Morgunblaðið - 29.06.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 174. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Hverjir keppa
við Magna?
Raunveruleikaþátturinn Rock Star:
Supernova hefst í næstu viku | 61
hefst í dag! Opið til 21
Útsala
ÍSRAELSKI flugherinn gerði
harðar loftárásir á skotmörk á
Gaza-svæðinu í gærkvöldi og þús-
undir liðsmanna landhersins voru
jafnframt sendar inn á suðurhluta
Gaza. Dreifimiðum var hins vegar
varpað yfir byggðir Palestínu-
manna í norðurhluta Gaza og voru
þeir þar hvattir til að halda kyrru
fyrir í húsum sínum til að tryggja
öryggi sitt. Aðgerðir hersins eru lið-
ur í því að fá ísraelskan hermann,
sem herskáir Palestínumenn
rændu á sunnudag, lausan úr haldi.
Bandaríkjastjórn styður aðgerð-
ir Ísraela og segir þá hafa rétt til að
verja sig en Evrópusambandið hef-
ur hvatt báða aðila til að sýna still-
ingu.
„Hernaðarlegt brjálæði“
Fyrr um kvöldið höfðu fjórar
ísraelskar herflugvélar flogið yfir
heimili Bashar Assad, forseta Sýr-
lands, vegna „beinna tengsla“ Sýr-
landsstjórnar við Hamas, samtök
herskárra Palestínumanna, að því
er ísraelskir embættismenn sögðu,
en æðsti leiðtogi Hamas, Khaled
Meshaal, er í útlegð í Sýrlandi. As-
sad mun hafa verið í húsinu þegar
flugvélarnar fóru yfir.
Þá handtók ísraelski herinn pal-
estínskan ráðherra, Mohammed el
Barghuti, við vegartálma í borginni
Ramallah á Vesturbakkanum í gær-
kvöldi.
Palestínumenn óttuðust í gær
langvinnan hernað af hálfu Ísraela.
Vöruðu þeir við því að hernaður
þeirra myndi aðeins leiða til enn
meiri blóðsúthellinga og palest-
ínska heimastjórnin, undir forystu
Hamas-samtakanna, lýsti árásum
Ísraela sem „hernaðarlegu brjál-
æði“. Með árásunum væru Ísraelar
að refsa öllum Palestínumönnum
fyrir verk fámenns hóps. Göturnar
á sunnanverðu Gaza-svæðinu voru
nánast mannlausar í gær þar sem
fólk hélt kyrru fyrir heima hjá sér
vegna árásanna. Á norðanverðu
svæðinu bjuggu íbúarnir sig undir
hernað, hömstruðu matvæli og aðr-
ar nauðsynjar.
Reuters
Palestínsk börn bíða eftir að fá vatn á Gaza í gær en fólk hamstraði matvæli og hélt sig innandyra.
Harðar árásir ísraelska
hersins á skotmörk á Gaza
Ísraelskar
herþotur flugu
yfir bústað Sýr-
landsforseta
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is
Óttast langvarandi | 14
DAVÍÐ Oddsson, formaður bankastjórnar
Seðlabankans, segir að með aðgerðum rík-
isstjórnarinnar, sem boðaðar voru í vikunni
til að sporna gegn þenslu
í efnahagslífinu, hafi í
öllum meginatriðum ver-
ið stigin skref í rétta átt.
Þar sem hann hafi ver-
ið erlendis í byrjun vik-
unnar eigi bankastjórnin
eftir að kynna sér að-
gerðirnar betur, en með
frestun opinberra fram-
kvæmda og breytingu á
aðgengi að íbúðalánum
sé verið að bregðast við þeim sjónarmiðum
sem Seðlabankinn hafi látið frá sér fara.
Tilmæli um að hækka
stýrivexti enn frekar
Davíð er nýkominn heim af ársfundi Al-
þjóðagreiðslubankans í Sviss, BIS, þar sem
þeim tilmælum var beint til bankanna að
hækka enn frekar stýrivexti sína. Davíð
segir í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag
að stýrivaxtahækkanir víða um heim geti
þrengt að Íslendingum og því svigrúmi sem
þeir hafi haft og notað sér óspart. Á sama
tíma sé verið að glíma við afleiðingar þeirr-
ar þenslu sem ríkt hafi í efnahagslífinu hér á
landi.
Davíð segir BIS hafa sent frá sér skýr
skilaboð en vill ekkert segja til um hvort
þau muni hafa áhrif á Seðlabanka Íslands,
sem tilkynnir næstu vaxtaákvörðun 6. júlí
nk.
Aðgerð-
irnar skref
í rétta átt
Davíð Oddsson
Vaxtahækkanir | B1
Ottawa. AFP. | Sælgætisgrísir og
fleiri ættu að geta glaðst á næst-
unni því vísindamenn segjast hafa
smíðað búnað sem getur endurnýj-
að tennur og bein sem hafa brotn-
að. Vísindamennirnir, sem starfa
við Alberta-háskólann í Edmonton, hafa sótt um einkaleyfi á bún-
aðinum eftir að hafa prófað hann á tólf sjúklingum í Kanada, en að-
ferðin byggist á hljóðbylgjutækni. „Núna hyggjumst við nota þetta til
að laga brotnar eða skemmdar tennur og ójöfn kjálkabein, en þetta
kann einnig að gagnast íshokkíleikmönnum eða börnum sem hafa
misst tennur,“ segir Jie Chen, prófessor í verkfræði.
Hljóðbylgjutækið, sem er þráðlaust og minna en baun að stærð, er
sett inn í munn viðkomandi á spöngum eða í plasthylki. Búnaðurinn
nuddar gómana varlega og örvar þannig vöxt tannarinnar frá rótum.
Tækið mun eiga að vera í gangi 20 mínútur á degi hverjum í fjóra
mánuði. Vonast er til að það verði komið á markað eftir tvö ár.
Tennurnar endurnýjast
Allentown. AP. | Ellefu manns hafa
farist og tvö hundruð þúsund þurft
að yfirgefa heimili sín vegna óveðurs
og flóða sem orðið hafa í norðaust-
urríkjum Bandaríkjanna. Neyðar-
ástandi hafði verið lýst yfir í 46
sýslum í Pennsylvaníu og fjórum í
New York-ríki í gærkvöldi. Víða var
rafmagnslaust.
Óttast var að Susquehanna-áin í
Pennsylvaníu myndi flæða yfir
bakka sína á næstu sólarhringum og
því var 200 þúsund manns sem búa á
láglendi nálægt ánni skipað að fara
frá heimilum sínum. Auk þess hafa
þúsundir manna yfirgefið heimili sín
á öðrum svæðum, en sumum hefur
verið bjargað upp í þyrlur af hús-
þökum. Búist var við því að rigning-
ar næðu hámarki í nótt.
Tugir björgunarþyrlna frá þjóð-
varðliðinu, lögreglu og strandgæslu
fóru um flóðasvæðin í gærkvöldi og
nótt í leit að fólki í vandræðum.
AP
Þjóðvarðliðar bjarga manni upp í þyrlu eftir að vatnsflaumur hreif drátt-
arvél, sem hann keyrði, af veginum í Shoemakersville í Pennsylvaníu.
Neyðarástandi lýst
yfir vegna flóða
MEIRA en helmingur íbúa í
Osló lætur nágranna sína fara
í taugarnar á sér, að því er ný
könnun landssambands bygg-
ingarsamvinnufélaga í Noregi
leiðir í ljós.
Hávær tónlist og annar há-
vaði frá nágrönnum er það
sem mest angrar Norðmenn,
en 28% sögðust ergja sig yfir
honum. Rusl og óreiða er
næstalgengasta umkvörtunar-
efnið og angrar það 16% íbú-
anna en 10% sögðu að mat-
arlykt úr annarra manna
húsakynnum færi í taugarnar
á sér, að því er fram kemur á
fréttavef Aftenposten.
Ungt fólk pirraðra
Í ljós kom að ungt fólk, þ.e.
fólk undir þrítugu, er
gjarnara á að verða pirrað á
nágrönnum sínum en þeir sem
eldri eru og könnun leiddi
jafnframt í ljós að íbúar í Osló
eru mun pirraðri en fólk sem
býr annars staðar í Noregi.
Helmingur
pirraður yf-
ir nágrönn-
unum
Viðskipti | Nornin á Wall Street Fækkar í röðum risanna?
Íþróttir | Víkingar skelltu ÍA Annað stig ÍBV á fastaland-
inu í sumar Níu stiga forysta meistaranna
Viðskipti og Íþróttir í dag