Morgunblaðið - 01.04.2006, Page 36

Morgunblaðið - 01.04.2006, Page 36
36 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í APRÍL „ALLT í einu heyrðum við í skips- flautu og út við sjóndeildarhring í mistrinu mátti greina gráan brynd- reka, rússneskt herskip, og skipverj- ar voru að fleygja í hafið blóm- sveigum til minningar um látna félaga úr heimsstyrjöldinni síðari.“ Með þessum orðum hóf Hilmar sam- talið en hann og göngufélagarnir, sem eru hópur íþróttakennara sem útskrifuðust frá Laugarvatni 1978, lögðu af stað úr Hornvík í upphafi fjögurra daga gönguferðarinnar um Hornstrandir og voru komnir að Horná þegar skipsflautið fangaði at- hyglina. Í fyrstu sigldi hópurinn frá Ísafirði í Hornvík og daginn eftir var gengið af stað og merkilegir staðir skoðaðir eins og gengur. Fyrsta dag göng- unnar skyldi gengið á Hornbjarg, Miðfell og Kálfatinda. „Eftir við- komu í Hornbænum var haldið á bjargið. Gengið var upp sneiðinginn neðan Ystadals og þar upp á sjálft bjargið. Eftir gott stopp og kaffipásu var svo aftur haldið af stað og nú þurfti að klífa hlíðar Miðfells og sum- um leist nú ekkert á blikuna í fyrstu en er nær dró var þetta allt í lagi,“ sagði Hilmar. Uppi á Miðfelli var stoppað til að njóta útsýnisins og feg- urðin blasti við augum. Á niðurleið- inni var m.a. gengið framhjá Svað- askarði sem er fullt af fugli og hávaðinn í bjarginu er mikill. Þegar niður á sléttlendið var kom- ið var stefnan tekin á uppgöngu í Kálfatinda (530 m) sem er afar falleg leið. Þegar komið var fram hjá Stóða- hlíðavatni og að rótum múlans var hægt að hefja uppgönguna. „Á upp- leiðinni er bratt og hrikalegt og ekki fyrir alla að fara þar um,“ sagði Hilmar, „allavega er ekki gott að vera lofthræddur,“ bætti hann við. „Þegar upp var komið gleymdist þó öll hræðsla því að útsýnið sem við blasir er svo glæsilegt. Það liggur við að sjáist alla leið til Grænlands,“ sagði hann, greinilega allur í gríninu. Þennan dag voru gengnir 15–17 km og hópurinn var hvíldinni feginn þeg- ar að kvöldi kom því daginn eftir var strangt prógramm fyrir höndum. Gengu fjöruna í fylgd lágfótu Blikur voru á lofti þegar farið var á fætur því blíðviðrið sem ríkti daginn áður hafði vikið fyrir súld og smág- jólu. „Á meðan verið var að skipu- leggja ferðina veturinn áður sagði ég fólkinu að útbúa sig rétt svo að við yrðum við öllu búin. Það skilaði sér sem betur fer þennan dag því að eng- um var neitt að vanbúnaði,“ sagði Hilmar og hélt áfram: „Haldið var sem leið lá út með víkinni og út fjör- una í fylgd lágfótu sem var á morg- unskokki í fjörunni.“ Eftir smá klifur voru þau komin í Rekavík bak Höfn. „Við tókum smápásu á palli sem var við íbúðarhús sem stóð þar einu sinni en húsið fauk í fárviðri fyrir nokkrum árum. Eigendurnir lokuðu grunn- inum þannig að þarna er þessi líka fíni danspallur og við ákváðum að slá upp balli og rifjuðum upp nokkur dansspor frá skólaárunum. Við döns- uðum línudans með aðstoð einnar úr hópnum og annar lék á munnhörpu svo að þetta var allt í stíl.“ Þau voru þó ekki ein á ferð því að bar tvo útlendinga. „Þá rak í roga- stans að sjá þessa trylltu Íslendinga dansa þarna af hjartans lyst á hjara veraldar. Við buðum þeim í dansinn en þeir hlógu bara og héldu sína leið.“ Eftir þessa skemmtilegu hópefl- ingu var haldið af stað aftur og áætl- un haldin að mestu. Leiðin lá um kletta og klungur og víða var um hengiflug að fara. Allt gekk þó áfalla- laust fyrir sig og í bakaleiðinni gátu þau ekki stillt sig um að nýta dans- pallinn aðeins betur. „Nema hvað í þetta sinn var stiginn færeyskur dans með laginu um Ólaf sem reið með björgum fram,“ sagði Hilmar. „Ég varaði félagana við þessu og sagði þeim að á mínum æskuárum hefðu beitningamenn sungið þetta lag í skúrunum ef þeir vildu fá brælu og landlegu.“ Félagarnir töldu þetta raus í Hilmari og virtu viðvaranir hans að vettugi. Eftir góðan og viðburðaríkan dag var veislu- máltíð und- irbúin um kvöldið í Höfn og til veislunnar var fengið að láni sam- komutjald sem var þar í víkinni. Að lokinni vel heppnaðri veislu; söng, glensi og gamanmálum var skriðið í pokana til að safna kröftum fyrir næsta áfanga. Spádómurinn rættist Þegar þriðji dagur göngunnar miklu rann upp kom í ljós að viðvar- anir Hilmars um Ólaf liljurós voru ekki úr lausu lofti gripnar. „Þar sannaðist spádómur minn um söng- inn þann. Komið var hávaðarok, skúrir og þoka niður í miðjar hlíðar.“ Skotið var á ráðstefnu þar sem nið- urstaðan varð að slá af allar fyr- irfram ákveðnar áætlanir og kanna frekar nágrennið. „Farið var í fjöru- lall og kíkt í Hafnarósinn til að veiða. Samkomutjaldið góða kom sér vel og þar var sett upp kaffihús með til- heyrandi og föt þurrkuð,“ sagði Hilmar. Yrðlingar stilla sér upp fyrir myndatöku Lokadagurinn rann upp, þokka- lega bjartur og sjó var tekið að lægja. Fyrir lá siglingin til Ísafjarðar. „Það gekk vel að ganga frá og ekki arða skilin eftir af rusli. Okkar mottó er að skilja betur við en við komum að. Kveðjurnar sem við fengum voru góðar því þegar við vorum að fara hélt rebbafjölskylda sýningu fyrir okkur á tjaldstæðinu. Fjórir yrðling- ar brugðu á leik og stilltu sér upp fyrir myndatöku.“ Eftir að allir voru komnir til síns heima heilir á húfi var farið að huga að næstu ferð og hópurinn stefnir á göngu um Austfirði á komandi sumri en ákveðið hefur verið að fenginni reynslu að gista í húsi næsta sinni.  HORNSTRANDIR | Gamlir vinir og skólafélagar leggja land undir fót og ganga á fjöll Dansað af hjartans lyst á hjara veraldar Rússneskt herskip og yrðlingar að leik var með- al þess sem bar fyrir augu Hilmars Pálssonar sem segir hér Sigrúnu Ásmundar ferðasögu gönguhóps sem fór í sína fyrstu gönguferð um Hornstrandir sl. sumar. Ekki tjóaði að láta eftir sér lofthræðslu í mesta brattanum. Sögumaður og eiginkona hans, Guðbjörg Skarphéðinsdóttir. Fegurð Hornstranda er óumdeilanleg. Hver segir að glæsihýsi og galafatnað þurfi til að skemmta sér á dansgólfi? „Við ákváðum að slá upp balli og rifjuðum upp nokkur dansspor frá skólaárunum.“ Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. Afgreiðslugjöld á flugvöllum. Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna, og rútur með/án bílstjóra. Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur, allt að 14 manna. Smárútur fyrir hjólastóla. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum - frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án greiðslu og við staðfestum síðan og sendum samning og greiðsluseðla. Einnig má greiða með greiðslukorti. LALANDIA Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur. Lágmarksleiga 2 dagar. Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006 Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna- höfn og Flensborg. Getum útvegað hjólhýsi og bíla með dráttarkrók. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Fylkir.is ferðaskrifstofa sími 456 3745 Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.