Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 25
MINNSTAÐUR
VORIÐ
GENGUR
Í GARÐ
Reykjavíkurborg
Starfsmenn Reykjavíkurborgar verða á ferðinni á tímabilinu og fjarlægja garðaúrgang sem
fólk hefur sett út fyrir lóðarmörk. Athugið að garðaúrgang má ekki setja í sorptunnur.
• Garðaúrgang skal setja í poka
• Greinaafklippur skal binda í knippi
• Ekki verða fjarlægð stór tré eða trjástofnar
Nánari upplýsingar í síma 4 11 11 11
LÓÐAHREINSUN Í REYKJAVÍK 2006
21.–29. APRÍL
www.reykjavik.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
LANDIÐ
♦♦♦
Stokkseyri | Veiðisafnið á Stokks-
eyri hefur eignast ísbjörn, upp-
stoppaðan í fullri stærð og hefur
hann verið settur upp til sýningar í
sýningarsal safnsins.
Hér er um að ræða grænlenskan
ísbjörn sem settur var upp af Sig-
urði Guðmundssyni hamskera á Ak-
ureyri en hann naut aðstoðar kenn-
ara sinna frá Svíþjóð og Danmörku
við uppsetninguna. Hugmyndin er
að færa hann síðar upp á sérstakan
sýningarpall ásamt tveimur íslensk-
um hvítum refum, í nýjum sýn-
ingasal sem verið er að byggja við
safnið.
Veiðisafnið er opið daglega frá kl.
11 til 18.
Ísbjörn
settur upp í
Veiðisafninu
Fréttasíminn
904 1100
Mývatnssveit | Borun eftir jarð-
gufu er að hefjast í Bjarnarflagi í
Mývatnssveit. Unnið hefur verið
að flutningi jarðborsins Jötuns
norður í land við vægast sagt
heldur erfið skilyrði hvað varðar
veður og færð. En nú er allt af
komast af stað.
Töluvert mál er að flytja Jötun
en hann tekur fjörutíu stóra
vörubílsfarma. Framkvæmda-
áætlun þessa árs gerir ráð fyrir
að Jötunn bori eina háhitaholu í
Bjarnarflagi, aðra á vestursvæði
við Kröflu og þriðju holuna á
Þeistareykjum.
Fyrst borað fyrir 50 árum
Fyrst var borað eftir gufu við
Námafjall árið 1955. Þar voru 10
metra djúpar holur gerðar með
höggbor og var hugmyndin að
nota gufu til brennisteinsfram-
leiðslu en ekkert varð úr því.
Næst var hafist handa á árinu
1963 með svonefndum Norður-
landsbor sem boraði tvær rúm-
lega 300 metra djúpar holur og
síðan fleiri þar í Bjarnarflagi. Í
náttúruhamförum á svæðinu 1977
skemmdust margar borholur.
Eftir það voru boraðar tvær hol-
ur á árunum 1979 til 1980 og var
jarðborinn Jötunn þar að verki
eins og nú. Þessar tvær holur eru
báðar í rekstri nú.
Frá því um 1965 hefur jarðgufa
frá borholum verið nýtt til marg-
víslegra nota svo sem til þurrk-
unar á hleðslusteini, fyrir kís-
ilgúrþurrkun, fyrir hitaveitu
sveitarinnar, jarðböðin nýju sem
og til framleiðslu á rafmagni. Sú
borhola sem nú er verið að bora
verður væntanlega meira en
2.000 metra djúp háhitahola. Hún
er svokölluð stefnuboruð hola og
í flestum atriðum ólík þeim hol-
um sem fyrr voru boraðar í
Bjarnarflagi.
Borun að hefjast á ný í Bjarnarflagi
Morgunblaðið/BFH
Borun Verið er að setja Jötun upp
í Bjarnarflagi.
Eftir Birki Fanndal Haraldsson
Skagafjörður | Margt er í boði um
páskana í Skagafirði. Skíðaveislu í
Tindastóli ber þar hæst en einnig
er hægt að njóta menningarvið-
burða, stunda útivist, fara á hest-
bak eða eiga huggulegar stundir í
góðum félagsskap, segir í frétta-
tilkynningu.
Fjölbreytt dagskrá á skíðasvæð-
inu en þar er opið frá kl. 10–17 alla
páskadagana. Má þar nefna skíða-
trimm á skírdag, brettakross,
Telemark-ynningu og ferð á topp-
inn með Björgunarsveitinni á
föstudaginn langa ásamt heljarinn-
ar grillveislu.
Laugardaginn 15. apríl er hægt
að hitta fyrir „Dýrin í Hálsaskógi“
í brekkunum. Á páskadag er svo
hægt að slást í för með Þorsteini
Sæmundssyni í gönguferð á topp-
inn og fræðast í leiðinni um fjöllin.
Það er ekki bara veisla í Tind-
stól heldur er menningarlífið líka
með miklum blóma í byggð. Mess-
ur eru í kirkjum víða um héraðið
og séra Ólafur Hallgrímsson les
upp Passíusálmana föstudaginn
langa í Mælifellskirkju. Tónleikar
og dansiböll eru haldin m.a. í
Ólafshúsi, Kaffi Króki og í Mið-
garði.
Hestadagar og Sæluvika
taka við af páskagleðinni
Hver stóratburðurinn rekur
annan í Skagafirði á næstunni. Al-
þjóðlegu hestadagarnir „Tekið til
kostanna“ verða 20. til 23. apríl og
Sæluvikan stendur yfir frá 30. apr-
íl til 6. maí.
Dagskráin er birt á vef sveitar-
félagsins, www.skagafjordur.is.
Skíðaveisla
í Tindastóli