Morgunblaðið - 29.06.2006, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 29.06.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 47 MINNINGAR Hreppstjóri var hann skipaður 1973 og gegndi því starfi eins og ald- ursregla leyfði. Alllengi var hann forðagæslumað- ur í vesturhluta sveitarinnar. Á sama tíma einnig í stjórn Nautgripa- ræktarfélags Ölfushrepps. Hann var lengi fulltrúi Ölfusinga á aðalfundum Búnaðarsambands Suðurlands. Ennfremur lengi deild- arstjóri í Ölfusdeild Mjólkurbús Flóamanna og fulltrúi á aðalfundum þess. Í framhaldi af þeim fundum var hann einn af níu fulltrúum Sunn- lendinga í fulltrúaráði Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík. Frá 1981 átti hann sæti í varastjórn MBF og sat þar fundi. Upp úr 1970 fór Ölfushreppur al- varlega að leita fyrir sér um mögu- leika á borun eftir heitu vatni fyrir Þorlákshöfn og nágrenni. Orku- stofnun hafði þá byrjað viðnáms- mælingar í Ölfusi. Mest beindist athyglin að Litla- landi, sex km ofan við Þorlákshöfn. Fljótlega eignaðist sveitarfélagið öll vatnsréttindi í landi jarðarinnar og um svipað leyti kom borinn Jötunn til landsins og réðust mál þannig, að á Litlalandi var boruð fyrsta holan hérlendis með Jötni og var það til- raunahola (yfir 2.000 metra djúp) sem reyndar misheppnaðist. Var því ráðið frá því að næst yrði boruð önn- ur hola þar. Jarðhitadeild Orkustofnunar gat bent á nýja möguleika í jarðhitaleit. Á svæðinu frá Hrauni að Núpum gat vel komið til greina að bora. Þetta vissu bændur og sýndu áhuga á máli þessu. Ákvað hreppsnefnd Ölfushrepps að gefa bændum kost á frumsamn- ingi um borun. Var sá frumsamningur búinn til og á einni kvöldstund höfðu allir bændur á þessu svæði skrifað undir. Næsta skref var að Orkustofnun segði til um hvar skyldi bora og var bent á ákveðinn stað. Því næst var að gera nánari samning við viðkom- andi bónda byggðan á frumsamn- ingi. Ekki náðist að gera hann. Orkustofnun benti á annan stað, eigi langt frá þeim fyrri, en í landi Bakka II. Hreppsnefndin bauð Eng- ilbert samning byggðan á frum- samningi. Samþykkti hann það at- hugasemdalaust. Var síðan borað í landi Bakka með glæsilegum ár- angri. Lífsförunautur Engilberts var Ragnheiður Jóhannsdóttir. Eitt af aðalsmerkjum þeirra hjóna var gestrisni og er þáttur eiginkonunnar eigi undanskilinn. Þar gilti einu hvort „háa eða lága“ bar að garði, heimilið var jafnt öllum opið með höfðinglegri gestrisni. Þá tóku þau hjón oft til lengri eða skemmri tíma börn eða unglinga sem vantaði skjól og umhyggju í til- veru sinni. Engilbert og Ragnheiður eignuð- ust þrjár dætur. Lífsviðurværi heimilisins var blandað bú. Eiginkonan gekk til bú- starfa til jafns við eiginmanninn og búnaðist þeim vel. Ragnheiður lést árið 1998. Sveitarhöfðingi hefur kvatt. Engilbert var ætíð sannur sam- vinnu- og félagsmálamaður. Hann var áheyrilegur fundarmaður, sem setti fram mál sitt á skýran og sann- gjarnan hátt allt til loka. Engilbert var sæmdur riddara- krossi fyrir félagsmálastörf árið 1994. Þeirri viðurkenningu hampaði hann hvorki í orði né sjón. Við Edda þökkum sæmdarhjón- unum Engilbert og Ragnheiði sér- lega góð kynni. Samúðarkveðjur. Svanur Kristjánsson. Engilbert á Bakka í Ölfusi er genginn á vit feðra sinna. Með hon- um er genginn eftirminnilegur sam- ferðamaður sem setti svipmót á samtíð sína. Ég minnist þess hversu mér þótti Engilbert áhugaverður maður, þegar ég fór sem strákur úr næstu sveit að veita honum athygli á mannamótum. Sem ungur maður mótaðist Eng- ilbert og óx upp í þeim hugsjónaeldi sem einkenndi svo marga bændur og Íslendinga um og fyrir miðja síð- ustu öld. Þeir sáu ný tækifæri í menntun alþýðunnar og samtaka- mætti fjöldans í gegnum samvinnu og nýja vélaöld sem þá fór í hönd. Ungur skipaðist hann í sveit þeirra manna sem vildu rjúfa kyrrstöðu og aldagamla búskaparhætti. Hann valdist til forystustarfa í sinni sveit, sat í hreppsnefnd og var hreppstjóri lengi. Hann sat í sýslunefnd og lagði alls staðar gott til málanna. Hann var hrókur alls fagnaðar og vin- margur hvar sem hann kom að mál- um; var mikill félagshyggju- og sam- vinnumaður, sem stóð fast að hinum miklu félagshreyfingum Sunnlend- inga, Kaupfélaginu og Mjólkur- búinu. Ef til átaka kom á fundum var hann fastur fyrir og lét til sín taka. Hann var vel máli farinn og talaði kjarnyrta íslensku og sópaði oft að honum í rökræðu, vel undirbúinn og kunni vel að léttleiki og glettni hjálpar oft málstaðnum. Það sópaði því oft að karli í ræðustól og honum fylgdi gustur geðs og gríðar þokki. Sem bóndi var Engilbert ötull og þau hjón samhent um öll framfara- mál búsins að Bakka. Ég minnist þess þegar hin mikla orka, jarðhit- inn, var virkjaður á jörð hans, þá sýndi hann best sitt hugarfar til sveitunga sinna og vaxandi byggðar í Þorlákshöfn. Þá var gerður milli hans og sveitarfélagsins tímamóta- samningur um nýtingu jarðhitans fyrir íbúa Þorlákshafnar ekki síst og sá samningur varð mörgum öðrum fyrirmynd við svipaðar aðstæður. Félagshyggja var þeim hjónum í blóð borin og þau vildu að samfélag- ið í Ölfusinu nyti góðs af þessari nýju auðlind jarðarinnar. Það er engin spurning að jarðhitinn á Bakka breytti miklu fyrir íbúa Þor- lákshafnar og Ölfusið í heild. Hann horfði síðan til nýrra tækifæra á bú- jörð sinni, svo sem fiskeldis sem þar festi rætur og þar hefur Orkuveita Reykjavíkur nú hafið risarækjueldi. Engilbert var glaðvær maður og stefnufastur í lífinu, trölltryggur vinum sínum og það var hverjum manni eftirminnilegt að sækja hann heim á höfuðbólið og njóta gestrisni þeirra hjóna. Þar skorti aldrei um- ræðuefni um landsins gagn og gæði. Ungu fólki var hann hlýr og talaði við alla sem jafningja, kynslóðabil var ekki til í hans orðabók. Ég átti hann að sem samherja og vin. Hann lá aldrei á skoðun sinni eða afstöðu, var umhugað um framfarir alls landsins og að allir þegnar þjóð- félagsins byggju við gott og batn- andi hlutskipti. Hin síðari ár dvaldi Engilbert á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafar- vogi. Þar eignaðist hann góða vini, en hugurinn var heima í Ölfusinu. Fyrir nokkru heimsótti ég hann og fór vel á með okkur. Við ræddum um þjóðfélagið, flokkinn okkar og sveit- ina kæru. Hann skenkti lífsins vatni í glös og við ræddum rök tilverunnar og áttum glaða stund saman eins og svo oft áður en um leið okkar síðustu samverustund. Nú er sól hnigin til viðar og höfð- inginn heldur á ný heim til að hvílast í þeirri mold sem hann unni svo heitt. Í svipinn finnst manni eins og skuggi falli af fjallinu hans yfir sveitina, slíkur er söknuður við frá- fall samferðamanns. En það er birta yfir lífi og starfi Engilberts og svo margt sem hann skilur eftir í minn- ingunni, sem mun gleðja okkur vini hans. Ungur má en gamall skal, segir lögmálið, því er hann kvaddur með virðingu og þökk. Fjölskyldu hans og ástvinum sendi ég samúðarkveðj- ur. Guðni Ágústsson. Í dag kveðjum við höfðingjann Engilbert Hannesson. Engilbert var sannur sveitarhöfð- ingi, ávallt hress, drífandi og fullur lífsgleði. Stutt saga varpar vel ljósi á hve skjótráður og fylginn sér Berti var. Fyrir hartnær þrjátíu árum er undirritaður var nýtekinn við starfi sveitarstjóra, kom upp sú staða að skynsamlegt þætti að Ræktunar- félagið í Ölfusi og hreppurinn legðu saman krafta sína og stæðu sameig- inlega að kaupum á vélgröfu. Það kom í hlut okkar Berta að ganga í málið. Við skelltum okkur í bæinn og stormuðum upp í Véladeild SÍS, en þegar til átti að taka var vélin ekki klár og Berti sagði að vélar- lausir færum við ekki heim. Nú var úr vöndu að ráða, en við höfðum haft spurnir af því að nýr aðili væri far- inn að flytja inn gröfur og því var brunað þangað. Vélin var til og við gátum fengið hana afhenta strax, ef við borguðum ákveðna fjárhæð. Á þessum árum voru bankavið- skipti með öðrum hætti en í dag og þar sem við vorum ekki með nægj- anlegt handbært fé á okkur, þurfti að leita nýrra leiða, því vélarlausir færum við ekki heim. En í þá daga sem í dag vissum við að trygginga- fyrirtækin ættu yfirleitt fé á lausu, svo við stormuðum á fund forstjóra hjá ákveðnu tryggingafélagi og bár- um upp erindi okkar. Málið fékk já- kvæða afgreiðslu og stuttu síðar vorum við komnir með tékkann í hendurnar. En okkur fannst af og frá að framvísa tékkanum frá þessu ágæta tryggingafyrirtæki, svo hon- um var skipt í reiðufé og mér er enn minnistæður sá svipur, er kom á framkvæmdastjóra vélasölunnar, er við opnuðum töskuna og við blasti full taska af peningaseðlum. Og heim fórum við með eina fyrstu Case-gröfu landsins. Berti var einn af þeim er gekk fram fyrir skjöldu er leit að heitu vatni fyrir Þorlákshöfn, stóð yfir. Og svo fór að borað var í hans landi og mikið vatn fékkst upp. Öll sú saga og samvinna við heiðurshjónin á Bakka, þau Ragnheiði og Engilbert, var einkar ánægjuleg og verður seint þakkað þeirra framlag og við- horf til málsins. Að sækja þau hjón heim var eins og að sækja sanna sveitarhöfðingja heim, mikill rausnarskapur og höfð- ingsbragur yfir þeim hjónum. Ég sé Berta enn fyrir mér, djarf- an í bragði, sveifla hendinni og drífa í hlutunum, því vélarlausir förum við ekki heim. Blessuð sé minning heiðurs- hjónanna á Bakka. Þorsteinn Garðarsson. Fáein orð til að minnast, þakka og kveðja langtíma góðvin, nágranna og búhöld í Ölfusinu. Hann var sannur, áreiðanlegur og traustur í öllu eins og hann var sjálf- ur þéttur og traustur að vallarsýn, fastur fyrir og ákveðinn í skoðunum, jafnframt þó opinn til umræðna, fjöllesinn og fróður – allt skyldi rétt fyrir honum. Kynni okkar urðu þó nánari á því sviði að systir hans, Jóna, sem í dag kveður bróður sinn, söng mörg ár undir stjórn okkar hjónanna í Kirkjukór Hveragerðis- og Kot- strandarsókna. Ekkert sameinar fólk á slíkan hátt sem söngurinn, og með honum kynntist ég allri fjöl- skyldunni náið, kostum hennar og manngöfgi. Tíður gestur var ég á heimili þeirra Eddu, jafnan við rausnarmót- tökur. Og sætti ég lagi að sækja þau heim um mjaltatímann til þess að fá mér spenvolga nýmjólk, þennan ljúfa drykk, sem ég ólst upp við. Þetta þótti búhöldinum einstakt er- indi, góð viðurkenning við heima- framleiðsluna og gerðum við okkur oft gaman af. Síðustu árin var hann svo ná- granni minn hér í Grafarvoginum, og gafst þá tækifæri til að hittast. Í samræðum okkar hneigði hann talið oft að óþarfasóun verðmæta, bar hag lands og þjóðar jafnan fyrir brjósti og var þannig sannur Íslend- ingur. En nú er hann farinn og ég blessa minningu hans. Kæra Jóna og stórfjölskyldan öll. Við Sólveig sendum ykkur hlýjar samúðar- og vinarkveðju. Guð blessi ykkur. Jón Hjörleifur Jónsson. Einna atkvæðamesti höfðingi Ölf- usinga á síðastliðinni öld, Engilbert Hannesson, er fallinn í valinn nærri níutíu ára eftir starfsama ævi að mikilvægum félagsmálum fyrir sveit sína og aukna fjölbreytni í atvinnu- háttum í sveitinni. Ölfusið er sennilega sú sveit á Suðurlandi sem bjargarskortur hef- ur varla orðið, þó að harðindi, gras- brestur og fjárfellir gerðu víða næstum ólíft mönnum og skepnum. Það var þetta einstaka starengi, Ölf- usforirnar í skjóli fyrir norðan áhlaupum og ábornar af flóðum úr Ölfusá, sem skapað hafa þetta næst- um óbrigðula starengi, sem varla hefur átt sinn líka annars staðar á landinu. Þessi mikla gróska og sérstaka starengi kölluðu á duglegt fólk til að setjast að við þessi árvissu slægju- lönd og tiltölulega örugga heyskap- armöguleika, og því hafa allt frá landnámsöld miklir höfðingjar og valdsmenn flust í Ölfus og orðið þar margir öflugir sveitarhöfðingjar. Þannig var Skafti Þóroddsson á Hjalla lögsögumaður lengur en nokkur annar Íslendingur, eða í 26 ár á elleftu öldinni og á Sturlunga- öldinni bjuggu um skeið í Ölfusinu þeir Tumi Sighvatsson í Arnarbæli og Gissur Þorvaldsson á Reykjum og einnig Snorri Sturluson svo nokkrir stórhöfðingjar séu nefndir. Þegar ég hóf störf sem ráðunaut- ur á Suðurlandi í ársbyrjun 1946 var mér falið af stjórn Nautgriparækt- arsambands Flóa og Ölfuss, að ferðast um Ölfusið og athuga hvort ekki væri hægt að fá almennari þátt- töku í skýrsluhaldinu þar en tekist hafði fram að því. Ég leitaði fyrst aðstoðar hjá hinum merka stór- bónda Guðjóni A. Sigurðssyni í Gufudal, en hann taldi ráðlegast að leita aðstoðar hjá ungum búfræðingi sem hefði lokið prófi í búfræði á Hvanneyri vorið áður, Engilbert Hannessyni á Bakka, en hann hefði hafið þar búskap eftir föður sinn Hannes Guðmundsson og væri með efnilegustu ungum bændum í sveit- inni og kvæntur Ragnheiði Jóhanns- dóttur frá Núpum. Ég fór að ráðum Guðjóns og fór út að Bakka og kom þar þegar ungu hjónin voru að ljúka fjósaverkunum, og eftir að ég hafði kynnt mig og er- indi mitt til Engilberts, sem var eft- irfarandi, að hann aðstoðaði mig við að fá sem flesta þeirra bænda, sem héldu ekki mjólkurskýrslur um kýr sínar, til að hefja það um næstu ára- mót í þeim tilgangi að fá meiri mjólk fyrir sama tilkostnað, eða aukinn arð af mjólkurframleiðslunni að frá- dregnum tilkostnaði. Ég fann það fljótt, að ég hafði fengið góðan liðsmann mér til hjálp- ar, þar sem Engilbert var, þar sem hann hafði brennandi áhuga á þessu málefni, og svo var hann mjög áhuga- og traustvekjandi og ljúfur í viðmóti og hið mesta prúðmenni. Við eyddum nokkrum dögum í þessar húsvitjanir í Ölfusi og alls staðar sáum við eitthvað sem mátti bæta til þess að auka arð búanna og við hrifumst oft með þegar við fund- um að við værum þarna orðnir þátt- takendur í þeirri nýsköpun, sem leit- ast var við að koma af stað í sveitum landsins á þessum árum. Ég var fyrstu 25 árin af starfs- tíma mínum nautgriparæktarráðu- nautur á Suðurlandi, en þá breyttist minn verkahringur nokkuð, en alla tíð meðan ég var ráðunautur hafði ég nokkur afskipti af nautgripa- ræktinni. Ég gerði athugun á því, að þess- um 25 árum loknum, hvaða breyt- ingar hefðu orðið á kúastofninum á þessu tímabili og mér varð hverft við þegar í ljós kom að við lok þessa tímabils mjólkaði meðalkýrin sem næst tvöfalt á við það sem þær mjólkuðu í upphafi tímabilsins. Á góðri stund minntist ég ein- hvern tíma á það við Engilbert hví- líkur árangur hefði orðið af starfi okkar við upphaf þessa tímabils. „Heyrðu nú,“ mælti þá Engilbert. „Mér fannst þetta verkefni vera bara skemmtiferð og einhver skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið við í búskapnum.“ Já, þessar miklu framfarir voru árangur mark- vissra vinnubragða samstiga bændastéttar og ráðunauta sem á þessum árum voru að breyta bú- skaparlaginu með nýrri tækni og nýjum vinnubrögðum og sú þróun er óstöðvandi og síst of hröð, því enn eru laun sveitafólksins of smátt skorin og verða að batna sem fyrst. Samstarf okkar Engilberts er nú orðið langt og ekki tök á því að telja það upp hér í smáatriðum. En smátt og smátt færðust fleiri og fleiri for- ystustörf á herðar Engilberts í bún- aðarfélagsskapnum og félagsmálum sveitarinnar. Ég man eftir því á sýslufundunum, sem við Engilbert sátum saman, hvað Engilbert barð- ist alltaf ótæpilega fyrir hinu og öðru framlagi til Þorlákshafnar og fannst mér hann vera sverð þessa nýja þéttbýlis og skjöldur og veit ég að Engilberts verður lengi minnst sem eins besta vinar Þorlákshafnar og hann skildi betur en margir aðrir hið mikla hlutverk sem bíður Þor- lákshafnar sem aðalhafnar Suður- lands. Engilbert Hannesson var mörg- um mjög góðum gáfum gæddur og nú þegar hann hverfur okkur sjón- um um stund verður hans mjög saknað af hans mörgu samstarfs- mönnum og stóru fjölskyldu. Ég hef átt mjög langt og náið samstarf við Engilbert í að minnsta kosti 60 ár og fullyrði að hann hefur öll þessi ár verið einn af mínum bestu vinum, glaður og skemmtileg- ur samstarfsmaður og eftirminnileg- ur sveitarhöfðingi hér í Ölfusi og verður lengi minnst sem slíks. Ég votta vinum og vandamönnum einlæga samúð við fráfall þessa góða og skemmtilega drengs. Hjalti Gestsson. Silungsveiði í Varmánni, anda- veiði á skurðum eða gæsaveiði á tún- unum á Bakka sem þakkað var fyrir með því að aðstoða við heyskap. Líklega hefur upphafið verið ein- hvern veginn svona. Upphafið að margra ára vinskap okkar við heið- ursbóndann og mannvininn Engil- bert Hannesson á Bakka. Við mun- um ekki alveg hvernig það byrjaði, enda skiptir það ekki máli. Þétt handabönd, rembingskossar og skemmtilegar spjallstundir hafa verið margar síðan; á mannamótum, eftir messur að Hjalla, við eldhús- borðið hjá okkur á Reykjabrautinni en þó oftast í stofunni á Bakka. Spjall um allt milli himins og jarðar en gjarnan um landsmálin, málefni sveitarfélagsins okkar, pólitík, en síðast en ekki síst um fólk. Engilbert hafði skoðanir á flest- um hlutum, rökstuddi þær af festu og var hvergi hvikað. Hann hafði líka endalausan áhuga á fólki, þekkti ótal marga og þótti ekki verra þegar uppgötvuðust vináttu- eða ættar- tengsl sem hann ekki hafði vitað um áður. Alla slíka hluti mundi hann vel. Einnig margar skemmtilegar sögur af Búnaðarþingum, úr smala- mennskum, af stjórnmálafundum eða öðrum þeim mannamótum sem hann var kallaður til í gegnum tíðina enda félagsmálamaður af bestu gerð. Það var Engilbert þungbært þeg- ar hans góða kona, Ragnheiður Jó- hannsdóttir, veiktist og lést árið 1998. Hún var hans stoð og stytta í búskapnum, bakhjarl í félagsmála- störfum hans og húsmóðir af Guðs náð á heimili þeirra á Bakka. Heim- ilið á Bakka var Engilbert griða- staður, Edda og dæturnar voru hon- um lífið sjálft. Af stolti og kærleika talaði hann ávallt um þessar fjórar konur og reyndar um afkomendur sína alla, sem hafa reynst honum sérlega vel, einkum á seinni árum þegar heilsunni hrakaði. Að leiðarlokum viljum við þakka einlæga vináttu við okkur. Hlýjar kveðjur á tímamótum, kaffibolla, koníaksdreitil eða sérrítár (sem aldrei var skorið við nögl!), sam- verustundir sem gerðu okkur ríkari. Við þökkum líka einstök elskuleg- heit við börnin okkar frá fyrstu tíð, umhyggju sem við vorum svo heppin að njóta þótt við værum algjörlega vandalaus og ekki einu sinni fram- sóknarmenn eða innfæddir Ölfus- ingar! En þannig var Engilbert Hannesson. Gerði ekki mannamun og veitti vel af manngæsku og hjartahlýju. Systrunum frá Bakka og fjöl- skyldum þeirra sendum við innileg- ar samúðarkveðjur og kveðjum ald- inn höfðingja með virðingu og þökk. Sigþrúður og Sigurður Örn, Þorlákshöfn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.