Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bragi Melaxfæddist á Barði í
Fljótum í Skagafirði
1. september 1929.
Hann lést á líknar-
deild Landakots 2.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
sr. Stanley Melax,
prestur á Breiðaból-
stað í Vesturhópi, f.
1893 á Laugalandi í
Þelamörk, d. 1969,
og Guðrún Ólafs-
dóttir Melax, hús-
móðir, f. 1904 í
Efra-Haganesi í Fljótum, d. 1999.
Systkini Braga eru: Haukur, f.
1932, Guðrún Dúfa, f. 1933, Jór-
unn Lóa, f. 1935, d. 2003, og Björk,
f. 1941. Bragi ólst upp hjá foreldr-
um sínum á Breiðabólsstað í Vest-
urhópi ásamt systkinum sínum og
fósturbróður, Halldóri Björnssyni,
Berglind, f. 1985, Bjarmi, f. 1992,
Breki, f. 1997.
Bragi kvæntist 21. desember
1974 Ölmu Þorvarðardóttur, f.
1943. Þau skildu. Dóttir þeirra er
Helena, f. 1976, sambýlismaður
hennar er Jón Berg Jónasson, f.
1970.
Bragi starfaði sem kennari og
skólastjóri. Sem ungur maður
kenndi hann á Akranesi og á
Strönd á Rangárvöllum. Seinna
gegndi hann stöðu skólastjóra við
Barnaskólann á Laugum í Þingeyj-
arsýslu. Lengst af kenndi hann þó
við Flataskóla í Garðabæ og við
Hólabrekkuskóla í Reykjavík. Á
síðustu árum starfsferils síns
gegndi hann skólastjórastöðum
við Grunnskólann í Garði og við
Grunnskólann á Drangsnesi.
Áhugamál Braga voru ferðalög,
veiðar, sagnfræði og ættfræði.
Hann var vel lesinn, fylgdist vel
með þjóðmálum og naut þess að
sitja að spjalli við fólk um allt á
milli himins og jarðar.
Útför Braga verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
f. 1919, d. 1986.
Bragi átti fimm
börn. Þau eru: Edda,
f. 1951, gift Günter
Willi Schmidt, f.
1953, börn: Stefan
Karl, f. 1984, Andr-
eas Helgi, f. 1986.
Móðir Eddu er Guð-
rún Karlsdóttir, f.
1929.
Hinn 23. ágúst
1959 kvæntist Bragi
Sigrúnu Ragnhildi
Eiðsdóttur, f. 1933, d.
1972. Þau áttu saman
þrjú börn: a) Róbert, f. 1960,
kvæntur Áslaugu Jónsdóttur, f.
1958, börn: Sigrún, f. 1984, sam-
býlismaður hennar er Yngvi Guð-
mundsson, f. 1984, Sölvi, f. 1987,
Pétur, f. 1998. b) Einar Arnaldur,
f. 1962. c) Áslaug, f. 1966, gift
Grétari Jónassyni, f. 1966, börn:
Borinn er til grafar í dag faðir
minn, Bragi Melax kennari. Með
nokkrum orðum vel ég að kveðja
pabba og á ákveðinn hátt þakka fyrir
mig.
Lífshlaup pabba var á margan
hátt viðburðaríkt og fjölbreytt.
Hann var ævintýramaður síns tíma
og óhræddur að feta nýjar slóðir.
Hann naut þess ávallt að ferðast,
hvort sem hið fagra Ísland varð fyrir
valinu eða erlendar slóðir. Sem ung-
ur maður fór pabbi til Kanada og
ferðaðist þar í tvö ár. Sú ferð var
honum dýrmæt upplifun og naut
hann þess alla tíð að rifja upp sögur
þaðan. Einnig var litli kofinn okkar
vestur í Berufirði honum dýrmætur.
Þar gat hann slakað á, fylgst með
trjánum vaxa og hlustað á hljóð nátt-
úrunnar.
Pabbi undi sér vel við lestur bóka
og var hafsjór fróðleiks um hin ýmsu
málefni, en var þó áhugi á málefnum
fyrri tíma honum einkar hugleikinn.
Hann eyddi löngum stundum í
gagnasöfnun, skoðun gamalla hand-
rita og ljósmynda.
Sorgin snertir okkur flest ein-
hvern tímann á lífsleiðinni og því
fékk pabbi einnig að kynnast, þegar
móðir okkar systkina dó á sviplegan
hátt. Ungur maður með þrjú börn
þurfti skyndilega að horfa á lífið frá
nýrri hlið og takast á við ný verkefni.
Pabbi leysti þau verkefni vel með
góðra manna hjálp.
Í veikindum pabba undanfarna
mánuði gafst oft góður tími til að
spjalla. Eitt sinn hafði pabbi það á
orði hvað honum þætti dýrmætt að
eiga afkomendur og tengdabörn sem
hann gæti treyst. Þetta var hans leið
til að segja okkur hvað hann væri
stoltur af hópnum sínum. Hann vissi
að hann gæti kvatt þennan heim
áhyggjulaus og haldið á vit nýrra
ævintýra á æðri stöðum.
Megi minning elsku pabba lifa í
hjarta okkar.
Þín dóttir,
Áslaug Melax.
Við viljum kveðjum elsku afa með
þessu ljóði:
Upp við hamra háa
holtasóley grær.
Yfir laufið lága
líður sunnanblær.
Opin hamrahöllin
heitan kveður dag.
Nóttin faðmar fjöllin
fyrir sólarlag.
Finnst þér ekki fagur
fjallaheimur þinn,
dýrðlegur hver dagur,
dýrðleg kvöldsólin,
þegar hamrahallir
hjúpar aftanskin?
Sólina eiga allir
alls staðar að vin.
(Ólöf Ólafsdóttir Briem.)
Þín barnabörn,
Sigrún, Sölvi og Pétur,
Berglind, Bjarmi og Breki.
Hvíl þú, Jesú minn, í mér,
mínu hjarta frið þinn gefðu.
Lát mig hvílast hægt í þér,
höndum þínum brjóst mitt vefðu.
Þínum fel eg ástararmi
anda minn, og loka hvarmi.
(Árni Þorkelsson í Sandvík á Grímsey.)
Með örfáum orðum vil ég minnast
móðurbróður míns er kvatt hefur
þennan heim eftir stutta sjúkralegu.
Bragi var óvenjulega heilsteyptur
maður, það var notalegt að vera sam-
vistum við hann. Gleðimaður var
hann, ferðagarpur mikill og unni
þjóðlegum íslenskum fróðleik. Hann
var hafsjór um frændgarð sinn og
heimasveit og það var sérlega
ánægjulegt að ræða við hann um þau
hugðarefni sín. Ég minnist með sér-
stöku þakklæti þeirra skipta sem
Bragi heimsótti mig í handritadeild
Landsbókasafnsins til að leita uppi
heimildir um löngu liðna sveitunga
sína, glugga í gömul handrit um að-
skildustu efni eða heyja sér forða í
samantekt um hreindýraveiðar á
fyrri tíð. Um þær hafði hann tekið
saman miklar frumheimildir og lagði
á grundvelli þeirra fram nýstárlega
kenningu sem t.d. var greint frá í
Lesbók Morgunblaðsins fyrir nokkr-
um árum í þremur vönduðum grein-
um. Bragi ánafnaði deildinni jafn-
framt handritasafn föður síns og
safnaði við það tækifæri saman öll-
um skjölum hans sem náð var í og er
safnið veglegur minnisvarði þeirra
feðga.
Bragi varð sá gæfumaður að fá að
starfa þar sem hæfileikar hans fengu
best notið sín. Hann var kennari alla
tíð og löngunin til að fræða og fræð-
ast átti djúpar rætur í hjarta hans.
Frá náttúrunnar hendi var Bragi
einstaklega skemmtilegur sögumað-
ur. Hvergi naut hann sín betur en á
skrafi um pólitík og breytta heims-
mynd. Þar hafði hann þungar og
ákveðnar skoðanir sem hann fylgdi
fast eftir. Sjaldan varð honum þokað
langt í rökræðunum.
Ævi manna markast ekki af örlög-
um þeirra, heldur fremur af breytn-
inni, viðnáminu sem þeir veita örlög-
um sínum. Fyrir röskum þrjátíu
árum lést kona Braga í bílslysi og
stóð hann þá einn eftir með þrjú ung
börn. Aldrei bugaðist hann þó eða lét
niður falla þær auknu skyldur sem
lögðust svo skyndilega á herðar
hans. Slíkur mannkostamaður var
Bragi alla tíð. Enda þótt hann ætti
eftir að finna gæfuna síðar er mér til
efs að hann hafi nokkurn tíma borið
sitt barr eftir þann atburð.
Margs er að minnast og margt er
að þakka fyrir á langri leið. Hug-
stæðastar eru mér nú vikurnar sem
Bragi dvaldi á Landakoti, tíminn
sem gafst til að kveðja var dýrmætur
fyrir fjölskyldu hans en á eftir að
verða ómetanlegur. Ég kom nokkr-
um sinnum til hans þangað og tók
smám saman að veita því athygli eft-
ir því sem heilsu hans hrakaði að um-
ræðuefnunum fækkaði þar til aðeins
eitt stóð eftir, nánasta fjölskylda
hans og uppruni hennar. Þangað
leitaði hugur Braga síðast alls. Mér
þótti örlögin því skilja ljúflega við
hann að sá sem alla tíð veitti fjöl-
skyldu sinni skjól mátti sjálfur sofna
rór í skjóli hennar.
Að leiðarlokum viljum við fjöl-
skyldan þakka góðum vini ævilanga
samleið. Megi minning hans lengi
standa.
Kári.
BRAGI
MELAX
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir, sonur, afi og
bróðir,
KRISTINN KORT BJÖRNSSON
viðskiptafræðingur,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 12. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásthildur Ketilsdóttir,
Elísabet Kristinsdóttir, Jón Valgeir Björnsson,
Ásta Sigríður Kristinsdóttir,
Verna Jónsdóttir,
Björn Kristinsson, Guðrún Hallgrímsdóttir,
barnabörn og systkini.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BALDUR ZÓPHANÍASSON,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Tjarnargötu 16,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
3. apríl.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks 5. hæðar Skjóls fyrir frábæra
umönnun á liðnum árum.
Guð blessi ykkur öll.
Þyrí Marta Baldursdóttir, Gunnar Snorrason,
Soffía Kolbrún Pitts, David Lee Pitts,
Elías Bjarni Baldursson,
Smári Örn Baldursson, Elvur Rósa Sigurðardóttir,
Hafdís Birna Baldursdóttir, Einar Hólm Jónsson,
Sigrún Fjóla Baldursdóttir, Arnar Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
DAGBJÖRT GÍSLADÓTTIR
frá Kirkjuhvoli,
Þykkvabæ,
síðast til heimilis
í Skógarbæ,
verður jarðsungin frá Þykkvabæjarkirkju miðviku-
daginn 12. apríl kl. 13.30.
Helga Sveinsdóttir,
Guðrún Gyða Sveinsdóttir,
Guðbjörg Sveinsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför systur minnar og
mágkonu,
VILBORGAR TRYGGVADÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir góða umönnun og hlýhug.
Valdimar Tryggvason, Ingibjörg Magnúsdótttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTMUNDUR STEINSSON
frá Hrauni á Skaga,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudag-
inn 12. apríl kl. 15.00.
Guðný Erla Jónsdóttir,
Sævar Kristmundsson, Edda Nína Heide,
Guðrún Kristmundsdóttir,
Elín Kristmundsdóttir, Svavar Guðmundsson,
Árni Kristmundsson, Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir,
Steina Ólafsdóttir,
afabörn og langafabarn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Lindartúni,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 15. apríl kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLMI PÁLMASON,
Þórunnarstræti 112,
Akureyri,
lést aðfaranótt sunnudagsins 9. apríl á dvalar-
heimilinu Hlíð.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
21. apríl kl. 13:30.
Halla Pálmadóttir, Sigurður G. Símonarson,
Soffía Pálmadóttir, Valdimar Sigurgeirsson,
Tryggvi Pálmason,
Guðrún Pálmadóttir,
Kjartan Pálmason, Halla Thoroddsen,
afabörn og langafabörn.