Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Elsku besta Þyrí mín. Þú varst alveg yndisleg kona, falleg, hjartahlý, traust og alltaf með bros á vör. Öll þau ár sem ég þekkti þig hitti maður aldrei illa á þig, þú varst alltaf í góðu skapi og vildir öllum vel. Eins og hann Þór þinn segir; hún var besta kona í heimi. En það er alveg greinilegt Þyrí mín að okkur var ætlað að kynnast í þessu lífi, því að þegar ég er aðeins lítill strumpur og á leikskólanum í Efsta- hjalla ert þú fóstra á deildinni minni. Eitt sinn fórstu meira að segja með mig og fleiri krakka heim til þín þar sem við lékum okkur í garðinum ykk- ar í Rauðahjalla. Mörgum árum síðar þegar ég var í MK kennir hann Will- um mér svo í nokkrum fögum og að lokum kynnist ég svo honum Erni þín- um. Við töluðum oft um þetta og þér þótti alltaf gaman að rifja þetta upp. Þau voru ófá skiptin sem þú komst hingað í Ástúnið til okkar Arnar og passaðir fyrir okkur Ísar Loga og Daníel Helga og erum við þér afar þakklát fyrir það. Pössunin endaði iðulega með því að ég litaði á þér auga- brúnirnar og augnhárin og það fannst þér góð og sanngjörn skipti. Þú varst svo handlagin og dugleg við sauma- og prjónaskap að annað eins hefur ekki sést. Enda eigum við öll í fjölskyldunni fallegar peysur og fleira sem þú prjónaðir á ljóshraða. Það er mér mjög minnisstætt þegar ég kom í heimsókn til þín í landbún- aðarráðuneytið í haust og við tókum okkur göngutúr í miðbænum, völdum garn í lopapeysu á mig og settumst svo niður á Vegamót og fengum okkur hádegismat. Þar sátum við í góða stund, töluðum um allt milli himins og jarðar og ég met þessa stund mikils í dag. Þú varst sannkallaður listakokkur og hvergi hef ég fengið betri sósur en hjá þér Þyrí mín. Grjónagrauturinn hennar ömmu er bestur í heimi sagði Daníel Helgi alltaf. Það eru sannkölluð forréttindi að hafa átt þig sem tengdamömmu elsku Þyrí mín og mun ég eiga margar góð- ar minningar og sögur af þér til að segja Ísari Loga þegar hann eldist. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson.) Regína Björk. Mig langar til í örfáum orðum að minnast hennar frænku minnar. Hún Þyri frænka var mikil sóma- kona, dugleg, bjartsýn, jákvæð og skemmtileg, ég minnist þess ekki að ÁGÚSTA ÞYRÍ ANDERSEN ✝ Ágústa ÞyríAndersen fædd- ist í Vestmannaeyj- um 20. ágúst 1941. Hún lést á líknar- deild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Kópavogi 16. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 31. mars. hún hafi verið neikvæð á neinn máta. Hún gat nánast allt sem hún tók sér fyrir hendur, hvort það var að baka, sauma, prjóna eða bara hvað sem var, mér fannst hún geta allt. Það voru ófáar stundirnar hér á árun- um áður, þegar við vor- um yngri að ég leitaði ráða hjá henni og alltaf gaf hún mér góð ráð af öllu sínu hjarta. Það sem ég man best er orkan sem hún gaf frá sér sem lýsir sér í því að þegar heim var komið fylltist ég af dugnaði, ég spurði hana einu sinni að því hvort hún væri ekki orkulaus þeg- ar ég væri búin að vera hjá henni en hún hló að mér og sagði nei, nei, þú tekur enga orku frá mér, en því átti ég bágt með að trúa. Það var gaman að koma upp á Kiðjaberg heima í Eyjum þegar við vorum börn og unglingar. Þar bjó Lóa frænka og Willum og afi Ágúst, skemmtilegast var þegar Lóa frænka settist við gamla orgelið og við stelpurnar Jóhanna, Þyrí og ég reyndum að syngja með, þetta var toppurinn. Þyrí var músíkölsk eins og mamma hennar og spilaði á gítar og söng og síðar gekk hún til liðs við Kvennakór Kópavogs og söng með þeim og hafði gaman af. Hin síðari ár var samgangurinn lít- ill en við vorum báðar í fullri vinnu og komnar með barnabörn og jafnvel langömmubörn sem þurfti að sinna en síðast þegar við hittumst þá töl- uðum við um það að rækta garðinn betur þegar við værum hættar að vinna og komnar á aldur og hefðum betri tíma. En við vitum aldrei hve mikinn tíma við fáum hér á jörðu og því eig- um við að nota hann betur með ætt- ingjum og vinum. Elsku Þyrí mín, ég þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an og einhverntíman hittumst við aft- ur, ég trúi því. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Þór, Willum, Ása, Örn, Val- ur og fjölskyldur, við Örn, Hulda Dóra og Siggi sendum ykkur samúð- arkveðjur. Viktoría. Einstök kona er horfin á braut. Demantur meðal skrautsteina. Það var að hausti 1958 að við stúlk- urnar mættum í Lindina á Laugar- vatni. Þrjátíu og ein dvöldum við saman í heimavist næstu mánuði og námum öll störf fyrirmyndarhús- mæðra. Í þessum hópi var hún Ágústa Þyrí okkar, sem við kveðjum í dag. Þennan vetur mynduðust innan hópsins einstök tengsl, sem haldist hafa til þessa dags. Eftir lærdóms- ríkan og skemmtilegan vetur undir handleiðslu Fröken Jensinu, Gerðar og Lísu, sem sameinaðar lögðu mikla alúð í starf sitt við að uppfræða okk- ur, kvöddum við skólann og hver aðra með eftirsjá. Við ákváðum að hittast á fimm ára fresti og hefur það gengið eftir. Ágústa Þyrí flutti til Reykjavíkur eftir skóladvölina og við sex, sem bjuggum þar, ásamt einni úr Hafn- arfirði ákváðum að stofna sauma- klúbb. Ekki dugði minna en að hittast á tveggja vikna fresti yfir vetrartím- ann og hefur sú venja haldist æ síðan. Þarf ekki að orðlengja það að sam- fylgd okkar með Þyri eins og hún er kölluð í okkar hópi hefur verið farsæl og er hennar sárt saknað. Ekki eru liðin full tvö ár frá andláti vinkonu okkar úr saumaklúbbnum, Oddnýjar Aðalsteinsdóttur, blessaðar veri þær báðar og Guði faldar. Þyrí var fædd í merki Ljónsins, hún var fædd til forystu án stjórn- semi. Alltaf var hún boðin og búin að veita liðsinni, átti oftar en ekki frum- kvæði að sameiginlegum ferðum saumaklúbbsins. Ferðahópur sauma- klúbbsins var stofnaður ásamt mök- um og var nú lagt fyrir mánaðarlega ásamt því að vinna heimavinnu til að efla ferðasjóðinn, ekki lá hún á liði sínu þar og var haldið á fjarlægar slóðir til framandi landa. Hún kom okkur af stað í gönguferðir að sumri og var þá búin að koma með tillögu um hvert skyldi halda á eftir til að næra sig. Er þess skemmst að minnast þeg- ar hún skráði okkur á „Landsmót saumaklúbba“ í fæðingarbæ sínum Vestmanneyjum árið 2004 og sá fyrir því að við hefðum heilt hús til um- ráða, æskuheimili hennar. Þar tók hún að sér hlutverk leið- sögumanns, sýndi okkur allt það markverðasta ásamt frásögnum af uppvexti sínum og samtíma. Alltaf já- kvæð, alltaf skemmtileg. Engin okk- ar hefði viljað missa af þessari ein- stöku ferð. Það var gott að geta leitað til henn- ar með lausnir verkefna, hún var svo úrræðagóð. „Hva þetta er nú ekki mikið mál,“ var hennar svar og var snögg að afgreiða það. Það einkenndi hana framkvæmda- vilji, fljótt – nú – strax, en gera vel. Henni féll aldrei verk úr hendi, alltaf með handavinnu í saumaklúbb þegar sumar aðrar voru „löngu hættar þessu!“. Svo gat henni dottið í hug að sauma eitthvað fallegt og færa vinkonum sínum, „bara svona uppá grín“. Ung kynntust þau Þór, það var beggja gæfa. Samheldnari hjón eru vandfundin, frístundum sínum eyddu þau saman, fóru í utanlandsferðir, stunduðu gönguferðir og sund og ræktuðu garðinn sinn í tvöfaldri merkingu þeirra orða. Synir þeirra þrír bera foreldrum sínum fagurt vitni og á níu árum urðu barnabörnin átta, sjö eru á lífi. Hún varð síðust af okkur til að verða amma og það duldist engum að hamingjan jókst með hverju barni. „Á hvern ertu nú að prjóna?“ var hún spurð í saumaklúbb, „engan sér- stakan, það hlýtur að passa á ein- hvern“, var svarið. Það er ekki langt síðan tengdadæt- urnar þrjár fengu lopapeysur með nýju sniði, sem hún prjónaði „svona snöggvast“. Það var eins og hana munaði ekk- ert um að gera svo margt, sem við hinar látum nægja að hugsa um! Okkur finnst hún hafa átt svo mikið eftir, aldur er svo afstæður. Að koma á heimili Þyríar og Þórs var alltaf gleðistund, gestrisnin og hlýjan var svo einstök. Veikindatíminn hennar eftir að hún greindist með krabbameinið varð ekki langur, rétt um sex vikur. Við báðum um kraftaverk, við vildum hafa hana lengur. Þegar ljóst var að hverju stefndi kom enn betur í ljós hennar sterki persónuleiki, hennar andlegi styrkur. Elsku Þór, ykkar er missirinn mestur, orð fá ekki lýst samhug og samúð okkar til allra í fjölskyldunni. Megi dýrmætar minningar um ynd- islega konu sefa sorg ykkar á erfiðum stundum. Við og fjölskyldur okkar kveðjum með söknuði kæra vinkonu og þökk- um af alhug samfylgdina. Vertu ekki grátinn við gröfina mína góði, ég sef ekki þar. Ég er í leikandi ljúfum vindum, ég leiftra sem snjórinn á tindum. Ég er haustsins regn sem fellur á fold og fræið í hlýrri mold. Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt, ég er vængjatak fuglanna hljótt og stillt. Ég er árblik dags um óttubil og alstirndur himinn að nóttu til. Gráttu ekki við gröfina hér – gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér. (Höf. ókunnur.) Hvíl í friði, elsku Þyrí, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Saumaklúbburinn: Dagný, Guðný, Guðrún, Hulda, Inga Dóra og Ína Dóra. Gleði er einkenni á góðum vinnu- stað. Til að svo geti verið þarf gleði- gjafa til. Á okkar vinnustað, landbún- aðarráðuneytinu, var Ágústa þessi gleðigjafi. Nú hefur hún fært sig um set; farin frá okkur og hlátur hennar og glaðværð ekki lengur til staðar. Það var okkur vinnufélögum hennar sem reiðarslag þegar ljóst var að Ágústa hefði greinst með krabba- mein og – sem of oft – ekkert hægt að gera. Um veikindi sín hafði hún ekki fjölyrt. Við vissum að síðustu vikurn- ar var eitthvað að, en að þessi heil- brigða manneskja, sem hvorki neytti víns né tóbaks, stundaði sund og gekk sér til heilsubótar á hverjum degi, skyldi vera svo langt leidd sem raun var á var öllum hugsunum fjarri. Morguninn eftir andlát hennar var kveikt á kertum, mynd stillt upp við borð hennar og starfsfólkið kom saman í kaffistofunni. Spjallið var hljóðlátara en venjulega; gleðina vant- aði. Ágústa var horfin af sjónarsvið- inu. Sorg og söknuður brutust fram í bland við ótal minningar hvers og eins – allar góðar. Í tuttugu ár var Ágústa í raun and- lit ráðuneytisins; tók á móti erindum í síma eða yfir afgreiðsluborðið, bros- andi og ljúf í viðmóti við alla sem í ráðuneytið þurftu að leita. Hún var lipur í allri framkomu, var boðin og búin til að leysa hvers manns vanda enda gædd ríkulegri þjónustulund. Ágústa hafði metnað fyrir sínum vinnustað og vildi veg hans sem mest- an. Hún rækti sitt starf fullkomlega, þótti vænt um sitt fólk og lagði sig fram um að gera hlutina vel. Þetta vita þeir sem til þekkja og þær undanfarn- ar fáu vikur sem hún var ekki til stað- ar var eftir því tekið. Fjölmargir báðu fyrir kveðjur til hennar með óskir um bata. Hún stundaði vinnu sína þar til úrskurður kom – og meira en það, daginn eftir þann stóra dóm mætti hún til að fagna 20 ára starfsafmæli sínu í ráðuneytinu, hafandi með sér veitingar á morgunverðarborð sem hún vissi af langri reynslu að hópurinn hennar myndi gæða sér á. Það var Ágústu líkt og í dag metum við enn frekar þá samverustund. Já Ágústa stóð vaktina alla. Þannig var hún. Það var ekki einungis að hún sinnti sinni vinnu af trúmennsku. Hvern dag var hún komin öðrum áð- ur, búin að kveikja ljós, hita kaffi, bauð góðan dag þeim er síðar komu og tók á sinn glaðværa hátt þátt í léttu spjalli um lífið og tilveruna. Það féll líka ekki síst í hennar hlut að safna fyrir gjöfum meðal starfsmanna til að fagna afmæli, að barn fæddist eða ein- hver gifti sig. Ósjaldan kom hún með eitthvað gott með kaffinu og kunni að meta þegar aðrir gerðu slíkt hið sama. Það var líka Ágústa sem jafnan var fremst í flokki þegar eitthvað „stóð til“. Má þar nefna tiltektardaga, ferðalög starfsmanna, árshátíðir og litlu-jól, og fremst var hún í flokki þegar taka þurfti til nesti, velja söng- texta, undirbúa leiki eða skreyta jólatré. Hún var nefnilega afskaplega dugleg hún Ágústa og gekk að hverju verki með gleði. Hafði reyndar þá reglu að fresta því ekki til morguns sem mátti gera í dag og það sem gera skyldi í dag var best að drífa af sem fyrst. Auðvitað smitar slíkur jákvæð- ur andi út frá sér og leiðir til þess að öllum líður vel. Það fór ekki fram hjá okkur hversu mikil eiginkona, móðir og amma hún var, og stolt var hún af sinni fjöl- skyldu. Það leyndi sér ekki að vel fór á með þeim hjónum Þór og henni. Saman komu þau í bíl á morgnana þar sem vinnustaður þeirra var hlið við hlið, saman gengu þau út í hádeg- inu og saman syntu þau að vinnu lok- inni. Við fengum að vita hvernig gekk í fótboltanum hjá stráknum hennar, Willum Þór, og glöð var hún yfir vel- gengni Vals og Arnar. Elsku Þór, Willum Þór, Valur og Örn, tengdadætur og barnabörn. Við samstarfsfólk Ágústu vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum og biðjum Guð að sefa sorg og gefa styrk. Við og makar okkar kveðjum elskulega konu, félaga og samstarfs- manneskju, með virðingu og þökk og biðjum Guð að varðveita Ágústu og minningu hennar um eilífð alla. Starfsfólk landbúnaðarráðuneytisins. Kær vinkona er fallin frá. Einstök kona, sem skar sig úr vegna marg- víslegra eiginleika – eiginleika sem eru eftirsóknarverðir hverri mann- eskju; einskær glaðværð, jákvætt lífsviðhorf, dugnaður, traust og heil- indi. Já, það er erfitt að fylla það skarð sem er orðið við fráfall hennar Þyríar, tilveran verður ekki söm á eftir. Þessi hetja, jafn sterk og hug- hraust sem hún var, varð að lúta í lægra haldi fyrir illvígum sjúkdómn- um, sem aldrei fer í manngreinarálit. Ég kynntist Þyrí fyrir rúmlega 30 árum – við vorum þá báðar nýfluttar í sömu götu. Ég fór í byrjun að gefa þessari nágrannakonu minni auga út um eldhúsgluggann minn, þegar hún var á labbi með tvíburana sína í kerru, tvo myndardrengi. Ég veitti því strax athygli hversu rösklega og léttilega hún fór, þessi kona í bláu kápunni. Sjálf var ég með dóttur á sama aldri og dag einn á leið í mat- vöruverslunina í grenndinni var tví- buramamman einnig á sömu leið, ég ákvað að gefa mig á tal við hana og spurði hvort ekki væri nú erfitt að vera með tvö börn í kerrunni, en við þurftum að fara upp dálitla brekku, sem mig minnir að hafi verið enn ómalbikuð á þessum tíma, mér fynd- ist nú alveg nóg að ýta einu barni. „Nei, nei“ svaraði hún að bragði hressilega enda kom það í ljós við frekari kynni af manneskjunni að hún lét hlutina ekki vefjast fyrir sér eða velti sér upp úr erfiðleikum. Þarna upphófust kynni og vinátta sem hafa staðið fram á þennan dag. Við áttum margt sameiginlegt og vorum báðar heimavinnandi framan af. Löngum stundum eyddum við báðar í görðunum okkar, skiptumst á plöntum og fylgdumst spenntar með afrakstrinum. Oft var komið saman í eldhúsunum, annaðhvort númer 7 eða 11 í Rauðahjallanum, á þessum árum og margt og mikið spjallað. Þau hjónin voru einkar góðir nágrannar og gott að eiga þau að bæði í gleði og sorg. Þyrí var mikil handavinnukona og afköstin á þeim sviðum voru hreint ótrúleg, hvort sem um var að ræða fatnað, prjónaskap eða útsaum og hún hafði líka ríka sköpunarhæfi- leika. Það var ekki ósjaldan að ég leit- aði til hennar með einhver vandamál í sambandi við t.d. saumaskap – það var eins og hún eygði alltaf leið til að leysa úr málunum, jafnvel þó svo að efnið sem til umráða var virtist ekki nægjanlegt, einhvern veginn, með sinni einstöku útsjónarsemi tókst henni að bjarga málunum. Já, það var einmitt orðalagið sem hún notaði í þeim tilfellum: „Við björgum þessu“ – mér er minnisstætt þegar kom að því að ferma börnin okkar áðurnefndu í kerrunum, þá hafði dóttir mín ákveðnar hugmyndir um fermingar- kjólinn sinn, vandamálið var bara að kjóll með slíku sniði var ekki fáan- legur í verslunum. Ég færði þetta vandamál í tal við vinkonu mína. Þetta fannst henni spennandi verk- efni, hún tók til óspilltra málanna, tók mál, sneið og klippti samkvæmt ósk- um dóttur minnar, og til varð und- urfallegur kjóll sem dóttir mín varð- veitir enn. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum. Seinna hafa svo barnabörnin henn- ar Þyríar notið góðs af sköpunarhæfi- leikum og myndarskap ömmu sinnar. Þyrí var gæfukona í sínu einkalífi. Synirnir þrír, allir vel menntaðir og búnir að stofna fjölskyldur, sem er foreldrum auðvitað mikið gleðiefni og gæfa. Þá held ég að vandfundin séu hjón sem eru jafn samrýnd og Þyrí og Þór voru. Unnu saman í garðinum sínum, en þar töluðu verkin sínu máli jafnt og á heimilinu þeirra, smekkvísin og snyrtimennskan í fyrirrúmi. Hádeg- ishléin í vinnunni notuðu þau til að ganga saman og eftir vinnu voru sundlaugarferðir fastur punktur. Undanfarnar vikur hafa verið erfiðar en umönnun Þórs og umhyggja gagn- vart konunni sinni, endurspegluðu glöggt ástúð hans í hennar garð. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgrímsson.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.