Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 47
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Íslensk antík ca. 1930
Til sölu hjónarúm án dýnu og tvö
náttborð með rósaflúri. Ísl. smíði
frá fjórða áratugnum. Verð 50.000
kr. Uppl. í síma 893 2002.
Dýrahald
Kassavanir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í s. 697 4872.
9 mán. gullfallegur ísl. hvolpur
Mjög duglegur, algjör keliknúsari,
á fullt af dóti, fæst gefins á gott
heimili vegna heimilisaðstæðna.
Uppl. í s. 662 5106 eftir hádegi.
Ferðalög
Sumarfrí í Barcelona. Íbúð til
leigu í góðu hverfi miðsvæðis í
Barcelona, frá júní og út septem-
ber. Leigist í viku eða lengur í
senn. Uppl. í s. (0034)935287705
eða ibud.bcn@gmail.com.
Gisting
Gisting í Reykjavík
Hús með öllum búnaði, heitur
pottur, grill o.fl.
Upplýsingarí s. 588 1874 og
691 1874.
Sjá: www.toiceland.net
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði til leigu á 2.
hæð í Síðumúla. 3 herbergi,
eldhús og snyrting með síma og
tölvulögnum. Leiguverð 65 þús.
Uppl. í s. 553 4838.
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Glæsilegar sumarhúsalóðir!
Til sölu mjög fallegar lóðir í vel
skipulögðu landi Fjallalands við
Ytri-Rangá, aðeins 100 km frá
Reykjavík, á malbikuðum vegi.
Kjarrivaxið hraun. Fögur fjallasýn.
Veðursæld. Frábærar gönguleiðir
og útivistarsvæði. Mjög góð
greiðslukjör. Uppl. á fjallaland.is
og í s. 893 5046.
Námskeið
www.enskunam.is
Enskuskóli Enskunám í Englandi.
13-17 ár,a 18 ára og eldr,i 40 ára
og eldr.i Uppl. og skráning frá kl.
17-21 í síma 862-6825 og
jona.maria@simnet.is
Microsoft MCSA kerfisstjóra-
nám. Nám í umsjón Windows
2003 Server netþjóna & netkerfa
hefst 24. apríl. Hagstætt verð.
Rafiðnaðarskólinn, www.raf.is.
Upplýsingar í síma 86 321 86 og
á jonbg@raf.is
Til sölu
Vorum að taka upp
nýjar vörur.
H. Gallerí, Grænatúni 1,
Kópavogi, s. 554 5800.
Kristalsljósakrónur. Handslípað-
ar. Mikið úrval.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16b,
201 Kópavogi,
s. 544 4331.
Hágæða postulín, matar-, kaffi-,
te- og mokkasett. Mikið úrval.
Frábært verð.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16b,
201 Kópavogi,
sími 544 4331.
Bókhald
Fljótt og vel. Framtöl, bókhald,
laun, vsk, ársreikningar, rekstrar-
yfirlit, stofnun ehf. og önnur
skjalavinnsla. Upplýsingar í síma
690 6253.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
www.vidur.is
Nýkomið: Hnota (ipe-tegund).
Gegnheill planki 19x195 mm,
fasaður og pússaður. Verð 6.990
kr. m² m. vsk. Sjá nánar á
vidur.is. Upplýsingar hjá Magn-
úsi í s. 660 0230.
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga.
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu
verði. Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í síma
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Nýja sumarlínan frá Pilgrim
komin. Tilvalin fermingargjöf.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Matarlitur
12 mismunandi litir.
Pipar og salt,
Klapparstíg 44,
sími 562 3614.
Hárspangir frá kr. 290.
Einnig mikið úrval af fermingar-
hárskrauti.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Army húfur aðeins kr. 1.690.
Langar hálsfestar frá kr. 990.
Síðir bolir kr. 1.990.
Mikið úrval af fermingarhár-
skrauti og hárspöngum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Bílar
Toyota Corolla árg. '97
ekinn 160 þús. Verð 200 þús.
Uppl. í síma 694 9923.
Tilboð - Toyota Rav4, 4wd,
árg. 05.03. Ek., 83 þ. Sjsk., sk. 08
og nýsm, CD, heilsársdekk. Topp-
bogar og varadekkshlíf. Verð
1.850.000 kr., tilboð 1.650.000 kr.
Uppl. í s. 896 6181 og 557 6181.
Nýr Mercedes Benz Sprinter
316 CDI (Freightleiner). Sjálfskipt-
ur, ESP, millilengd.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333 og 820 1070.
Nissan Patrol Elegance 3000
diesel. Árg. 10 '02, ek. 54 þ.km,
sjsk., 6 dyra, ýmsir aukahl. Ásett
3,16 m. Tilb. 2,9 m. S.896 6181 og
557 6181
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
FRÉTTIR
SÚ fullyrðing sjávarútvegsráð-
herra á Alþingi í liðinni viku að
hvalveiðar séu forsenda þess að
byggja upp þorskstofninn við Ís-
land stenst ekki skoðun, að mati
Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Samkvæmt vistfræðinni skipti ekki
máli hvort smáþorskur er 5 eða
15% prósent af heildarfæðuöflun
hrefnustofnsins við Ísland. Sjálf-
bærar hrefnuveiðar munu nær
engu breyta um þau áhrif sem
hrefnustofninn kann að hafa á
nytjastofna fisks. Til að draga
marktækt úr meintum áhrifum
hrefnustofnsins á nytjastofna fisks
væri nauðsynlegt að grisja stofninn
langt umfram það sem talist gætu
sjálfbærar veiðar, jafnvel um helm-
ing eða meira á örfáum árum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
samtökunum.
Samtökin segja að Hafrann-
sóknastofnun telji litlar líkur á því
að veiðar á 400 hrefnum hafi nokk-
ur áhrif á stofninn. „Því verður að
álykta að Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra hyggi á
verulegan niðurskurð hrefnu-
stofnsins í þeirri von að þorsk-
stofninn rétti úr kútnum,“ segir í
tilkynningunni. „Ætlar ráðherrann
að leggja til mun meiri veiðar á
hrefnu en sem nemur ráðgjöf vís-
indamanna Hafró (400 dýr að há-
marki á ári)?
Hvernig hyggst hann koma af-
urðunum í lóg?“ spyrja samtökin.
Benda þau á að vilji sjávarút-
vegsráðherra byggja upp þorsk-
stofninn væri honum handhægast
að fara að ráðgjöf Hafró og draga
úr sókn með því að lækka aflareglu
fyrir þorskstofninn úr 25% af veiði-
stofni í undir 20% af stofninum ár-
lega.
Því miður hefur ráðherrann
hafnað þeirri ráðgjöf vísinda-
manna, segir í tilkynningu Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands.
Náttúruverndarsamtök Íslands
Undrast ummæli
sjávarútvegsráðherra
SEKTARLAUSIR dagar í Bóka-
safni Hafnarfjarðar hafa gefist vel
og nú hefur verið ákveðið að fram-
lengja þeim til og með 12. apríl.
Sektir falla niður af öllu efni sem
skilað er fram að páskum.
Ástæðan fyrir sektarlausu dög-
unum er sú að bókasafnið hyggst
semja við innheimtufyrirtækið
Intrum Justitia um innheimtu á
gögnum safnsins sem eru í van-
skilum. Bókasafn Hafnarfjarðar
vill gefa þeim sem eru í vanskilum
við safnið kost á að skila gögnun-
um áður en til innheimtuaðgerða
kemur.
Sektarlausir dagar
framlengdir í Hafnarfirði
SÉRSTÖK páskaúthlutun verður
hjá Fjölskylduhjálp Íslands, á
morgun, miðvikudaginn 12. apríl,
og verður boðið upp á mikið úrval
af mat.
Páskaúthlutun
Fjölskylduhjálpar
PÁSKAMÓT Hróksins verður hald-
ið á morgun, miðvikudaginn 12.
apríl, kl. 17, í höfuðstöðvum félags-
ins í Ármúla 44.
Þátttaka er opin öllum og hlýtur
sigurvegari mótsins glæsilegan bik-
ar úr smiðju Árna Höskuldssonar
gullsmiðs, en verðlaunað verður
sérstaklega í flokki grunnskóla-
barna.
Tefldar verða sjö hraðskákir eft-
ir svissnesku fyrirkomulagi. Þátt-
taka er ókeypis og boðið verður
upp á léttar veitingar fyrir þátttak-
endur og gesti.
Að mótinu loknu verður dregið í
happdrætti og eiga því allir mögu-
leika á vinningi. Verðlaun á mótinu
eru í boði Nóa-Siríusar og ætti eng-
inn sem er í páskaskapi að láta sig
vanta, segir í fréttatilkynningu. All-
ir eru velkomnir, ungir sem aldnir.
Hrókurinn með
páskamót í skák
Á FRAMBOÐSLISTA Samfylking-
arinnar fyrir borgarstjórnarkosn-
ingar í vor eru ellefu efstu sætin
óbreytt frá niðurstöðu prófkjörs
flokksins. Í frétt Morgunblaðsins
um endanlega lista flokksins misrit-
aðist að efstu tíu sætin væru óbreytt
og leiðréttist það hér með.
LEIÐRÉTT
Samfylkingin
í Reykjavík
FUGLAVERND heldur fræðslu-
fund í dag, þriðjudaginn 11. apríl kl.
20.30 í salnum Bratta í nýbygging-
unni Harmi við Kennaraháskólann
við Stakkahlíð.
Sex íslenskir fuglaskoðarar heim-
sóttu Kenýa í janúar 2006 og ferð-
uðust um suðvesturhluta landsins í
tvær vikur. Á fræðslufundinum
munu Ólafur Karl Nielsen og Yann
Kolbeinsson segja frá þessu ferða-
lagi í máli og myndum. Fjallað verð-
ur um staði sem þeir heimsóttu, fólk
sem þeir hittu og sýndar einstakar
ljósmyndir af mannlífi, fuglum og
villtum spendýrum.
Þeir félagar sáu á ferð sinni um
470 tegundir fugla og um 50 tegund-
ir spendýra. Aðgangur er öllum
opinn og er ókeypis fyrir félaga í
Fuglavernd, en kostar annars 200
kr.
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Tígulegur blettatígur var meðal þess sem fuglaskoðararnir sáu í Kenýa.
Fuglaskoðarar segja
frá ferð til Kenýa
ROPE yoga kennaranámskeið
verður haldið dagana 27. apríl til
30. apríl. Framhaldsnámskeið
verða síðan dagana 8. september til
10. september. Leiðbeinandi er
Guðni Gunnarsson, stofnandi Rope
yoga.
Kerfið er kjörið tækifæri fyrir
jógakennara, sjúkraþjálfara, lík-
amsræktarþjálfara og þá sem hafa
menntun í íþróttafræðum til að
auka gildi núverandi þjónustu með
rope yoga hug og heilsuræktar-
kerfinu, segir í fréttatilkynningu.
Kennaranámskeið í rope yoga