Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 69

Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 69 MINNINGAR ✝ Guðrún E.Welding Dyrnes fæddist á Kárastíg 9a í Reykjavík 25. apríl 1928. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi sunnudaginn 19. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Friðrik P. Níelsson Welding, f. 20. júní 1879, og Þórunn Þorsteins- dóttir, f. 20. ágúst 1935. Systkini Guð- rúnar sammæðra voru: Ásmund- ur Kristinn Ásgeirsson, f. 1906, d. 1986, Ástvaldur Helgi Ásgeirs- son, f. 1908, d. 1980, Gunnar Að- alsteinn Ásgeirsson, f. 1909, d. 1980, Guðrún Ásgeirsdóttir, f. 1910, d. 1923, Þórarinn Ásgeir Ásgeirsson, f. 1913, d. 1941, Guð- laugur Adolf Ásgeirsson, f. 1915, d. 1958, Laufey Sigurrós Ásgeirs- dóttir, f. 1918, d. 2004, Borghild- ur Ásgeirsdóttir, f. 1919, auk tveggja Bryndísa er létust ungar. Systkini Guðrúnar samfeðra Welding Lenander, f. 1986, og Ir- isi Rósönnu Lenander, f. 1989. d) Reynir Friðrik Ingólfsson, f. 31. jan. 1961, var kvæntur Sölvi Fjellsetnes, f. 1961, en þau eru skilin. Saman eiga þau börnin Heidi Cecile Ingólfsson, f. 1981, og Linn Jeanette Ingólfsson, f. 1988. Guðrún fæddist í Reykjavík en frá 10 ára aldri ólst hún upp á Minni Bæ í Grímsnesi og var hún þar til 18 ára aldurs. 17 ára göm- ul fór Guðrún í húsmæðraskóla á Laugarvatni en eftir það fluttist hún aftur til Reykjavíkur. Þar kynntist hún Ingólfi þar sem hann var við nám og flutti hún síðan með honum til Eyja 1948. Eftir lát Ingólfs giftist Guðrún aftur en það hjónaband varð ekki farsælt. Guðrún bjó í Eyjum í 25 ár eða þar til eldgos hófst þar 1973. Þá fluttist hún til Grindavíkur og bjó þar þangað til hún flutti búferlum til Noregs 1974. Sumarið 1975 giftist Guðrún Johan Dyrnes, f. 16. apríl 1929, d. 3. janúar 2001, og bjuggu þau saman í Noregi í 27 ár eða þar til Johan lést. Eftir það flutti Guðrún aftur til Eyja og bjó þar fram að dánardegi. Útför Guðrúnar verður gerð frá Landakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15.30. voru: Jenný Petrína Welding Friðriks- dóttir, f. 1906, d. 1971, Hilmar Krist- berg Welding, f. 1907, d. 1968, og Fanney Friðriksdótt- ir Welding, f. 1909, d. 1976. Guðrún giftist í Vestmannaeyjum 16. júlí 1949 Ingólfi Ei- ríkssyni, f. 24. des. 1925, d. 5. des. 1970. Börn þeirra eru: a) Svana Ingólfsdóttir, f. 29. nóv 1950, gift Kristjáni Sig- mundssyni, f. 1951, þau eiga börnin Ragnheiði Ingu, f. 1971, Elías Rúnar, f. 1973, Sigmund Karl, f. 1976, Maríu, f. 1985, Ernu, f. 1985 og Klöru, f. 1989. b) Erna Ingólfsdóttir, f. 24. okt. 1952, gift Árna Gunnari Gunn- arssyni, f. 1950, og eiga þau börn- in Ingólf Guðna, f. 1972, Davíð, f. 1973, og Elínu, f. 1989. c) Rós- anna Ingólfsdóttir, f. 26. feb. 1956, gift Per Lenander, f. 1949, saman eiga þau börnin Richard Gudrun. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Tusen takk for at jeg fikk lov å være din venn og at du var min. Takk for at du satte spor i hjerte mitt. Siste hilsen til Gudrun, et „spe- sielt“ menneske, fra Ingrid Ramsli. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Það var árið 1983 að lítill peyi flutti ásamt fjölskyldu sinni á eyj- una Smöla í Noregi. Sá tími sem fjölskyldan bjó á Smöla er honum enn þann dag í dag ljóslifandi og minningarnar þaðan góðar. Að fá að tína jarðarber, fara í svínastíuna, í hænsnakofann, fara út á sjó eða veiða á stöng við naustið. Að sitja inni í stofu og hlusta á Jóhann spila á nikkuna, sitja við eldhúsborðið og spjalla eða spila og fá eitthvað gott að borða hjá Gunnu þetta eru minn- ingar sem munu lifa í hjarta þessa peyja alla ævi. Elsku Gunna mín, takk fyrir allt. Þinn Kjartan Vídó. Nú þegar komið er að leiðarlok- um viljum við fjölskyldan Odda Vm þakka Guðrúnu Welding, eða Gunnu Welding eins og hún var alltaf köll- uð, fyrir samferðina, sem var hvað mest þegar við áttum heimili í Nor- egi. Það var fyrir mörgum árum að ung hjón með fimm ára dreng fengu þá hugdettu að flytjast búferlum til Smöla-eyju við strendur Noregs. Þegar hugmyndin var að verða að veruleika skutu þau hjón Guðrún Welding og Johan Dyrnes húsa- skjóli yfir húsbóndann þar til fjöl- skyldan sameinaðist og komst í það húsnæði sem okkur hafði áskotnast. Ávallt var tekið vel á móti okkur í þeirra húsum og oft var mikið skraf- að og pælt í eldhúsinu hjá henni Gunnu Welding. Johan er nú látinn fyrir nokkrum árum. Sonur okkar átti þar hauk í horni og oftar en ekki fóru þeir að gefa hænsnum eða grísum og þann- ig varð hann tvítyngdur á örskömm- um tíma, eins og sagt er í dag, talaði bæði norsku og íslensku. Þeirra samskipti voru einlæg og náin. Það var auðséð að Johan sá einhvern neista sem hægt var að virkja í peyjanum. Það var oftar en ekki að það sást til þeirra tveggja á ferð, í hrókasamræðum um lífið og til- veruna. Guðrún Welding hafði sér- stakt lag á þessum litla peyja sem þurfti að vita allt og gera allt. Þegar vatn var látið renna í vaskinn var hann kominn með uppbrettar ermar og þá komst ró á alla umferð um eldhúsið. Þegar veiðiferð lauk og eitthvað fiskaðist var farið í það að verka og gera klárt fyrir eldamennsku. Þá skipti tíminn engu máli, þetta var bara venjan þegar karlmennirnir komu með afla, þá skyldi hann verk- aður og það sem síðar skyldi notað var fryst en hitt eldað. Veislumat- urinn var stundum smáufsi og lifur með flatbrauði. Ef eitthvað var til í stóru flöskunni var öllu skolað niður með slíkum veigum. Það er margs að minnast frá þessum tíma þegar Guðrúnar Weld- ing naut við. Með þessum fátæklegu kveðju- orðum viljum við minnast Guðrúnar E. Welding. Minningin er okkur kær. Við sendum öllum aðstandend- um einlægar samúðarkveðjur. Fjölskyldan Odda Vm. GUÐRÚN E. WELDING DYRNES ✝ Kristina SigrúnNielsen Pálma- dóttir fæddist á Lá- landi í Danmörku 2. júní 1992. Hún lést í Álaborg 27. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Pálmi Bene- diktsson ráðgjafi og Kirsten Nielsen lyfjatæknir. For- eldrar Pálma eru Benedikt Helgason tónlistarkennari og Ásta Ottesen (lát- in). Foreldrar Kirsten eru Grethe Nielsen og Børge Niel- sen, Dalmose, Danmörku. Systk- ini Kristinu Sigrún- ar eru Benedikt starfsmaður Lands- bankans í Lúxem- borg, f. 22.7. 1975, Maria nemi, f. 1.8. 1984, og Sara Ásta Grethe, f. 20.10. 1994. Kristina Sigrún gekk í Öldutúns- skóla í Hafnarfirði frá 1999 til 2001. Útför Kristínu Sigrúnar verður gerð frá Vester Hornum-kirkju við bæinn Farsø á Veterhimmerlandi fyrir sunn- an Álaborg í dag. Mér barst til eyrna bana fregn, um bitra vetrar stund. Því enginn stenst þeim gesti gegn þótt sýni hann sverð og mund. Ef dauðinn snart að dyrum ber það dæmi sýna ljós, þá fellur allt sem fyrir er, eins fögur björk og rós. (Baldvin Jónatansson.) Nú ferð þú burt frá föður ranni og friðarblíðum móðurarmi það vekur söknuð víst hjá manni enn von í brjósti kviknar senn að ætíð verði öllum vís eilíf sæla í Paradís. (Ólína Sigurgeirsdóttir.) Ég trúi því að Ásta amma hafi tekið á móti þér, og ég vona að þið takið á móti afa gamla þegar hann kemur. Guð blessi minningu þína. Afi Benni og Anna amma á Húsavík. „Þar sem jökulinn ber við loft hætt- ir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þess- vegna er gleðin ekki nauðsynleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“ (Halldór Laxness.) Litfríð og ljóshærð fæddist hún Kristina Sigrún; foreldrum sínum, stóru systkinum og ættingjum til ómældrar hamingju. Við hérna á Fróni fengum fréttir og myndir af henni og síðar litlu systur hennar Söru og heimsóttum fjölskylduna til Danmerkur þegar færi gafst. Alltaf gaman að vera kölluð tante Inga. Af einhverjum óútskýrðum ástæðum rofnaði síðan sambandið um hríð, okkur öllum til mikillar armæðu. Við skyndilegt fráfall litlu frænku gerir maður sér svo, seint og um síðir, grein fyrir því hvað máli skiptir í þessu lífi, fjölskylduböndin, kærleik- urinn og fyrirgefningin. Syrgir að hafa misst af því að hafa fengið að kynnast þessari litlu frænku betur, frænku sem líktist okkur kvenrembu- systrunum meira en okkar eigin dæt- ur, eftirsjá yfir því sem gæti hafa orð- ið – að fá ekki að sjá hana fermast, spila í hljómsveit og verða lögfræð- ingur í New York. Reiði vegna þess að skyndilega er slökkt á lífsljósi hennar og allir hennar draumar, væntingar og þrár verða aldrei neitt annað en það, draumar. Ekki er hægt að hugsa sér meiri sorg en þá að missa barnið sitt, væntanlega komast foreldrar aldrei yfir slíkan harm og ekki í raun hægt að ætlast til þess. Við getum einungis reynt að læra að lifa með sorginni, minnast þess fal- lega og góða og þakka fyrir hvern þann dag sem við fengum að hafa þessa elsku hjá okkur. Elsku Pálmi, Kirsten, Benni, Maria og Sara. Erfitt er að skilja til- ganginn með þessum hörmungum og við eigum öll eftir að ganga í gegnum dimman dal á næstu misserum. Tím- inn læknar engin sár, einungis deyfir sársaukann. Megi minningin um hug- rakka, elskulega og sterka stúlku verða okkur dýrmætt veganesti til að takast á við það líf sem bíður okkar. Ingibjörg Sara Benediktsdóttir. Ég get ekki sofið. Ég græt af því Guð er ei með mér. Hví? Langt er til dögunar. Lífið stutt. Lífsins kraftur fjarar burt. Hvað býr undir þessu öllu? Þannig hljóðar eitt ljóðanna sem ég orti táningur. Eins og aðrir táningar var ég farin að velta stóru lífsgátunni fyrir mér. Af hverju fæðumst við? Af hverju lifum við sum allt of lengi og sum allt of stutt? Hún Kristina Sigrún bróðurdóttir mín sem fékk að lifa svo allt of stutt hefur vafalaust verið að velta svipuð- um hlutum fyrir sér. Við vorum báðar látnar heita Sigrún en það nafn átti vinkona Ástu mömmu og ömmu. Þessi Sigrún dó úr berklum aðeins 16 ára gömul. Þú frænka litla fékkst að- eins 13 ár. Sama dag og pabbi þinn hringdi til að segja okkur frá láti þínu fengu afi og amma á Húsavík boðs- kort um að mæta í fermingu þína í maí næstkomandi. Við djúpri sorg verða orð svo óum- ræðilega fátækleg. Öll fjölskyldan syrgir nú Kristinu Sigrúnu. Við erum með ykkur, elsku Pálmi, Kirsten og börn í sorg ykkar. Nú er svo sannarlega vorhret á glugga og naprir vindar sem hvína hér í norðangarranum. En stjarnan okkar Kristina Sigrún er komin á annað tilverustig. Hún tekur síðan á móti okkur ásamt öllu því fólki í fjölskyldunni sem lifir í ei- lífðinni. Frænka á Húsavík, Hólmfríður Sigrún Benediktsdóttir. Elskuleg frænka okkar í Dan- mörku er látin, aðeins þrettán ára gömul. Það var stutt í fermingu hennar, en í staðinn sitjum við hér heima og skilj- um ekki til fulls atburðarás síðustu viku. Ung stúlka, sem átti eftir að njóta alls þess sem lífið hefur upp á bjóða, hefur kvatt þennan heim. Við teljum öruggt að Ásta amma taki á móti henni með opinn faðminn. Hug- ur okkar er hjá fjölskyldu Kristinu Sigrúnar og biðjum við algóðan Guð að gæta þeirra í þessari miklu sorg. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Hvíl í friði elsku frænka. Fyrir hönd systkinabarna, Ásta Magnúsdóttir. Okkur er lofað að lífið sé eilíft. Endalaust og eilíft, en reyndar allt- af breytingum háð. Þannig þrosk- umst við, í ölduróti lífsins sem nú um stund líkist martröð. Okkur er líka lofað að hinn holdlegi maður sigri dauðann í trú og kær- leika. Guð stendur örugglega við loforð sín nú sem fyrr. Reynslan kennir hinum trúuðu að þakka eilíft líf og virða vald Guðs. Þegar við kveðjum 13 ára frænku er sársaukinn þó að sprengja hjörtu okkar og í söknuðinum fáum við ekki svörin, sem við þráum. En að við vog- um okkur að efast og spyrja, eftir allt sem okkur hefur verið gefið, er um- hugsunarefni. Við ættum að vera þakklát og láta af vantrúnni. Spurningar eins og af hverju lítil og yndisleg frænka fær ekki að njóta lengur fegurðarinnar í lífinu, læra, syngja og dansa ættu að snúast í ævarandi þakklæti okkar fyr- ir að hafa notið þess að fá að kynnast henni, þótt árin væru færri en við vildum. Við fáum auðvitað ekki svör við því, hvers vegna Kristina Sigrún fór svo skyndilega – þau eru ekki til. Við ætt- um að vita betur en að spyrja almætt- ið um tilgang dauðans. Við ættum að vita að Guð veit það langt umfram manninn hvað hverjum er ætlað, hvar og hvenær. Hann ákveður sjálfur vitj- unartímann og hefur nú sett Kristinu Sigrúnu í hásæti sitt. Þar situr hún, prinsessan mín, og sáir fræjum gæsku og elsku yfir alla menn, konur og börn. Nú eins og jafnan áður. Elsku bróðir, mágkona, Benni, María og Sara Ásta, minningar ykkar eru fallegar. Kristina Sigrún var ótrúlega greind og falleg með hreint hjarta og sterka réttlætiskennd. Hún hlakkaði til þess að láta ferma sig og hún vildi svo gjarnan hitta íslensku ættingjana sína. Fermingunni var flýtt. Hún fór fram á dánarbeð barnsins. Kjóllinn sem hún hafði valið sér til að fermast í fær nýjan tilgang. Íslensku ættingjarnir mættu aðeins of seint í ferminguna en kveðja nú kæra frænku um stundarsakir. Eða ekki, auðvitað erum við ekki að kveðja hana heldur segja skilið við hið jarð- neska og beina huganum á önnur svið, þar sem efnið er ómerkilegt og andinn stendur einn eftir. Guð er andi Kristina Sigrún, ekki satt? Eftir stendur, að auðvitað varð hún fyrir valinu, hvað annað? Auðvitað hefðum við getað sagt okkur það öll að Kristina Sigrún hefði verk að vinna á æðri stöðum. Það ætti að vera okkur augljóst. Í söknuðinum er erfitt að velja viskuleið Guðs og skilja að það er ekki heilbrigð skynsemi að efast um kær- leika hans. Guð viltu umvefja Kristinu Sigrúnu kærleika þínum og styrkja foreldra, systkini, afa og ömmur í söknuði þeirra eftir litla gullmolanum sínum. Kristina Sigrún, vi elsker dig! Lifðu með okkur litli guðdómlegi engill. Jónína Benediktsdóttir, Jó- hanna Klara Stefánsdóttir, Matthías Stefánsson, Tómas Helgi Stefánsson. KRISTINA SIGRÚN NIELSEN PÁLMADÓTTIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.