Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 37
Gullna hofið Taj Mahal í Agra á
Indlandi var reist árið 1631.
FERÐAFRÖMUÐURINN Ing-
ólfur Guðbrandsson er nú að leggja
síðustu hönd á skipulag áttundu
hnattferðar sinnar sem nú þegar er
komin í sölu og vara mun allan októ-
bermánuð næstkomandi. Ferðin
tekur þrjátíu daga og mun kosta
rúmar 800 þúsund krónur á mann-
inn. „Þetta er lúxusferð, sem fer eft-
ir afar spennandi leiðum hringinn í
kringum hnöttinn með bestu flug-
kostum, sem völ er á, og gistingu á
bestu hótelum heims. Íslensku
ferðalangarnir munu meðal annars
gista á Ritz Carlton-hótelinu í Hong
Kong sem nýlega var valið besta
hótel heims af lesendum Travellers,“
segir Ingólfur í samtali við Ferða-
blaðið.
Það er ferðaklúbbur Ingólfs,
Heimskringla, sem stendur að
hnattreisunni í samstarfi við Heims-
ferðir og hefur Ingólfur valið alla
þjónustu í ferðinni sjálfur.
„Þetta er umfangsmesta ferð, sem
gerð hefur verið út frá Íslandi til
þessa dags, svo ég viti til,“ segir Ing-
ólfur og bætir við að áhugasömum
bjóðist kjörið tækifæri til að kynna
sér hvað í boði verður á opinni kynn-
ingu á Grand hóteli Reykjavík í dag.
Kynningin er lokakafli ferðanám-
skeiðs um mannlíf og menningu í
ýmsum heimshornum sem Ingólfur
hefur staðið fyrir að undanförnu.
Hnattreisan hefst á því að skoð-
aðir verða frægustu sögustaðir Ind-
lands. Síðan verður farið um Norð-
ur- og Suður-Taíland, þaðan til
Hong Kong og yfir til Sjanghæ, sem
Ingólfur segir, með fullri virðingu
fyrir öllum öðrum stórborgum, að sé
nú mesta framúrstefnuborg heims.
Frá Sjanghæ verður förinni heitið til
Japans, en í höfuðborginni Tókýó
verður gist á Conrad, sem sé topp-
urinn á Hilton-keðjunni. Hawaii
verður næsti áfangastaður með gist-
ingu á Hilton á Waikiki-ströndinni
þar sem talið er vera besta loftslag
heims, að sögn Ingólfs. Loks verður
viðdvöl í Los Angeles á leiðinni heim
til Evrópu.
Rekur slóð menningarinnar
Í ferðina komast þrjátíu manns og
segir Ingólfur að um helmingur sæt-
anna sé nú þegar seldur. „Ferðin
mun rekja slóð menningarinnar því
að menningin hófst ekki í Evrópu,
hún kom að austan. Minn metnaður
felst í að bjóða áhugaverðar ferðir
þar sem fólki býðst að kynnast þró-
un menningar að fornu og nýju og
upplifa það merkasta, sem heim-
urinn hefur upp á að bjóða, fyrir
brot af þeirri upphæð, sem forríkir
Ameríkanar eru að borga fyrir ferð,
sem Morgunblaðið kallaði „lúx-
usferð“ á baksíðu um liðna helgi, en
ferðast er með vél Loftleiða Ice-
landic.
Fyrir herlegheitin borga menn 3,5
milljónir kr. fyrir aðeins 20 daga
ferðalag. Heyrst hefur að eyjan
Malta í Miðjarðarhafinu reynist
mesti viðburður þessa ferðalags.
Það þarf enga heimsreisu til að
heimsækja Möltu og þaðan af síður
þarf hnattreisu til að fá kampavín og
rússneskan kavíar í morgunverð.
Mér dettur ekki í hug að aðrir en
ríkir Ameríkanar séu svo hégómleg-
ir að setja fjármuni sína í svona
ferðalag, sem eftir því sem ég kemst
næst liggur um fremur fáfarna staði
þar sem þjónustustig og aðbúnaður
er takmarkaður,“ segir Ingólfur.
Það er blandaður hópur fólks, að
sögn Ingólfs, sem sækir í hnattreis-
urnar, en yfirleitt sé um að ræða
fólk, sem hafi menningarlegan
áhuga á lífinu. „Flestar ferðir Ís-
lendinga eru því miður tilvilj-
anakenndar og án markmiða. Ég
keppi að því að skipuleggja áhuga-
verðar ferðir á heimsmælikvarða á
ótrúlega lágu verði, sem ég hef náð
með góðum langtímasamböndum
um allan heim. Svona ferðalag er
auðvitað stór viðburður í ævi hvers
manns.“
FERÐALÖG
Áttunda hnattreisan í haust
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Opin kynning verður haldin fyrir
áhugasama á hnattreisunni á
Grand hóteli Reykjavík í dag kl.
16.30.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 37
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
Í FERÐABLAÐI Politiken er fjallað um reykingar á
Kastrup-flugvelli við Kaupmannahöfn en þar er reyk-
ingamönnum ekki úthýst frekar en annars staðar í
Danmörku. Ekki eru allir hlynntir reyknum sem smýg-
ur um þótt um sérstök reykingasvæði sé að ræða og í
Politiken segir Hasse Jørgensen að verið sé að vinna í
málunum. Algjört reykingabann er í innritunarsal flug-
vallarins en þegar komið er inn í brottfararsvæðið er
annað upp á teningnum. Þetta svæði er árlega notað af
fimm milljónum reykingamanna. Veitingastaðirnir eru
orðnir griðastaðir þeirra þar sem búið er að fjarlægja
stóla af öðrum reykingasvæðum og koma fyrir borðum
með háfi yfir sem þarf að standa við. Þetta kemur niður
á öðrum gestum veitingastaðanna. Samkvæmt mæl-
ingum reykja 26% farþega Kastrup-flugvallarins, þ.e.
um fimm milljónir af þeim tuttugu milljónum sem fara
þar um á ári. Eftir sem áður er meirihluti farþega reyk-
laus. Jørgensen segir að til greina komi að koma fyrir
sérstökum reykherbergjum, en spurningunni um hve-
nær algjört reykingabann verði sett á flugvellinum seg-
ir hann ómögulegt að svara.
Reykingaherbergi á Kastrup?
DANMÖRK
Morgunblaðið/Ómar
Reykingamenn sem ætla til Kaupmannahafnar á
næstunni og fara um Kastrup-flugvöll gætu þurft að
sætta sig við að reykja í sérstöku reykingaherbergi.
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar