Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Sjálfstraust hrútsins kemur öðrum í opna skjöldu. Hugsanlega færðu ein- hvern til þess að missa út úr sér já, áður en hann fattar hverju hann er raunveru- lega að jánka. Ljón eða bogmaður eru hinir fullkomnu félagar í nýja verkefn- inu þínu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nú er rétti tíminn til þess að ná aftur sambandi við sálarsystur sínar og -bræður. Gamalt samtal byrjar aftur þar sem því lauk síðast. Þökkum fyrir að eiga gamla vini sem skilja sama hversu langt er um liðið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Settu saman lista í huganum yfir alla þá sem þig langar til þess að kynnast. Ekki vera hissa þótt þú eigir yfirgengilegan fund með einhverjum innan sjö vikna, bara vegna þess að þú þorðir að skrifa þetta niður í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn getur sýnt ýtrustu hæversku, bara ef hann kærir sig um. Það er hon- um fyrir bestu að skrúfa frá sjarmanum í vinnunni. Nærvera þín hefur stórkost- leg áhrif á mikilvæga manneskju. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Áberandi skortur er á stundvísi meðal fjölmargra mannkosta þinna nánustu. Hafðu eitthvað meðferðis sem þú getur dundað þér við á meðan þú ert að bíða. Þú gætir loksins komist í það að stilla farsímann þinn, svo dæmi sé tekið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Einhver sem þér þykir innilega vænt um þarf á þér að halda núna. Veittu þessari sömu manneskju jafn mikla at- hygli og ef hún væri síðasta mannveran á jörðinni. Gæska þín verður að eilífu í minnum höfð. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Tilfinningin um að vera ósigrandi, sem býr innra með þér í dag, er ekki á hverju strái. En gæti í sjálfu sér verið það. Taktu eftir því hvað framkallar hana og vittu hvort þú getur endurtekið leikinn á morgun. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sækir líkur líkan heim, eða eru það and- stæðurnar sem laða? Svarið er: hvort tveggja því best heppnuðu samböndin fela í sér rétta blöndu af því sem er líkt og ólíkt. Þú finnur það jafnvægi í kvöld. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Viðskiptin blómstra þegar þú nýtir þér samböndin þín eða aflar nýrra. Þetta snýst ekki um hvað maður veit, heldur hverja maður þekkir og hverja þeir þekkja og svo koll af kolli. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin fær tækifæri til þess að leið- beina ráðvilltum einstaklingi. Kannski vissirðu ekki að þú værir sérfræðingur fyrr en þú byrjaðir að kenna. Það er heilög köllun og þú ættir að gleðjast. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn þarf að komast nærri þeim sem máli skipta, til þess að fá að vera með. Ekki hafa áhyggjur, þér verður hleypt að. Það sem þú veist er einhvers virði. Það sem þú veist ekki gerir þig að- laðandi, ekki síst ef þú þorir að við- urkenna það. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn þarf vissulega á friði og ró að halda en öllu má nú ofgera. Gerðu þér far um að hafa samband við fólk í dag. Þannig rekstu á upplýsingar sem hjálpa þér að komast upp úr farinu. Stjörnuspá Holiday Mathis Tungl í vog er mikið fyrir hópvinnu, ekki síst ef bara tveir eru í hópnum. Ef þú ert að leita að réttu manneskjunni fyrir tiltekið verkefni og sama andlitið kemur upp aftur og aftur er það merki um að maður eigi að stofna til margháttaðra tengsla. Það gerist helst með því að sýna yfirdrifið þakklæti. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 hrekkjalóms, 8 slæmt hey, 9 greinilegt, 10 tala, 11 glerið, 13 blóm, 15 virki, 18 þagga niður í, 21 fiskur, 22 bugða, 23 huguðu, 24 hljóðfæri. Lóðrétt | 2 dáin, 3 eydd- ur, 4 blóðsugur, 5 skaða, 6 slettur, 7 mikill, 12 elska, 14 fæddu, 15 ham- ingjusamur, 16 ham- ingju, 17 undirnar, 18 drolla, 19 hvöss, 20 nytja- land. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 pausi, 4 vísur, 7 rebbi, 8 ryðja, 9 náð, 11 Anna, 13 æmti, 14 uglur, 15 hark, 17 afls, 20 agn, 22 gýgur, 23 opnar, 24 Ránar, 25 parta. Lóðrétt: 1 purka, 2 umbun, 3 iðin, 4 vörð, 5 sóðum, 6 róaði, 10 áflog, 12 auk, 13 æra, 15 hægur, 16 ragan, 18 fínar, 19 syrpa, 20 arar, 21 norp.  Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Grand Rokk | Hljómsveitirnar Malneiro- phrenia og Indigo verða með tónleika mið. 12. apríl kl. 22. Ókeypis verður inn á meðan húsrúm leyfir. Langholtskirkja | Vortónleikar Söngsveit- arinnar Fílharmóníu Joseph Haydn: Stabat Mater og Wolfgang Amadeus Mozart: Ve- sperae solennes de Confessore. Stjórnandi Magnús Ragnarsson. Einsöngvarar Hulda Björk Garðarsdóttir, Nanna María Cortes, Jónas Guðmundsson og Davíð Ólafsson. Hljómsveit, konsertmeistari Sif Tulinius. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Players, Kópavogi | Hljómsveitirnar Brimkló og Papar verða saman á sviðinu 14. og 15. apríl. Skálholtskirkja | Megas, Kammerkór Bisk- upstungna og hljómsveit flytja Pass- íusálma Hallgríms Péturssonar við lög Megasar þann 15. apríl í Skálholtskirkju. Á undan verður fyrirlestur Margrétar Egg- ertsdóttur í Skálholtsskóla. Miðasala í 12 tónum, Smekkleysu plötubúð og Sunn- lenska fréttablaðinu. Takmarkaður sæta- fjöldi. Myndlist 101 gallery | Hulda Hákon, EBITA. Opið kl. 14–17 fim., föst. og laug. Til 15. apríl. Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson – Íslandsmyndir. Til 5. maí. Gallerí Galileó | Ljósenglar. Myndlist- arkonan Svala Sóleyg sýnir olíumálverk sem eru að uppistöðu englamyndir og verk með trúarlegu ívafi í tilefni páskanna. Til 26. apríl. Gallerí Humar eða frægð! | Við krefjumst fortíðar! sýning á vegum Leikminjasafns Ís- lands um götuleikhópinn Svart og syk- urlaust. Ljósmyndir, leikmunir, kvikmynda- sýningar. Opið kl. 12–17 laug., 12–19 föst. og 12–18 aðra virka daga. Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson til 19. apríl. Gallerí Úlfur | Torfi Harðarson er með sýn- ingu á hestamálverkum til 7. maí. Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig- urðardóttur, myndbönd frá tískusýningum, ljósmyndir o.fl. Til 30. apríl. Opið mán. og þrið. kl. 11–17, mið.. 11–21, fim. og fös. 11–17 og kl. 13–16 um helgar. Gerðuberg | Margræðir heimar –Alþýðu- listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir málverk í Boganum. Til 30. apríl. Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí. Karólína Restaurant | Joris Rademaker - Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick – Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfar- ar. Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal – Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar- inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím- ans. Ókeypis aðgangur. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tær- leikar – Samsýning listamannanna Elinu Brotherus, Rúrí og Þórs Vigfússonar. Opið kl. 11–17 þrið.–sun. Til 23. apríl. Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin Náttúrurafl er samsýning 11 listamanna þar sem viðfangsefnið er náttúra Íslands. Mál- verk, skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir. Verkin eru í eigu Listasafn Íslands. Opið kl. 13–17.30. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn- ing á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, stein, brons, og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Á sýn- ingunni má sjá ýmis verk Erró frá barns- aldri þar til hann hélt sína fyrstu einkasýn- ingu á Íslandi í Listamannaskálanum árið 1957. Öll verkin á sýningunni eru úr Erró- safni Listasafns Reykjavíkur og gefa áhugaverða mynd af hæfileikaríkum og vinnusömum ungum manni. Til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Lík- amshlutar, sjálfsmyndir – John Coplans fæddist í Bretlandi árið 1920. Listamað- urinn kom víða við á löngum ferli sínum og varð meðal annars einn af stofnendum Art Forum listatímaritsins. Á efri árum lagði hann stund á ljósmyndun og tók sjálfs- myndir frá 1980. Coplans lést árið 2003. Til 17. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | AF- sprengi HUgsunar – Sprengiverk Guðjóns Bjarnasonar. Guðjón er kunnur fyrir öflug verk sín þar sem hann sprengir sundur stálrör og stillir brotunum saman á nýjan leik. Á sýningunni getur að líta nýja nálgun Guðjóns við viðfangsefni sitt sem hann vinnur í ólíka miðla. Til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Til 3. des. 2006. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja & Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons- eptlistamenn heimsins í dag. Á sýningunni vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafn- arhússins. Sýningin stendur til 5. júní. Safn | Sýning myndlistarmannsins Krist- jáns Steingríms, Teikningar, hefur verið framlengd til 15. apríl. Opið er frá 14–18 mið.–fös. en 14–17 lau. og sun. Lokað 13., 14. og 16. apríl. Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds- dóttir með málverkasýninguna Vinir og vandamenn. Til 1. maí. Opið alla daga frá 11– 18. Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning Kjartans Guðjónssonar er opin alla daga kl. 10–17, nema föstudaga til 7. maí. Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar árlegu vinnustofa á vegum Listaháskóla Íslands og Dieter Roth Akademíunnar stendur nú yfir í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli. Þátttakendur sýningarinnar eru útskrift- arnemendur frá myndlistardeild LHÍ ásamt erlendum listnemum. Til 29. apríl. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr aldamót- um. En engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol- lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru af- rakstur af ferðum hans um Ísland. Meg- inþema verkefnisins var atvinna og ákvað Rob að einbeita sér að starfsfólki í fiskiðn- aði. Rúnturinn vakti sérstakan áhuga hans vegna þess að hann sýndi hvað ungt fólk í litlum þorpum gerir til að drepa tímann. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl- unarsýning, minjagripir og fallegar göngu- leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á www.gljufrasteinn.is Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 10– 18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum sög- una frá landnámi til 1550. www.sagamu- seum.is Þjóðmenningarhúsið | Samsýning 19 myndlistarmanna; Norðrið bjarta/dimma, lætur mann lyfta brúnum. Þjóðminjasafnið – svona var það andar stemningu liðinna alda. Handritin, ertu ekki búin að sjá þau? Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.