Morgunblaðið - 29.06.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 29.06.2006, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sveinkarnir eru bara farnir að vera í uniforminu allt árið og stunda hrekki á saklausu fólki sem aldrei fyrr. Hvern hefði grunaðað alvarlegt eitur-efnaslys á Eski- firði ætti eftir koma upp níu mánuðum eftir að Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri í Reykja- vík, mælti þau orð í viðtali við Morgunblaðið í sept- ember 2005, að mikilvægt væri að geta gripið fyrr en ella inn í atburðarás stórá- falla ef oddvitar sveitarfé- laga og ríkis væru vel upp- lýstir því þannig mætti „draga úr afleiðingum sem annars hefðu orðið“, sagði JónVið- ar þá. Tilefnið var skýrsla starfshóps um áfallaþol á höfuðborgarsvæð- inu en í skýrslunni voru búin til allnákvæm dæmi um stóráföll og viðbrögð við þeim. Eitt slíkt dæmi hlýtur að vekja athygli í ljósi þess sem síðar átti eftir að gerast, nefnilega ímyndað klórgasslys í miðri Reykjavík þar sem bíll með tólf klórgashylki átti að lenda í um- ferðarslysi á Kringlumýrarbraut með þeim afleiðingum að fimm hylki fara að leka og lífshætta skapast á stóru svæði. Þegar við- bragðsaðilar koma á vettvang er almannavarnaástandi lýst yfir og viðbragðsáætlun virkjuð. Níu mánuðum eftir að greint var frá efni þessarar skýrslu varð raunverulegt klórgasslys að veru- leika og þjóðinni var brugðið. Hættuástandið var ekki lengur ímyndað dæmi úr skýrslu heldur áþreifanleg hætta sem nálega hvert mannsbarn á landinu skynj- aði, að ógleymdum þeim tugum manna sem urðu fyrir menguninni sjálfri. Samhæfingarstöð al- mannavarna var virkjuð og sam- hæfingarstöðin í Skógarhlíð tók til óspilltra málanna. Hættan greind snemma Jón Viðar segir að mjög snemma eftir slysið hafi verið ver- ið ljóst hvers konar efnaslys var um að ræða í sundlauginni á Eski- firði og þar fyrir utan hefði efna- verkfræðingur frá Olís mætt í Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð til að veita upplýsingar um áhrif blöndunar þeirra efna sem um ræddi. Þannig hefði innflutnings- aðili efnisins lagt sitt af mörkum í málinu. Raunar segir Jón Viðar að lykillinn að góðu viðbragði hafi einmitt falist í því hve allir lögðust á eitt um að hjálpa, bæði sérhæfðir viðbragðsaðilar og síðan almenn- ingur. „Það ræður enginn einn við svona atburð og menn verða að sjá að þetta er verkefni fyrir heild- ina,“ bendir hann á. Þannig hefðu t.d. björgunarsveitabílar verið til taks á Egilsstaðaflugvelli til að flytja aðkomna hjálparaðila á vett- vang, svo lítið dæmi sé tekið sem þó var afar mikilvægt í öllu starf- inu. „Þetta er allt búið að skipu- leggja og virkar eins og smurð vél. Ef maður ætlaði að lýsa viðbragð- inu, þá er það eins og þéttriðið net. Maður finnur að menn átta sig á að svona atburðir eru ekki bundnir við svæði, þar sem einn aðili leysir vandann, heldur heildin. Flæðið á mannskap milli svæða í dag, hvort heldur er lögregluumdæmi eða sveitarfélagsmörk, er alveg til fyr- irmyndar. Fyrir 10–15 árum síðan var stífni í þessum efnum en það gersamlega horfið í dag. Menn hugsa um þá aðstoð sem þeir geta fengið til að verkefnið leysist far- sællega og þetta hugarfar eitt og sér skiptir gífurlega miklu máli.“ Jón Viðar segir það ennfremur hafa skipt miklu máli að samhæf- ingarstöðin í Skógarhlíð hefði tek- ið til starfa en málum er þannig háttað með samhæfingarstöðina að hvaða viðbragðsaðili sem vera skal á landinu getur óskað eftir að hún taki til starfa. „Austfirðing- arnir hefðu getað leyst málið án samhæfingarstöðvarinnar en ég held að hún hafi styrkt þá í að leysa málið. Á meðan samhæfing- arstöðin er til staðar er verið að senda rétta hjálp á staðinn. Flug- vélar frá Akureyri, Fokkerar og þyrla Gæslunnar fóru á staðinn. Hefði samhæfingarstöðin ekki verið til staðar hefði enginn sam- hljómur verið í aðgerðum.“ Stjórnandi samhæfingarstöðv- arinnar á þriðjudag var starfsmað- ur almannavarnadeildar ríkislög- reglustjóra en sjálf stjórn á vettvangi var í höndum lögregl- unnar á Eskifirði. „Stjórnandi samhæfingarstöðv- ar gegnir því hlutverki að gæta þess að menn vinni í takt, svipað og í sinfóníuhljómsveit þar sem stjórnandinn sér um að hljóðfæra- leikararnir komi inn á réttum tíma en spilar ekki sjálfur á öll hljóð- færin.“ Jón Viðar telur tvo stóratburði á síðari árum, Hringrásarbrunann í nóvember 2004, og nú Eskifjarð- arslysið vera meðal þeirra sem standa upp úr varðandi allsherj- arviðbragð margra aðila þótt ólíkir hafi verið. Hann bendir á að við- bragðsaðilar verði líka að vera til- búnir til að gagnrýna sjálfa sig eft- ir hvern atburð. „Ég tel t.d. að ef samhæfingarstöðin hefði í Hring- rásarbrunanum verið jafn vel sam- hæfð og hún var núna hefði gengið betur. Það hefur nefnilega mikið átt sér stað frá Hringrás sem var að vissu leyti atburður sem tók tappann úr. Maður sér mun á vinnubrögðunum.“ Eiturefnavá | Raunveruleg borgaraleg hætta Viðbragð sem þéttriðið net Framlag ólíkra aðila var lykillinn að góðu viðbragði vegna mengunarslyssins Fólki var gefið súrefni og steralyf eftir slysið. Var hægt að búast við fjöldaslysi vegna eiturs?  Eiturefnaslys verður á Eski- firði og tugir almennra borgara verða fyrir eitrun. Virkja þarf ólíka viðbragðsaðila og mik- ilvægt er að allt gangi vel. Var hægt að búast við svona nokkru? Að vissu leyti – því fram að slys- inu var þetta möguleiki í skýrslu um áfallaþol. Auk þess hefur samhæfingarstöðin í Skógarhlíð tekið breytingum og slípast vel eftir Hringrásarbrunann þar sem verulega reyndi á hina ólík- ustu viðbragðsaðila Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.