Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 45 MINNINGAR Keppnismenn með stáltaugar unnu Súgfirðingaskálina Valdimar Ólafsson og Karl Bjarnason sýndu að þeir hafa stál- taugar og mikið keppnisskap er þeir náðu að tryggja sér Súgfirðingaskál- ina með góðum endaspretti. Staða Einars Ólafssonar, sem spil- aði við Þorstein Þorsteinsson og Karl Sigurðsson, var mjög vænleg fyrir lokalotuna. Valdimar og Karl þurftu að stefna á 60% skor og það tókst. Einnig var mikil barátta um þriðja sætið og höfðu Guðbjörn og Steinþór betur í baráttunni við Björn formann og Gunnar. Munaði aðeins einum yfirslag er upp var staðið. Keppnin var í fjórum lotum og giltu þrjú beztu skorin til verðlauna. Alls spiluðu 14 pör í mótinu. Lokastaðan: Valdimar Ólafsson – Karl Bjarnason 404 Einar Ólafsson – Þorsteinn Þorsteinsson /Karl Sigurðsson 398 Guðbj. Björnss. – Steinþór Benediktss. 349 Björn Guðbjörnss. – Gunnar Ármannss. 346 Kristján Þorláksson – Haukur Guðmss. 343 Gróa Guðnadóttir – Guðrún Jörgensen 341 Meðalskor 330 stig. Úrslit í fjórðu lotu: Valdimar Ólafsson – Karl Bjarnason 133 Kristján Þorláksson – Haukur Guðmss. 129 Gróa Guðnadóttir – Guðrún Jörgensen 121 Björn Guðbjörnss. – Gunnar Ármannss. 113 Meðalskor 110 stig. Spilastjóri var Sigurpáll Ingibergsson. Fimmtudaginn 4. maí verður loka- spilamennska og brugðið á léttan leik. Spilaður verður súgfirskur þrautakóngur, tvímenningur í anda raunveruleikaþátta. Mun pörum fækka eftir hverja umferð, pör verða spiluð út úr þrautinni. Boðið verður upp á breytileg spilaform og nýjung í bridsflóruna. Þrautakóngurinn hefst kl. 18.15 í björtum sal BSÍ. Frá afhendingu Súgfirðingaskálarinnar. F.v.: Karl Sigurðsson, Einar Ólafs- son, Karl Bjarnason, Steinþór Benediktsson, Valdimar Ólafsson, Björn Guð- björnsson, formaður Súgfirðingafélagsins, og Guðbjörn Björnsson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Úrslitakeppni Íslandsmóts í sveitakeppni um bænadagana Úrslitakeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni í brids verður spiluð dagana 12.–15. apríl á Hótel Loft- leiðum. Tólf sveitir hafa unnið sér rétt til spilamennsku í úrslitum og spila allar 16 spila leiki innbyrðis. Spilamennska hefst klukkan 16.00 á miðvikudaginn, 12. apríl. Að venju verður leikjum lýst á sýningartöflu og áhorfendur að sjálfsögðu vel- komnir. Meðfram Íslandsmótinu verður boðið upp á Góu-tvímenningskeppni þar sem verðlaunin verða glæsileg páskaegg. Ein lota verður spiluð fimmtudaginn 13. apríl og tvær lotur föstudaginn langa 14. apríl. Ekki tvær á fimmtudag og ein á föstudag eins og ranghermt var í síðustu frétt. Veitt verða þrenn verðlaun fyrir hverja lotu fyrir sig og síðan fær það par, sem nær besta samanlagða ár- angrinum í tveimur af þremur lot- um, myndarlegt páskaegg. Gefið verður út mótsblað og spilað með BridgeMate-tölvum sem gerir það kleift fyrir áhorfendur að fylgjast með skori í öllum leikjum. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 7. apríl var spilað á 12 borðum. Meðalskor var 216. Úr- slit urðu þessi í N/S Sigurður Herlufs. – Steinmóður Einars. 265 Sverrir Jónsson – Jón Pálmason 263 Sigurður Hallgrímsson – Anton Jónsson 259 Helgi Sigurðsson – Gísli Kristinsson 241 A/V Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 289 Guðm. Bjarnason – Kristján Þorláksson 239 Sófus Bethelsen – Haukur Guðmss. 225 Ingimundur Jónss. – Helgi Einarsson 225 Lokið er stigakeppni um verðlaun fyrir föstudaga. Þessir urðu efstir. Jón Sævaldsson 54 Þorvarður S. Guðmundsson 54 Sæmundur Björnsson 49 Guðrún Gestsdóttir 45 Jón Gunnarsson 42 Albert Þorsteinsson 41 Bridsfélag Kópavogs Eftir tvö kvöld í hraðsveitakeppn- inni, er staða efstu sveita þessi; Vinir 1155 Allianz 1148 Guðlaugur Sveinsson 1138 Lokaumferðin verður spiluð að kveldi sumardagsins fyrsta 27. apríl. Gullsmárinn Bridsdeild FEBK, Gullsmára, spilaði tvímenning á 15 borðum fimmtudagin 6. apríl. Meðalskor 264. Efst í NS Þorsteinn Laufdal – Tómas Sigurðsson 319 Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 317 Jón Stefánsson – Eysteinn Einarsson 316 Viðar Jónsson – Leifur Jóhannesson 294 AV Ragnhildur Gunnarsd. – Haukur Guðms. 352 Guðm.Magnússon – Kristinn Guðmss. 305 Guðm. Árnason – Maddý Guðmundsd. 286 Oddur Jónsson – Magnús Ingólfsson 280 Síðasti spiladagur fyrir páska er mánud. 10. apríl. Fyrsti spilad. e. páska mánud. 24. apríl FEBK Gjábakka Spilað var á 6 borðum sl. föstudag. Þetta eru úrslitin í N/S riðlinum: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 119 Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddss. 106 Jón Hallgrímss. – Ægir Ferdinandss. 99 A/V: Júlíus Guðmss. – Óskar Karlsson 128 Helga Helgad. – Lilja Kristjánsd. 103 Aðalheiður Torfad. – Ragnar Ásmundss. 101 Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss 101 Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali og fékk síðar réttindi í hársnyrt- ingu sameinaðri iðngrein í hár- skurði og hárgreiðslu. Hann starf- aði um nokkurt árabil á hársnyrtistofum fékk meistararétt- indi árið 1981 og lauk kennslurétt- indanámi frá Kennaraháskóla Ís- lands árið 1995. Haukur hóf störf við Iðnskólann árið 1986 og hafði því unnið við kennslustörf í tuttugu ár er hann lést. Haukur var einstaklega ljúfur maður í umgengni. Hann lagði sig fram við að gera lífið þægilegt og skemmtilegt fyrir þá sem voru í kringum hann hverju sinni. Hann var mikill húmoristi og naut sín best í góðra vina hópi. Þeirra stunda verð- ur minnst með ljúfsárum söknuði. Haukur hafði mikinn metnað og lagði mikið á sig starfsgrein sinni til framdráttar. Hann var formaður fagfélags hársnyrtikennara frá fé- lagsstofnun og þar til hann féll frá. Einnig sat hann í stjórn alþjóða- samtaka hársnyrtikennara IAHS. Vinnan var honum mikils virði og hann hafði sterk og góð áhrif á okk- ur sem unnum með honum í Iðn- skólanum. Honum var einkar um- hugað um nemendur sína, bar hag þeirra fyrir brjósti og víst er að all- ir nemendur Hauks sjá nú á eftir einstökum kennara sem á engan sinn líka. Nánustu samstarfsmenn Hauks félagar hans við hársnyrti- braut skólans bundust honum sterkum böndum og eiga fjölmarg- ar minningar frá fundum við hann. Hann var góður gestgjafi og frábær kokkur, maturinn sem hann útbjó var jafnan listaverk, hollur og góð- ur og smakkaðist eftir því. Síðasta heimsóknin norður til Akureyrar, rétt áður en Haukur lést, var þess- um starfsfélögum mjög mikils virði. Hann hafði helsjúkur beðið komu vina sinna sem áttu með honum fal- lega og dýrmæta stund. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Það er erfitt að kveðja Hauk, veikindin og andlátið báru svo brátt að en við þökkum fyrir allar góðu stundirnar og samveruna. Minning- arnar um Hauk eigum við og þær munu lifa innan skólans um ókomna tíð. Við samstarfsmenn og vinir hans við Iðnskólann kveðjum ljúfan og góðan dreng og sendum fjöl- skyldu hans okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Eftir rúmlega þrjátíu ára við- kynni eigum við systur eingöngu góðar minningar um Hauk frænda svo að hvergi ber skugga á og það viljum við þakka. Ræktarsemi hans við okkur og okkar var einstök. Hans hlýja og góða nærvera sem laðaði alla að, brosið, kímnigáfan og hláturinn, ásamt trygglyndi sem var við brugðið eru gjafir sem gott er að eiga og muna. Nóri, bræður og aðrir ástvinir fá okkar hlýjustu kveðjur. Hulda og Steinunn. Haukur Þú brosir blíður og mjúkur. Þú ætlar, þú skalt, þú getur. Þú og heimurinn Þú sem kannt að lesa lífið og þú sem lærðir að skrifa í skýin. Hlærð, stendur upp og kveður. Ólöf Ása. Kæri Haukur, vinur okkar og fé- lagi. Nú ert þú farinn og eftir sitjum við og yljum okkur við minningar því gott er að minnast góðs manns. Margt væri hægt að skrifa um þig en okkur langar að kveðja þig með þessu ljóði. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum.) Þökkum samfylgdina. Jóhanna, Símon, Eyvindur, Snjólaug og Kristín. Ég veit þú ert komin vorsól. Vertu ekki að fela þig. Gægstu nú inn um gluggann. Í guðs bænum kysstu mig. Þeir eru svo fáir aðrir, sem una sér hjá mér. Já, vertu nú hlý og viðkvæm. Þú veist ekki, hvernig fer. Því það er annað að óska að eiga sér líf og vor en hitt að geta gengið glaður og heill sín spor (Jóhann Gunnar Sigurðsson.) Hver hefði trúað því að þetta vor væri það síðasta í lífi Hauks? við bekkjarfélagar úr Iðnskólanum hittumst svo hress sl. haust heima hjá Hauki í fallegu íbúðinni hans, fórum síðan út að borða og skemmtum okkur dásamlega. Við vorum að halda upp á að 30 ár væru liðin síðan við byrjuðum í hár- greiðslunni og sum okkar í rak- aranum en við vorum fyrsti árgang- urinn þar sem þessi fög voru saman í bekk, þetta var samstilltur og góð- ur hópur enda fámennur, aðeins 12 nemendur. Af og til hittist gamli bekkurinn og tilfinningin var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Stuttu eftir þetta yndislega kvöld fengum við þau válegu tíðindi að Haukur væri alvarlega veikur. Haukur sem var svo hress og frísk- ur. Það er höggvið stórt skarð við fráfall Hauks en minningin er ljúf um góðan dreng. Við vottum fjölskyldu og vinum okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd bekkjarsystkina í Iðnskólanum í Reykjavík. Auður Magnúsdóttir. Guðrún Geiradóttir. Sigríður Guðmundsdóttir. Haukur vinur okkar andaðist fyr- ir örfáum dögum. Það er sárt að kveðja slíkan mann í blóma lífsins. Hann var einstakur í augum okkar sem kynntumst honum og nutum aðstoðar hans í ýmsum málum, einkum þó hársnyrtingunni sem var sérfræði hans. Hann kom heim til okkar með nokkuð jöfnu millibili eftir að við áttum erfiðara með að hreyfa okkur milli staða í Reykja- vík. Þegar hann kom á Hjarðarhag- ann léttist ævinlega andrúmsloftið og við ræddum saman um heima og geima við dökkhærða gestinn yfir tebollunum eftir klippinguna. Haukur hafði gaman af myndum og þess vegna féll hann vel inn í umhverfið í íbúðinni á Hjarðarhaga 36. Þegar vora tók fór hann oft í smáreisur til útlanda með nemend- um sínum í Iðnskólanum og seinna um sumarið til annarra landa á eig- in vegum. Spánn var í sérstöku uppáhaldi hjá Hauki síðast þegar við vissum og gátum fylgst með hugarflugi hans, sem var býsna víð- feðmt og ekki bundið við einn heimshluta. Það gæti orðið býsna erfitt að lýsa Hauki Arnórssyni og sérkennum hans. En fyrst og fremst var hann hinn prúði maður bæði til orðs og æðis, sem hafði gaman af að tengjast fólki af öllum árgöngum. Á vinnustað hans í Iðn- skólanum í Reykjavík var unga fólkið í fyrrrúmi af eðlilegum ástæðum, en síðan bættist eldra fólkið í hópinn því að hann átti ým- islegt vantalað við okkur um lífs- reynslu sína og skoðanir okkar á ýmsum óskyldum málefnum. Við lærðum margt á því að umgangast hann þennan stutta tíma sem okkur var skammtaður. Lífið er stutt. Það vita menn gjörla þegar þeir hafa lifað áttatíu ár eða þar um bil. Árin sem hverfa í móðuna koma aldrei aftur. Else Mia Einarsdóttir, Hjörleifur Sigurðsson. Góður drengur hefur kvatt. Haukur Arnórsson er látinn langt fyrir aldur fram. Haukur gekk í Leikfélag Kópavogs um miðjan ní- unda áratuginn og tók þar þátt í leikstarfi á sviði jafnt sem utan þess. Þótt Haukur væri ekki virkur í félaginu nema um stutt skeið er hann afar minnisstæður þeim fé- lagsmönnum sem kynntust honum á þeim tíma og margir héldu góðu sambandi við hann allar götur síð- an. Glaðlyndi og hlýja einkenndi Hauk í starfi hjá Leikfélaginu og jákvæð afstaða hans veitti öðrum jafnan styrk í umhverfi leikhússins þar sem tilfinningarnar vilja gjarn- an sveiflast til og taugarnar þandar til hins ýtrasta. Haukur naut sín vel í góðum hópi og fjölmargar hlýjar minningar lifa enn í brjóstum fyrr- um félaga hans að honum gengnum. Leikfélag Kópavogs kveður góð- an félaga og sendir fjölskyldu hans og vinum samúðarkveðjur. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningar- greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.