Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 33
MENNING
Hættu
að hlaupa
apríl …
Gullna stýrið 2005
Hobbyhúsið, Dugguvogi 12, Sími 517 7040 • www.hobbyhusid.is
Sölusýning um helgina
Mest seldu hjólhýsi í heimi
Gæði — Þjónusta
Netsalan ehf.
laugardag kl. 13-17 • sunnudag kl. 13-17 • virka daga kl. 10-18
Vinsælastur í dag
BELGÍSKI rithöfundurinn Sylvia
Vanden Heede er enginn nýgræð-
ingur í barnabókaskrifum, en
bækur hennar eru nú hátt á fjórða
tuginn og hafa verið þýddar á
fjölda tungumála. Bækurnar um
Rebba og héru hafa notið sér-
stakra vinsælda en nú hefur sú
fyrsta í bókaflokknum verið þýdd
á íslensku. Sagan segir af nokkr-
um íbúum skógar nokkurs. Rebbi
og héra búa saman í tré og Ugli
og Pípi litli í öðru. Að einhverju
leyti minna sögurnar örlítið á sög-
urnar um Bangsímon og vini hans,
en þegar líður á bókina kemur í
ljós að persónur Vanden Heeden
eru af dálítið öðrum toga, sam-
skipti þeirra eru ef til vill meira
eins og gerist hjá fullorðnu fólki
en á sér stað í heimi Bangsímons.
Í báðum tilvikum er það þó mann-
legt eðli, breyskleiki og listin að
læra að lifa sem er bakgrunnur
sagnanna. Persónur Vanden Hee-
den eru mitt á milli mennsku og
dýrseðlis og sveiflast líka milli
þess að vera eins og fullorðið fólk
og börn. Þessi margræðni ljær
sögunum dýpt og dálitla lífsvisku
sem lesendur á barnsaldri með-
taka ómeðvitað. Þetta er raunin
með góðar barnabækur, sama ger-
ist til dæmis í bókum Tove Jans-
son um múmínálfana og hinum
fjölmörgu bókum Astrid Lindgren.
Bókin um Rebba og héru skiptist í
marga stutta kafla sem segja frá
lífi félaganna í skóginum á tímabili
sem spannar um það bil eitt ár,
bókin hefst um sumar og henni
lýkur að vori, árstíðirnar og fylgi-
fiskar þeirra á borð við kulda,
snjó og flensu eiga þátt í fram-
vindu sögunnar. Mannleg sam-
skipti, vinátta, umhyggja, gagn-
kvæmur skilningur, ást og virðing
móta boðskap sögunnar en á yf-
irborðinu er atburðarásin fjöl-
breytt og ýmis uppátæki ásamt
misjafnri lífsleikni söguhetja halda
ungum lesendum við efnið. Sögu-
þráður er jafnan einfaldur og auð-
velt að fylgja honum, litlir orða-
leikir og uppákomur ásamt
dásamlegum, liprum og lifandi
teikningum sem gæða persónur
miklu lífi og nærveru gera söguna
lifandi. Endurtekningar og
áherslur á einstök orð eru vel við
hæfi lítilla barna en bókin hentar
líka vel þeim sem eru að byrja að
lesa og er skrifuð með þau í huga,
inn á milli er tam. fjallað um staf-
setningu einstakra orða en einatt
á skemmtilegan hátt. Fyrir yngri
börn er hún einnig skemmtileg
lestrarstund og kaflarnir hæfilega
langir. Hinn undirliggjandi en síst
af öllu uppáþrengjandi boðskapur,
marghliða persónur, fjölbreytt
umfjöllunarefni og skemmtilegt
samspil texta og mynda gerir bók-
ina að ákjósanlegri lesningu fyrir
bæði börn og fullorðna sem óhætt
er að mæla með.
Með ást og virðingu
BÆKUR
Barnabók
eftir Sylvia Vanden Heede með teikn-
ingum eftir Thé Tjong-Khing
140 bls. Mál og menning 2006.
Rebbi og héra
Ragna Sigurðardóttir
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn