Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 22
Akureyri | Sýningin Útlend-
ingar í Eyjafirði var á laugar-
daginn opnuð í Ketilhúsinu á
Akureyri að viðstöddu fjöl-
menni. Undirtitill sýningarinnar
er Við vildum vinnuafl en feng-
um fólk og er þar varpað ljósi á
það alþjóðlega andrúmsloft sem
svífur yfir vötnum í Eyjafirði
um þessar mundir, en þar búa
rúmlega 400 útlendingar frá 40
löndum, fólk sem vinnur mjög
margvísleg störf.
Á sýningunni eru myndir af
30 útlendinganna úr þessum
stóra hópi og stutt samtal við
hvern og einn fylgir myndinni.
Það eru nemendur á öðru ári í
fjölmiðlafræði við Háskólann á
Akureyri og Markús Meckl,
þýskur kennari þeirra, sem
standa að sýningunni. Einn
nemdanna, Ragnhildur Aðal-
steinsdóttir, tók allar ljósmynd-
irnar. Jón Kristjánsson félags-
málaráðherra, Þorsteinn
Gunnarsson rektor HA og
Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri ávörpuðu samkomuna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Útlendingar í Eyjafirði
Samfélag
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Nýliðna helgi snerust umræður í ferm-
ingarveislum í Reykjanesbæ að miklu
leyti um það ástand sem skapaðist í kjölfar
niðurstöðu valnefndar Keflavíkurkirkju
að mæla með ráðningu séra Skúla Sigurð-
ar Ólafssonar í embætti sóknarprests
Keflavíkurkirkju. Stuðningsmenn séra
Sigfúsar B. Ingvarssonar, aðstoðarprests
Keflavíkurkirkju, báru um helgina bréf til
sóknarbarna þar sem þau voru hvött til að
undirrita stuðningsyfirlýsingu við séra
Sigfús á heimasíðu sem þeir hafa komið á
fót, www.sigfus.mis.is. Þegar ég heimsótti
heimasíðuna eftir hádegið í gær höfðu
rúmlega 4.500 lýst yfir stuðningi. Nú er
bara að sjá hver ákvörðun kirkjumálaráð-
herra, Björns Bjarnasonar, verður.
Undirritun samstarfssamnings Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) og
Reykjanesbæjar sem fram fer í dag er af
allt öðrum og ánægjulegri toga. Samning-
urinn snýr að forvörnum í fjölskyldumál-
um en hlutverk verkefnisins er að veita
ráðgjöf, meðferð og eftirfylgd til barna á
aldrinum 0–10 ára og fjölskyldum þeirra
sem eiga við geð- og/eða sálfélagslegan
vanda að stríða. Ekki er vitað til þess að
slíkur samstarfssamningur hafi verið
gerður áðan en hann er tilraun til að loka
hringnum og skapa heildstæða þjónustu
við íbúa í Reykjanesbæ. Þáttur HSS innan
þessa samstarfs mun hins vegar ná til
allra Suðurnesjamanna.
Grunnskólarnir í Reykjanesbæ hafa iðað
af meira lífi undanfarna daga en á venju-
legum skóladögum. Þrír skólar af fimm
hafa verið að sýna söngleiki í sölum skól-
anna bæði fyrir nemendur sem og íbúa
bæjarins. Nemendur í Heiðarskóla settu
„Thriller“ á svið, „Grease“ fór á svið í
Holtaskóla en Njarðvíkurskóli sýndi
heimasmíðað leikrit „Slegið í gegn í
Njarðvíkurskóla“. Það er sjaldgæft að svo
margir skóla setji upp sýningar samtímis
en aðsókn hefur verið góð og aukasýn-
ingum bætt við, m.a. í gærkvöldi. Nú eru
skólanir hins vegar komnir í páskafrí.
Úr
bæjarlífinu
REYKJANESBÆR
EFTIR SVANHILDI EIRÍKSDÓTTUR
BLAÐAMANN
tekin við afhendingu og
er Friðrik Friðriksson
sparisjóðsstjóri til vinstri
og Óskar Óskarsson for-
maður Skíðafélags Dal-
víkur til hægri. Þeir
halda á gjafabréfinu á
Sparisjóðurinn á Dal-vík gaf nýlegaSkíðafélagi Dalvík-
ur tvær snjóbyssur til
framleiðslu á snjó. And-
virði tækjanna er 4,3
milljóna króna. Myndin er
milli sín. Byssurnar hafa
þegar verið teknar í notk-
un og kom skothríðin úr
þeim í góðar þarfir á dög-
unum þegar alpagreinar
Skíðalandsmótsins fóru
fram á Dalvík.
Gáfu Skíðafélaginu snjóbyssur
Rúnar Kristjánssoná Skagaströnd laspistil Steinunnar
Ólínu í Tímariti Morgun-
blaðsins fyrir viku síðan
um endurreisnarsköpin
og fann þar yrkisefni:
Englaborgin enn sem fyrr
á sér stóra rullu.
Þekkist staða þar ei kyrr,
þar er allt á fullu.
Menn við lýtalækningar
laga marga píu.
Setja í mæður margfaldar
meyjarhaft að nýju.
Pétur Stefánsson veltir
flöktandi tilverunni fyrir
sér:
Rennur tíminn fólki frá
fölna lífsins klæði.
Brennur mannsins ævi á
alltof litlum þræði.
Síðan leggst hann til
svefns:
Um aftanleytið enn ég finn,
úti magnast húmið.
– Nú mér veitir næði um sinn
nótt og hlýja rúmið.
Af
meyjarhafti
pebl@mbl.is
AÐALFUNDUR Skógfræðingafélags Ís-
lands hefur beint þeirri tillögu til landbún-
aðarráðherra „að sem fyrst verði gerð
heildstæð stefnumótun um skógrækt á Ís-
landi. Mikilvægt er að við þá vinnu verði
litið til nágrannaþjóða á Bretlandseyjum
sem hafa um margt hliðstæða skógrækt-
arsögu og Ísland“.
Einnig lýsti aðalfundur yfir „sérstakri
ánægju með að nýtt skógfræðinám við
Landbúnaðarháskóla Íslands hefur verið
tekið upp og óskar skólanum góðs gengis
með þessa nýju braut. Félagið hefur áfram
áhuga á að taka þátt í mótun brautarinnar
ef eftir því verður leitað“.
Þá benti fundurinn á „að vegna sér-
stakra aðstæðna á Íslandi eru miklir ónýtt-
ir möguleikar til bindingar kolefnis og með
skógrækt má binda kolefni með talsvert
ódýrari hætti en með því að kaupa kolefn-
iskvóta á alþjóðlegum markaði miðað við
það gangverð sem er í dag. Félagsmenn
telja brýnt að embættismenn skoði þessa
leið af fullri alvöru“.
Vilja binda
kolefni með
ódýrari hætti
ÍSLENSKU forvarnaverðlaunin verða
veitt í fyrsta sinn í maímánuði næstkom-
andi.
Veittar verða viðurkenningar í þrem
flokkum: Í fyrsta lagi fyrirtæki sem skarað
hefur fram úr í forvörnum, í öðru lagi ein-
staklingi sem sýnt hefur forystu og frum-
kvæði í forvörnum og loks félagasamtökum
eða stofnun sem staðið hafa í fararbroddi í
forvörnum. Einn af þeim þremur sem hlýt-
ur viðurkenningu fær síðan íslensku for-
varnaverðlaunin.
Formaður starfshóps Íslensku forvarna-
verðlaunanna er Kristín Sigurðardóttir
læknir, fræðslustjóri á slysa- og bráðadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúsi, og aðrir í
starfshópnum eru: Ólafur B. Thors fram-
kvæmdastjóri, Herdís L. Storgaard, verk-
efnisstjóri Árvekni fyrir hönd Lýðheilsu-
stöðvar, Jón Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar, fyrir hönd Lands-
bjargar, Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
sem er bakhjarl Íslensku forvarnaverð-
launanna, og Einar Guðmundsson er
starfsmaður nefndarinnar.
Íslensku for-
varnaverðlaunin
brátt veitt
♦♦♦
Opna
Reykjavíkurmeistaramótið
verður haldið á félagssvæði Fáks
í Víðidal dagana 10.-14. maí.
Mótið er World Ranking mót og er
keppt skv. FIPO reglum.
Keppt verður í eftirtöldum greinum:
100 m skeiði
150 m skeiði
250 m skeiði
Tölti T-2 (ungm., 2 fl., 1 fl., meistarafl.)
5 gangi (ungl., ungm., 2 fl., 1 fl., meistarafl.)
Gæðingaskeiði (ungl., ungm., 2.fl., 1.fl., meistarafl.)
Tölti T-1 (börn, ungl., ungm., 2. fl., 1. fl., meistarafl.)
4 gangi (börn, ungl., ungm., 2. fl., 1. fl., meistarafl.)
fimi (börn, ungl., ungm., 2. fl., 1. fl., meistarafl.)
Íþróttadeild Fáks áskilur sér rétt til að fella niður þær greinar sem ekki fæst
næg þátttaka í. Þeir keppendur sem hafa skráð sig í viðkomandi grein verða
færðir upp um flokk eða flokka.
Skráning fer fram í félagsheimili Fáks miðvikudaginn 26. apríl og
fimmtudaginn 27. apríl milli kl 17 og 19.
Einnig verður tekið við skráningu í síma 567 2166 á sama tíma en aðeins
gegn kortanúmeri.
Skráningargjöld:
Börn 1.500 kr.
unglingar/ungmenni 2.000 kr.
Fullorðnir 3.500 kr.
Öll hross þurfa að vera grunnskráð í World Feng.
Kveðja,
Íþróttadeild Fáks.