Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 87

Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 87
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 87 Fáir sjónvarpsþættir hafavakið jafnmikla hrifninguhjá mér og Six Feet Under, sem hafa verið þýddir upp á hið yl- hýra sem Undir grænni torfu. Ég held ég hafi svei mér þá bara aldrei séð aðra eins snilld, þó að meist- araverkið (verkin?) Twin Peaks (Tvídrangar var það ekki?) sé að sjálfsögðu undanskilið.    Fyrir þá sem ekki vita fjallarþátturinn í sem stystu máli um tvo bræður sem reka útfararstofu í Los Angeles. Þátturinn er drama … þó að það sé líkast til of veikt orð til að lýsa þeim ósköpum sem ganga á hjá þeim bræðrum og meðreiðarfólki þeirra. Þættirnir hófu göngu sína árið 2001 og lauk síðasta ágúst, eftir fimm tímabil. Framleiðandi er HBO (að sjálf- sögðu) og höfundur/fóstri þáttanna er Alan Ball, sá er reit handritið að hinni stórbrotnu American Beauty. Ég hef nú ekki gert mikið af því undanfarin ár að fylgjast grannt með tilteknum þáttum. Síðasta þáttaröðin sem ég gerði mér far um að fylgjast vel með var Walker: Texas Ranger með Chuck Norris. Miklir snilldarþættir. Hér áður fyrr lapti maður allt upp. Miami Vice, Hunter, Equalizer, Hill Street Blues, Cosby Show, Magnum P.I. Já, rétt tiltekið, „bakk in ðe eitís“. Eftir að þrjú pör sem við unn- ustan þekkjum hér í Berlín höfðu mælt eindregið með þessum þáttum létum við loksins slag standa. Ég var ekki of sannfærður, nennti þessu eiginlega ekki. Þáttaröðin hafði gjörsamlega farið fram hjá mér, og við horfum því á þættina í lítilli Mactölvu sem stillt er upp á lítið sjónvarpsstofuborð. En viti menn … ekki var maður lengi að sogast inn í þættina. Þið þekkið öll þetta ferli. Maður er slakur fyrstu þrjá, fjóra þættina, er svona að komast inn í þetta og áður en varir byrja að myndast tilfinn- ingatengsl við persónurnar. Maður er kominn með uppáhöld, hefur áhyggjur af þessum, skoðanir á hin- um og svo frv. Stundirnar fyrir framan litla makkann eru orðnar að helgistundum. En þetta er fjarri því afþreyingartími, þær gráu fá engan lúr í þessi skipti.    Það sem maður heggur þegareftir í þáttunum er nefnilega hversu mögnuð og vel skrifuð handritin eru. Þættirnir koma af stað mikilli hugarleikfimi, sjálf- skoðun og pælingum. Í grunninn fjalla þættirnir um fjölskyldu sem einkennist af togstreitu, bælingu og hinum og þessum samskiptavanda- málum. „Eðlileg“ fjölskylda sem- sagt. Allt þetta er hins vegar togað upp og greint af miklu næmi og innsæi, svo miklu að stundum er maður hreinlega búinn á því eftir áhorf. Með svipuðum hætti er tekið á „eldfimum“ efnum eins og sam- kynhneigð og eiturlyfjaneyslu. Það mætti segja að umfjöllunin um þau efni sé til fyrirmyndar, það er hvorki verið að hefja þetta upp né níða þetta niður, heldur er horfst í augu við þetta af einhverju sem mætti kalla … tja … skynsemi. Það er vel þekkt að þegar maður byrjar að horfa á þætti, segjum t.d. Simpsons eða Friends, þá getur maður ekki hætt. Það er alltaf „einn“ í viðbót því maður hreinlega vill ekki fara úr þessari þægilegu loftbólu sem sjónvarpsáhorf getur verið. Í fyrsta skipti í minni áhorfs- sögu gerðist það hins vegar að eftir að hafa horft á þrjá þætti af Six Feet Under í röð sagði ég einfald- lega stopp. Ég gat ekki meira. Ég var búinn á því. Heilinn var á fullu spani eftir hverja snilldarsenuna á fætur annarri. Ég fór upp í rúm og fór að sofa, sáttur þó, þetta var ekki ólíkt því og þegar maður er nýbú- inn að klára einhverja merkisbók- ina. Það er athyglisvert til þess að hugsa að jafnupplýstir og ögrandi þættir séu framleiddir í hinu til- tölulega sálar- og heilalamaða Hollywood-umhverfi. Þróun sjón- varpsþátta undanfarin ár er merki- leg; sú var tíðin að slíkt efni var eðlilega talið lakara að gæðum en kvikmyndir. Þetta hefur breyst í dag. Vissir þættir, eins og þessi, sigla léttilega fram úr flestu því sem úr draumaverksmiðjunni kem- ur í dag. „Slökktu á sjónvarpinu áður en það slekkur á þér“ er stundum sagt. En öldin er önnur í dag. Í tilfelli Six Feet Under er þetta öllur heldur „Kveiktu á sjónvarpinu og láttu það kveikja upp í þér“. Kveiktu á þér ’Það er athyglisvert tilþess að hugsa að jafn- upplýstir og ögrandi þættir séu framleiddir í hinu tiltölulega sálar- og heilalamaða Hollywood- umhverfi.‘ arnart@mbl.is AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen Þættirnir koma af stað mikilli hugarleikfimi, sjálfskoðun og pælingum. Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.20 b.i. 14 ára Sími - 551 9000 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Date Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára The Producers kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.45 Walk the line kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45 Rent kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.40 B.i. 14 ára 200 kr. afsláttur fyrir XY félaga MARTIN LAWRENCE www.xy.is -bara lúxus walk the line AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINS YFIR 20.000 ÁHORFENDUR ! V.J.V Topp5.is S.V. Mbl. M.M.J Kvikmyndir.com Mamma allra grínmynda er mætt aftur í bíó! Bleiki demanturinn er horfinn og heimsins frægastarannsóknarlögregla gerir allt til þess að klúðra málinu… BEYONCÉ KNOWLES STEVE MARTIN KEVIN KLINE JEAN RENO Frá öllum handritshöFundum „scary movie“ 2 af 6 Þér mun standa aF hlátri! um ástina, rómantíkina og annan eins viðbjóð! Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára Klassísk og spennandi ástarsaga um forboðið samband ungra elskenda, sem blandast inn í stríð og valdabaráttu kónga og riddara. Sýnd kl. 2 og 4 Sýnd kl. 5.45 SVAKALEG BRETTAMYND MEÐ ÓLYMPÍUMEISTARANUM SHAUN WHITE 200 kr. afsláttur fyrir XY félaga Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU www.xy.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.