit í Íslandsmóti kvenna í
handknattleik. Þeir Eyjamenn sem ekki
komast í Digranesið verða væntanlega
límdir við skjáinn því sigur í leiknum
þýðir að Íslandsmeistaratitillinn kemur
til Eyja.
Kvennalið ÍBV í handbolta hefur verið í
fremstu röð undanfarin ár og verið
flaggberi Eyjamanna á íþróttasviðinu. Ef
sigur næst í dag er árangur þeirra kær-
kominn, sérstaklega í ljósi nýjustu tíð-
inda af kvennaliði ÍBV í knattspyrnu
sem varð að draga sig út úr Íslands-
mótinu í sumar sökum manneklu.
Fyrir skömmu var haldið í Eyjum íbúa-
þing þar sem fjallað var um stöðu Vest-
mannaeyja í nútíð og framtíð. Kom með-
al annars fram í niðurstöðuorðum
þingsins að líkja mætti ástandi sam-
félagsins við það að vera að skipta um
vinnu. Ljóst væri að sjávarútvegurinn
yrði aldrei aftur sá burðarás í atvinnulíf-
inu sem hann var á árum áður. Enn-
fremur segir að vinnuskiptin séu ekki að
ósk Eyjamanna enda fylgdu góðar
tekjur, kraftur og stöðugur vöxtur at-
vinnulífi fyrri tíma. Viðbrögð við breyt-
ingunum hafa hins vegar verið lítil. Ljóst
sé að aðferðirnar, sem samfélagið kann
svo vel, henta ekki eins og þær gerðu áð-
ur.
Það var fyrirtækið Alta sem vann
skýrslu og sá um íbúaþingið. Oft er sagt
að glöggt sé gests augað og kom það vel í
ljós í vinnu starfsfólks Alta. Í umræðu
um stærsta málið sem var skipulag mið-
bæjarsvæðisins komu margar athygl-
isverðar hugmyndir fram og lítur út fyrir
að mikill vilji sé að tengja miðbæ Vest-
mannaeyja við bryggjusvæðið. Ljóst sé
að Eyjar hafi tækifæri til að skapa hafn-
armiðbæ sem væri einstakur á Íslandi.
Svo er spurning hvort það gerist.
Úr
bæjarlífinu
VESTMANNAEYJAR
EFTIR SIGURSVEIN ÞÓRÐARSON
FRÉTTARITARA
Engu er líkara en að
selsi fljóti á yfirborðinu,
en hið rétta er að ljós-
myndari beið þess að
flæddi yfir skerið og
Djúpivogur | Þessi mak-
indalegi selur átti greini-
lega náðugan dag þar
sem hann flatmagaði úti
á Fossárvík í Berufirði.
undir selinn svo að hægt
væri að fanga rétta
augnablikið og uppskar
þannig laun þolinmæð-
innar.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Selur á floti
Stefán Þorlákssonfékk bakverkjakastí Trier. Og áleit að
ef hann þýddi „Afi minn
fór á honum Rauð“ á
þýsku myndi það batna.
Opa mein ritt auf dem Rot
richtung nächstes Stätchen
holte Wein und Honigbrot
helles Bier und Mädchen.
En þetta dugði ekki.
Japanskur heimspekingur
ráðlagði honum þá að
þýða vísuna á ensku, sem
hann og gerði:
Grandfather rode away on Red
right to London city
fetching supply, bier and bread,
of both so fifty fifty.
Annars er vísan á ís-
lensku svona:
Afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suður á bæi
sækja bæði sykur og brauð
sitt af hvoru tagi.
Afi minn Lárus Blöndal
sagði að vísan væri ort í
Flóanum, sem væri aug-
ljóst af því að þar væri
málvenja að kalla kaffi og
export sitt af hvoru.
Vísur og
bakverkur
pebl@mbl.is
Egilsstaðir | Fjárafl – fjárfestinga- og þró-
unarsjóður er sjálfstæður sjóður í eigu
sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs og var
stofnaður í tengslum við sameiningu sveit-
arfélaga á Héraði, Austur-Héraðs, Fella-
hrepps og Norður-Héraðs.
Meginhlutverk sjóðsins er að efla byggð
í dreifbýli sveitarfélagsins með því að veita
styrki, kaup á hlutafé eða veita lán til verk-
efna sem styrkja búsetu í dreifbýli sveitar-
félagsins. Stofnfé er tíu milljónir króna frá
sveitarfélaginu og árlegt framlag sem
nemur sömu upphæð og sveitarfélagið fær
í sinn hlut vegna álagningar gjalda á gjald-
skyldar eignir raforkufyrirtækja í sveitar-
félaginu, að hámarki 10 milljónir króna ár-
lega.
Sjóðurinn úthlutaði styrkjum í fyrsta
sinn á dögunum. Féllu þeir í skaut Ragnari
Magnússyni, Bakkagerði, Jökulsárhlíð,
sem fær hálfa milljón króna til að koma á
fót kjötvinnslu og Sláturfélagi Austurlands
sem fær einnig hálfa milljón króna vegna
forhönnunar á sláturhúsi. Alls sóttu sex að-
ilar um styrk frá Fjárafli að þessu sinni.
Fjárafl úthlut-
ar í fyrsta sinn
Hveragerði | Örkin veitingar ehf., rekstr-
araðili Hótels Arkar í Hveragerði, hefur
tekið yfir rekstur Hótels Hlíðar í Ölfusi,
sem áður var rekið undir merkjum Foss-
hótela. Hótel Hlíð er sex kílómetrum sunn-
an við Hveragerði og var opnað í janúar
2003.
Á Hlíð eru 21 herbergi, sem öll eru vel
búin. Á næstu vikum verður settur upp
stór heitur pottur við hótelið þar sem
ferðalangar geta hvílt lúin bein, segir í
fréttatilkynningu. Einnig mun hann nýtast
hvatahópum á ferð um Suðurland sem og
hópa sem koma yfir vetrartímann til að
skoða norðurljósin.
Hótel Hlíð er nú þriðja hótelið sem rekið
er undir sama hatti, en fyrir eru Hótel Örk
í Hveragerði og Hótel Cabin í Reykjavík.
Hótel Örk yfir-
tekur rekstur
Hótels Hlíðar
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Mánudaginn 3. apríl klukkan 11:30 til 15:30 í húsnæði HA að Borgum
Nemendur á 2. ári í tölvunarfræði við upplýsingatæknideild Háskólans á Akureyri bjóða áhugasömum
að koma í heimsókn og kynnast spennandi forritunarverkefnum sem þeir hafa unnið að í vetur.
Verkefnin voru unnin í þremur hópum:
Cn101.net
Cn101.net er heimasíða þar sem Íslendingum eru kennd nokkur
grunnatriði í kínversku. Einnig er þar að finna nokkra punkta
um kínverska menningu. Síðan er á ensku til að sem flestir
geti nýtt sér hana.
One Handed Keyboard
Markmiðið með þessu verkefni er að þróa tæki sem gerir
fólki kleift að stjórna tölvu einungis með annarri hendi. Sýnt
verður eitt tæki sem kemur algerlega í staðinn fyrir mús og
venjulegt lyklaborð. Tækið hefur einungis 15 takka og hægt
er að nota það með öllum venjulegum heimilistölvum.
Thor – Nýtt hlutverk fyrir gamlar tölvur
Thor er verkefni sem snýr að tölvuþyrpingum. Markmið með
verkefninu er að gefa gömlum tölvum nýtt hlutverk, en
tölvuþyrpingar eru mikið notaðar í heimi vísinda og viðskipta.
Eins og máltækið segir margar hendur vinna létt verk.
Tölvuþyrpinginn Thor var prófuð og á kynningunni verða
niðurstöður prófana kynntar ásamt því að kynnt verður hvenær er best að nota tölvuþyrpingu.
Allir velkomnir
Þeir sem hafa áhuga á námi í tölvunarfræðum eru sérstaklega hvattir til að koma.
Þeir sem hefja nám í tölvunarfræðum næsta haust geta hlotið veglegan styrk
Nýnemar sem hefja raunvísindanám, m.a. tölvunarfræði haustið 2006 geta sótt um styrk að
upphæð 500.000 krónur frá fyrirtækinu Hugvit. Tveir styrkir verða veittir og við úthlutun verður
litið til árangurs umsækjenda í raungreinum í framhaldsskóla.
www.unak.is/tolvunarfraedi
Forritunarverkefni í tölvunarfræði kynnt
NÝTT!
! www.unak.is