Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 34
Daglegtlíf
apríl
V
ið höfum lengi verið skútufólk og
höfum siglt mjög víða í gegnum
tíðina. Hvert siglingasvæði hefur
sinn sjarma, en ég held að Tyrk-
landsstrendur standi upp úr öllu
öðru. Þar eru heillandi siglingasvæði, góðar
hafnir, skemmtilegt fólk, góður matur og afar
hagstætt verðlag,“ segir Önundur Jóhannsson,
sem ásamt eiginkonu sinni Sigurveigu Guð-
mundsdóttur er í þann mund að stofna skútu-
leigu í Tyrklandi.
Nýjar vel útbúnar skútur
Nú er verið að leggja lokahönd á fjórar glæ-
nýjar Jeanneau-skútur, sem eru í smíðum fyr-
ir þau í Frakklandi. Skúturnar verða allar af-
skaplega vel búnar og stefnt er að því að þær
verði komnar í rekstur í maímánuði eftir að
þeim hefur verið siglt 1.300 sjómílna leið um
Miðjarðarhafið frá Frakklandi til Tyrklands.
Það samsvarar leiðinni frá Vestmannaeyjum
til Glasgow og aftur til baka. Flaggskipið, sem
er 49 fet, er búið fjórum tveggja manna kab-
ínum, en hinar þrjár skúturnar, sem allar eru
45 feta, hafa þrjár tveggja manna kabínur
hver. Hægt er að leigja skúturnar með eða án
skipstjóra. Kostnaður við skútuleiguna fer eft-
ir fjölda farþega um borð, en nærri lætur að
vikuleiga leggi sig frá 260 evrum á manninn
sem samsvarar 22.500 krónum. Aukakostn-
aður fyrir skipstjóa nemur 105 evrum á dag.
Ótal fagrar víkur og vogar
Skúturnar verða staðsettar í smábænum
Göcek, sem er 22 km austur af Dalaman-
flugvelli á suðurströnd Tyrklands sem þjónar
m.a. Marmaris þangað sem Íslendingar eru
farnir að sækja. Þrjá tíma tekur að keyra til
Göcek Antalya og einnig er hægt að koma sér
til Marmaris með ferju frá Rhodos. Siglinga-
svæðið samanstendur af ótal víkum og vogum.
Gerð er krafa um að skipstjórar geti sýnt fram
á siglingareynslu, en að sögn Önundar er mjög
auðvelt að sigla um svæðið þótt æskilegt sé að
menn hafi kunnáttu í siglingafræði, notkun
sjókorta og meðhöndlun báts. Skútuhöfnin í
Göcek er ein af þeim vinsælustu við suður-
strönd Tyrklands. Íbúar Göcek eru hátt í fjög-
ur þúsund, en bærinn stendur við Fethiye-flóa,
þar sem gaman er að varpa akkeri, synda um í
sjónum, sóla sig og snorkla. Gaman er líka að
binda skútuna við bryggju í litlum víkum, fara
í skoðunarferðir og fá sér svo snæðing á litlum
fjölskyldureknum veitingastöðum, sem margir
eru reknir í flæðarmálinu, segir Sigurveig.
„Skútuleiga hefur verið draumur hjá okkur í
mörg ár sem nú er að verða að veruleika,“
segja þau hjón. Eftir að hafa verið skútuleigj-
endur í mörg ár eignuðust þau sína fyrstu
skútu árið 1998 sem fékk nafnið Salka Valka.
Þau leigðu skútuna til Sunsail, sem gerir út
báta út um allan heim, og fengu sjálf afnota-
rétt af skútunni í sex til átta vikur á ári.
„Fyrsta árið var skútan okkar í Króatíu, síðan
í fjögur ár í Karabíska hafinu og loks var henni
skilað í Tyrklandi. Þegar við fórum svo þangað
til að sækja bátinn kolféllum við fyrir staðnum
og því má segja að við höfum endað óvart í
Tyrklandi.“
Undanfarin sautján ár hafa þau Önundur og
Sigurveig verið búsett rétt fyrir utan Frank-
furt, en Önundur starfaði í Þýskalandi sem
flugstjóri hjá Lufthansa og Sigurveig er enn
starfandi flugfreyja hjá sama félagi. „Ég mun
halda áfram sem flugfreyja í hlutastarfi og
skýst svo í útgerðina þess á milli,“ segir Sig-
urveig og hlær.
Efnt verður til nafnasamkeppni
Að sögn Önundar er ekkert því til fyrirstöðu
að leika sér á skútu við Tyrklandsstrendur í
sjö til átta mánuði á ári, eða allt frá aprílmán-
uði og fram í nóvember. Áhugasamir skútu-
leigjendur geta haft beint samband við þau
Sigurveigu og Önund í gegnum netsíðu, en Úr-
val-Útsýn áformar jafnframt að bjóða upp á
pakkaferðir til Marmaris með möguleika á
skútuleigu hjá Seaways. „Nú vantar okkur
bara nöfn á nýju skúturnar. Flaggskipið kem-
ur til með að heita Salka Valka II, en við
áformum að efna til nafnasamkeppni á hinar
þrjár skúturnar og munum bjóða viku á skútu í
verðlaun,“ segir Önundur.
„Þessi feðamáti er skemmtilegur bæði fyrir
börn og fullorðna og þegar maður hefur einu
sinni prófað þetta vill maður ekkert annað.“
Að sögn Önundar verða allar skúturnar
skráðar á Íslandi þótt það sé dýrara en í Tyrk-
landi. „Það helgast fyrst og fremst af ein-
skærri föðurlandsást fyrir utan það að nafnið
„Reykjavík“ og íslenski fáninn vekur hvar-
vetna athygli og umræður þar sem lagst er að
bryggju.“
TYRKLAND | Íslensk hjón reka skútuleigu í Göcek í Tyrklandi með eða án skipstjóra
„Heillandi siglingasvæði
og hagstætt verðlag“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hjónin Önundur Jóhannsson og Sigurveig
Guðmundsdóttir ætla nú að fara að snúa sér
að rekstri skútuleigu við Tyrklandsstrendur.
Legið við bryggju inni í vinalegri vík.
Gaman er að sigla, synda og svamla í volgum sjónum.
Margir litlir fjölskylduveitingastaðir eru reknir í flæðarmálinu.
TENGLAR
...................................................................
www.seaways-sailing.com
Legið við akkeri við Tyrklandsstrendur.
join@mbl.is
Rómantík í París 35
Dansað í
Hornvík
36