Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 55

Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 55
400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 2 fyrir 1 fyrir viðskiptavini Gullvild Glitnis eee L.I.B. - Topp5.is eee S.K. - Dv walk the line Páskamyndin í ár Ice Age 2 m/ensku tali kl. 3, 6, 8 og 10 Lucky Number Slevin kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára The Producers kl. 8 og 10.45 Walk the Line kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45 Rent kl. 2.40 og 5.20 B.i. 14 ára ÞÉR MUN STANDA AF HLÁTRI! Sýnd kl. 8 og 10 b.i. 14 -bara lúxus Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 b.i. 16 ára Sýnd kl. 2, 4 og 6 ÍSLENSKT TAL kl. 8 og 10.20 b.i. 14 ára Páskamyndin í ár Ein stærsta opnun allra tíma í USA ! RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR „FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN... OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM eee LIB, Topp5.is 400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU Sýnd kl. 2 og 4 www.xy.is Sýnd kl. 2, 4 og 6 200 kr. afsláttur fyrir XY félaga eee V.J.V Topp5.is eee H.J. Mbl 13.000 manns á aðeins 4 dögum! Stærsta opnun á teiknimynd frá upphafi á Íslandi! eee V.J.V Topp5.is eee H.J. Mbl VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 55 FYRRUM söngvari og leiðtogi hljómsveitarinnar Supertramp, Rodger Hodgson, heldur hljómleika í Broadway föstudaginn 11. ágúst næstkomandi. Á hljómleikunum hyggst Roger meðal annars flytja öll helstu lög Supertramp en þeirra á meðal eru lög á borð við „Give A Little Bit“, „The Logical Song“, „Dreamer“, „Its Raining Again“, „Breakfast In America“, „School“ og „Take The Long Way Home“. Hljómsveitin Supertramp hefur selt yfir 50 milljónir platna á ferli sínum. Þar af seldist plat- an Breakfast In America í yfir 18 milljónum ein- taka. Miðasala hefst miðvikudaginn 3. maí og verður á midi.is og eins í Skífuverslunum, Laugavegi, Kringlunni og Smáralind. Eins verður miðasala í BT-verslunum á Akureyri og Selfossi. Miðaverð er 5.400 krónur. Tónlist | Rodger Hodgson á Broadway í ágúst Heilinn á bak við Supertramp Rodger Hodgson stofnaði Supertramp árið 1969. TECHNO.IS stendur fyrir komu Roni Size til landsins en hann kem- ur fram á NASA miðvikudaginn 19. apríl, síðasta vetrardag. Roni Size er eitt þekkasta nafnið úr drum&bass-heiminum en hann hefur verið áberandi í danstónlist- arsenunni frá því snemma á tíunda áratugnum. Hann hreppti hin virtu Mercury-verðlaun fyrir plötuna New Forms árið 1997 sem hann gaf út með góðum hópi fólks á borð við Krust, Suv, Dynamite, Onallee og Die undir nafninu Reprazent. Nokkur lög af plötunni nutu mikilla vinsælda eins og „Brown Paper Bag“, „Share the Fall“ og „Trust Me“. Platan markaði tímamót í d&b- senunni en Reprazent var ein af fyrstu sveitunun í þeirri stefnu til að spila lifandi tónlist reglulega. Hann hefur verið öflugur í út- gáfu og einnig gefið út undir nöfn- unum Firefox, Mask, Breakbeat Era, Wings og Scorpio. Jafnframt hefur hann gert fjölda endurhljóð- blandana, m.a. fyrir U2, Masters at Work, Janet Jackson og Method Man. „Roni Size hefur gefið út ótrú- legt magn af tónlist einn og óstuddur en hann skilur eftir sig 70 smáskífur, níu breiðskífur og heilar 240 endurhljóðblandanir,“ segir í tilkynningu. Hann á einnig útgáfu- fyrirtækin Dope Dragon, Full Circle Records og Full Cycle en það síðastnefnda stofnaði hann með félaga sínum DJ Krust. Full Cycle vann sér fljótlega inn orðspor sem útgáfa sem vert var að fylgjast með. Í þetta skiptið kemur Roni Size einn síns liðs og ætlar að standa vaktina við plötuspilarana og verð- ur hann áreiðanlega með nýtt og ferskt efni í farteskinu. Ásamt hon- um koma fram margir íslenskir tónlistarmenn á þessari sumargleði með lifandi tónlist. Hermigervill spilar nýtt efni, Reykjavík Swing Orchestra stígur á svið auk Dr. Mista og Mr. Handsome og ekki má gleyma gestgjafanum Exosi. Plötusnúðarnir Richard Cuellar og Óli Ofur slá tóninn á efri hæðinni ásamt Kaido Kirikmae, sem er einn virtasti plötusnúður og tónlist- armaður Eistlands. Þó að Roni Size sé án efa stærsta nafn kvöldsins byrjar kappinn snemma en húsið verður opnað kl. 23. Tónlist | Dansað inn í sumarið með Techno.is á skemmtistaðnum NASA í næstu viku Roni Size til landsins Roni Size ætlar að standa á bak við spilarana á NASA. Roni Size á NASA ásamt góðum gestum miðvikudaginn 19. apríl. Miðaverð er 1.800 kr. við dyr en 1.400 í forsölu og eru seldir miðar í 12 Tónum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.