Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 100. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is helmingi léttari! Allir verða blúsaðir Deitra Farr telur fólk þurfa á huggun að halda | 53 Afturhvarf til fortíðar Nostalgía er 68. platan sem Rúnar Júlíusson kemur að | 54 Skallagrímur lagði Njarðvík  FH mætir færeysku meisturunum  Birki Bjarnasyni hrósað fyrir góðan leik LÍFEYRISSJÓÐUR norska ríkisins, sem yfirleitt er nefndur Norski olíusjóðurinn, tók 287 milljónir evra skortstöðu gegn skuldabréfum KB banka og Lands- bankans, samkvæmt frétt sem birtist í breska blaðinu Financial News í gær en yfirskrift fréttarinn- ar er: „Noregur veðjar á óróa íslenska hagkerfisins“. Í fréttinni segir að þetta sjáist greinilega í árs- skýrslu Norges Bank, sem hefur umsjón með sjóðn- um og birtir yfirlit yfir skuldabréfaeignir sínar í árs- skýrslunni. Yfirlitið sýni að um áramótin hafi skuldabréfaeign í skuldabréfum KB banka verið nei- kvæð um 221 milljón evra og neikvæð um 66 milljónir evra í Landsbankanum. Í ársskýrslunni sjáist því að Norges Bank seldi skuldabréf sín í bönkunum á síð- asta ári. Með því að taka skortstöðu gegn skuldabréfum veðjar fjárfestir á að verð þeirra lækki. Fjárfestirinn selur því bréfin en kaupir svo aftur þegar verðið hef- ur fallið og mismunurinn er þá hagnaður. Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri fjárstýr- ingar KB banka, segir að stjórnendum KB banka hafi verið kunnugt um stöðu Norges Bank. Hann segir að þegar svo stór skuldabréfaeign skipti um hendur þá hafi það áhrif á verð skuldabréfanna til lækkunar. Það sé óneitanlega óheppilegt þegar einn stór aðili á markaði reyni að hafa áhrif á verðmyndun. Þarna liggi aðeins spákaupmennska að baki. Í frétt Financial News segir að áhættuálag á skuldabréfum íslensku bankanna hafi farið hækkandi síðustu sex mánuði, sem bendi til þess að töluverð við- skipti hafi átt sér stað með þessar tryggingar löngu áður en Fitch Ratings breytti horfum íslenska rík- isins úr stöðugum í neikvæðar í febrúar síðastliðnum. „Það virðist því líklegt að margir fjárfestar og sjóð- ir hafi tekið svipaða stöðu og Norges Bank og inn- leyst mikinn hagnað,“ segir í fréttinni. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbank- ans, segir að miðað við þau langtímasjónarmið sem liggi að baki hjá Norska olíusjóðnum, sé þessi hegðun mjög óvenjuleg. „Óvenjuleg hegðun“ „Ég hef alltaf skilið þennan sjóð þannig að hann eigi að vera varasjóður og langtímalífeyrissjóður fyr- ir Noreg og það sem maður hefur séð hvað viðskipta- legar ákvarðanir sjóðsins varðar þá finnst mér það ekki líkjast viðskiptalegri hegðun hefðbundins lífeyr- issjóðs, heldur miklu frekar er eins og að hluti af sjóðnum sé rekinn eins og einhvers konar vogunar- sjóður. Það kemur á óvart, forráðamenn sjóðsins hafa ekki vaxið í áliti hjá mér við að sjá þessa hegðun.“ Norski olíusjóðurinn tók skortstöðu gegn bönkunum Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur og Kristján Torfa Einarsson EMBÆTTISMENN í Buckingham-höll hafa birt áttatíu staðreyndir um ævi El- ísabetar Bretadrottningar í tilefni af átt- ræðisafmæli hennar 21. þessa mánaðar. Drottningin hefur meðal annars gefið 23 skipum nafn við sjósetningarathafnir og málverkin af henni eru orðin alls 139. Á meðal gjafa sem drottningin hefur fengið eru bifurskinn, snigilshús, ananas, egg og sjö kíló af rækjum. Samkvæmt fornum lögum á drottningin allar styrjur og hvali í landhelgi Bretlands. Drottningin hefur fengið um þrjár millj- ónir bréfa. Hún hefur sent um 100.000 skeyti til tíræðra þegna og 280.000 skeyti til hjóna sem halda demantsbrúðkaup. Hún sendi fyrsta tölvupóst sinn frá breskri herstöð árið 1976. Fékk þrjár milljónir bréfaSÍÐUSTU kjörtölur og kosn- ingaspár seint í gærkvöldi bentu til þess að mjög mjótt væri á munum milli stóru bandalaganna tveggja í þingkosningunum á Ítalíu. Útlit var fyrir að bandalag vinstri- og miðjumanna, undir forystu Romanos Prodis, fengi nauman meirihluta í öldunga- deild þingsins. Mikil óvissa var enn um úrslit kosninganna til fulltrúadeildarinnar. Samkvæmt síðustu kjörtölum seint í gærkvöldi fékk bandalag vinstri- og miðjumanna 155 sæti í öldungadeildinni en bandalag hægrimanna, undir forystu Silv- ios Berlusconis forsætisráðherra, 154 sæti. Úrslitin voru þó enn óljós þar sem eftir var að úthluta sex þingsætum sem ætluð eru fulltrúum um þriggja milljóna Ítala sem búa erlendis. Samkvæmt einni kosninga- spánna var fylgi bandalaganna hnífjafnt í kosningunum til full- trúadeildarinnar. Ein sjónvarps- stöðvanna spáði þó bandalagi Prodis mjög naumum sigri í deildinni. Þarf meirihluta í báðum deildum Fyrr í gær bentu kosningaspár til þess að bandalag Prodis fengi nauman meirihluta í báðum þing- deildum. Stuðningsmenn banda- lagsins voru jafnvel byrjaðir að fagna sigri, en Prodi frestaði fréttamannafundi eftir að kosn- ingaspárnar breyttust. Öldungadeildin og fulltrúa- deildin hafa jafnmikil völd og samsteypustjórn hægri- og vinstriflokka en ólíklegt þykir að það gerist vegna djúpstæðs ágreinings þeirra. Kjörsóknin var um það bil 84%, að sögn ítalska innanrík- isráðuneytisins. nýrra kosninga. Ef hvorugt bandalaganna fær meirihluta í báðum deildum getur forsetinn reynt að mynda ríkisstjórn tæknikrata sem yrði við völd uns kosið yrði að nýju. Hann gæti einnig reynt að beita sér fyrir ekki er hægt að mynda starf- hæfa ríkisstjórn nema hún hafi meirihluta í báðum deildunum. Leiðtogar vinstri- og hægriflokk- anna hafa sagt að fái hvorugt bandalagið meirihluta í báðum þingdeildum eigi að boða til Afar mjótt á munum milli fylkinganna Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Reuters Stuðningsmenn Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, fagna kosningaspá ítalskrar sjónvarpsstöðvar í höfuðstöðvum flokks Berlusconis, Forza Italia, í Róm í gærkvöldi þegar útlit var fyrir að bandalag hans héldi velli. Fyrr um daginn hafði bandalagi vinstrimanna verið spáð sigri í þingkosningunum á Ítalíu. „Ég tel að þetta séu stórkostleg úrslit, miðað við fréttirnar fyrr um daginn,“ sagði einn stuðningsmanna Forza Italia, 24 ára gamall námsmaður. „Þetta er síðasta afrek Berlusconis. Hann er eini sigurvegari þessara kosninga.“ Stuðningsmenn Berlusconis fagna Washington. AP. | George W. Bush Banda-ríkjaforseti sagði í gær að ekki væri víst að beita þyrfti hervaldi til að koma í veg fyrir að Íranar eignuðust kjarnavopn. Forsetinn gerði lítið úr fréttum um að stjórn hans væri að undirbúa árásir á Íran, hugsanlega með lítilli kjarnorkusprengju, og lýsti þeim sem „fjarstæðukenndri til- gátu“. Scott McClellan, talsmaður forsetans, sagði þó að Bush hefði ekki útilokað þann möguleika að beitt yrði hervaldi ef Íranar neituðu að hætta auðgun úrans sem Banda- ríkjastjórn telur að Íranar ætli að nota í kjarnavopn. Fréttum af árás hafnað ♦♦♦ Íþróttir í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.