Morgunblaðið - 10.04.2006, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Regnkápur og úlpur
Mánudagur 10.04.
Próteinbollur m. cashewhnetusósu
Þriðjudagur 11.04.
Vorbakstur m. heitri sósu
Miðvikudagur 12.04.
Aloo-Saag spínatpottur & buff
Lokað yfir páska
Opnum aftur 18. apríl
Gleðilega páska
Flottur
fatnaður
í ferðalagið
Laugavegi 63 • s: 551 4422
Sérfræðingar í augum!
Bjóðum 10% staðgreiðslu-
afslátt og kaupauka.
TRUST YOUR EYES TO THE EXPERTS
Kynning á hinu einstaka úrvali
augnkrema frá La Prairie
eftirtalda daga milli kl. 13 og 17.
Á morgun, þriðjudag,
og miðvikudaginn 12. apríl
í Hygeu, Smáralind,
sími 554 3960.
Nýjar vörur frá
Melli Mel
Vertu þú sjálf
Vertu Belladonna
Hlíðasmára 11
Kópavogi • sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15
JÓHANNA Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði í
fyrirspurnartíma á Alþingi í vikunni
að niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur í Baugsmálinu hefði skapað
ákveðna réttaróvissu sem Alþingi
yrði að taka á. Óvissan væri um það
hvað væri lán í skilningi ársreikn-
ingslaga. Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra sagðist ekki líta svo á
að um réttaróvissu væri að ræða.
Málinu hefði verið áfrýjað til Hæsta-
réttar og endanlegur úrskurður lægi
því ekki fyrir af hálfu dómsvaldsins.
„Þar af leiðandi get ég ekki litið svo
á að það ríki einhver réttaróvissa,
enn sem komið er, eins og háttvirtur
þingmaður vísar til.“
Jóhanna tók þetta mál upp í fyr-
irspurnartíma og lagði nokkrar fyr-
irspurnir fyrir ráðherra. Hún spurði
meðal annars að því hvort hann teldi
ástæðu til að samræma lög um
hlutafélög, skattalög og lög um árs-
reikninga, í ljósi niðurstöðu héraðs-
dóms í Baugsmálinu, og hvort skrá
ætti öll lán fyrirtækja í ársreikninga
eins og sérfræðingar hefðu haldið
fram opinberlega.
Ennfremur spurði hún hvort ráð-
herra teldi að mistök hefðu orðið við
innleiðingu félagatilskipunar Evr-
ópusambandsins um framsetningu
ársreikninga. Þá spurði hún hvort
ráðherra teldi að breyta þyrfti árs-
reikningalögum til að skýrt lægi fyr-
ir hvað væri lán í skilningi laganna.
Leggur fram nýja fyrirspurn
Árni M. Mathiesen svaraði því til
að Baugsmálið svokallaða væri eitt
umdeildasta mál sem komið hefði
fyrir dómstóla landsins á síðari tím-
um. Þar hefði fallið dómur og honum
hefði verið áfrýjað. Endanlegur úr-
skurður lægi því ekki fyrir og því
gæti hann ekki litið svo á að rétt-
aróvissa ríkti, eins og áður sagði.
Hann sagði ennfremur að íslensk
stjórnskipan byggðist á þrískiptingu
valdsins, og að hann teldi afar óvar-
legt af sér og fjármálaráðuneytinu
að gefa út skoðanir á úrskurði hér-
aðsdóms. Hægt yrði að túlka það
sem íhlutun varðandi dómsvaldið.
Baugsmálið væri á engan hátt póli-
tískt og því væri rangt af sér að fara
að blanda sér inn í það á þann hátt
sem Jóhanna færi fram á. Auk þess
kvaðst hann hissa á því að hún
skyldi reyna að draga málið inn í
þingsali á þennan hátt.
Jóhanna kom aftur í pontu og
lýsti furðu sinni á svari ráðherra.
Hann væri að reyna að koma sér hjá
því að svara eðlilegum spurningum;
þær hefðu ekkert með það að gera
hvort mál væri fyrir dómstólum eða
ekki. Hún væri að spyrja um lög-
fræðileg atriði, m.a. hvort samræma
þyrfti lög um hlutafélög, skattalög
og lög um ársreikninga. „Ég tel það
réttaróvissu þegar það liggur fyrir
að sérfræðingar hafa tjáð sig um
það að það beri að skrá öll lán fyr-
irtækja í ársreikninga; formleg og
óformleg.“ Hún sagðist myndu
leggja nýja en sambærilega fyrir-
spurn fram á Alþingi, en taka út all-
ar tilvísanir í Baugsmálið. Ráðherra
sagði að það myndi ekki breyta
neinu um eðli fyrirspurnanna eftir
að þær hefðu verið lagðar fram á
þennan hátt.
Telur ekki ríkja
réttaróvissu
Fréttir á SMS
RAFIÐNAÐARSAMBAND Ís-
lands, Starfsgreinasamband Ís-
lands, Samiðn og Alþýðusamband
Íslands telja að upplýsingar um
aukna tíðni slysa og veikinda við
Kárahnjúka á undanförnum mán-
uðum kalli á endurskoðun á öllum
verkferlum hvað varðar fram-
kvæmd eftirlits með öryggismál-
um.
Samtökin hafa sent frá sér yf-
irlýsingu þar sem hörmuð eru þau
banaslys sem orðið hafa við Kára-
hnjúka og er fjölskyldum hinna
látnu vottuð samúð.
„Á þessari stundu liggur ekkert
fyrir um orsakir þessara bana-
slysa.
Upplýsingar eru um aukna tíðni
slysa og veikinda við Kárahnjúka á
undanförnum mánuðum. Þær upp-
lýsingar kalla á endurskoðun á öll-
um verkferlum hvað varðar fram-
kvæmd eftirlits með öryggismál-
um. Landssamböndin krefjast þess
að hluteigandi eftirlitsaðilar taki
saman skýrslu um orsakir þessarar
þróunar og komi með tillögur um
úrbætur ef í ljós kemur að núver-
andi eftirlit er ekki fullnægjandi.
Fyrir liggur að unnið verður í
kapp við tímann á komandi sumri
við framkvæmdir við Kárahnjúka
og má sú staða ekki leiða til óeðli-
legs álags á verktaka og starfs-
menn þeirra.“
Verkferlar verði
endurskoðaðir