Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 2
LÉST Í SNJÓFLÓÐI
Ungur maður lést eftir að hann
lenti í snjóflóði í Hoffellsdal í gær.
Björgunarsveitarmenn fundu mann-
inn á níunda tímanum. Endurlífg-
unartilraunir báru ekki árangur og
var hann úrskurðaður látinn á leið á
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað.
Veðjað á íslenskan óróa
Norski olíusjóðurinn er talinn
hafa tekið stöðu gegn skuldabréfum
KB banka og Landsbanka, sam-
kvæmt frétt úr breska blaðinu Fin-
ancial News í gær. Yfirskrift hennar
er: „Noregur veðjar á óróa íslenska
hagkerfisins“ og segir hún að þetta
sjáist vel í ársskýrslu Norges bank.
Boða annað setuverkfall
Sérhæft starfsfólk og félagsliðar
nokkurra öldrunarheimila boða viku
langt setuverkfall og uppsagnir fyrir
mánaðamótin ef ekki þokar í samn-
ingsátt í kjarabaráttu þeirra. Þetta
var niðurstaðan á vel sóttum bar-
áttufundi í gær.
Chirac hafnar atvinnulögum
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, tilkynnti í gær að hann myndi
afturkalla umdeilda atvinnulöggjöf,
sem ætlað var að auðvelda fyrir-
tækjum að reka starfsmenn undir 26
ára aldri. Ákvörðunin þykir sigur
fyrir námsmenn og verkalýðsfélög
sem hafa staðið fyrir fjölmennum
mótmælum gegn lögunum á síðustu
tveimur mánuðum.
Ferðabann á Lúkasjenkó
Evrópusambandið hefur sett
ferðabann á 31 háttsettan embættis-
mann frá Hvíta-Rússlandi, þ.á m.
Alexander Lúkasjenkó, forseta
landsins, vegna umdeildra forseta-
kosninga í landinu 19. mars.
Y f i r l i t
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Virðing
Réttlæti
Aðalfundur VR
verður haldinn á Nordica hótel mánudaginn
24. apríl nk. og hefst kl. 19:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Laga- og reglugerðabreytingar
• Nýtt nafn
• Stofnun Varasjóðs
• Sameining við Verslunarmannafélag
Hafnarfjarðar
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Fréttaskýring 8 Bréf 37
Viðskipti 14/18 Minningar 38/45
Úr verinu 14 Dagbók 48/51
Erlent 20/21 Víkverji 48
Akureyri 23 Velvakandi 49
Suðurnes 24 Staður og stund 50
Austurland 24 Leikhús 52
Landið 25 Bíó 54/57
Daglegt líf 26/27 Ljósvakamiðlar 58
Umræðan 28/37 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra fagnar áhuga Sjóvár á
einkarekstri umferðarmannvirkja,
en Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
lýsti nýlega yfir áhuga, m.a. á
breikkun Suðurlandsvegar um
Hellisheiði.
„Ég er mjög ánægður með að það
skuli vera vaxandi áhugi fjárfesta og
fyrirtækja fyrir því að standa að
einkaframkvæmdum í samgöngu-
mannvirkjunum,“ segir Sturla, sem
kveður augljóst að hin vel heppnaða
framkvæmd í Hvalfjarðargöngunum
veki athygli og sýni að hér sé um að
ræða fyrirkomulag sem virðist reyn-
ast vel. „Það er hins vegar ljóst að
ýmsir hafa jafnframt sýnt þessu
áhuga, t.d. norðanmenn sem hafa
hug á að taka þátt í vegagerð á Kjal-
vegi og sömuleiðis Vaðlaheiðargöng-
um. Þetta vekur upp margar spurn-
ingar og ég hef ekki svarað þessu
erindi þeirra á annan hátt en þann að
ég átti ágætis fund með forstjóra
Sjóvár-Almennra þar sem hann
kynnti þennan áhuga.“
Betra að um sé að ræða
ákveðinn hluta vegakerfisins
Í viðtali við Morgunblaðið í gær
sagði Þór Sigfússon það t.d. mögu-
legt að fyrirtækið legði veginn, ætti
hann og ræki, en flytti hann mögu-
lega aftur til ríkisins að ákveðnum
tíma liðnum. Á meðan fengi fyrir-
tækið t.d. greitt veggjald frá ríkinu
fyrir hverja bifreið sem ekur veginn.
Sturla segir breikkun Suðurlands-
vegar nokkuð flókið verkefni.
„Í einkaverkefni er betra að það sé
einn hluti vegakerfisins, s.s. brú,
jarðgöng eða einn vegur, sem er í
framkvæmd,“ segir Sturla. „Það
þarf að skoða allt saman og líta til
þess hvaða kostir eru vænlegastir í
þessu. Almennt er ég fylgjandi
einkaframkvæmd, en við erum að
endurskoða samgönguáætlunina
núna. Ég geri ráð fyrir því að þar
verði gert ráð fyrir framkvæmdum
við endurbætur á Suðurlandsvegin-
um, en við eigum alveg eftir að meta
það í hvaða áföngum það verði gert.
Það skýrist þegar líður á árið og
þessi áhugi Sjóvár-Almennra verður
tekinn til skoðunar.“
Spurður um aðkomu einkaaðila að
Sundabraut segir Sturla vissulega
hafa verið rætt um það. „Það er
miklu einfaldara verkefni sem einka-
framkvæmd,“ segir Sturla. „Þar er
um að ræða heildstætt verk. En við
höfum gert ráð fyrir því að leggja
fjármuni í fyrsta áfangann, en næsti
áfangi gæti orðið einkaframkvæmd.
Þetta verður allt skoðað við endur-
skoðun samgönguáætlunar.“
Fagnar áhuga á einka-
rekstri í samgöngum
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is Samgöngu-
ráðherra segir
þetta vera fyrir-
komulag sem virð-
ist reynast vel
DÓMARAR í máli ríkissaksóknara
gegn stjórnanda skemmtibátsins
Hörpu, sem steytti á Skarfaskeri 10.
september í fyrra með þeim afleið-
ingum að tveir fórust, munu sigla
um Viðeyjarsund og nálæga staði til
að gera sér nánar grein fyrir stað-
háttum á vettvangi. Farið verður í
vettvangssiglinguna í aðdraganda
aðalmeðferðar málsins sem hefst 5.
maí. Þetta var ákveðið í milliþing-
haldi í málinu í gær. Sigld verður
leiðin sem talið er að hafi verið farin
áður en báturinn steytti á Skarfa-
skeri.
Upptaka af símtali við
Neyðarlínuna lögð fram
Í þinghaldinu í gær lauk gagna-
öflun í málinu þar sem ákæruvaldið
lagði fram skýrslu sem tekin var af
einum farþega bátsins sem komst
lífs af. Einnig var lögð fram upptaka
af símtali við Neyðarlínuna. Þessi
gögn hafði verjandi ákærða ekki
fengið við síðasta þinghald. Verjandi
óskaði þá eftir því við saksóknara að
hann aflaði vottorðs frá Landspít-
alanum um höfuðáverka sem ákærði
hlaut í slysinu og krafðist þess að
auki að skýrsla réttarmeinafræðings
yrði þýdd á íslensku.
Dómur í málinu er fjölskipaður og
er dómsformaður Jónas Jóhannsson
héraðsdómari. Pétur Guðgeirsson
héraðsdómari og Vilbergur Magni
Óskarsson, sviðsstjóri á skipasviði
Fjöltækniskóla Íslands, sitja einnig í
dómi. Vettvangssiglingin verður far-
in á tímabilinu 24. til 28. apríl og
verður þá skemmtibáturinn sjálfur
skoðaður af dómendum.
Dómarar fara í
vettvangssiglingu
LÖGREGLAN á Snæfellsnesi hafði
í nógu að snúast í gær. Um morg-
uninn barst tilkynning um tvo menn
á fjórhjólum sem voru á ferð utan
vegar í þjóðgarði Snæfellsness.
Þegar lögreglan kom á staðinn
voru ökumennirnir komnir út úr
þjóðgarðinum en voru enn utan
vegar. Náðist annar þeirra fljótlega
og telst málið upplýst. Að sögn lög-
reglumanns mega ökumennirnir
búast við sektum, enda akstur á
fjórhjólum því sem næst bannaður
alls staðar nema á eignajörðum við-
komandi ökumanns eða á sér-
stökum akstursbrautum.
Seinna um daginn varð þriggja
bíla árekstur á gatnamótun Útnes-
vegar og Háarifs. Að sögn lögregl-
unnar voru tildrög slyssins þau að
bifreið var að beygja út af Útnes-
vegi þegar önnur bifreið keyrði aft-
an á hana og svo sú þriðja inn í
þvöguna. Einn ökumanna og far-
þegi í sama bíl voru fluttir á heilsu-
gæslustöðina í Ólafsvík með lítils
háttar meiðsli. Að sögn lögreglu-
manns eru bílarnir mikið skemmdir
ef ekki ónýtir.
Tekinn fyrir
akstur utan
vegar í þjóðgarði
Snæfellsness
ÞEIR voru léttir á fæti leikfélagarnir sem
stukku á milli steina á Læknum í Hafnarfirði í
gær en margir hafa gaman af því að leika sér við
lækinn. Andfuglarnir fylgdust forvitnir með og
bjuggust kannski við að félögunum skrikaði fót-
ur, enda steinarnir hálir af bleytunni.
Á morgun og á skírdag er spáð éljum norðan
til en léttskýjuðu veðri syðra. Hiti verður frá
frostmarki að fimm stigum sunnanlands að degi
til en annars vægt frost. Á föstudaginn langa má
svo búast við hlýnandi veðri og fagna því eflaust
margir enda sumarið á næsta leiti.
Leikur á Læknum í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Brynjar Gauti