Morgunblaðið - 01.04.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 29
MINNSTAÐUR
Selfoss | Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða gekk nýlega frá sam-
komulagi við Arkitektafélag Ís-
lands um að standa að samkeppni
um hönnun íbúðarhúsabygginga í
Hagalandi á Selfossi sem er í eigu
Ræktunarsambandsins. Landið
sem er vestan Eyravegar sunnan
við núverandi byggð hefur verið
deiliskipulagt og hluti þess tilbúinn
til framkvæmda. Það voru Ólafur
B. Snorrason framkvæmdastjóri
og Albína Thordarson formaður
Arkitektafélags Íslands sem und-
irrituðu samninginn um samkeppn-
ina.
Albína sagði ánægjulegt að sjá
þann metnað sem Ræktunarsam-
bandið sýndi með þessu verklagi
við skipulag nýs íbúðahverfis. Hún
sagði að þrátt fyrir að mörg íbúða-
hverfi risu væri lítið um samkeppni
af þessu tagi. Við undirritunina
kom fram að markmið samkeppn-
innar er að fá teikningar af góðum
íbúðum með ákveðnu svipmóti, að
ná fram hagkvæmni í byggingu
húsa, að ná fram hagkvæmni í
hönnun bygginga með endurtekn-
ingum og að auðvelda samfellda
jarðvinnu á byggingasvæðinu, bæði
við götur og húsgrunna.
Samkeppnin mun taka til 200 –
250 íbúða í fjölbýlis-, rað-, par- og
einbýlishúsum. Ekki er ætlunin að
öll hús í sama flokki lúti sömu
hönnun heldur er sóst eftir
ákveðnu svipmóti og lausnum sem
endurtaka má oft. Til þess að
framfylgja settum vinnureglum um
samkeppni sem þessa hefur verið
skipuð dómnefnd sem skipuð er
fulltrúum Ræktunarsambandsins
og Arkitektafélags Íslands og hef-
ur hún það hlutverk að semja
keppnislýsingu og leggja mat á
innsendar tillögur.
Reiknað er með að frestur til að
skila inn tillögum verði ákveðinn í
síðari hluta aprílmánaðar næst-
komandi.
Nafnleyndar verður gætt þar til
búið er að meta tillögurnar. Rækt-
unarsambandið vonast eftir góðri
þátttöku í samkeppninni meðal
arkitekta og væntir mikils af þeim
tillögum sem kunna að berast, en
vegleg verðlaun eru í boði.
Samkeppni um hönn-
un húsa í Hagalandi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá undirritun samnings Ræktunarsambandsins og Arkitektafélags Íslands
Eftir Sigurð Jónsson
Reykjanesbær | Mikill lúðrablástur
mun heyrast í Reykjanesbæ næstu
daga. Yngri sveitir Lúðrasveitar
Reykjanesbæjar leika í öllum skól-
um bæjarins á mánudag og þriðju-
dag og á þriðjudagskvöldið verða
síðan haldnir stórtónleikar í
Íþróttamiðstöð Njarðvíkur.
Síðastliðin tvö ár hafa Lúðrasveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, B-
sveit, og 2. bekkur forskóladeildar
Tónlistarskólans, sem eru öll sjö
ára börn í Reykjanesbæ, efnt til
samstarfsverkefnis einu sinni á
vetri, sem endað hefur með tón-
leikaröð í öllum grunnskólum
Reykjanesbæjar. Æfingar hafa
staðið yfir að undanförnu fyrir
þriðja verkefnið og hefur næst-
yngsta deild lúðrasveitarinnar, A+-
sveitin, bæst í hópinn. Mánudaginn
3. og þriðjudaginn 4. apríl munu
þessar sveitir halda tónleika í öllum
fimm grunnskólum Reykjanesbæj-
ar fyrir nemendur á yngsta stigi,
þar sem Forskóli 2 í hverjum
grunnskóla fyrir sig kemur fram
með lúðrasveitinni.
Þriðjudaginn 4. apríl nk. kl. 19.30
verða síðan haldnir stórtónleikar í
Íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Þar
mun elsta deild Lúðrasveitar Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar, C-
sveitin, flytja efnisskrá sem ætlað
er að höfða til allra aldurshópa. Til-
efni þessara tónleika er að sýna og
kynna lúðrasveit og lúðrasveitar-
tónlist fyrir yngri áheyrendum á
tónleikunum, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar. Einnig koma fram yngri
sveitirnar með það efni sem flutt
var í skólunum. Alls koma fram um
240 hljóðfæraleikarar, á öllum aldri.
Blásið í
marga
lúðra
Þú ert vor og átt stefnumót við stílhreinar línur
og flotta liti.
Sund- og strandfatalínan, fyrir konuna, karlinn
og börnin, er nú glæsilegri en nokkru sinni. Komdu
í Debenhams og vertu sundfær og flott/ur í fríinu.
Í Debenhams finnurðu mikið úrval af fatnaði
og gjafavöru á verði sem kemur þér í gott skap.
Sundföt
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
20
17
0
3/
20
06
frjáls
vor hjá debenhams
Sundfatnaðurinn á myndinni er væntanlegur.