Morgunblaðið - 01.04.2006, Side 83
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 83
MENNING
ARKITEKTARNIR og hjónin Tryggvi Þor-
steinsson og Erla Dögg Ingjaldsdóttir reka
saman arkitektastofuna Minarc í Los Angeles.
Nýverið hlotnaðist þeim sá heiður að vera boð-
ið til þátttöku í sýningu sem Arkitekta- og
hönnunarsafnið í Los Angeles stendur fyrir.
Sýningin ber yfirskriftina New Blood/Next
Generation eða Nýtt blóð/Næsta kynslóð og
stendur yfir frá 1. júní og fram til 10. ágúst.
Á sýninguna eru valdir þátttakendur úr hópi
arkitekta og hönnuða sem skara þykja fram úr
og mestar væntingar eru bundnar við.
Í niðurstöðu nefndar sem starfar á vegum
safnsins segir m.a. um verk þeirra hjóna hjá
Minarc:
„Verk Tryggva Þorsteinssonar og Erlu
Daggar Ingjaldsdóttur þykja mikilvægur hluti
af arkitektúrlandslagi borgarinnar og þar seg-
ir jafnframt að sýnt þyki að sköpunarverk
þeirra muni hafa mikil og mótandi áhrif í arki-
tektúr bæði í Los Angeles og víðar.“ Tryggvi
Þorsteinsson og Erla Dögg hafa starfað í Los
Angeles um árabil og hafa á tiltölulega
skömmum tíma náð að festa sig í sessi sem
arkitektar. Verk þeirra þykja nútímaleg og
falleg og einstaklega glæsileg í allri hönnun.
„Þetta opnar náttúrulega dyr,“ sögðu Erla
og Tryggvi í samtali við Morgunblaðið. „Fyrst
og fremst er þetta mikil viðurkenning fyrir
okkur. Við fáum fyrir vikið athygli og allt snýst
þetta um að markaðssetja sig og vera við-
urkenndur í faginu.
Svo er í borginni á sama tíma og sýningin
stendur yfir arkitektaþing og von er á 30.000
arkitektum alls staðar að.
Sjálft safnið er að flytja í nýtt húsnæði sem
verður formlega opnað með þessari sýningu
svo að athygli blaða og sjónvarpsstöðva verður
heilmikil.“
Aðspurð sögðust þau á þessari stundu ekki
alveg vera búin að gera það upp við sig hvaða
verk þau ætluðu að sýna en til greina kæmi að
sýna þar einbýlishús sem þau hefðu nýlokið við
í Los Angeles, kirkju sem er í smíðum einnig í
Los Angeles og kynna líklega til viðbótar eitt
til tvö framtíðarverkefni. Áhugasamir geta
kynnt sér verk þeirra á heimasíðu fyrirtæk-
isins, www.minarc.com.
Íslenskum arkitektum í Los Angeles boðin þátttaka í sýningu Arkitekta- og hönnunarsafnsins
Einbýlishús í Los Angeles eftir Erlu Dögg og Tryggva. Innviðir húss eftir Tryggva Þorsteinsson og Erlu Dögg Ingjaldsdóttur.
Hluti af arkitektúrlandslagi borgarinnar
Tryggvi og Erla Dögg reka saman Arkitektastofuna Minarc í Los Angeles.
Í NÝLISTASAFNINU fer senn að
ljúka sýningunni Cold Climates
(Köld loftslög). Sýningin var áður í
Bretlandi og heldur síðar til Finn-
lands en á sýningunni má finna verk
eftir 17 myndlistarmenn frá þessum
þremur löndum. Þ.e. Bretlandi,
Finnlandi og Íslandi. Hugmyndin að
baki sýningunni er spurningin hvort
hnattvæðingin sé að afmá sérkenni
þjóða, hvort sem hún er pólitísks
eðlis (s.s. evran, Sameinuðu þjóð-
irnar og mannréttindalögin), tækni-
legs eðlis (s.s. internetið, skjámiðlar
og auðveldar samgöngur) eða efna-
hagslegs eðlis (s.s. „Fair trade“,
„Free trade“ og útrás íslenskra
banka og fyrirtækja).
Hnattvæðingin eins og hún geng-
ur fyrir sig í dag er merki um sigur
kapitalismans á sósíalismanum. En
sósíalisminn í sinni svörtustu mynd
hefði eflaust hleypt af stað annars-
konar hnattvæðingu sem mundi líka
afmá pólitísk, menningarleg og efna-
hagsleg sérkenni þjóða. Af þessum
sökum eru margir á því að hnatt-
væðingin sé í raun útþensla banda-
rískrar menningar, Ameríkuvæð-
ingin svokallaða, sem er í grunninn
fjölþjóðlegt samfélag. Ýmsir and-
hnattvæðingarsinnar vilja t.d. meina
að innrásin og aðlögunin í Írak sé
efnahagslegur þáttur í Ameríkuvæð-
ingunni og hluti af því sem þeir kalla
„Nýja nýlendustefnu“ auðvaldssinna
(Neo-colonialism).
Hér er því verið að fjalla um eitt
meginádeilumál samtímans og til
þess hafa sýningarstjórarnir Peter
Lamb og George Doneo valið lista-
menn frá þremur löndum sem mega
teljast einangruð landfræðilega séð
til að athuga áhrif hnattvæðingar á
sköpun myndlistar og hvort þjóðleg
sérkenni sé enn að finna hjá lista-
mönnum eða hvort listin sé end-
anlega orðin fjölþjóðleg. Verk sumra
þessara listamanna smellpassa inn í
vangaveltur um hnattvæðingu. Má
þar nefna „Ljóshærðar starfstéttir“
Birgis Snæbjörns Birgissonar, ljós-
rit Georgs Doneos af einhverskonar
tækniskrímsli, ljósmyndir Mirnu
Heikinaho af fjölbýlishúsum, ljós-
mynd Hrafnkels Sigurðssonar af
ruslahaug og skúlptúr-innsetning
Gjörningaklúbbsins, „Innrás-
Útrás“, sem er í góðum takti við
samfélagsumræðuna hérlendis. Aðr-
ir listamenn eru öllu óhlutbundnari í
nálgun og hlynntari fagurfræðilegu
inntaki. Þessi ólíka heild gerir það
að verkum að maður er engu nær
um áhrif hnattvæðingar á sköpun
myndlistar. Enda fyrirfram gefið að
sýning af þessu tagi svarar ekki
þetta stórri spurningu. Það mætti
allt eins setja saman sýningu á verk-
um 17 þjóðlegra listamanna eða 17
fjölþjóðlegra listamanna frá hverju
landi fyrir sig svo að niðurstaðan
getur verið á hvorn veginn sem er.
Það vakti hins vegar athygli mína
hve Íslendingarnir og Finnarnir eru
stílhreinir á meðan Bretarnir eru
dálítið „trashy“ í verki. En aftur
mætti búa til sýningu og velja ís-
lenska og finnska listamenn sem eru
„trashy“ og breska listamenn sem
eru stílhreinir. Eru áðurnefndar
hugmyndir og yfirlýsingar sem ég
hef lesið um markmið með sýning-
unni því heldur uppgerðarlegar að
mínu mati. En kannski þarf álíka
stórhuga þema til að selja sýningu
sem þessa til safna og/eða lokka
gesti á hana, tileinka sér þá hnatt-
vædda markaðssetningu. En fyrir
mitt leyti skilar hugmyndin sér eng-
an veginn í þessu hefðbundna og dá-
lítið þreytta samsýningarformi, þar
sem hver listamaður sýnir þetta eitt
til tvö sjálfstæð verk í gallerístærð á
vegg eða gólfi. Miðað við umfang
sýningarinnar hefði verið markviss-
ara að velja einn listamann frá
hverju landi til að takast á við hnatt-
væðinguna í stærra verkefni eða þá
sprengja sýninguna út fyrir þennan
snotra samsýningarramma.
Hnattvæðingin mikla
MYNDLIST
Nýlistasafnið
Opið miðvikudaga til sunnudaga frá 13–
17 og fimmtudaga til 22. Sýningu lýkur
2. apríl.
Cold climates – 17 myndlistarmenn frá Ís-
landi, Finnlandi og Bretlandi.
Jón B.K. Ransu
Morgunblaðið/Eyþór
Í Nýlistasafninu eru áhrif hnattvæðingar á sköpun myndlistar skoðuð.
TÍBRÁR TÓNLEIKAR
Í SALNUM
SALURINN TÓNLISTARHÚSI KÓPAVOGS · S ÍMI 5 700 400
MIÐASALA OPIN VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 - 16 OG KLUKKUSTUND
FYRIR TÓNLEIKA · AFSLÁTTUR FYRIR HÓPA 15 GESTI EÐA FLEIRI
S a l u r i n n
ÞRIÐJUDAGSKVÖLD 4. APRÍL KL . 20
LJÓÐATÓNLEIKAR / Dichterliebe / On this Island
ÓLAFUR RÚNARSSON TENÓR OG PETER FORD, PÍANÓ
MIÐVIKUDAGSKVÖLD 19. APRÍL KL . 20
AMERÍSK SÖNGLÖG / Ives / Foster / Gershwin / Bernstein
MARILEE WILLIAMS, HAUKUR PÁLL HARALDSSON OG
DONALD WAGES
SUNNUDAGSKVÖLD 23. APRÍL KL . 20
FIÐLUDÚÓ / Ungir eftirtektarverðir snillingar
UNGVERSKU HJÓNIN KATALIN KOKAS OG BARNABÁS KELEMEN
FIMMTUDAGSKVÖLD 11. MAÍ KL . 20
KLIÐUR FORNRA STRAUMA / Þjóðleg íslensk tónlist
STEINDÓR ANDERSEN, SIGURÐUR RÚNAR JÓNSSON OG
BÁRA GRÍMSDÓTTIR
Fjölmargt fleira skemmtilegt framundan
Smelltu þér á tónleika www.salurinn.is
Miðasala hafin
APRÍL OG MAÍ 2006
A
4
/ H
G
M