Morgunblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 80
80 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dularfullt aðdráttarafl einhvers sem
þú þráir, er nokkuð sem hrúturinn einn
skilur. Reyndu ekki einu sinni að út-
skýra það – það á bara eftir að sundra
þéttum tilfinningum þínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Augnabliksfrægð kemur til skjalanna –
nokkuð sem þú varst svo alls ekki að
reyna með vinnu þinni. Líttu á hana
sem ánægjulega hliðarverkun. Ekki
það að frægðin sé svo frábær. Í alvör-
unni. Spurðu einhvern sem er það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Beindu neikvæðum hugsunum eitthvað
annað. Það er alger óþarfi að velta sér
upp úr þeim. Allt er í lagi í kringum
þig, þótt þú sjáir það ekki. Ef lundin
léttist, kemur þinn innri trúður út og
skemmtir áheyrendum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag er mikið að gera. Krabbinn þarf
að sækja fjölda viðburða, en þeir verða
að vera áhugaverðir, til þess að halda
athyglinni. Ef enginn kemur með þýð-
ingarmikla tilkynningu eða skemmt-
unin er líflaus, drífur þú þig bara
burtu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Spurningar sem ekki hefur verið svar-
að liggja í loftinu. Spennan gerir að-
stæður áhugaverðar. Kannski ættir þú
að búa til þína eigin ráðgátu. Haltu
persónulegum upplýsingum fyrir þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Himintunglin minna meyjuna á hvað er
mikilvægt þegar upp er staðið. Hún á
að skerpa viðleitni sína með það í huga.
Tíminn vinnur með þér. Eldri kyn-
slóðin í kringum þig ber litlum dags-
daglegum ákvörðunum sínum vitni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samkeppnin er hörð, bæði í einkalífi
vogarinnar og vinnunni. Leiðin til sig-
urs veltur á því að bæta sína bestu
frammistöðu. Ekkert annað skiptir
máli þegar upp er staðið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sinntu því sem blasir við þér, annað
kemur af sjálfu sér. Þér hættir til þess
að gera miklar kröfur til sjálfs þín.
Losaðu þig við efann. Ástvinur heldur
þér við efnið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sjáðu fyrir þér að þú hafir náð tak-
marki þínu. Himintunglin skína skært í
þína þágu. Þú græðir á viðskipta-
framtaki. Rausnarskapur er meira en
laun í sjálfu sér, hann er hluti af al-
heimsflæðinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú flækir þig í djúpar samræður,
kemstu að öllu öðru en því sem þú
þarft að vita. Þess vegna er betra að
eiga stutt, upplýsandi spjall. Stýrðu
ferðinni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn á auðvelt með að leysa
ágreining undir þeim stjörnuhimni
sem er núna. Kannski gerir þú frið-
arsamkomulag byggt á gagnkvæmu
trausti. Ef þú getur ekki treyst hinum
aðilanum, er það reyndar til einskis.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er elskaður, ekki vegna
elskulegheitanna sem hann sýnir, held-
ur þess hver hann er. Forðastu að
hugsa svo mikið um aðra að þú van-
rækir sjálfan þig, þá muntu eiga
ánægjulega helgi.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sá sem er í hlutverki fífl-
sins, er oft vitrasta mann-
eskjan. Nútímaútgáfa af
fíflinu er grínistinn sem oft nær vinsæld-
um poppstjörnu og kemur fram með
míkrófón og bunka af sniðugum sann-
indum um mannlegt atferli í farteskinu. Í
kvöld er tungl í tvíbura, sem merkir að
við munum taka fíflaskap með ánægju.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 trúhneigður, 8
þétt, 9 drekka, 10 veið-
arfæri, 11 jarða, 13 ham-
ingja, 15 sveðja, 18 gos-
efnið, 21 púki, 22 verk, 23
starfshópur, 24 hemils.
Lóðrétt | 2 trosna, 3 ill-
kvittna, 4 sópa, 5 nýtt, 6
baldin, 7 draga, 12 folald,
14 klaufdýr, 15 jafn-
ingur, 16 gróða, 17 sund-
fuglum, 18 kirtla, 19 ná-
komin, 20 skyld.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sarps, 4 hræða, 7 undri, 8 rælar, 9 lof, 11 náir,
13 agað, 14 eflir, 15 traf, 17 togi, 20 æfa, 22 tímir, 23
subbu, 24 arðan, 25 auðan.
Lóðrétt: 1 spurn, 2 ræddi, 3 skil, 4 horf, 5 ærleg, 6 afræð,
10 orlof, 12 ref, 13 art, 15 tútta, 16 armóð, 18 ofboð, 19
Iðunn, 20 ærin, 21 aska.
Tónlist
Café Rosenberg | Hljómsveitin Hrafna-
spark frá Akureyri mun leika franska kaffi-
húsatónlist í fremsta gæðaflokki í bland við
íslenskt efni á borð við Jón Múla svo fátt
eitt sé nefnt.
Fríkirkjan í Reykjavík | Sálmatónleikar Ell-
enar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunn-
arssonar í Fríkirkjunni 9. apríl nk. kl. 20
Miðasala hafin á midi.is og í verslunum
Skífunnar og BT.
Hallgrímskirkja | Kammerkórinn Hym-
nodia, sænskir barokkhljómlistarmenn og
ein skærasta stjarna barokksins í Svíþjóð,
Anna Zander sópransöngkona, halda tón-
leika í Hallgrímskirkju kl. 17 sunnudag 2.
apríl með verkum Dietrichs Buxtehudes,
m.a. Membra Jesu Nostri, um líkama Krists
á krossinum, einu höfuðverka barokksins.
Háteigskirkja | Strengjasveit Tónlistar-
skólans í Reykjavík heldur tónleika sunnu-
daginn 2. apríl kl. 17. Stjórnandi er Mark
Reedman. Aðgangur ókeypis.
Salurinn | Kl. 13 verða TKTK tónleikar í
Salnum. TKTK stendur fyrir tónleika kenn-
ara Tónlistarskóla Kópavogs. Að þessu
sinni mun Rúnar Óskarsson spila á bas-
saklarínett verk eftir Gerard Brophy. Þór-
ólfur Eiríksson Tryggvi M. Baldvinsson og
Wayne Siegel. Miðaverð: 1.500/1.200 kr.
Þjóðmenningarhúsið | Útgáfutónleikar kl.
15 með trúarlegu efni eftir Gunnar Reyni
Sveinsson af diskinum Til Máríu. Flytjendur
á tónleikunum eru konur úr Kammerkór
Suðurlands ásamt einsöngvurunum Hall-
veigu Rúnarsdóttur, Hrólfi Sæmundssyni
og Önnu Sigríði Helgadóttur. Símon H. Ív-
arsson leikur lög á gítar. Ókeypis aðgangur.
Myndlist
101 gallery | Hulda Hákon, EBITA. Opið kl.
14–17 fim., föst. og laug. Til 15.apríl.
Aurum | Berglind Laxdal – Catch of the
day – til 2. apríl.
Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson –
Íslandsmyndir. Til 5. maí.
Eiðar | Tilraunakvikmyndahátíðin 700IS-
Hreindýraland, verður sett á Eiðum á laug-
ardagskvöld kl. 19.30. Á hátíðinni verða
sýnd 50 verk sem koma frá 20 þjóðlöndum
en alls bárust 319 verk frá um 50 löndum á
hátíðina. Veitt verða verðlaun fyrir bestu
myndina og björtustu vonina.
Gallerí Dvergur | Sigríður Dóra Jóhanns-
dóttir verður með gjörninginn „Fram og til
baka“ fös. 31. mars og lau. 1. apríl kl. 18–19.
Gallerí Fold | Lilja Kristjánsdóttir sýnir
málverk í Baksalnum til 9. apríl.
Gallerí Gyllinhæð | Föstudaginn 31. mars
kl. 17 opnuðu 2. árs myndlistarnemar LHÍ
sýninguna „mini me“ í Gallerí Gyllinhæð,
Laugavegi 21. 2.h. Til 9. apríl.
Gallerí Humar eða frægð! | Við krefjumst
fortíðar! Sýning á vegum Leikminjasafns
Íslands um götuleikhópinn Svart og syk-
urlaust. Ljósmyndir, leikmunir, kvikmynda-
sýningar. Opið kl. 12–17 laug., 12–19 föst. og
12–18 aðra virka daga.
Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson
til 19. apríl. Abstrakt, meta-náttúra, veðruð
skilaboð, plokkaðir fletir, mjötviður mær
undir.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig-
urðardóttur, myndbönd frá tískusýningum,
ljósmyndir o.fl. Til 30. apríl.
Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu-
listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum. Til 30. apríl.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
i8 | Tumi Magnússon sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk út apríl.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Þetta er hluti af myndaröð sem enn er í
vinnslu. Myndirnar eru unnar á striga og
pappír á óhefðbundinn hátt. Unnið er með
spaghetti og graffitisprey. Sýningin stend-
ur til 6. okt.
Listasafn ASÍ | Olga Bergmann – Utan
garðs og innan. Jón Stefánsson, málverk í
eigu safnsins. Til 2. apríl. Opið 13–17, nema
mánudaga. Aðgangur ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick –
Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfar-
ar. Safnið er opið alla daga nema mánu-
daga 12–15.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal -
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím-
ans. Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og Safn-
búð opin á sýningartíma.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin
Náttúrurafl er samsýning 11 listamanna þar
sem viðfangsefnið er náttúra Íslands. Mál-
verk, skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir.
Verkin eru í eigu Listasafn Íslands. Opið kl.
13–17.30.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Ljóð
Berglindar Gunnarsdóttur og textílverk
Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur ásamt högg-
myndum Sigurjóns Ólafssonar. Opið laug.
og sun. kl. 14–17.
Listhús Ófeigs | Sýningu Dominique í List-
húsi Ófeigs lýkur 5. apríl n.k. Opið kl. 10–18
virka daga og kl. 11–16 laug.
Nýlistasafnið | „Er hnattvæðingin að afmá
okkar þjóðlega og menningarlega sjálf?“
Samsýning breskra, íslenskra og finnskra
listamanna Sýningarstjórar George Doneo
and Peter Lamb. Opnuð 11. mars kl. 16.
Ráðhús Reykjavíkur | Sautján félagar í
Fókus, félagi áhugaljósmyndara, sýna á
ljósmyndasýningunni Fegurð í Fókus í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur til 9. apríl.
Sjá: www.fokusfelag.is
Safn | Kristján Steingrímur Jónsson sýnir
nýleg verk sín á grunnhæðinni. Sýning
bandarísku listakonunnar Roni Horn heldur
áfram á öllum hæðum. Syningarnar eru
opnar til 9. apríl. Opið mið–fös kl. 14–18 og
lau-sun kl. 14–17. Ókeypis inn.
Saltfisksetur Íslands | Elísabet Dröfn Ást-
valdsdóttir sýnir til 3. apríl. Opið alla daga
kl. 11–18.
Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning
Kjartans Guðjónssonar er opin alla daga kl.
10–17, nema föstudaga og stendur til 7.
maí. Þema listahátíðarinnar er: „Kærleik-
urinn fellur aldrei úr gildi.“
Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar árlegu
vinnustofa á vegum Listaháskóla Íslands
og Dieter Roth Akademíunnar stendur nú
yfir í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli.
Þátttakendur sýningarinnar eru útskrift-
arnemendur frá myndlistardeild LHÍ ásamt
erlendum listnemum. Sýningin stendur til
29. apríl.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og
verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar
á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for-
réttinda að nema myndlist erlendis á síð-
ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda-
mótum. En engin þeirra gerði myndlist að
ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru af-
rakstur af ferðum hans um Ísland. Meg-
inþema verkefnisins var atvinna og ákvað
Rob að einbeita sér að starfsfólki í fiskiðn-
aði. Rúnturinn vakti sérstakan áhuga hans
vegna þess að hann sýndi hvað ungt fólk í
litlum þorpum gerir til að drepa tímann.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-
leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á
www.gljufrasteinn.is
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl.
10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum
söguna frá landnámi til 1550. www.sa-
gamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá
nánar á hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Samsýning 19
myndlistarmanna; Norðrið bjarta/dimma,
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða