Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 35
DANSKA ferðamálaráðið hefur
tekið sig til og gefið 107 þjónustu-
fyrirtækjum í ferðamennsku í Dan-
mörku stjörnur. Eftirfarandi fyr-
irtæki voru í átta efstu sætunum og
fengu fullt hús eða fimm stjörnur:
Tívolíið í Kaupmannahöfn
Legoland
Gamli bærinn í Árhúsum
Ríkislistasafnið
Givskud-dýragarðurinn
Dýragarðurinn í Kaupmanna-
höfn
Friðriksborgarsafnið
Vísindasafnið
Átta bestu
staðirnir í
Danmörku
FERÐALÖG |Stjörnu-
gjöf hjá danska ferða-
málaráðinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 35
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
París er vinsæll áfangastaðurfyrir rómantískar helg-arferðir en þá þarf hóteliðlíka að vera í lagi. Á ferða-
vef Aftenposten er fólki í Parísarhug-
leiðingum hjálpað að velja hótel sem
létta ekki pyngjuna um of. Valin voru
sex hótel út frá viðtölum við fólk sem
þekkir París, eigin reynslu blaða-
manna og leit á netinu. Gæði og góð
staðsetning, karakter og sjarmi var
lagt til grundvallar, en auk þess sann-
gjarnt verð.
Besta hótelið
Hotel Langlois var talið best. Það
er minnsta hótelið og þar fá gestir
mest fyrir peningana. Metro, Louvre
og verslunarmiðstöðvar í nokkurra
mínútna fjarlægð en hótelið sjálft í
rólegri götu þar sem fáir ferðamenn
eru á ferli. Gamalt hótel en hefur ver-
ið gert upp á smekklegan hátt. Verð á
bilinu 84–150 evrur.
Hotel Prima Lepic kemur næst í
röðinni en þar er verð á herbergjum á
bilinu 106–126 evrur, en jafnvel hægt
að fá ódýrari gistingu ef pantað er í
gegnum hótelvefi á netinu. Hótelið er
í nágrenni Sacre Coeur-kirkjunnar
og á götunni er þorpsstemning þar
sem hægt er að kaupa ávexti, græn-
meti, vín og pylsur af bændum.
Hotel Jeanne D’Arc er kallað Par-
ísardraumurinn. Sjarmerandi og
ódýrt hótel á torginu Place du
Marché Ste. Catherine. Hótelið er í
Marais-hverfinu sem er vinsælt til að
versla, njóta lista og matar. Gisting
kostar á bilinu 57–140 evrur. Hotel
L’Odeon er í Latínuhverfinu og þar
eru herbergin lítil. Hótelið var samt
sjarmerandi, með innbyggðu rúmi og
rósamáluðum skápum. Staðsetningin
hífir verðið allt upp í 220 evrur, en
hugsanlega hægt að fá ódýrara í
gegnum netið.
Hotel Des Tuileries er einnig vel
staðsett, sérstaklega fyrir þá sem
vilja skipta ferðalaginu í menningar-
og verslunarferð. Rue Saint-
Hyacinthe er örlítil gata nálægt
Louvre og óperunni og þar er kyrr-
látt. Góð staðsetning hífir verðið hins
vegar upp í allt að 220 evrur. New
Orient Hotel er nálægt Sigurbog-
anum í rólegu íbúðarhverfi. Her-
bergin eru hrein og vel innréttuð.
Góð þjónusta og lágt verð á bilinu 79–
130 evrur. Ekki margir veitingastaðir
í næsta nágrenni.
Hótel fyrir rómantísku helgarferðina
Gott er hvíla lúin bein við gosbrunna Parísarborgar.
PARÍS
Hotel Langlois **
63, rue Saint-Lazare
Metro: Trinité
Sími: 33- 1 48 74 78 24
www.hotel-langlois.com
Hotel Prima Lepic***
29, rue Lepic Metro: Blanche eller
Abesses Sími: 33- 1 46 06 44 64
www.hotel-paris-lepic.com
Hotel Jeanne D’Arc**
3, rue de Jarente
Metro: Saint Paul
Sími: 33- 1 48 87 62 11
www.hoteljeannedarc.com
Hotel L’Odeon ***
13, rue Saint-Sulpice
Metro: Saint Sulpice
Sími: 33- 1 43 25 70 11 www.hotel-
delodeon.com
Hotel Des Tuileries***
10, rue Saint-Hyacinthe
Metro: Tuileries eller Pyramides
Sími: 33- 1 42 61 04 17 www.mem-
bers.aol.com/htuileri
New Orient Hotel**
16 rue de Constantinople
Metro: Villiers, Europe
Sími: 33- 1 45 22 21 64 www.hotel-
paris-orient.com
ÁHUGAFÓLKI um
hús, innréttingar og
húsbúnað standa til
boða sérstakar fjög-
urra daga ferðir til
Feneyja, ef næg þátt-
taka fæst. Í frétt Berl-
ingske Tidende kemur
fram að Daninn Ulrik
Leth er að skipuleggja
ferðir til Feneyja í maí
og í október í haust.
Hann hefur samið við
eigendur Schiavon á
ítölsku „glerfram-
leiðslueyjunni“
Murano um að ferða-
langarnir fái að velja
litina á kristalinn og
jafnvel lögun á ljósakrónum, skálum
og vösum. Flogið verður á fyrsta
klassa til Feneyja og gist á hóteli rétt
við Rialto-brúna. Veit-
ingastaðirnir eru vald-
ir af þekktum mat-
gæðingum og er
uppihald og drykkir
ásamt skoðunarferð
með leiðsögn innifalið
og að sjálfsögðu tekur
Ulrik þátt í ferðinni.
Að auki fær hver og
einn þrjá kristals-
muni, sem blást-
ursmeistarar blása á
staðnum samkvæmt
óskum hvers og eins
að verðmæti 10 þús.
dkr. eða um 115.500
ísl. kr. Heildarverð
ferðarinnar er um
58.500 dkr. eða 675.800 ísl. kr. fyrir
manninn og er miðað við að ferðin
hefjist í Danmörku.
Lúxusferð til Feneyja
ÍTALÍA
Morgunblaðið/Ómar
Í dag, 1. apríl, er 35 ára afmæli Hertz á Íslandi. Í tilefni þess hlaupum
við á okkur með tilboði sem hljómar einsog aprílgabb og leigjum
allar tegundir bíla á
… taktu frekar bíl!
50 50 600 • www.hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
20
33
03
/2
00
6
yfir daginn*
*Á meðan birgðir af bílum endast. Tilboðið gildir um allt land, í Reykjavík,
Keflavík, á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og í Höfn. Venjulegt gjald samkvæmt
verðskrá tekur við ef fólk tekur bílinn lengur en einn dag.
35kr.
19.800
Vika í Danmörku
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
15
83
03
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima fyrir 1. apríl
- og fáðu 1000 Vildarpunkta
*Verð gildir eftir 1. apríl.
Miðað við gengi 1. mars 2006
*