Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 58

Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VESTURHEIMI STEFNT er að því að sala á ís- lensku vatni undir vörumerkinu Ice- landic Glacial hefjist í Winnipeg í Kanada 1. maí næstkomandi og ekki verður þar við látið sitja, því sölumennirnir Larry Finnson og Valdimar Johnson hafa sett sér það markmið að koma vatninu á toppinn í Kanada. Tvenn alþjóðleg verðlaun Félagið Icelandic Water Holding Ltd. stendur að framleiðslu vatns- ins og rekur verksmiðju í Þorláks- höfn, þar sem vatni úr gamalli lind í Ölfusi er tappað á flöskur. Félagið er í meirihlutaeigu feðganna Jóns Ólafssonar og Kristjáns Ólafssonar, en Kristján keypti gjaldþrota vatns- framleiðslufyrirtæki árið 2003. Ári seinna hóf hann að íhuga mögu- leikann á útflutningi og fékk föður sinn til liðs við sig. Nú er sala og dreifing komin á fullt og nýlega sóttu þeir um leyfi til að byggja 4.500 fermetra húsnæði yfir fram- leiðsluna í Þorlákshöfn. Í fyrra skipulagði Jón Ólafsson markaðssetningu vatnsins á kvik- myndahátíðinni í Cannes í Frakk- landi og sagði hann við það tækifæri að þeir hefðu í raun úthýst frönsku vatni, eins og t.d. Evian, á eigin heimavelli þess. Mikil vinna var lögð í hönnun umbúða og vörumerk- is enda var ákveðið að leggja áherslu á hönnun, gæði og hreina ímynd Íslands frekar en keppa við stóru erlendu fyrirtækin á grund- velli verðs. Flaskan var hönnuð af Design Bridge í Englandi og er yf- irborð hennar hrjúft, líkt og skrið- jökull, og á merkimiðanum eru fjór- ar ólíkar jöklamyndir. Flaskan er ferköntuð og eru allar hliðar hennar ólíkar. Í september sl. vann framleiðslan til tvennra verðlauna á hönnunar- verðlaunahátíð flöskuvatns, sem var haldin í Dubai. Verðlaunin voru fyr- ir bestu alhliða hugmyndina og besta vörumerkið. Kristján sagði við Morgunblaðið í janúar að salan hefði farið á fullt skrið eftir að varan hafði unnið til verðlaunanna í Dubai. Bandaríski smásölurisinn Target hefði hafið sölu á vatnsflöskunum víðsvegar í Bandaríkjunum og hefði skuldbund- ið sig til að fjölga sölustöðunum í áföngum upp í 1.500 næsta sumar. Til heiðurs forfeðrunum Í Kanada hefst sala á þessari vöru í öllum sex verslunum Wal- Mart í Winnipeg, en það er bara byrjunin, að sögn Valdimars John- sons, verslunarstjóra í nýjustu versluninni við McPhillips Street í norðurhluta borgarinnar. „Larry Finnson, vinur minn frá Riverton, hafði samband við mig í haust sem leið og spurði hvort ég væri tilbúinn að markaðssetja og selja íslenskt vatn,“ segir Valdimar. Hann er sonur Valdimars og Sigrid Johnson í Riverton. Afi hans og amma í föðurætt voru Sigrún og Valdimar Johnson. Móðurafi hans var Fred Martin og móðuramma hans er Jónína Martin. „Fyrir nokkrum árum unnum við saman að því að markaðssetja súkkulaðið Clodhoppers, sem Krave’s Candy, fyrirtæki hans og Chris Emery, framleiðir. Við byrjuðum smátt en eftir tvö ár hafði það náð hæstu hæðum, í orðsins fyllstu merkingu, frá strönd til strandar. Með þetta í huga var ekki erfitt að segja já og ég gat heldur ekki hugsað mér betra tækifæri til að heiðra afa mína og ömmur. Væru þau öll á lífi yrðu þau stolt af framtakinu og fyrstu gestirnir í verslun minni 1. maí. Afar mínir eru dánir og aðeins önnur amma mín, Jónína, er á lífi og ég ætla að kaupa fyrsta kassann og færa henni hann að gjöf. Amma í Riverton fær fyrsta kassann og sala á vatninu er til minningar um bestu sendiherra Íslands, afa mína og ömmur.“ Fyrsta kynningin með Fálkunum Fyrsta kynning vatnsins í Winni- peg fór fram á dögunum og segir Valdimar að hún hafi tekist vel og vakið mikla athygli. „Við ákváðum að styrka Íslandsferð Fálkanna, skólaliðs Kelvin-gagnfræðaskólans í Winnipeg, buðum hamborgara og íslenskt vatn til sölu og tókum þannig þátt í að greiða keppnisbún- inga liðsins. Það fór vel á því að byrja á Fálkunum því allir þekkja tengingu þeirra við Ísland. Ég spila og þjálfa sjálfur hokkí í frístundum og hef gert lengi og ef við fengjum einhvern tíma tækifæri til að fara til útlanda væri Ísland fyrsta val.“ Magnús Ver til aðstoðar Til að byrja með verður vatnið aðeins selt í 500 ml flöskum í Kan- ada en til stendur að setja lítra flöskur á markað síðar í sumar. „Við lítum svo á að samkeppnin verði fyrst og fremst við Evian og við ætlum okkur að hafa betur í þeirri baráttu vítt og breitt um landið,“ segir Valdimar. „Í byrjun verður vatninu stillt upp á áberandi stöðum fremst í verslunum Wal- Mart í Winnipeg þar sem við- skiptavinum verður boðið að smakka á veigunum. Við verðum líka með frítt happdrætti í gangi frá 1. maí til 1. ágúst þar sem kaup- endur vatnsins geta freistað gæf- unnar í þeirri von að vinna Íslands- ferð. Vinningshafinn verður dreginn út og hann kynntur á Íslend- ingadeginum í Gimli 7. ágúst. Um sömu helgi verðum við með fjár- öflun í gangi til styrktar Barnaspít- alanum í Winnipeg og höfum við beðið Magnús Ver Magnússon, sterkasta mann í heimi, að taka þátt í þessu verkefni en hugmyndin er að láta hann draga víkingaskip fullt af íslenska vatninu um bílastæðið hérna fyrir framan verslunina mína. Þetta vatn fer ekki framhjá nein- um.“ Sala á íslensku vatni undir vörumerkinu Icelandic Glacial undirbúin í Winnipeg í Kanada „Amma í River- ton fær fyrsta kassann“ Nokkrir leikmenn Fálkanna með sölumönnum íslenska vatnsins í Winnipeg í Manitoba, Kanada. Larry Finnson til vinstri og Valdimar Johnson kynna íslenska vatnið í verslun Wal-Mart í Winnipeg þar sem Valdimar er verslunarstjóri. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is KANADÍSKA kvennaliðið Fálk- arnir, íshokkílið Kelvins-fram- haldsskólans í Winnipeg, hefur ver- ið hér á landi í menningar- og keppnisferð síðan á laugardag í lið- inni viku og heldur aftur áleiðis til Winnipeg á mánudag. „Þetta hefur verið ótrúleg upplifun fyrir alla í hópnum, ferð sem aldrei gleymist,“ segir Glenn Eliasson, skólastjóri Kelvins-framhaldsskólans og far- arstjóri. Hópurinn var fyrstu dagana í Reykjavík, fór í Bláa lónið, skoðaði Gullfoss og Geysi, fór á söfn og í verslanir. Á þriðjudag stóð til að koma við á Vesturfarasetrinu á Hofsósi á leiðinni til Akureyrar en því varð að sleppa vegna ófærðar. Reynt verður aftur á morgun á leið- inni til baka til Reykjavíkur. Fyrir norðan hafa stelpurnar og fylgd- arfólk þeirra meðal annars farið á hestbak í Laufási, skoðað stofnun Vilhjálms Stefánssonar og farið til Mývatns, en stefnt er að skoð- unarferð um Eyjafjarðarsveit í dag. Átta í 30 manna hópi eru af ís- lenskum ættum og hafa þeir notað tækifærið og heimsótt ættingja og vini. Allir hafa myndað ný sambönd og bera Kanadamennirnir gestgjöf- unum vel söguna. „Móttökurnar hafa hreint út sagt verið frábærar og allir hafa lagst á eitt að gera þessa ferð sem eft- irminnilegasta,“ segir Dan John- son, helsti hvatamaður ferðarinnar, aðstoðarþjálfari liðsins og far- arstjóri. Liðið lék tvo leiki við kvennalið Bjarnarins í Reykjavík og vann 7-1 og 5-0. Í fyrrakvöld unnu Fálkarnir kvennalið Skautafélags Akureyrar 4-0. Í dag kl. 18 mætir liðið landsliði Íslands á Akureyri en í fyrramálið verður annar leikur við SA. Ógleymanleg ferð „Íslendingarnir“ í hópnum í Egilshöll. Fremri röð frá vinstri: Kristine Johnson, Erika Manaigre og Sarah Guðrún Johnson. Aftari röð frá vinstri: Valerie Hoshizaki - Nordin (áður Thorkelson), frænka hennar Wendy Brown - Johnson, hjónin Cathie og Glenn Eliasson, og Dan Johnson, faðir Kristine og Sarah Guðrúnar. Morgunblaðið/Steinþór Leikmenn Bjarnarins og Fálkanna eftir síðari leik liðanna í Egilshöll í Grafarvogi. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.